Dagur - 08.08.1974, Page 1
LVII. árg. — Akureyri, fimmtudag'inn 8. ágúst 1974 — 35. tölubláð
^odáUj 1 lutnui t\da>ié\at ?aWu AKUREYRI
FILMUhúsic
AD þjóðhátíð á Þingvöllum lok-
inni tók Olafur Jóhannesson for
sœtisráðherra á móti góðum
gjöi'um vina- og frœndþjóða,
eða tilkynningum um þær, og
hann þakltaði með ræðu. Fór
athöfn þessi fram í ráðherra-
bústaðrmm.
Laridshöfðingi Álandseyja,
Aiarik' tiágg oiom, - afhen ti skips-
líkan.
Innanríkisráðherra Bandaríkj
anna, Rogers C. B. M-ortons, til-
kynnti um peningagjöf til náms
styrkja, postulínsstyttu af vís-
undum og' sneið úr elstu trjá-
tegund heims.
Forsætisráðherra Danmerk-
ur, Paul Hartling, afhenti pen-
ingagjöf að upphæð d. kr. 250
þús. eða um 4 milljónir íslensk-
ar, til stoínunar Árna Magnús-
sonar og skýrði frá því, að
danska þingið hefði ennfremur
ákveðið að auka stofnfé „Fondet
for dansk-islanksk samarbejde“
um d. kr. 250 þús.
Samgönguráðherra Finna,
Pekka Tarjanne, tilkynnti um
peningr.gjöf að upphæð 400 þús.
finnsk mör.k, um IOV2 millj. ísl.
kr., sem ætluð er til nóms-
styrkja.
Varalögmaður Færeyja,
Jákup Lindenskov, tilkynnti
um bókagjöf og bát, átta manna
far, sem afhent var í byrjun
ógúst.
Sendiherra Hollands, Baron
W. J. O. Gevers, afhenti íslands
kort frá árinu 1666.
Póst- og símamálastjóri ír-
lands, Dr. Conor Cruise-
O’Brien, tilkynnti um gjöf íra,
sem er steinsúla til minningar
um landnám íra við. Akranes.
Dr. Paul H. T. Thorlakson af-
henti bók úr stærra safni bóka,
sem Kanadamenn mun senda
síðar.
Forsætisráðherra Noregs,
Trygve Bratteli, tilkynnti um
peningagjöf að upphæð 1 millj.
n. kr., tæpar 18 milljónir ísl.,
ætluð til ferðastyrkja, land-
spildu til trjáræktar í Noregi og
veggteppi. Enniremur tilkynnti
Halvard Mageröy prófessor um
bókagjöf i'rá norskum einka-
aðilum til stofnunar Árna Magn
ússonar og Haakon S. Mathie-
sen stórbóndi tilkynnti um fræ,
sem norskir aðilar ætla að gefa
Skógrækt ríkisins.
Sendiherra Sambandslýðveld
isins Þýskalands, Raimund
Hergt, tilkynnti bókagjöf til
Háskólabókasainsins.
Kennslumálaráðherra Svía,
Bertil Zachrisson, tilkynnti um
bókagjöf og nómsstyrkjasjóð.
Ólafur Jóhannesson iorsætis-
ráðherra þakkaði gjafirnar og
sagði m. a.:
„Við tökum þeim sem tján-
ingu um vináttu ykkar og virð-
ingu fyrir íslensku þjóðinni, og
enda þótt við metum gjafirnar
sjálfar mjög mikils, þá er okkur
enn svo farið sem forfeðrum
okkar á söguöld, að við metum
þó enn meira þá vináttu ykkar,
sem gjafirnar eru tákn um.
Okkur er tamt að vitna í Njáls
jsögu um þetta efni, þar sem
Gunnar á Iilíðarenda þakkar
Njáli á Bergþórshvoli góðar
gjafir með þessum orðum: „Góð
ar eru gjafir þínar en meira
þykir mér vert um vinfengi þitt
og sona þinna“.“ □
og frétt um annan, veiddan í
Skagafirði.
