Dagur - 30.07.1975, Blaðsíða 4
4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Síinar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓHANN K. SIGURÐSSON
Prentvcrk Odds Bjömssonar h.f.
Skiptingin
í þjóðmálaumræðum hefur annað
aðal málgagn Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík sýnt sérstakan áhuga á að
útrýma einni stétt manna í landinu,
bændum, og kaupa búvörur frá út-
löndum. Umræður um málið hafa
verið fremur þröngar og að því leyti
marklausar að yfirlit um skiptingu
þjóðarinnar í stéttir og starfsgreinar
hefur algerlega vantað og þar með
nauðsynlega víðsýni yfir það stór-
mál, hver sé æskileg þróun í skipt-
ingu vinnuaflsins í landinu.
Við landbúnaðinn vinna 10,2%,
við íiskveiðar og fiskvinnslu 13%,
við iðnað, annan en fiskvinnslu,
17,7%, við byggingar húsa og aðra
mannvirkjagerð 12%, við samgöngu-
mál 8,6% og við verslun 18,6%. Við
þjónustustörf alls konar vinna
19,9%. Þessar tölur bregða uþp
íuynd af skiptingunni og kemur það
t. d. fram, að við landbúnaðinn og
íiskveiðarnar og fiskvinnslu vinnur
aðeins 23,2% en við verslunarstörf
og viðskipti 18,6%, og í þjónustu-
greinunum hvorki meira né minna
en 19%, og hlýtur það að vekja
menn til sérstakrar umhugsunar.
Menn hljóta að spyrja, hvort þessi
skipting sé eðlileg, nauðsynleg eða
liagkvæm, og hvort búast megi við
því að skipting af þessu tagi geti fært
þjóðinni verulegar lífskjarabætur,
og hvort ekki sé nauðsynlegt að
stærri hluti vinnuaflsins sé í landbún
aði, sjávarútvegi og iðnaði en nú er.
Líklegt er, að flestir komist að þeirri
niðurstöðu, að þjóðinni sé það liag-
kvæmara að mun fleiri stundi þær
atvinnugreinar sem annað hvort
skapa raunveruleg verðmæti eða
spari innflutning þeirra. f leit að
skynsamlegri nýtingu vinnuaflsins
en nú er, hljöta flestir að staðnæmast
við þjónustugreinarnar og að þar
megi fækka, og flestir hljóta einnig
að staðnæmast við framleiðslugrein-
arnar, landbúnaðinn, sjávarútveginn
og iðnaðinn, í leit að þeim atvinnu-
greinum, sem efla ber svo að meira
verði til skiptanna.
Það er eðli málsins samkvæmt að
liafa uppi umræður um liagkvæmni,
þegar skiptahlutur er skertur, og á
það jafnt við hjá fjölskyldu og
heilli þjóð. Ekki lætur það sig án
vitnisburðar ef heimilistekjur
minnka um 29% á einu ári. En það
er einmitt þetta, sem hefur gerst á
þjóðarbúinu, einkum vegna þeirra
breytinga á viðskiptakjörum, að ís-
lenskar vörur hafa lækkað í verði
erlendis og erlendar vörur hækkað í
innkaupi. Ekkert svar við þessari
þróun er sjálfsagðara en efling hinna
þriggja aðal atvinnuvega. □
Kæru bræður og systur. Ég vil
fyrst þakka fyrir þau hlýlegu
orð sem til mín hafa verið töluð.
Mér var sagt að þessi kæri
bróðir sem flutti bænina áðan
væri formaður K.F.U.M. For-
maður K.F-U.M. í heimalandi
mínu, Rúmeníu, var dæmdur í
20 ára fangelsi fyrir það eitt að
vera formaður kristilegs félags-
skapar. Ég er formaður félags-
skapar sem heitir „Jesús til
kommúnistaheimsins“. Það er
félagsskapur sem færir ofsótt-
um kristnum mönnum í löndum
kommúnista hjálp. Við smygl-
um biblíum og öðrum kristi-
legum bókmenntum til þeirra.
Við útvörpum fagnaðarerindinu
á móðurmálum þeirra. Við
hjálpum einnig fjölskyldum
kristinna píslarvotta. Hundruð
þúsunda kristinna manna eru í
fangelsum kommúnista í dag.
Milljónir þeirra hafa verið tekn-
ir af lífi. Og margir úr fjöl-
skyldum þeirra líða hungur.
