Dagur - 07.08.1975, Side 5
4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akurcyri
Símar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓHANN K. SIGURÐSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
VERÐTRYGGING
Sú var tíðin, að íslenska krónan var
álíka verðmikil og sú danska, en nú
er hún fária danskra aura virði.
Þannig hefur verðbólgan eytt verð-
gildi íslensku krónunnar. Við verð-
bólguna hafa íslensk stjórnvöld ekki
ráðið og því hefur efnaliagslíf á ís-
landi verið ótraust og óeðlilegt. A
síðustu árum hefur mönnum þótt
hagkvæmara að eiga skuldir en inn-
eignir í lánastofnunum. Sparifjár-
eigendur hafa orðið leiksoppar lé-
legrar f jármálastjórnar og goldið
hennar í stað þess að njóta ráðdeild-
ar sinnar, og það svo mjög, að jafnað
er við þjófnað. Þetta ófremdarástand
er búið að standa svo lengi, að yngra
fólkið í landinu þekkir ekki aðra
þróun peningamála, lítur jafnvel á
hana sem náttúrulögmál og lifir sam
kvæmt lienni, t. d. í trausti þess að
það sé betra að eiga skuldir en inn-
stæður. Þegar svo er kornið, eru sjúk-
leikamerki efnahagslífsins orðin svo
hræðileg, að meira undanhald og
stjórnleysi en orðið er getur naumast
leitt til annars en efnahagslmms.
I Fjármálatíðindum gerir Jóhann-
es Nordal bankastjóri nokkra grein
fyrir verðtryggingu sparisjár og
bendir á leiðir til úrbóta. Hann segir
þar m. a.:
„Verðgildi fjármagns má tryggja
með tvennum hætti. í fyrsta lagi með
vöxtum, sem á hverjum tíma eru
nógu háir til þess að vera á móti verð
rýrnun liöfuðstólsins og skila um
leið nokkurri raunverulegri ávöxt-
un. Við skilyrði tiltölulega hægrar
verðbólgu er þetta vafalaust einfald-
asta og hagíelldasta leiðin, og von-
andi tekst að skapa þau skilyrði að
nýju, áður en mjög langt líður. Á
meðan verðbólgan er á svipuðu stigi
og verið liefur síðustu tvö árin, er
hins vegar nærri því óliugsandi að
tryggja viðunandi ávöxtun með
breytilegum vöxtum einum saman.
Við þær aðstæður er verðtrygging
eina raunhæfa leiðin, enda hefur
hún verið tekin upp í vaxandi mæli
síðustu árin. Á þessu ári má búast
við því, að verðtryggður sparnaður
hér einkum um þrennt að ræða:
verði í lieild um 3000 millj. kr. Er
a) útgáfu verðtryggðra spariskírteina
og happdrættisbréfa af hálfu ríkis-
sjóðs, b) verðtryggð lán lífeyrissjóða
og f járfestingailánasjóða og c) skyldu
sparnað. Verðtrygging er því þegar
orðin mikilvægur þáttur í því að afla
fjár til opinberra framkvæmda og til
útlána f járfestingarlána.“
Þá segir bankastjórinn um láns-
kjörin, að verðtrygging lífeyrissjóða
sé nauðsyn og að bæta megi hag spari
fjáreigenda með flokki verðtryggs
sparifjár í innlánsstofnunum. □
Bóndinn og félagsmálamaður-
inn Óli Halldórsson á Gunnars-
stöðum í Þistilfirði kom til
Akureyrar í síðustu viku. Greip
blaðið tækifærið til að leggja
fyrir hann nokkrar spurningar,
sem hann svaraði að bragði.
Viltu bregða upp heildar-
mynd af Þistilfirði?
Þistilfjörður með sínum fjór-
um sveitarfélögum og þar með
kauptúninu Þórshöfn, er ein
félagsleg', menningarleg og við-
skiptaleg heild og samstarfið er
mjög gott milli sveitarfélaga.
Við erum í félagsskap um versl-
unina, sem rekin er á samvinnu
grundvelli hjá Kaupfélagi Lang
nesinga, Þórshöfn, og sama
svæðið er eitt læknishérað. Við
kennum yngstu börnunum en
þau eldri halda áfram á Þórs-
höfn. Við höfum einnig okkar
sameiginlega sparisjóð, sem er
merk stofnun og veitir mikla
þjónustu. Bankar hafa sótt á
það, að sameina hann útibúi frá
sér, en því höfum við hafnað.