Um laxveiði almennt í sumar,
sagði veiðimálastjóri, að hún
hefði byrjað vel í sumar, en
áberandi vatnsskortur væri í
mcrgum ám og hamlaði það
veiðinni og væri hún því minni
en á sama tíma og í fyrra. Hins
vegar gæti seinni hluti veiði-
tímans bætt það upp, ef næg
úrkoma breytti ástandi veiði-
ánna til bóta.
Veiðileyfin í góðum laxveiði-
ám hafa farið upp í 300—400
dollara fyrir stöngina á dag, en
þar er eflaust ýmislegt inni-
falið, e. t. v. bifreið, aðstoðar-
maður, gisting og veitingar.
Verð á laxi er hins vegar lágt
um þessar mundir, og mun
algengt að veiðimenn fái 200
krónur fyrir kílóið í laxinum.
(Framhald á blaðsíðu 2)
Jöxunaa
Nýlega kom um það frétt í
sænsku blaði, að löxungar, fram
leiddir við víxlfrjófgun á einni
fiskiræktarstöð þar í landi, skil-
uðu sér óvenjuvel upp í fóstur-
ána, en fiskiræktarstöðin er ná-
lægt Dalelven.
í samtali, sem blaðið átti við
Þór Guðjónsson, veiðimála-
stjóra, sagði hann, að þessi víxl-
frjófgun væri nokkuð algeng,
en með þeim annmarka er áður
getur. Fyrir kæmi, að frjófgun
urriða og laxa ættu sér stað í
náttúrulegu umhverfi og sagðist
hann sjáltur hafa veitt slíkan
fisk í vatni einu á Snæfellsnesi
Sauðárkróki, 6. ágúst. Verslun-
armannahelgin var róleg hér
um slóðir og' umferð með minna
móti.
Heyskap er lokið að kalla, og
er það alveg einsdæmi, að hey-
skap ljúki í júlílok. Heyfengur
er. bæði mikill og góður.
Hér á Sauðárkróki er atvinn-
an alvæg í hómarki. Aflinn er
mikill og fólkið í írystiliúsunum
hefur nóg að gera og e. t. v.
FLESTIR þeir, sem fást við
ræktun laxfiska, lóta sig
dreyma um nýja tegund, af-
kvæmi laxa og urriða. Oft hefur
tekist að framleiða slíka fiska
og má kalla þá löxunga, en liins
vegar hefur engum ennþá tekist
að fá hina nýju tegund svo full-
komna, að hún tímgist, og því
er löxungurinn dæmdur úr leik
í samkeppni náttúrunnar.
meira en það. Þá er mjög mikil
vinna á öllum verkstæðum og í
öðrum iðnaði, ennfremur við
húsbyggingar.
Þetta eru góðir atvinnutímar,
miklir hátíðartímar, en að öðru
leyti rólegt, slétt og fellt, á yfir-
borðinu að minnsta kosti.
Messað var í Ábæ í Austurdal
um helgina, en þar fer ein guðs-
þjónusta fram ó ári hverju. G.O.
Sveinn Kristjánsson,
frarnkvæmdaxtjóri mótsins.
íbúðum á DsSvík
Dalvík, 6. ágúst. Hér á Dalvík
hefur verið byrjað á 30 íbúðum
og er það nokkuð mikið miðað
við íbúa, sem síðasta desember
töldust 1123.
Það helsta, -sem nú er á dag-
skrá hjá Dalvíkurkaupstað er
ERÁ LÖGKEGLUMI
Á AKCSEYRI
ALLMIKID'var um öl’vurí um
vprslunarmannahelgina og má
segja nýtingu- langageymsiunn-
ar með meSta .m'ófi, en þá v.ar
41 settur í steininn. Flestir
komu þeir frá bindindismótinu
á Hrafnagili, því bar var hreins-
að nokkuð vel til á fyrsta dans-
leiknum.