Mörg lönd hafa hlotið forræði
kommúnista undanfarið. Og
eins og íslendingar vita eru
lönd kommúnista mörg.
í þorpi nokkru í Eþíópíu sem
heitir Voki Deva umkringdu
liðssveitir kommúnista kirkj-
una á sunnudagsmorgni og
drápu alla sem voru þar. Karl-
menn, konur og börn. Þetta
gerðist meðan á stríði Eþíópíu
og Eritreu stóð. Mundum við
fara í kirkju ef við ættum á
hættu að vera drepin fyrir það?
í Laos hertók hópur Víet Kong
manna þorp nokkurt á sunnu-
dagsmorgni. Þeir tóku Krist-
mynd sem var á altarinu og
settu hana á þröskuld kirkj-
unnar. Þeir miðuðu byssum á
hina kristnu og skipuðu þeim
að fara út úr kirkjunni og
hrækja um leið á andlit Jesú.
Og hver sá sem hrækir á Krist-
myndina er frjáls ferða sinna.
En hver sá sem ekki hrækir
verður skotinn- Hvað hefðir þú
gert? Við svona vandamál urð-
um við að stríða heima í
Rúmeníu. Ef þú ferð á sam-
komu í rúmönsku neðanjarðar-
kirkjunni er óvíst hvort þú
kemur heim aftur eða ferð beint
í fangelsi.
Ef þú hefðir verið í Laos, í
þessari kirkju og verið gefnir
þessir tveir valkostir: Að
hrækja á Jesú, eða deyja. Hvað
myndir þú hafa gert? Það er
auðvelt að syngja kristna
söngva. Það er einnig auðvelt
að hlýða á prédikun. Það er
einnig auðvelt að gefa í safn-
aðarstarfið. Það er líka auðvelt
að breyta rétt gagnvart Kristi.
En að deyja fyrir hann? Mund-
um við vera tilbúin til að
deyja? Jesú sagði að við ættum
að elska Guð af öllu hjarta, af
allri sálu, það þýðir að elska
hann eins og hann elskar okk-
ur. Hann elskaði okkur allt til
dauða á krossinum. í hvert sinn
sem ég kem inn í kirkju og
horfi á krossinn, þá minnist ég
þess að hann elskaði mig allt til
dauða. Og nú eru það hinir
kristnu í Laos, þar sem þeim
voru gerðir tveir kostir: Að
hrækja á mynd Jesús, eða
deyja. Hvað myndir þú hafa
gert? Og nú skal ég segja ykk-
ur hvað gerðist í þessari kirkju.
Margir hræktu á Jesú. Rétt
áður höfðu þeir verið til altaris,
sungið að þeir elskuðu hann og
síðan hræktu þeir á hann til
þess að deyja ekki. Hefðir þú
verið einn þeirra? Svo kom röð
in að 16 ára stúlku. Hermenn-
irnir miðuðu á hana byssu og
henni var sagt að hrækja. Hún
fór að gráta og sagði: „Ég get
ekki hrækt á mynd hans, ég
elska hann af öllu hjarta mínu.“
Og hún kraup niður og þurrk-
aði hrákann af myndinni með
ermi sinni. Þegar hún hafði
verið skotin féll hún fram á
myndina af þeim, sem hún
elskaði. Þetta eru þeir kostir
sem við eigum í löndum
kommúnista-
Fjórði hver maður f heimin-
um er Kínverji. 800 milljónir
Kínverja. Guð elskar Kínverja
mjög mikið. Það sést best á því
hvað hann skapaði marga. 800
milljónir. Öllum kirkjum í Kína
hefur verið lokað. Og Kínverj-
um voru gefnir þeir kostir, að
hrækja framaní Jesú, eða deyja.
í Norður Kóreu hefur sérhver
sá er játað hefur nafn Krists
verið drepinn.
Skyldi einhver ykkar hafa
heyrt þessi nöfn- Margareta
Morgan og Minka Handskamp.