í sparisjóðnum er okkar sparifé
og við viljum ráða yfir því sjálf
ir á þann veg, að það sé ávaxtað
heima í héi'aði.
Er ekki togstreita um spari-
féð?
Að vissu marki, svo sem í
öðrum peningastofnunum, en
ekki milli sjávar og sveita, því
þar styður hver annan. Um ára-
mótin eiga bændur peninga á
vöxtum, einkum sauðfjárbænd-
ur. Þá er oft fremur erfitt um
atvinnu við sjóinn og fólk aura-
lítið. Því fólki kemur vel, að
eitthvað sé til að lána í spari-
sjóðnum. En svo snýst dæmið
við þegar kemur fram á vorið.
Þá vantar bændur fé til að leysa
út áburðinn, sem er mikill út-
gjaldaliður búanna, en þá hafa
sjómenn þegar lagt inn grá-
sleppuhrogn fyrir talsverðar
upphæðir og eiga peninga í
sparisjóðnum. Þetta er gagn-
kvæmt hagræði, sem enginn
kvartar undan, enda vinna þess
ir þættir heppilega saman.
Sparisj óðurinn er algerlega
sjálfstæð stofnun, hlutafélag,
sem stofnað var um 1940. Sá
sem mjög lengi var sparisjóðs-
stjóri, Einar Ólason verkamað-
ur, hafði aldrei í skóla komið
en stjórnaði sparisjóðnum með
prýði. Sigurður Tryggvason er
núverandi sparisjóðsstjóri og
með honum vinna þrjár stúlkur,
bæði við sjóðinn og hin og þessi
verkefni, sem sparisjóðurinn
hefur tekið áð sér fyrir opin-
bera aðila, svo sem Vegagerð-
ina og rafveiturnar.
Fjölgar fólki í Þistilfirði?
Því fækkar ekki og á Þórs-
höfn fjölgaði verulega á árun-
um 1971—1974. En þar eru jafn-
an nokkrar hreyfingar á þessu
sviði. 500 manns búa þar og
annað eins í héraðinu. Sveitar-
félögin eru Skeggjastaðahrepp-
ur, Sauðaneshreppur, Þórshafn-
arhreppur og Svalbarðshrepp-
ur. Heldur hefur fækkað í sveit-
unum, en þó varð ekki fækkun
á þessum árum og það er tölu-
vert af ungu fólki, sem nýlega
hefur hafið búskap í Sauðanes-
og Svalbarðshreppi, eða eins og
við segjum, Langanesinu og
Þistilfirðinum, en minna er um
ungt fólk í Skeggjastaðahreppi,
og vart hægt að segja, að þar sé
nema einn ungur bóndi. Á
Langanesinu eru nokkrir bænd
anna ungir menn, sem nýlega
eru byrjaðir að búa, eða eftir
1970. Þar má nefna Ágúst Guð-
röðarson á Sauðanesi og Ulafar
Þórðarson á Syðri-Brekkum.
Nýlega hóf búskap Lárus á Hall
gilsstöðum og Indriði á Syðri-
Brekkum. Og eitt hefur verið
mér ánægja að sjá undanfarna
daga, að á hinu forna höfuðbóli,
Ytri-Brekkum, þar sem á síð-
ustu árum nítjándu aldar bjó
Vilhjálmur Guðmundsson og
kona hans, Sigríður Davíðsdótt-
ir frá Heiði og mikið orð fór af
vegna mikils búskapar og rækt-
unar stærra túns en annars
staðar þekktist þar um slóðir,
er nú skurðgrafa að ræsa fram
tún og mýrar og ekki smávirk.
En á þessari jörð hefur ekki
verið búið síðustu þrjá áratugi
eða svo. Sést á öllu, að þarna á
mikið að gera og er kannski
ekki undarlegt þar sem oddviti
Þórshafnarhrepps er að hefja
umsvif þessi, Pálmi Ólason, sem
jafnframt er skólastjóri á Þórs-
höfn. Hann á búskaparhneigð-
ina í blóðinu eða á þann draum
hjarðsveinsins, að sitja á Hóli og
sjá yfir hjörðina. Ytri-Brekkur
eru örskammt frá Þórshöfn og
land jarðarinnar er einkar vel
fallið til ræktunar. Sæból er ný-
býli frá aðal jörðinni og er þar
búið blómlegu búi. Skurðgrafan
á að grafa víðar. Langanesið er
þannig, að þar er ekki hægt að
rækta nema ræsa fyrst. En mýr-
arnar eru frjóar á nesinu, eink-
um innan við Þórshöfn. Á Hall-
gilsstöðum eru nýlega farnir að
búa fremur ungir bændur og
áhugasamir. Þar er verið að
mæla fyrir framræsluskurðum.
