Dagur - 07.08.1975, Blaðsíða 1
LVIII. árg. — Akureyri, fimmtudaginn 7. ágúst 1975 — 33. tölublað
Frá lögreglunni
i ■_■_■_■_■_■_■ i
i ■■■_■_■_■_■_■_■_■ ■■■■i
FJÓRIR árekstrar urðu í bæn-
um en ekki meiðsl á fólki. Þrír
bílar lentu út af vegi utan bæj-
arins en þar urðu heldur ekki
slys á fólki. Einn bílanna fór út
af veginum frammi í Eyjafirði,
annar stutt norðan við Akur-
eyri, sá þriðji skammt frá
Bakkaseli. Þessar upplýsingar
gaf varðstjóri hjá lögreglunni á
Akureyri í gær. Ennfremur:
Umferðin var ekki mjög mikil
um þessa verslunarmannahelgi
og mun minni en oft áður og
dreifðist einnig meira á aksturs
leiðir og þrátt fyrir útafkeyrsl-
urnar má segja, að umferðin
gengi heldur vel. Ungir menn
frá Akureyri stálu í nágranna-
sveit 45 þúsund krónum úr
tjaldi, einnig tjaldi og verðmæt-
um munum, svo sem svefnpok-
um úr því, samtals um 70 þús-
und króna virði. Fljótlega hafð-
ist upp á sökudólgunum og þýf-
inu, nema peningunum, sem lít-
ið mun hafa verið eftir af. □
FYRSTU sex mánuði þessa árs
voru gerðar lögregluskýrslur
um 3286 umferðarslys og höfðu
Færri blíreiðar
INNFLUTNINGUR bifreiða á
fyrri hluta þessa árs varð mun
minni en á síðasta ári. í fyrra
voru fluttar inn um 6 þúsund
bifreiðar allt árið, en búist er
við, að innflutningur bifreiða á
þessu ári verði innan við 2
þúsund eða jafnvel ekki nema
um 1700. En miðað við bensín-
söluna nú og á sama tíma í
fyrra er aukningin 3%. □
3067 þeirra í för með sér eitt-
hvert eignatjón, en í 219 skipti
urðu meiðsli á fólki, segir í
fréttabréfi Umferðaráðs. Átta
manns létu lífið í þessum um-
ferðarslysum og 375 manns
voru fluttir á sjúkrahús eða í
slysadeild. Ef þessi árshelmnig-
ur er borinn saman við fyrri
helming síðasta árs kemur í
Ijós, að þá létust sjö í umferð-
inni og bæði slys og eignatjón
varð verulega meira nú en í
fyrra. Má e. t. v. telja það eðli-
legt vegna aukins fjölda bif-
reiða og annarra farartækja, en
þrátt fyrir það, eru slysin of
tíð og ekkert má til spara við
að koma í veg fyrir þau. □
....... ... ...................... . ........................................
Við Strandgötuna eiga villtir fuglar vinum að mæta.
(Ljósm.: E. D.)
■ ■■■■■ I
!■■■■■!
r.Vm'
'_■_■_■ ■_■_!
Heyskaparhorfur sæmilegar
ÞAR sem fréttaritari Dags á
Húsavík var farinn til Vestur-
heims, leitaði blaðið frétta hjá
Ljótunni- Indriðadóttur og Ein-
ari Njálssyni og þau sögðu:
Mann lífið á Húsavík er alveg
yndislegt og áfallalaust af
óknyttum og slysum, svo við
vitum. Frystihúsið er lokað í
eina viku, eins og undanfarin
sumur og getur starfsfólkið þá
veitt sér einhverja upplyftingu
eða hvíld, eftir því sem hver og
einn kýs, en nú verður farið að
opna það á ný. Jarðskjálftar eru
nú engir lengur. Um verslunar-
mannahelgina, sem nú er lokið,
var fátt um heimafólk í kaup-
staðnum. í sumar hefur verið
allmargt ferðafólk og talsverð-
ur umrenningur hér í gegn.
Vonandi verður einhver berja-
spretta, þótt berin verði seinna
þroskuð en oftast áður og ef
veðráttan verður sæmileg hér
á eftir.