Þær hafa nýlega verið drepnar
af skæruliðum kommúnista í
Thailandi. Við vitum ekki einu
sinni nöfn allra. Þetta voru ung
ar stúlkur sem áttu unnusta og
bjarta framtíð. En þær elskuðu
Krist svo heitt, að þær fóru frá
heimalandi sínu til þess að þjást
og deyja með því að boða orð
Krists á slóðum skæruliða
kommúnista. Hvers vegna elska
þær Krist svo mikið? Ég er
Gyðingur og ólst upp án þess að
vita nokkuð um Krist. En á
íslandi og í öðrum kristnum
löndum lýður kristinndómurinn
mikinn skaða. í skólunum
kynnumst við svolítið kristn-
inni og það virkar eins og bólu-
efni. Það vita allir hvernig bólu
efni virkar. Við fáum lítinn
skammt af veirum í okkur og
verðum síðan ónæm fyrir við-
komandi veiki. Eins er með lítil
börn á íslandi. Þau fá svolítinn
skammt af kristni, sem virkar
eins og bóluefni gegn hinum
raunverulega kristindómi. Já
ég veit hvað kristindómur er.
En við getum ekki skilið kristin
dóminn. Við öðlumst ekki full-
komna þekkingu á honum. En
við veitum honum viðtöku fagn
andi. En við getum orðið svo
vön honum, að við hirðum ekki
um að veita honum viðtöku. Ég
var Gyðingur og kynntist krist-
indómnum ekki. Hann var al-
gjörlega nýr fyrir mér. Og þá
skynjaði ég fegúrð hans- Svo nú
get ég skilið þá sem þjást og
deyja fyrir hann.
Það fegursta í kristninni er að
finna í tveimur versum sem
ekki eru í Biblíunni. Eitt vers,
sem ekki er í Biblíunni og er
mjög fagurt segir frá því að á
meðan Jesú lifði hér á jörð
spurði hann aldrei neinn um
hvaða syndir hann hefði drýgt,
hversu margar eða alvarlegar
syndir eða gegn hverjum. Hann
spurði engan um syndir hans.
Hann er sá nærgætnasti maður
sem nokkurn tíman hefur lifað
á jörðinni. Hann er vinur okk-
ar. Hann vill ekki vita um það
sem miður fer. Hann elskar
okkur eins og við erum. Hann
spurði engan um syndir hans.
Annað athyglisvert vers, sem
stendur heldur ekki skráð í
Biblíunni er að á meðan Jesú
lifði hér á jörðinni, var enginn
sem bað hann fyrirgefningar.
Enginn sagði nokkurn tíman
við hann, Jesú viltu fyrirgefa
mér. Það var aldrei sagt við
hann. ég verð að biðja þig að
afsaka. Síðasta kvöldið flýðu
postularnir. Pétur afneitaði hon
um. Síðan reis Jesú upp og kom
til lærisveinanna og það hefði
verið fallegt ef postularnir
hefðu sagt við hann: Fyrirgefðu
okkur. En það var enginn sem
sagði það. Vegna þess að frá
andliti hans stafaði svo mikil
elska og gæska að þeir gerðu
sér ljóst að fyrirgefningin var
sjálfsagður hlutur. Hann var
kærleikurinn holdi klæddur.
Hann elskaði okkur svo mikið
að hann kom frá himni og fædd
ist í jötu og lifði sjálfur lífi þján
inga- Hann lifði það að vera
hýddur og krossfestur til þess
að leysa okkur frá syndum
okkar og búa okkur stað á
himni í hinni fögru paradís. Og
hvernig er það svo hægt að
elska ekki slíkan. Ég veit um
paradís, sem ekki er nefnd í
Biblíunni. Ég veit um hana því
að ég hef verið þar. Ég hef séð
paradís.
Fyrstu fangavistarár okkar,
þegar hver var einn í fanga-
klefa 10 metrum undir yfirborði
jarðar. Við sáum aldrei sólina
eða tungliö. Ekki heldur snjó,
blóm eða stjörnur. Við höfðum
heldur ekki Biblíuna eða neina
aðra bók. Ég sá ekki barn í 14
ár. Ég sá heldur ekki konu í 14
ár. Við vorum barðir hræði-
lega. Það fara hræðilegar pynt-
ingar fram í fangelsum komm-
únista. Kristnar konur eru
færðar úr fötunum og hendur
þeirra bundnar fyrir aftan bak
þannig að þær geti enga björg
sér veitt. Síðan er snákum
sleppt undir nærklæði þeirra.
Við getum reynt að hugsa okk-
ur hvernig það er að hafa lif-
andi snáka skríðandi innan-
klæða. Munnur okkar var opn-
aður með valdi og miklu af salti
hellt uppí hann. Og síðan var
okkur haldið klukkustundum
saman án þess að fá vatnsdropa.