í Þistilfirðinum er hins vegar
mikið þurrlendi en eitthvað
verður þó ræst fram þar. Þar
var mikið ræktað og byggt und-
anfarin ár en lítið þetta árið.
Þá má nefna þar samræktunina,
sem hreppurinn gekkst fyrir á
kalárunum og bjargaði þá Þistil
firðingum mjög verulega. Þar
njóta nú ungir menn ræktar-
landsins, á meðan þeir eru að
rækta sín heimalönd til fullra
nytja. Á Hagalandi byrjuðu
ungir menn að búa fyrir tveim
árum, að vísu áður búandi
menn á Ytra-Álandi, þar sem
nú ungur maður býr stórbúi.
Bændurnir á Hagalandi hafa
Hermundarfell með. Þeir
standa í stórframkvæmdum á
jörðinni. Á tveim jörðum í
Þistilfirðinum hafa ungir menn
hafið búskap með feðrum sín-
um, bæði í Laxárdal og á Gunn
arsstöðum I og hafa ungu menn
irnir báðir byggt sér íbúðarhús
og einnig báðir 400 kinda fjár-
hús.
Hvernig er nú afkoma bænd-
anna í þessu héraði?
Ekki er nú hægt að segja, að
hún sé slæm. En það sem verst
er, er það, að aðstöðumunur
bændanna er allt of mikill í
þessu landi. íslensk bændastétt
þarf að vinna að því flestu öðru
fremur, að jafna þennan að-
stöðumun. f Þistilfirði er yfir-
leitt sauðfjárbúskapur og er
viss tregða á því meðal bænda,
að hefja mjólkurframleiðslu,
þótt gott sé til ræktunar og
mjólkurvinnslustöð á Þórshöfn.
Við gætum bætt við okkur þús-
und nautgripum eða svo, án
þess að fækka sauðfénu. Afrétt-
arlöndin okkar eru góð og sauð-
féð er vænt. En í austurhluta
fjarðarins gegnir þó nokkuð
öðru máli um afréttarlandið því
það land takmarkast af ánum á
báða vegu, Hölkná og Hafra-
lónsá, sem féð fer lítið yfir. En
ekki er útilokað að flytja féð á
önnur heiðalönd.
Aðstöðumunurinn er auðsær,
ef við hugsum okkur roskinn
bónda, sem búinn er að greiða
skuldir sínar og hefur enga
skuldavexti að greiða, hefur
jafnvel hagstæða vexti, og ung-
an bónda, sem þarf e. t. v. að
greiða hálfa milljón krónur,
sem aðeins munu dæmi til er
dæmið glöggt. En staðaruppbót
á afurð’averð er ég andvígur. Ef
staðaruppbót væri tekin upp í
einhverju héraði, væri það hér-
að stimplað sem annars flokks
hérað, og Þistilfjarðarbyggð og
Norður-Þingeyjarsýsla eru eng-
in annars flokks héruð, ekki í
neinu tilliti. — Hverjir nytu svo
staðaruppbótarinnar? Bændur,
sem hafa fulla framleiðslu, nytu
Óli Halldórsson.
hennar en ekki hinir, sem henn
ar þyrftu mest við, svo sem
ungir bændur, sem eru að koma
sér fyrir. Aðstöðumuninn verð-
ur að jafna eftir öðrum leiðum.
Hve stór eru sauðfjárbúin?
Þau eru ákaflega mismun-
andi, frá 500 kinda búum eða
kannski vel það og niður í 100
kinda bú, en það eru undan-
tekningar og þá helst gamalt
fólk, sem hefur mjög lítil bú. En
nokkuð algeng bústærð er 3—
400 ærgildi. Stærstu búin eru
blönduð bú og eru með 7—800
ærgildi. Búin eru stærst í firð-
inum austanverðum. Á Gunn-
arsstöðum hinum fornu eru nú
rekin fjögur bú, þar af tvö fé-
lagsbú. Þar er bústærðin einna
mest og svo í Holti, ásamt félags
búinu í Laxárdal. En félagsbúin
á Gunnarsstöðum styðjast við
fleira en búskapinn. Á öðru bú-
inu er annar bóndinn skóla-
stjóri og á hinu búinu er frúin
skólaráðskona. Hinn bóndinn er
vörubílstjóri á sumrin og verk-
stjóri í sláturhúsi á haustin.