Mjólkursamlagið er nýlega
búið að kaupa tankbíl til mjólk-
urflutninga og verður hann tek
inn í notkun bráðlega. Mjólk
verður flutt á honum úr þrem-
ur sveitum: Reykjahverfi, Aðal
dal og Reykjadal.
Laxveiðin í Laxá hefur verið
með betra móti upp á síðkastið
og menn fengið þetta 4-—6 laxa
á dag til jafnaðar, samkvæmt
viðtali við veiðivörðinn, Þórð
Pétursson. Þá sagði hann að
tveir menn hefðu fengið 15 laxa
á hálfum degi. □
BLAÐIÐ spurðist fyrir um hey-
skap í ýmsum nálægum stöðum
á mánudaginn. Kom þá fram,
að spretta er hvarvetna góð og
mjög góð, þótt lengi framan af
sprytti hægt og menn óttuðust
þá mjög lélegt heyskaparár
vegna kulda og þurrka. En júlí
var hlýr og rakur og þá fór
gróðra ört fram. Enn er sprettu
tíð, en votviðrasamt.
Ævarr Hjartarson ráðunautur:
Heyskapur hófst mjög seint og
nú hefur heyskapur lítið gengið
í hálfan mánuð vegna óþurrka.
Hér við Eyjafjörð eru margir
bændur þó búnir að hirða mik-
ið hey og hjá þeim fyrstu er
heyskap lokið, þ. e. fyrri slætti.
í heild má segja, að farið sé að
síga á seinni hluta heyskapar-
ins, þótt misjafnt sé. Þeir sem
fyrstir hófu slátt fá uppslátt,
því ennþá er að spretta. Hey-
fengur er sæmilegur og lítur
út fyrir allgóðan heyfeng, þeg-
ar á heildina er litið þó hann
verði eitthvað minni en fyrir-
farandi ár. í Gi'ýtubakkahreppi
var mjög mikið kal og því verð-
ur heyfengur þar mun minni en
annars hefði orðið.
Ánnann Þórðarson, kaupfé-
lagsstjóri, Olafsfirði: Heyskap-
Bændadasfur lialdinn á Melum
BÆNDADAGUR Eyfirðinga
var haldinn 27. júlí og fyrir hon
um stóðu að venju Búnaðarsam
band Eyjafjarðar og Ungmenna
samband Eyjafjarðar.
Hófust hátíðarhöldin laust eft
ir klukkan 2 á Melum í Hörgár-
dal með helgistund sem séra
Þórhallur Höskuldsson, sóknar-
prestur á Möðruvöllum og
kirkjukórinn önnuðust. Ræður
fluttu Edda Brynjólfsdóttir
skólastjóri og Ingi Tryggvason
alþingismaður. Tvísöng sungu
Helga Alfreðsdóttir og Eiríkur
Stefánsson og fleira var þar til
skemmtunar.
Viðurkenning var veitt fyrir
snyrtilega umgengni á sveita-
býlum, en í stað þess að veita
einstökum heimilum hana, svo
sem venja hefur verið, var nú
því sveitarfélagi veitt viður-
kenning, sem almenn snyrti-
mennska var talin mest í og
varð Ongulsstaðahreppur fyrir
valinu og hlaut viðurkenning-
una. En farandgrip Búnaðar-
sambandsins hlutu systkinin,
húsráðendur á Ongulsstöðum
2, Birgir Þórðarson og Sigur-
helga Þórðardóttir.
Þá fór fram handleikskeppni
kvenna. Ennfremur svonefnt
bændadagshlaup í mörgum ald-
ursflokkum karla og kvenna.
Farandgrip f tilefni þeirrar
íþróttar hlaut ungmennafélagið
Reynir á Árskógsströnd. Gripur
sá er frá SNE.
Um kvöldið var dansleikur í
Laugarborg. (Fréttatilkynning)
Mikil laxgengd I Vopnaíirði
FYRIR helgina sagði fréttarit-
ari blaðsins í Vopnafirði: Lax-
veiði er mikil í öllum ánum í
Vopnafirði og nú er ágæt lax-
gengd. Bleikjuveiðin er hinsveg
ar mjög treg og ætlar þetta víst
ekki að verða bleikjuár.