Það er ógerlegt að ímynda sér
hvernig það var- En þegar það
var erfiðast birtist engill. Þarna
er mynd af engli (bendir á
skírnarfont Akureyrarkirkju).
Englar eru ekki aðeins í sögum.
Þeir eru ekki eingöngu búnir
til, til þess að segja börnum frá
þeim. Englarnir eru raunveru-
legir. Það eru margir englar hér
inni í kirkjunni núna. Það er
ekki aðeins þessi úthöggni
(skírnarfonturinn). Það eru
alltaf englar í kringum altarið
og sérhvert okkar hefur sinn
verndarengil. Og englar okkar
voru með okkur í fangaklefun-
um. Og þegar þjáningin var
hræðilegust, þá lyfti engill tjald
inu svolítið. Tjaldinu sem skilur
okkur frá ríki Guðs. Og við
sáum ólýsanlega fegurð í þess-
um dimmu fangaklefum. Og við
heyrðum hljómlist, sem er
fremri öllu sem hægt er að
heyra hér á jörð. Fangelsi
kommúnista varð paradís vegna
þess að Jesú var með okkur og
englarnir voru með okkur- Við
hefðum viljað syngja Guði lof,
en kommúnistarnir höfðu ekíd
látið okkur hafa píanó eða orgel
í fangaklefana. En þeir höfðu
samt verið mjög góðir. Þeir
höfðu sett járnhlekki á hendur
okkar. Og hlekkirnir eru ágæt
hljóðfæri. Við gátum sungið.
(syngur hluta af „Guð í hæst-
um hæðum“). Hlekkirnir urðu
að hljóðfærum af því að Jesú
var með okkur og af því að við
höfðum englana með okkur. Og
Guð breytti kommúnistafangels
inu. Hann breytti því í brot úr
paradís.
Ég er ekki hér til að segja
ykkur um þá sem hafa nautn af
því að kvelja aðra. En slíkar
sögur gerast í löndum kommún-
ista. Ég er komin til þess að
segja ykkur um sigur trúar-
innar. Segja ykkur að' Jesú gef-
ur kraft til að sigrast á hverju
sem er. Bræður og systur okkar
f kommúnistalöndunum þjást
mjög mikið. Þess vegna hjálp-
um við þeim með starfinu okk-
ar, Jesús til heims kommúnista.
En þeir geta samt hjálpað okk-
ur miklu meira. Þeir geta hjálp-
að okkur til þess að lifa raun-
verulega kristnu lífi. Lífi þar
sem þú ert tilbúin að deyja
fremur en að hrækja í andlit
Krists.
Ég hafði verið 8 ár í fangelsi
kommúnista og lifað þar marga
erfiðleika. í fangelsum í
Rúmeníu hafa kristnir menn
verið neyddir til þess með pynt-
ingum, að borða saur sinn og
þvag- Vinur mins, kaþólskur
prestur, sem var orðimi hálf
vitstola eftir pyntingar var skip
að á fætur á sunnudagsmorgni
og honum fenginn diskur með
saur og bikar með þvagi. Hann
var neyddur til að hafa altaris-
sakramenti. Og hann sagði
„þetta er líkami mis, þetta er
blóð mitt.“ Mörgum slíkum
heimskubrögðum er beitt.
Kommúnismi er frá djöflin-
um. En Kristur er góður og
hann varðveitir tnina. Eftir átta
ár innan fangelsisveggjana kom
einn foringi kommúnista til
þess að yfirheyra mig. Hann
spurði um aðra leiðtoga neðan-
jarðarkirkjusnar, hverjir þeir
væru Hvar kristileg rit væru
prentuð leynilega? Hvar sam-
komustaðir okkar væru? o. s.
frv. En þegar hann hafði spurt
mig, þá sagði ég við hann. „Vild
ir þú vera svo vænn að leyfa
méi' að spyrja þig?“ „Já, gjörðu
svo vel.“ Ég spurði hann, „hef-
ur þú nokkurn tíma orðið ást-
fanginn?“ Og hann spurði hvað
ég meinti með þessari spurn-
ingu. Og þá sagði ég. „Ef þú
elskar einhvern af öllu hjarta
þínu þá væri kærleikstilfinning
Richard Wurmbrand.
w—iffmnrriii m n i uiirqHw iniu>ea»
RICHARD WURMRRAND:
Ræða flutt í Akur-
eyrarkirkju 3. júní
Texti: Matt. 22, 35-40
þín svo mikil að þú hirtir ekk-
ert um það sem ég • hefði gert.