Það mun vera frcmur gott að
búa í Þistilfirði?
Það er að minnsta kosti ákaf-
lega gott að vera þar, alveg sér-
staklega fyrir sálina. Að vísu á
enginn að fara í búskap, sem
ekki hefur gaman af því. Vinnu
timi bóndans er oft afar langur,
en fjölbreytnin er svo mikil, að
það leiðist engum að vera
bóndi. Það er alltaf eitthvað
nýtt að gerast á hverjum ein-
asta degi. Jafnvel á vori eins og
í vor þegar ágætustu fjármenn
voru guðs-lifandi-fegnir að vera
loks lausir við kindurnar, tóku
önnur störf við, alls ólík fjár-
mennskunni. Þá þurfti að bera
á tún, vinna flög, gera við girð-
ingar, byggja hús o. s. frv. og þá
þarf einnig að fara að líta eftir
vélunum, sem senn þarf að nota
af fullum krafti við heyskapinn.
Bóndinn þarf að vera mjög
verkhæfur til sálar og líkama
og fjölhæfur. Það er ekki leng-
ur nægilegt að vera kerra,
plógur og hestur. Bóndinn þarf
að vera vélfræðingur, grasa-
fræðingur, fóðurfræðingur, efna
fræðingur og rekstrarfræðing-
ur. Hann þarf að kunna skil á
búfjársjúkdómum og kunna að
fara með veikar skepnur og svo
mætti lengi telja. En umfram
allt verður hann þó að vera
maður, sem ekki má loka sig
inni í eigin búskap, því mann-
gildið verður að setja öðru ofar
og bóndinn verður að lifa líf-
inu, eins og allir aðrir menn.
Það má enginn verða skrifstofu-
eða verslunarþræll og ekki held
ur þræll búa sinna.
\ . , ' •!; ' l-i 1 r-
Þú hefur einhverntúna
niinnst á barlóminn, Gli?
Já, líklega oftar en einu sinni.
Ég sagði einu sinni við ungan
prest fyrir austan, að ef ég væri
prestur þar og ætti að stíga í
stólinn næsta sunnudag, myndi
ég segja við bændur, mína
elskulegu sveitunga og brýna
raustina, að þeir færu allir til
helvítis. Presti brá við þessi orð
mín og ég varð að skýra þau,
en það var einmitt barlómurinn,
sem þeir bregða ótæpt fyrir sig
þegar stirðlega gengur í bú-
skapnum. Að vísu skal það fram
tekið, að ég meina ekki fullkom
lega allt sem ég segi við menn,
og dreg þá línurnar skarpar og
segi stundum eitt og annað að
gamni mínu. Það sem ég átti við
var þetta: Þessi endalausi bar-
lómur bændanna er mér ekki
að skapi og ekki fer hann öðru
fólki heldur vel. Mér finnst
þetta stundum nálgast það að
vanþakka guðs gjafir. Það er
dásamlegt að lifa. Og það getur
verið dásamlegt að lifa, þó ■ að
eitt og annað gangi þveröfugt
við það, sem til var ætlast í dag,
því morgundagurinn getur svo
sannarlega bætt úr því. Það er
einkar létt en ber ekki vott um
mikinn manndóm, að berja lóm-
inn. Mannlegt er það, það viður
kenni ég, því alltaf þarf að hafa
einhvern til að hengja. Það er
gott að hafa kalið sér til afsök-
unar, eða harða vetur, eða þá
rigningu á sumrin, svo heyin
þorna ekki. Það er svo létt að
leita afsakananna út fyrir sjálf-
an sig þegar á móti blæs. En
það þroskar manninn ekki mik-
ið að líta sjaldan í eigin barm.
Ertu ekki orðinn ríkur, ÓIi?
Ríkur, hvað er að vera ríkur?
