Dagur - 07.08.1975, Síða 2
2
Islaiidsmóti í go
ÍSLANDSMÓTIÐ í golfi fór
fram á Jaðri á Akureyri dagana
25. júlí til 3. ágúst og til þess
að ljúka því á þessum tíma
hófst mótið klukkan sex á
morgnana. Mótsstjóri var Ingi-
mundur Árnason. í meistara-
flokki varð Björgvin Þorsteins-
son íslandsmeistari þriðja árið
í röð og er í sérflokki golf-
manna.
í fréttatilkynningu um mótið
segir svo um úrslit í einstökum
flokkum:
Meistaraflokkur:
högg
ísl.m. Björgvin Þorst. GA 308
2. Einar Guðnason GR 317
3. Þorbjörn Kjærbo GS 319
4. Ragnar Ólafsson GR 321
5. Jóhann Ó. Guðm. NK 324
Keppendur í meistaraflokki
voru 30.
I. flokkur karla:
1. Herm. Benediktss. GA 340
2. Bragi Hjartarson G A 344
3. Frímann Gunnl.son GA 345
4. Sig. Hafsteinsson GR 347
5. Þórhallur Pálsson GA 351
Keppendur voru um 40.
II. flokkur karla:
1. Sig. M. Gestsson GB 355
2. ’ Ólafur Marteinsson GK 3G0
3. Heimir Jóhannsson GA 362
4. Hafliði Guðm.son GA 379
Keppendur voru 23.
III. flokkur karla:
1. Þorst. Þorsteinsson GR 390
2. Jóhann Guðm.son GA 392
3. Tryggvi Sæmundss. GA 394
4. Gunnl. Höskuldsson GH 395
5. Sævar Vigfússon GA 407
Keppendur alfs 15.
Unglingaflokkur:
1. Eiríkur Jónsson GR 328
2. Gylfi Garðarsson GV 332
3. Sigurður Pétursson GR 334
4. Gunnar Finnbjörnss. GK 341
5. Guðm. Ó. Jónsson GL 343
Keppendur alls 14.
Drengjaflokkur:
1. Sveinn Sigurbergss. GR 333
2. Gylfi Kristinsson GS 341
3. Björn Bjarnason GL 357
4. Hilmar Björgvinsson GS 357
5. Kristján Þorkelsson GR 366
Keppendur alls 13.
Svansson, Óskar Sæmundsson
og Atli Arason.
Öldungakeppni:
Keppt var með og án forgjaf-
ar — 18 holur.
Án forgjafar:
1. Pétur Auðunsson GK 93
2. Gunnar Pétursson GR 94
3. Páll Ásg. Tryggvason GR 96
4. Jóhann Guðmundsson GA 97
5. Gestur Magnússon GA 98
Með forgjöf:
högg netto
1. Jóhann Guðmundsson GA 77
2. Jón Guðmundsson GA 80
3. Páll Ásg. Tryggvason GR 81
Keppendur alls 18.
Þá fór fram keppni Einherja,
þ. e. þeirra, sem hafa farið holu
í höggi, og sigraði þar Kjartan
L. Pálsson NK á 80 höggum. □
DAGANA 9. og 10. ágúst n.k.
heldur íþróttafélagið Þór, Ak-
ureyri, afmælismót í tilefni 60
ára afmælis félagsins, sem var
6. júní s.l. Laugardaginn 9. ág.
verður knattspyrnukeppni
yngri flokka á Þórsvellinum
nýja í Glerárhverfi milli liða
Þórs og KA.
Sunnudaginn 10. ágúst kl.
1.30 verður safnast saman við
Akureyrarvöll og farið þaðan í
skrúðgöngu út að Glerárskóla
með Lúðrasveit Akureyrar í
broddi fylkingar, þar sem Har-
aldur Helgason, formaður Þórs,
flytur ávarp. Síðan verður geng
ið út á Þórsvöllinn og leikinn
vígsluleikur milli núverandi
meistaraflokks Þórs og liðs skip
að leikmönnum, sem voru í eld-
línunni árið 1965 og fyrr.
Þar á eftir verður kvenna-
knattspyrna, en þess má geta,
að nú fyrir skömmu var leik-
inn fyrsti kappleikurinn hér á
Akureyri í knattspyrnu kvenna
milli liða Þórs og íþróttabanda-
lags Keflavíkur. Fóru Þórsstúlk
urnar með sigur af hólmi í þess-
um fyrsta leik, sigruðu með 1
marki gegn engu.