Þegar ég var ástfanginn af kon-
unni minni, þá var ég ekki að
hugsa um syndir einhverra
annarra. Ég hugsaði dag og nótt
um fallegu brúðina mína og þú
ættir lieldur að elska Jesú af
öllu hjarta og gleyma hvað við
og þessir hinir höfum gjört.“ Þá
sagði hann „það hefur aldrei
neinn svarað mér þannig." En
þá segi ég. „Ég svara þér
svona “ Og ég sagði honum sög-
una um Jesú. Þessi lögreglu-
foringi kommúnista snerist til
trúar og hann gerði allt sem
hann gat til að fá mig lausann
úr fangelsinu. Og honum tókst
að fá mig leystann. En kommún
istarnir komust að því og settu
hann í fangelsi. Hann fórnaði
lífi sínu fyrir mig. Síðan varð
hann að losna úr fangelsinu.
Við hjónin hugsuðum okkur að
gefa honum brauðbita. Og dag-
inn eftir að hann losnaði, þá
fékk hann svolitla peninga hjá
einhverjum og færði mér blóm.
Hann sagðist vera kominn með
þetta til mín því ég hefði gefið
sér þau forréttindi að líða fyrir
þennan fagra málstað.
Við óttumst öll þjáningar. En
þjáningin getur verið vinur
okkar. Jesú frelsaði okkur frá
þjáningu.
En nú ætla ég að segja ykkur
eina sögu enn. Kristinn maður
stóð frammi fyrir lögreglufor-
ingja kommúnista. Hann var
pyntaður til að skýra frá leynd-
ardómum Neðanjarðarkirkjunn
ar. En hans neitaði. Honum var
hótað því að hann og öll fjöl-
skylda hans yrði handtekin og
send í útlegð til Síberíu þar
sem þau yrðu ein í kuldanum.
Kristni maðurinn brosti og
sagði. „Foringi, hvert getur þú
sent mig, öll jörðin er föður
míns? Hvert sem þú sendir mig
verð ég á jörð föður míns.“ En
þá hótaði foringinn því að taka
allar eigur hans eignarnámi.
Hinn kristni svaraði, „það er
allt í lagi því minn fjársjóður
er á himni, ef þú átt nógu stór-
an stiga til að ná til himins, þá
leyfi ég þér að taka allar eigur
mínar.“ Þá reiddist foringinn
mjög og hvaðst skjóta hann- En
hinn kristni brosti ennþá og
sagði, „ef þú tékur mitt jarð-
neska líf þá hefst hið raunveru-
lega líf mitt.“ Þá hrópaði for-
inginn. „Allir þið kristnu
heimskingjar, þið 'viljið deyja
því þið trúið að þið farið til
himna, þess vegna skjótum við
ykkur ekki, heldur lokum við
ykkur einsömul inni í fanga-
klefum, bak við læstar dyr og
járnrimla og leyfum engum að
heimsækja ykkur.“ Hinn kristni
maður svaraði. „Ég á einn vin,
sem getur farið gegnum læstar
dyr og kemst framhjá járnriml-
um. Þú getur ekki útilokað mig
frá kærleika Krists, það er ekki
heldur hægt að aðskilja þig frá
kærleika Krists.“
Jesú Kristur elskar fslend-
inga. Núna er ég að lesa Passíu-
sálma Hallgríms Péturssonar.
Ég hef aldrei lesið jafn fallegan
kristilegan skáldskap. Guð elsk-
ar þig einnig. Þú getur hjálpað
börnum kristinna píslarvotta
með því að styrkja starfsemi
okkar. En þau geta hjálpað þér
mikið meira. Þau geta kennt
þér að lifa eftir raunverulegum
kristnum kærleika. Þannig að
þú getir svarað freistaranum á
sama hátt og kristni maðurinn
óðan svaraði kommúnistafor-
ingjanum. Öll jörðin er föður
míns. Mínir fjársjóðir eru á
himni. Þegar ég dey þá hefst líf
mitt og ég á vin sem ekki er
hægt að skilja mig frá. Taktu á
móti Jesú sem vini. Veittu hon-
um inngöngu í hjarta þitt. Megi
Jesú verða Drottinn á heimil-
um ykkar- Megi Jesús verða
Drottinn íslands. □
Húsmæðraorlof fyrir
allt Norðurland
Samband norðlenskra kvenna
hélt aðalfund sinn í Hrafnagils-
skóla í Eyjafirði dagana 10.—11-
júní sl„ í boði Héraðssambands
eyfirskra kvenna. Mættu þar
fulltrúar frá öllum kvenfélaga-
samböndum á Norðurlandi.