Það er vandi að svara þessari
spurningu Erlingur. Ég bjó mér
sjálfur til fjármálastefnu þegar
ég var ungur og hef alltaf farið
eftir henni. Hún er þannig, að
ég reyni að afla eins mikilla
peninga og mér er unnt, án þess
að hafa neitt af öðrum og eftir
því siðalögmáli, sem ég hef sjálf
ur sett mér. Sömuleiðis borga
ég með glöðu geði allt sem mér
ber að borga, en auðvitað eftir
eigin mati. Ef endarnir ná sam-
an er ég hæstánægður. Ég hef
Menn ættu oftar
að líta í eigin barm
segir ÓLI HALLBÓRSSON á Gunnarsstöðum
5
aldrei haft neitt sérstakt gaman
að peningum þótt stöku sinnum
sé það mikilvægt og ánægju-
legt.
Ég sagði á búnaðarfélagsfundi
í minni sveit einhverju sinni,
og sá að einhverjir litu þá upp:
Þetta er eitt af þeim málum,
sem miðar að því að gera þann
ríka ríkari en þann fátæka
fátækari. Frá því fyrst ég fór að
hugsa hef ég alltaf verið á móti
því, sem gerir þann ríka ríkari
og þann fátæka fátækari, jafn-
vel þó ég sé að verða ríkur.
Þú hefur lengi kennt böm-
um?
Já, í 28 ár og oft hef ég sagt
og segi það einu sinni enn, að
það sem ég kann, hafa börnin
kennt mér. Það er þroskandi að
kenna börnum og einnig mjög
skemmtilegt. Börnin eru ekki
að leika eða sýnast. Þau eru
bara eins og fólkið er. Það er
gaman að því að sjá og heyra,
að ættin lætur ekki að sér
hæða. Ég heyri stundum sömu
oi'ðatiltækin hjá barni, sem
afinn, sem var allur áður en
barnið fæddist, notaði. Hið
sama má segja um kæki og siði
barnanna. Það er gaman að sjá
það og finna, að stofninn er
gamall og traustur þótt laufið
sé nýtt.
Hvenær hefur þér þótt mest
gaman að eiga tiltæka peninga?
Það getur oft komið sér vel
að eiga tiltæka peninga. Dæmi
um það er frá síðasta hausti
þegar ótíðina gerði 20. septem-
ber. Þá átti eftir að ganga tvenn
ar göngur og langar. Torleiði er
mikið á heiðunum þegar snjór
er kominn, eins og þá var. Á
mánudegi gerðist það svo, að
Gunnar bróðir og maður með
honum fóru ríðandi upp í heið-
ina til að líta eftir fé. Þar uppi
var allt á kafi í snjó og þar var
fé Hla haldið, stóð í svelti og
með nokkurn fjárhóp komu
þeir til baka. Gunnar sagði að-
eins hægt að nota vélsleða til að
finna féð og sinna því á heið-
inni. Var þá farið að huga að
vélsleðunum og þótt þeir fynd-
ust fjórir, voru þeir ekki í lagi,
nema helst einn þeirra. Var nú
úr vöndu að ráða og ekki hægt
að hugsa sér að láta fé svelta,
ef nokkur tök væru á því að
koma þvf til bjargar. En Gunn-
ar sagðist ekki fara með menn
langt inn á öræfi undir gaddi
nema að hafa tryggt farartæki.
Fór ég að kynna mér, hvar
ég gæti fengið vélsleða og
reyndi fyrst hjá Sambandinu,
en þar voru vélsleðar ekki til
en væntanlegir í nóvember, en
hins vegar gæti skeð, að þeir
fengjust hjá Gunnari Ásgeirs-
syni. Hringdi ég þangað og þar
voru til tveir, en því miður ekki
nema þeir allra stærstu og dýr-
ustu. Það eru nú einmitt tæki
sem mig vantar, sagði ég, bað
um einn og bar mig mannalega.
Bað ég svo að senda mér hann
með flugferð norður á fimmtu-
daginn.
Því miður eru sleðarnir enn
í tolli og það tekur okkur nú
meira en tvo daga að leysa hann
úr tollinum var svarið. Skrif-
stofustjóri hjá fyrirtækinu var
Gísli R. Pétursson, fyrrum kaup
félagsstjóri hjá okkur, harðdug-
legur maður og leitaði ég nú til
hans um skjóta fyrirgreiðslu og
tók hann því vel. Sagðist ég
geta sent honum peningana,
kvart milljón, strax og verða
þeir komnir suður eftir tíu
mínútur, sagði ég.
Skal gert sagði Gísli, og það
skal verða riðið húsum ef
tregða verður á afgreiðslu.