Þá verður og knattspyrnu-
keppni í yngri flokkum .milli
liða Þórs og KA. Klukkan 4 á
srmnudag verður svo víðavangs
hlaup í mörgum aldursflokkum
kvenna og karla, þar sem öllum
er heimil þátttaka.
íþróttafélagið vill hvetja sem
flesta, og þá ekki síst foreldra
þeirra barna, sem þátt taka í
þessu móti, til að koma og taka
þátt í skrúðgöngunni svo og há-
tíðarhöldunum öllum.
(Fréttatilkynning).
Björgvin Þorsteinsson.
Kvennaflokkur:
Að þessu sinni var aðeins um
einn sameiginlegan flokk að
ræða.
íslandsmeistari kvenna varð
Kristín Pálsdóttir GK 414
2. Inga Magnúsdóttir GK 425
3. Katrín Frímannsd. GA 427
4. Svana Tryggvadóttir GR 442
5. Karólína Guðm.d. GA 443
Keppendur alls 8.
Sveitakeppni:
1. Golfkl. Reykjavíkur 482
2. Golfkl. Akureyrar 489
3. Golfklúbbur Keilis 493
4. Golfkl. Suðurnesja 504
5. Nesklúbburinn 519
í sveit Golfkl. Reykjavíkur
voru: Hans Isebarn, Ragnar ÓI-
afsson, Einar Guðnason, Geir
„OFUR KURTEISLEGRI"
ÁMINNINGU SVARAÐ
í síðasta tbl. Dags á Akureyri
birtist grein um dvöl á Tjald-
stæði Akureyrar. Þrír ungir að-
komumenn, sem telja sig kepp-
endur á Golfmóti íslands hér
um sl. helgi og lengur, setja
nöfn sín undir ritsmíð þessa,
sem þó hefði varla þurft nema
einn þunnan til að skapa. En
höf. segja í greininni ýmist „ég“
eða „við“, svo að faðernið er
líklega þrír þunnir!
Þessir náungar dvöldu á tjald
stæðinu tæpa viku, eftir 23. júlí.
Grein þeirra er sérlega ósvífin
í garð Akureyringa og orðljót,
svo að af ber. Þar fá „bæjar-
búar“ í heild, lögregla, starfs-
menn við tjaldsvæðið og bæjar-
stjórn, — allir þessir eitthvað í
Hólmfríðiir Halldórsdóttir |
F. 5. september 1900. D. 14. júlí 1975.
Sælt er sjúkum og þreyttum að
halla höfði að hlíðarvanga, þar
sem blómin ilma og blærinn
andar í laufi trjánna, sem prýða
béð þeirra, er horfið hafa til
hinstu náða, en áttu á hinum
sömu slóðum bernskuspor sín,
æskuleiki og ævistarf.
Þegar dagurinn er úti og
kvöldið komið með kul og rökk-
ur er hvíldin hin ljúfasta líkn
og fagurt að vakna á nýjum
morgni í faðmi vorsins „með
eilífð glaða í kring um sig“.
Hólmfríður Halldórsdóttir
var fædd 5. sept. árið 1900 á
Stóru-Tjörnum | Ljósavatns-
skarði. Var hún næstyngst sjö
barna þeirra hjóna Kristjönu
Kristjánsdóttur og Halldórs
Bjárnasonar er lengi bjuggu á
Stóru-Tjörnum við sæmd og
vinsældir.
Hólmfríður var, eins og þau
öll Stóru-Tjarnasyskinin, eink-
ar verkhög og smekkvís og
snyrtileg í störfum og átti næmt
fegurðarskyn og hæfileika til
listsköpunar. Naut heimilið á
Stóru-Tjörnum þessara góðu
eiginleika hennar ríkulega, því
a, hún var heima öll sín æviár,
utan þess er hún varð í seinni
tíð oft að dveljast í sjúkrahús-
um vegna brostinnar heilsu.
Síðustu tuttugu árin gekk hún
að kalla aldrei heil til skógar og
er slíkt all djúpstæð reynsla og
setur sitt mark á þann, sem
þola verður.