Á fundinum voru tekin til
umræðu mörg áhugamál norð-
lenskra kvenna, svo sem full-
orðinsfræðsla, heimilisiðnaður,
garðyrkja og fleira, og margar
ályktanir gerðar.
Á vegum sambandsins hefir
verið tvö undanfarin sumur
rekið umfangsmikið húsmæðra-
orlof fyrir allt Norðurland, á
Laugalandi í Eyjafirði, og verð-
ur þeirri starfsemi haldið áfram
nú í sumar.
íslendingar búi einir
að veiðiréttindunum
Á fundi sínum nýlega sam-
þykkti miðstjórn Alþýðusam-
bandsins samhljóða:
„Miðstjórn Alþýðusambands
íslands lýsir fyllsta stuðningi
sínum við þá ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar að færa fiskveiði-
landhelgina út í 200 mílur frá
grunnlínum. Telur miðstjórnin
þessa ákvörðun hafa verið full-
komlega tímabæra og lífsnauð-
synlega til verndar fiskistofn-
unum, og þar með efnahagslífi
þjóðarinnar.
Miðstjórnin bendir jafnframt
á, að nú er svo nærri fiskistofn-
unum á íslandsmiðum gengið,
að útfærslan getur ekki náð til-
gangi sínum nema íslendingar
einir búi að veiðiréttindum inn-
an 200 mílna markanna.“ □
Þá fór á síðastliðnu sumri, á
vegum sambandsins, hópur af
' unglingum frá Norðurlandi á
gai'ðyrkjunámskeið í Hvera-
gerði, og nú í sumar fer hópur
af húsmæðrum á samskonar
náfnskeið.
Fundurinn samþykkti að mæl
ast til þess við öll kvenfélög á
Norðurlandi að gera á næstu 2
árum sameiginlegt átak til að
styrkja Sólborgarhælið á Akur-
eyri, sem nú er í sárri þörf fyr-
ír aukið húsnæði og margskon-
ar búnað og tæki.
Að kvöldi fyrri fundardags
sátu fundarkonur rausnarlegt
kvöldverðarhóf að Hótel KEA,
í boði KEA. Að því loknu skoð-
uðu þær vistheimilið á Sólborg
og drukku þar kvöldkaffi.
Seinni fundardag lauk fund-
inum með skemmtun í Lauga-
börg og kaffisamsæti í boði
Héraðssambands eyfirskra
kvenna, þar sem mætti fjöldi
fólks úr nágrenninu.
Stjórn sambandsins skipa:
Emma Hansen, Hólum, formað-
ur, Guðbjörg Bjarnadóttir, Ak-
ureyri, gjaldkeri og Elín Ara-
dóttir, Brún, ritari.
(Fréttatilkynning)
Bjarni Kristinsson
Fæddur 30. des. 1916 - Dáinn 15. júli 1975
Mig setti hljóðan er ég fregnaði
sl. þriðjudagskvöld að Bjarni
vinur minn Kristinsson væri
dáinn. Að vísu má segja að and-
lát hans hafi ekki borið að fyrir-
varalaust, því hann hafði verið
sjúkur um nokkurra mánaða
skeið, en sl. mánudag fékk ég
þær fregnir af honum, þai' sem
hann lá á Landsspítalanum, að
hann væri nokkru betri. Von-
aði ég þá að heilsan væri að
koma á ný, og hann gæti innan
tíðar gengið glaður og hress að
sínu starfi-
En svo varð ekki. Á þriðju-
dagskvöld var hann allur, horf-
inn á vit feðra sinna.
Leiðir okkar Bjarna lágu
fyrst saman fermingarárið okk-
ar 1930. Unnum við þá baðir við
fiskverkun út á Gleráreyrum,
hann sunnan við læk, en ég
norðan við, og síðan á íþrótta-
vellinum á kvöldin, þar sem við
öttum kappi saman, hann í K.A.
ég í Þór.
Strax á unglingsárum Bjarna
kom i ljós hversu afburða dugn-
aðar- og drengskaparmaður
hann var. Hann gekk aldrei
hálfvolgur að neinu verki. Ég
Frá UppSýsingaþjónusfunni
Útflutningur landbúnaðar-
afurða.