Hljóp ég nú út í sparisjóð og
bað afgreiðslustúlkuna oð póst-
senda peningana til Gunnars
Ásgeirssonar. Hún skrifaði á
skeytið og kom svo með mér á
pósthúsið. Hringdi ég þaðan-í
Gísla og sagði honum að pén-
ingarnir ættu að vera tiltækir
syðra.
Á miðvikudaginn hringdi .
Gísli og sagðist nú aðeins eiga
eftir að koma sleðanum í flug-
fragt. Bað ég hann þá að láta
bóka sleðann, sem þýðir for-f
gangsfragt og burðargjaldið er
samkvæmt því.
Á fimmtudaginn var flogið til
Þórshafnar og ég fór út á flug-
völl til að sækja sleðann. Þar
var ekki minn sleði, en annar
vélsleði merktur manni á Langa
nesströnd. Fór þá að þykkna í
mér og þótti mér þetta súrt' í
brotið. Rauk ég inn á flugáf-
greiðsluna og hitti þá flugmann
inn, sem sagði mér, að sleðarnir
hefðu áreiðanlega verið tveir- í .
vélinni frá Reykjavík til Akur-
eyrar. Hringdi ég þá til Akur-
eyrar en fékk ekki skýr svör,
Heimtaði ég þá viðtal við æðsta
mann þar á vellinum og fékk.......
það. Hann viðurkenndi, eftir
athguun málsins, að mistök
hefðu orðið, en sleðinn yrði
sendur með fyrstu ferð austur.
Ég sagði:
Ég vil fá sleðann í kvöld. Eft-
ir honum bíða menn, sem ætla
að nota hann til að bjarga fé úr
svelti upp á heiði, svaraði ég.
Ég borgaði Flugfélaginu ei’tt
þúsund eitt hundrað og ellefu
krónur fyrir það að sleðinn yrði
fluttur í forgangsfragt og ég vil
fá sleðann strax í kvöld, þið
getið fengið Norðurflug til að
skjóta sleðanum austur eða þá
fært mér hann á bíl. Það er
ekki hægt að fá flugvél og það
kostar 25—30 þúsund að senda
bíl austur, sagði maðurinn. En
ég svaraði: Það kemur mér
ekkert við. Ég borgaði ykkur’á
annað þúsund krónur fyrir áð
flytja til mín sleðann og mig
varðar ekkert um hvernig þið
ráðstafið ykkar peningum, en
sleðann vil ég fá í kvöld.
Ég mun athuga málið, sagði
maðurinn. Það leið aðeins ör-
stutt stund þar til mér barst sú
fregn, að sendiferðabíll væri á
leiðinni austur með sleðann og
í Gunnarsstaði kom hann kl. 11
um kvöldið og um nóttina var
farið á honum og öcjrum vél-
sleða upp á heiðar til að sinna
fénu og gekk það allt eins vel
og hægt var að búast við. Sleð-
inn reyndist hið besta og er
kraftmikill, eins og hann var
sagður.
Þú kannt vel við að búa.
félagsbúi?
Já, fyrst bjó ég með föður-
mínum og fór fljótlega að sjá
um búið fyrir hann, eftir að ég
var orðinn uppkominn maður,
en síðan höfum við Gunnar
bróðir minn búið félagsbúi í 20
ár og' mér líkar það mjög vel.
Við höfum það þannig, við
Gunnar, að búið á allt sem okk-
ar er nema fötin okkar og eru
persónulegar eignir ekki aðrar.
Stéttarfélag bænda hefur safn-
að upplýsingum um félagsbú og
spurt okkur margra spurninga
í sambandi við bú okkar. Þeir
hafa fengið þau svör, að verka-
skiptingin væri engin ö’nnur en
sú, að sá sem við er á hverjum
tíma, gerir það sem gera þarf.
Annars má segja, að ég annist
fjármálin útávið og fjalla um
sjúka gripi. En Gunnar hugsar
um vélarnar. En þegar um
vandasöm verk er að ræða í
sambandi við sjúkan grip eða
sjúka vél, þá hjálpumst við að.
Blaðið þakkar Óla Halldórs-
syni á Gunnarsstöðum viðtalið.
E D
III5IIIIIIS!BIIIBimiIIIiI8IIÍ8IIÍII
MUNIÐ að senda greinar og
auglýsingar í tæka tíð. Fréttir
og ábendingar ætíð vel þegnar
að vanda.
milllIllifllllBIIIIBIIBIBfllBBIBIIIIl
Kristín Benediktsdóttir
KRISTÍN BENEDIKTSDÓTT-
IR, nágrannakona mín, andaðist
í Fjórðungssjúkrahúsinu á Ak-
ureyri aðfaranótt 24. júlí s.l. og
var jarðsungin frá Akureyrar-
kirkju 30. júlí.