Heyskapurinn gengur fjarska
hægt því að þurrkar eru stopul-
ir. Flestir eru þó búnir að ná
einhverjum heyjum, en sumir
ekki miklu og spretta er léleg.
Sum tún voru skemmd af kali
en önnur ekki og skemmdu tún
in gefa ekki mikla uppskeru á
þessu ári. Veðráttan stjórnar
heys-kapnum og miklu leyti og
eins og er tel ég ekki ástæðu
til svartsýni. □
MIKIÐ LOH OG STORVSRKJUN
Grímsstöðum 5. ágúst: Við byrj
uðum slátt hér rétt fyrir mán-
aðamótin, en síðan hefur varla
sést til sólar og rignt flesta eða
alla daga eitthvað, þótt ekki séu
neinar stórrigningar, en þó
drjúgt í dag. Spretta var orðin
sæmilég en dálítið misjöfn og
nú vantar ekkert nema þurrk-
inn, en maður er alltaf að vona
að úr rætist.
Ferðamannastraumur nú yfir
helgina var mjög mikill, bæði
austur og vestur og vegirnir
eru að heita má góðir til Aust-
urlands, miðað við venju.
Hér er í sumar hópur manna,
Dagur
kemur næst út 13. ágúst.
sem vinnur að ýmiskonar rann-
sóknum við Jökulsá og eru það
einkum jarðfræðingar, en einn-
ig er verið að bora og er það
liður rannsóknanna. Þessir
menn búa hér örskammt frá
okkur, misjafnlega margir. Mér
skilst, að rannsóknum verði lok
ið með þeim rannsóknum, sem
nú standa yfir. Þá skilst manni
einnig, að verulega eiga að
breyta fyrri áformum um
virkjun Jökulsár, þannig, að
stöðin framleiði yfir 400 mega-
vött. Til þess að svo megi
verða, verður að gera mikið
uppistöðulón hér efra, að megin
hluta austan ár. Mikið land vest
an Hólsels og Grímsstaða fer
þá undir vatn, mikið af sand-
lendi en einnig gróið lapd með-
fram Jökulsá. K. S.
urinn gengur treglega vegna
óþurrkanna, en hinsvegar er
komið mikið gras. Líklega eru
allir bændur búnir að hirða eitt
hvað af heyi en fæstir mikið.
Heyskapurinn er ekki nærri
hálfnaður ennþá.
Bjarni Pétursson, oddviti á
Fosshóli: Heyskapur gengur
hægt, enda hafa þurrkar verið
litlir. Mikið af heyi er úti nú
og mjög mikið óslegið af tún-
unum. Heyskapurinn mun ekki
vera hálfnaður nema á stöku
bæ hér um slóðir. Ég held að
spretta sé ágæt.
Gísli Magnússon í Eyhildar-
liolti: Heyskapartíð gekk vel
hjá þeim, sem fyrstir byrjuðu
og þá verkaðist heyið mjög vel
og náðist inn eftir hendinni, en
nú hafa óþurrkar á aðra viku
tafið fyrir. Menn hafa því ekk-
ert getað átt við heyskap, því
það er ekki til neins að slá á
meðan svona viðrai'. Sprettan
er yfirleitt góð og sums staðar
farið að spretta úr sér.
Daníel Sveinbjörnsson í Saur
bæ: Heyskapur er langt kom-
inn hjá mörgum, á sumum bæj-
um búið að slá, en æði mikið
eftir á öðrum. Þótt þurrkar hafi
verið stopulir hefur heyskapur-
inn gengið nokkuð vel, því góð-
ir þurrkdagar hafa komið öðru
hverju. Á einni góðri viku verð
ur heyskap að mestu lokið.
Spretta er góð. Q
Akureyrartogararnir
FRÁ skrifstofu Útgerðarfélags
Akureyringa h.f. á þriðjudag:
Sólbakur landaði 145 tonnum í
gær.
Harðbakur gamli landaði 128
tonnum á föstudaginn.
Harðbakur nýi landaði 130 tonn
um í dag.
Sléttbakur landaði 30. júlí 163
tonnum.
Svalbakur landaði 28. júlí 210
tonnum.
Kaldbakur landaði 25. júlí 201
tonni. □