Á síðastliðnum vetri sam-
þykkti sænska ríþisstjórnin að
leyfa aukinn innflutning á dilka
kjöti frá íslandi án innflutnings
gjalds. Undanfarin ár hefur
fengist leyfi til að flytja inn 500
Framkvæmdir að hefjast
Á Visthéimilinu Sólborg á Akur
eyri verður unnið að sjúkra-
deild fyrir um 20 millj. kr. nú
í sumar. Jarðvinna er þegar
hafin, en síðan verður bygging-
in boðin út, en leyfi til fram-
kvæmdanna hafa dregist úr
hófi fram.
Þá hefur Sólborg keypt hús-
eignina númer 32 við Oddeyrar
götu og er ætlunin að þar dvelji
það fólk, sem er sæmilega sjálf-
bjarga og húsnæðið hrekkur til.
Þrengsli eru svo mikil á vist-
heimilinu að jaðrar við neyðar-
ástand. Þar eru nú 56 manns
innritaðir í fulla vist og nokkrir
í dagvist að auki. Nýi staðurinn
við Oddeyrargötu rúmar senni-
lega 8 vistmenn.
Margir eru á biðlista Vist-
heimilisins Sólborgar og er því
stækkun brýn. Geta má þess,
að hinir 56 vistmenn eru í hús-
næði, sem upphaflega var ætlað
fyrir 32. □
tonn af dilkakjöti héðan, en í ár
mun innflutningur fást fyrir
650 tonnum án innflutnings-
gjalds-
Ennfremur hefur verið sam-
þykkt af sænsku ríkisstjórninni
að leyfa innflutning á 100 ís-
lenskum hestum án innflutn-
ingsgjalds.
Ennþá eru greiddir verulegir
tollar af innfluttum íslenskum
ostum þar í landi, en unnið er
að því að fá þá lækkaða eða
afnumda.
Margt bendir til þess að auk-
inn eftirspurn verði á íslensku
dilkakjöti í Noregi í ár og enn-
fremur er reiknað með að verð-
ið hækki þó nokkuð miðað við
það sem var greitt fyrir kjötið
á síðastliðnu hausti. Gert er ráð
fydir að niðurgreiðslur á dilka-
kjöti lækki um N. kr. 2,00 á kg
og þessi hækkun mun koma
fram { verði íslenska dilka-
kjötsins.
hefi aldrei þekkt nokkurn
mann er hefir verið eins hjálp-
samur við náungann og Bjarni
var. Oft gekk hann til manna,
er hann vissi að voru að byggja
sér íbúð, tók þá til hendinni til
hjálpar, á kvöldin og um helg-
ar, og það munaði um piltinn.
Ætíð glaður og reifur, hafði
hressandi og góð áhrif á alla er
í kringum hann voru. Varð ég
þessarar hjálpsemi Bjarna að-
njótandi sl. vetur í ríkum mæli,
sem ég stend í þakkarskuld við
hann fyrir.
Ég vil nefna eitt lítið dæmi
um hjálpsemi Bjarna. Nágranni
hans hugðist reisa fánastöng á
lóðinni hjá sér. Stöngin var kom
in heim á lóð og nágranninn fór
í ferðalag. Er hann kom heim
aftur var búið að steypa stöng-
ina niður og reisa hana. Þarna
var Bjarni að verki, hann sá að
þetta þurfti að gera og þá var
að rjúka í það-
Bjarni var einstaklega barn-
góður maður. Barnabörnin hans
elskuðu afa sinn meira en
nokkurn annan og vildu helst
alltaf vera hjá honum. Hann
var líka ólatur að leika og tala
við þau og hafði þau með sér er
hann fékk sér göngutúr.
Við höfum öll misst mikið, er
Bjarni er horfinn. Mestur er þó
söknuðurinn hjá eiginkonu og
börnum. Ég votta þeim mína
dýpstu samúð um leið og ég
kveð þennan einstaka dreng-
skaparmann.
Sigm. Bj.
- Gróðurskemmdir . .
Enn um kenningar
dr. Helga Péturss.
Nyalsinnar, telja að það sé nauð
synlegt að rannsaka drauma- ■
heiminn, og gera sér grein fyrir
hvaðan draumarnir eru til-
komnir. Þá opnast ný og víðáttu
mikil leið að dularheiminum,
sem við teljum að er ekki dular
fullt lengur. Og segjum hik-
laust, að það sem margir hafa
haldið vera andaheim er enginn
andaheimur heldur framlíf að
holdi og blóði á öðrum stjörn-
um.