Kristín Benediktsdóttir fædd-
ist á Vöglum í Hrafnagilshreppi
22. maí 1925. Árið 1950 giftist
hún Árna Friðgeirssyni, ráðs-
manni við Menntaskólann á Ak
ureyri, og eiga þau einn kjör-
son, Ingimar, sem er á fimmt-
ánda ári.
Margur vinnur verk sín til að
verða frægur af og hljóta fyrir
umbun og endurgjald. Laun
heimsins fara heldur ekki eftir
því hvernig verkið er unnið,
því síður hvert hugarfar þess
er, sem verkið vinnur. Heimur-
inn hefur með verðmætamati
sínu lagt þar annan mælikvarða
á. Kristínu Benediktsdóttur var.
sjálf vinnan nægt endurgjald.
Hún skildi hvílík guðs gjöf það
er að mega vinna, hraustur og
glaður — meðan það endist.
Eftir það ber mönnum að sýna
æðruleysi og stillingu þar til
yfir lýkur. Kristín hefur með
lífi sínu gefið mönnum fordæmi
til eftirbreytni.
Heimiii þeirra Kristínar og
Árna bar vitni festu og dugnað-
ai', hjálpsemi og góðvildar í
garð þeirra sem voru hjálpar
MINNING
þurfi eða áttu um sárt að binda.
Við trúum því að þetta séu eig-
inleikar sem gengið hafi í arf
mann fram af manni í harðbýlu
landi og í misvitrum heimi.
Margur kom líka um langan
veg að leita hjálpar þeirra. Þar
var tekið á móti gestum af ljúf-
mennsku, stundum af gustmik-
illi glaðværð og hispursleysi en
ávallt af mannlegri hlýju. Sjálf-
um fannst mér stundum ég sitja
einhvers staðar á bak við heim-
inn þegar ég sat í eldhúsinu hjá
Ö! Ð
BALDVIN G. JÓHANNSSON, fyrrverandi útibússtjóri
Kaupfélags Eyfirðinga á Dalvík, varð bráðkvaddur í sinni
gömlu heimabyggð þann 24. júlí s.l. 73 ára að aldri, en hann
fæddist þann 23. september 1901. Hann var til moldar borinn
á Dalvík s.l. föstudag að viðstöddu fjölmenni.
Baldvin hafði helgað starfsdag sinn allan samvinnuhreyf-
ingunni. Hann nam við Samvinnuskólann í Reykjavík, starf-
aði síðan tvö ár á skrifstofu Sambandsins í Kaupmannahöfn,
en hóf að því búnu störf við Kaupfélag Eyfirðinga á Dalvík,
þar sem hann tók við stöðu útibússtjóra af föður sínum,
Jóhanni Jóhannssyni, í ársbyrjun 1928. Þeirri stöðu gegndi
hann óslitið til ársloka 1971, er hann lét af störfum fyrir
aldurs sakir.
í útibússtjóratíð Baldvins urðu stórstígar framfarir í hin-
um svarfdælsku byggðum. Máttur samvinnunnar hefur
óvíða ríkulegri ávöxt borið, enda jukust umsvif kaupfélags-
ins á Dalvík gífurlega á þessum árum. Verzlun margfaldað-
ist, ýmsar nýjar rekstursgreinar voru hafnar á vegum kaup-
félagsins og uxu síðan og blómguðust. Margir lögðu hönd
á plóginn í þessu mikla uppbyggingarstarfi, en hin vanda-
sáma, daglega stjórn hvíldi á herðum útibússtjórans. Ljóst
má vera, að erfitt er að gegna svo fjölþættu og vandasömu
starfi þannig, að ekki megi hnökur á finna. Allir geta hins
vegar verið sammála um, að Baldvin gegndi starfi sínu af
áhuga og dugnaði og hafði jafnan að leiðarljósi það, er orðið
gæti svarfdælskum byggðum til farsældar. Hann reyndi
hvers manns vanda að leysa eftir því sem aðstæður leyfðu
og uppskar vináttu margra.