En hvort sem Hólmfríður var
ung, hraust og glöð, eða lífs-
þreytt, veik og vanmegna, þá
áttu Stóru-Tjarnir hana —
arinn heimilisins, umhvei'fið
allt og það líf, sem þar hrærð-
ist, líf manna og málleysingja,
gróðurinn, blóm og bjarkir, hlíð
og hólar, grundir og lautir, hin-
ar tæru tjarnir og lindin, sem
hjalaði. Allt átti þetta henrtar
trúa hjarta og valcti umhyggju
hennar, en einnig áhyggjur. Því
að þær eru löngum á næsta
leiti við það, sem við elskum,
enda þótt að sá unaður og auð-
ur, sem það veitir, þegar vel
blæs verði uppistaðan í vef
örlaganna, þegar hinir marg-
slungnu og sundurleitu þættir
fléttast saman.
En yfir öllu því sem hér lief-
Ur greint verið vakti Hólmfríð-
ur og vann því af hljóðlátri trú-
festi og ástúð, á meðan orka
entist — og lengur þó.
Hólmfríður á Stóru-Tjörnum
kunni því best að una heima.
Sótti hún ekki út fyrir veggi
heimaranns í leit að störfum né
hugðarefnum. Mun henni hafa
verið ljóst að oft er leitað langt
yfir skammt að lífsgæfunni, en
ekki hugað sem skyldi að því
gulli, sem glitrar í aringlóðinni.
Að eðlisfari var Hólmfríður
mjög hlédræg, gný vélaaldar gaf
hún sig ekki á vald, né brýndi
raust til að kveðja sér hljóðs á
málþingum fjöldans. Hún var
unnandi kyrrðar, og mun að ég
hygg stundum hafa fai'ið ein
um veg, þótt hún væri í annarra
félagsskap. Kunni hún þó vel að
meta háttprúða glaðværð, og
návist frændliðs og góðvina
veitti henni ríka ánægju. Var
hún minnug á hlý handtök og
gjörða greiða.
Virðist allt Stóru-Tjarnafólk
fætt undir því mei'ki að vera
lang minnugt á gjafir samferða-
fólksins — vináttu og heilindi
og sýna órofa tryggð þeim öll-
um, sem hug þess hafa unnið.
Er heimilisbragur á Stóru-
Tjörnum fast mótaður af þess-
um eigindum og gildir hér jafnt
um yngri sem eldri innan vé-
banda heimilisins.
Mæli ég hér af ríkri reynslu,
því að oft hefi ég gist Stóru-
Tjarnir, vermst við arininn þar
og notið vináttu, sem er svo heil
að eigi verður með orðum tjáð.
Og nú þegar Hólmfríður á
Stóru-Tjörnum, þessi fíngerða
og hógværa kona er horfin að
baki tímans tjalds, kenni ég ein-
lægs saknaðar, er ég lít sæti
hennar autt, og ég flyt henni og
því öllu Stóru-Tjarnafólki heil-
ar þakkir fyrir allt, "sem það
hefur gefið mér og mínum í
gegn um samskipti og kynni ár-
anna. Við að rekja þær minn-
ingar og fleiri líkar rísa fyrir
sjónum mér raðir ljósa.
Þegar næst verður lögð leið í
Stóru-Tjarnir, verður þar ein-
um færra, er fagnar gesti. En í
hinum vígða reit, á höfðanum
ofan við bæinn hvíslar blærinn
af blómvörum og úr laufkrón-
um minningum munarljúfum
um hana, sem átti hér sitt ævi-
starf —• og vé og gaf af ást og
trúfesti, eins og þau öll sem
deila með henni reitnum og
sungin hafa vei'ið inn í sumar-
dýrð eilífðarinnai' og boiin til
nýs morguns.
Jórunn Ólafsdóttir
frá Sörlastöðum.
í greinarlok segja þeii' þó, að
með þessum orðum sínum vilji
þeir „ofur kurteislega“ (leturbr.
J. J.) benda okkur á, hvað að
er. En margt bendir til, að
kurteisi sé þeim eigi alltaf til-
tæk, eða svo reyndist okkur
hér.
Og svo er grautargerðin ein-
stök í grein þeirra, að línu-
brengl, (auðvitað prentara sök)
virðast lítið skaða!