Af umferðarslysum má nefna,
að skammt frá Krossum á Ár-
skógssirönd valt bíll út í stóran
skurð á föstudáginn og hvarf
þar. En nærstaddur bóndi sá til
ferða hans og gerði aðvart. Oku-
maðurinn, sem var einn, var
fluttur í sjúkrahús, mun ekki
hafa slasast að ráði, en er grun-
aður um ölvun við akstur. Öku-
maður og bíll voru úr Skaga-
firði.
Sama dag valt bíll við Lauga-
land á Þelamörk. Bíllinn
skemmdist mikið en maðurinn
slapp ómeiddur.
Og enn vildi það til á Vaðla-
heiðarvegi, að karl og kona óku
út af vegi. Bæði sluppu þau við
meiðsli. Okumaður var próflaus.
(Samkvæmt samtali við lög-
regluvarðstjóra á þriðiudag).
gatnagerð og viðgerð á eldri
götum. Sveitarfélagið hefur í
hyggju að gerast aðili að sam-
tökum norðlenskra sveitar-
félaga um varanlega gatnagerð.
Hvort sett verður varanlegt slit-
lag á götur hér í sumar eða
haust, er enn ekki fullráðið, en
þá verða a. m. k. götur búnar
undir gex:ð varanlegs slitlags.
_ lipruð. hefur v.erið ein holá til -
viðbotar í Hamarslandi, og- er
það tiIraunáborLm, Er í ráði að
bora vinnsluholu í haust og
verður það væntanlega gert
fyx’ir veturinn. ■ -
. Haldið er áfram við byggingu-
heimavistar gagnfræðaskólans,
sem fleiri sveitarfélög, eða
Svarfaðardals-, Árskógsstrand- -
ar- og Hríseyjarhreppur, eiga
óbeina aðild að.
Byrjað er á verkamannabú-
stöðum, sex íbúða húsi.
í Svarfaðardal munu flestir-
langt komnir með heyskapinn
og sumir búnir. Spretta var góð,
svo og nýting. V. B.
Frá Skaftafelli í Öræfum. — Sjá grein um hringveginn í opnu blaðsins.
BINDINDISMÓTIÐ HRAFNAGILI
ÞRIGGJA daga bindindismót
var haldið á Hrafnagili í Eyja-
firði um síðustu helgi. Hófst það
á föstudagskvöldið með dans-
leik í þúsund manna tjaldi.
Að bindindismótinLi, sem er
árlegur viðburður í seinni tíð,
stóðu sem fyrr þessir aðilar:
Ungmennasamband Eyjafjarð-
ar, Héraðssamband Þingeyinga,
Æskulýðsfélag Akureyrar-
kirkju, Góðtemplarareglan og
íþróttabandalag Akureyrar. —
Framkvæmdastjóri þessa móts
var Sveinn Kristjánsson, Akur-
eyri, og er þetta fjórða bindind-
ismótið, sem hann stjórnar.
Blaðið spurði Svein um mót
þetta og sagðist honum svo frá:
Við fengum góða aðstöðu í
heimavist Hrafnagilsskóla og
þakka ég alveg sérstaklega hús-
verði skólans fyrir góða sam-
vinnu. Þá komum við upp 1000
manna samkomutjaldi og marg-
víslegum leiktækjum fyrir
börn. Þar gerði trúÖLirinn Aðal-
steinn Bergdal mikla lukku, fór
með hunduð barna niður á tún
og lék við þau klukkustundum
saman. Þá var hestaleigan mjög
vinsæl og annaðist Karl Ágústs-
son hana. Omar Ragnarsson og
Jón Gunnlaugsson skemmtu við
mikinn fögnuð og Pelikan lék
fyrir dansinum. Skemmtiatriðin
(Framhald á blaðsíðu 5)