Baldvin Jóhannsson er nú horfinn yfir móðuna miklu til
hins eilífa lífs í faðmi almættisins. Að leiðarlokum tjáir
stjórn og félagsfólk Kaupfélags Eyfirðinga þakkir sínar og
hlýhug fyrir langt og fórnfúst starf hans í þágu samvinnu-
hugsjónarinnar í Eyjafirði. Jafnframt er tjáð innileg samúð
aðstandendum hans og þá sérstaklega eftirlifandi eiginkonu
hans, frú Stefaníu Jónsdóttur, er jafnan stóð dyggilega við
hlið manns síns í vandasömu starfi hans og gegndi þannig
mikilvægu hlutverki fyrir Kaupfélag Eyfirðinga.
F. h. Kaupfélags Eyfirðinga.
Valur Arnþórsson.
þeim Kristínu og Árna, svo
undra nær hinu lifandi lífi en
þó í skjóli og þar sem önnur lög
mál giltu en sá tími setur sem
ávallt er að hlaupa frá okkur.
Um márgt voru þau Kristín og
Árni ólík. Óvíða hef ég þó orðið
var við að hjón gengju sam-
hentari að verkum sínum og
trúmennska, eljusemi og gleði
einkenndu allt þeirra líf saman,
og ég held að þau hafi lifað
hamingjusömu lífi.
Börnin mín hafa undanfarin
ár átt mörg spor til Kristínar
og Árna. Hvergi hefur þeim ver
ið betur tekið. Iðulega spjallaði
Kristín við þetta smáfólk af
virðulegri alvöru, sem það
kunni vel að meta, og mörgum
kyndugum spurningum þurfti
hún að svara um leið og hún
vakti nýjar spurningar sem
bundnar voru gátunni um þetta
líf. Fyrir vináttu Kristínar vilj-
um við Gréta þakka um leið og
við sendum þeim feðgum, Árna
ig Ingimar, vináttukveðjur og
vottum þeim samúð okkar.
Tryggvi Gíslason.
MIG langar til að segja nokkur
orð, þó megi segja að þau séu
lítils virði — þetta á ekki að
vera nein æfiminning. En hún
Kristín er horfin, kemur ekki
aftur, og það er svo erfitt að
skilja þetta. Hún var alltaf svo
glöð og hress, og geislaði frá
henni hvar sem hún fór. Ég var
svo gæfusöm að kynnast henni
þegar ég fékk starf hjá Mennta-
skóla Akureyrar við ræstingu,
og hrædd er ég um að okkur
ræstingakonunum þyki tómlegt
í skólanum í haust þegar hús-
móðirin er horfin. Þá verður
ekki kallað: Hvar eruð þið?
eruð þið ekki þarna? Svo var
þá sest á borðshorn eða stól smá
stund og spjallað saman, eða
hún sagði: Það er heitt á könn-
unni. Það var eins og hún vissi
alltaf þegar við höfðum þörf
fyrir hressingu og oft var stung
ið mola uppí lítinn munn, sem
með okkur var. Hún var svona
hún Kristín, það var svo gott
að koma á heimili þeirra hjóna,
Árna og hennar, enda oft gest-
kvæmt þar á þeirra myndarlega
heimili. En svo kom reiðarslag
ið. Hún Kristín veiktist ólækn-
andi sjúkdómi. Ég átti stundum
leið að sjúkrabeði hennar. Þar
heyrðist ekki æðrú orð, þó mað-
ur sæi þjáninguna og hún sem
átti svo margt eftir, svona ung.
En við ráðum víst engu hér og
verðum að sætta okkur við
þann sem öllu ræður. Enda þótt
við eigum erfitt með að skilja
sumt.
Svo bið ég góðan guð að
geyma þig, vina, og styrkja
feðgana sem eftir lifa.
Valborg Jónsdóttir.
Dagdraumar
Blaðinu hefur borist nótna-
heftið Dagdraumar og kemur
það út á vegum Bókaforlags
Odds Björnssonar á Akureyri,
sem annast dreifingu. En Dag-
draumar fást einnig í nótna-
bókaverslunum og hjá höfund-
inum, Steingrími M. Sigfússyni.
Friðrik A. Friðriksson, fyrrum
prófastur á Húsavík, skrifaði
nóturnar fyrir offsetprentun.
Fleiri nótnahefti eru væntanleg
frá þessum höfundi.
Steingrímur M. Sigfússon er
66 ára, Strandamaður en ólst
upp í Hrútafirði. Víða hefur
hann stundað tónlistarkennslu
en er nú búsettur á Húsavík og
skólastjóri tónlistarskólans þar
og organisti í Húsavíkurkirkju.,