Ætla mætti, að þeir viti ekki,
hvaða dagur rennur eftir sunnu
dagsnótt. Þeir skrifa: „Á sunnu-
dagsnóttina keyrði um þverbak
allan aumingjaskapinn og
drullusokkaháttinn, en einmitt
á mánudagsmorguninn kl. 6.30
áttum við að vera mættir í
keppnina.“
Um laugardagsnóttina segir
svo, í samb. við næturvörðinn:
„Mikið ósköp fór eitthvað lítið
fyrir honum því hávaðinn og
lætin voru alveg mögnuð, svo
við höfðum alveg fría nætur-
skemmtun og vöku alla nótt-
ina.“ Á öðrum stað segir (en
ekki ljóst, hvaða nótt er átt
við): „Var bæði fólk að fara og
koma í tjöldin útúrdrukkið og
illa til fara, var þarna aðkomu-
fólk í stærri hlutanum. Gekk nú
á ýmsu og er þetta örugglega
fjölbreytilegasta samkvæmi,
sem við höfum verið viðstadd-
ir.“ Hvað þarna er meint með
aðkomufólk er mér ekki ljóst.
Almennur lesari kemst varla
hjá því, að láta sér detta í hug,
að þeim, „þremenningunum“,
hafi ekki verið svo leitt sem
lætur í frásögn þeirra, þegar
upplýst er, að á Jaðri, við golf-
skálann, bjuggu margir kepp-
endur golfmótsins í tjöldum.
Áttu þeir þrír, sem aðrir, kost
á að búa þar í sveitakyrrðinni
endurgjaldslaust. Þótti þeim
kannske, þrátt fyrir allt, betra
að vera hér?
Líklega á fylgjandi lýsing við
sunnud.nótt: „-----en þegar á
þriðju klukkustund var liðið
fóru bæjarbúar að heimsækja
fólk á tjaldstæðinu til að stunda
Vil kaupa notaðan
ísskáp, millistærð.
Sími 2-27-40.
WÐ/jgSÍHS
drykkjusvall og að því er mér
lieyrðist (var vel hlustað? J. J.)
saurlifnað að grófasta tagi.“ —
Loks fóru þeir þó héðan —
eftir of langa dvöl — með skuld
á baki (neituðu að borga) og
með svo ósvífnum kveðjum og
skömmum við tjaldvörðinn, sem
lengst hefur starfað hér, að
slíku sagðist hann aídrei hafa
orðið fyrir áður við þessi storf!
Við eftirgrennslan hjá for-
ustumönnum Golfklúbbs Akur-
eyrar og mótsstjóra fékk ég að
vita, að sá fyrsti í röð þeirra
„þremenninganna“, Magnús,
sem líklega er aðalrithöf. hóps-
ins, var ekki keppandi í mótinu,
hinir eitthvað með, en lítt sigur
sælir, hvað varla er von, eftir
þá meðferð, sem þeir urðu fyrir
hér!
Það skal viðurkennt og harm-
að, að nótt og nótt er hér á
ijaldstæðinu hávaðasamt nokk-
uð, ;— í vissum hverfum, þótt
nokkru fjær sé vel sofið. Þetta
skyldi engan furða, þar sem á
litlu svæði er saman komið allt
að 500 manns. Þar er, eðlilega,
„misjafn sauður í mörgu fé“.
Og þar eiga „bæjarbúar“ ekki
að vera með, allra síst með
Bakkus til fylgdar! En sem bet-
ur fer, eru umsagnir gesta okk-
ar á Tjaldstæði Akureyrar oft-
ast af allt öðrum toga en lopi
þeirra „golfspilaranna" þriggja.
Nú er hér lögregluvörður
þrjár nætur vikunnar, — um
helgar. Aðrar nætur fara lög-
regluþjónar um svæðið og líta
eftir. Gæti þeir þess að koma
að óvörum og fjarlægi hiklaust
þá, sem verulegu ónæði valda,
slær áreiðanlega þögn á þá, sem
eftir verða. Vinsamleg áminn-
ing nægir sjaldan, gleymist eftir
mínútuna.
Aðstaða lögreglunnar er vissu
lega oft erfið. Ráðamenn bæjar-
ins og dómsvald þurfa að veita
henni fullan stuðning í starfi
sínu að friði og kyrrð á almanna
færi í bænum, og svo hvergi
fremur en þar, sem gestum er
búinn dvalarstaður og gisting,
eins og t. d. hér á tjaldstæði
bæjarins.
Það skal svo að lokum lastað,
að öfga- og óþverraskrif, sem
grein þessara óreiðumanna
vissulega er, skuli tekin og birt
í víðlesnu blaði, án þess að leita
álits kunnugra, t. d. starfs-
manna við tjaldstæðið eða lög-
reglu bæjarins, um sannleiks-
gildið. Sennilega mistök, sem
ekki henda aftur.
Tjaldstæði Akureyrar,
4. ág. 1975.
Jónas Jónsson,
„Brekknakoti“.