Þegar maðurinn dreymir, þá
hefur hann hugar-, sjón- og til-
finningarsamband við einhvern
annan (draumgjafan) sem lifir
drauminn, sá hinn sami, er oft-
ast á einhverri annari frumlífs
eða framlífsstjörnu, en stund-
um er draumgjafinn frá þessari
jöi'ðu (Tellus) sem er frumlífs-
jörð. Ef dreymandinn er að
horfa í spegil þá sér hann ekki
sjálfan sig heldur draumgjafan-
Þegar hann vaknar og segir frá
draumnum, þá talar hann um
að hann hafi litið öðruvísi út í
draumnum. Hvort heldur, sem
er, að dreymandinn hafi sarm
band við frumlífs eða framlífs-
jörð, þá sér hann menn og dýr
með líkamsbyggingu að holdi
og blóði. Einnig sér hann hús,
engi, fjöll og skógivaxið land-
svæði, eins og við eigum að
venjast. En þó getur sumt verið
frábrugðið, eins og t. d. dýra-
tegundir sem við höfum aldrei
séð hér á jörðu.
Þeir sem vilja kynna sér
þetta nánar geta lesið um það í
tímaritinu, Lífgeislar og bók-
inni, „Það er líf á öðrum stjörn-
um“, sem fæst í bókaverslun
hér í bæ. Eftir miðjan ágúst eða
í byrjun september mun Félag
Nyalsinna koma hingað til Ak-
ureyrar og halda miðilsfund.
Þorbjörn Ásgeirsson,
Þórunnarstræti 127,
Akureyri.
Kjötbirgðir.
Þann 1. júní sl. voru birgðir
af dilkakjöti í landinu 2.685
tonn, það eru 152 tonnum meira
magn en á sama tíma og í fyrra.
Kjöt af fullorðnu fé voru 648
tonn á sama tíma. Nautakjöts
birgðir eru nú allverulegar, sam
tals voru til í landinu 943 tonn
af nautakjöti 1. júní, þar af voru
346 tonn af ungnautakjöti.
Birgðir 1. júní í ár voru 350
tonnum meiri en á sama tíma
og í fyrra. Birgðir af hrossakjöti
voru 1. júní 246 tonn.
Verðlagsgrundvallarverð.
Reiknað hefur verið út endan
legt verðlagsgrundvallarverð á
kindakjöti af framleiðslu ársins
1974-
Verulegar verðhækkanir hafa
orðið á kjöti síðan í sláturtíð í
haust en samkvæmt þeirn hækk
unum þá á verð til framleið-
anda fyrir framleiðslu ársins
1974, að vera eins og hér segir:
1. verðflokkur kr. 299,81 á kg
2. verðflokkur kr. 277,10 á kg
3. verðflokkur kr. 220,30 á kg
4. verðflokkur kr. 141,83 á kg
5. verðflokkur kr. 112,47 á kg
6. verðflokkur kr. 94,82 á kg
(Framhald af blaðsíðu 1)
m. e. m. sölnuð (gul eða brún)
og virtust þær sumsstaðar að
dauða komnar. Þó virtust blöð
þeirra ekki verulega bitin. Af
fyrri athugunum má ráða að
þessar skemmdir séu fremur
nýlegar og fari enn vaxandi.
Erfitt er að geta sér til um
orsakir þessarar sölnunar, en
reynt verður að kanna þær
nánar.
Skemmdir á grasjurtum
(grösum og störum) voru ítið
áberandi, en á stöku blettum
virtist geta verið um eins konar
kal (líkl. svellakal) að ræða.
Mosar, skófir og nokkrar
blómjurtir (t. d. túnfífill), virt-
ust yfirleitt ekki skemmdar.
Vitað er að vorið 1974 (seint
í maí) urðu verulegar kal-
skemmdir (frostkal) á runnum
á þessu svæði. Auk þess telja
bændur sig hafa orðið vara við
svipaðar gróðurskemmdir og
lýst er hér að framan, í fyrra-
sumar. Einnig urðu þeir varir
við mikinn sveim fiðrilda á
heiðinni sumurin 1973 og 1974.
Að lokum má geta þess að
fuglar hafa sótt mjög í hin
skemmdu svæði í sumar- Q