Dagur - 07.08.1975, Síða 6
6
Messað verður í Akureyrar-
kirkju n. k. sunnudag kl. 11
f. h. Sálmar: 213, 219, 189, 164,
252, 44. — B. S.
Messa'ð verður í Lögmannshlíð-
arkirkju n. k. sunnudag kl. 2
e. h. Sálmar: 18, 581, 139, 223,
207. Bílferð verður úr Glerár-
hverfi kl. 1.30. — B. S.
Ver mér náðungur, Drottinn,
því að þig ákalla ég. Drottinn
er fús til að vera þeim náðug-
ur, sem ákallar hann. Reyndu
það. — Sæm. G. Jóh.
Laut. Mona og Nils-Peter En-
stad bjóða ykkur hjartanlega
velkomin á samkomu í sal
! Hjálpræðishersins n. k. sunnu
dag kl. 8.30 e. h.
Brúðhjón: — Hinn 5. júlí voru
g'efin saman í hjónaband í
Akureyrarkirkju ungfrú Inga
Jónasína Pálmadóttir og Guð
mundur Svansson rafsuðu-
maður. Heimili þeirra verður
að Eiðsvallagötu 24, Akureyri
Hinn 2. ágúst voru gefin
saman í hjónaband ungfrú
Þóra Ákadóttir meinatækni-
nemi og Olafur Bragason
Thoroddsen háskólanemi. —
Heimili þeirra verður að Þór-
unnarstræti 113, Akureyri.
Guðný Jónsdóttir, fyrrum hús-
freyja á Engimýri, nú Holta-
götu 20 á Akureyri, verður
95 ára 9. ágúst. Hún verður
að heiman.
rAtvinna
Au-pair-girl!
Næsta haust óska enslt
hjón eftir stúlku (18 ára
eða eldri) til eins árs
dvalar við heimilisstörf.
Nánari uppl. í síma
1-13-69.
Kona óskast til barna-
gæslu.
Ujrpl. í síma 2-35-41.
Guðrún Rósinkarsdóttir í Ytra-
Krossanesi varð sjötug á
sunnudaginn, 3. ágúst. —
Sama dag varð Eiríkur G.
Brynjólfsson, forstöðumaður
Kristneshælis, sjötugur.
Tii sölu:
Raðhús í Gerðahverfi.
Raðhús í Lundunum.
Raðhús í Glerárlivenfi.
Ibúðir í fjölbýlishúsium. i
2ja, 3ja og 4ra herbergja ibúðir við Hafnar-
stræti og Aðalstræti.
Einbýlishús við Laxagötu og Kambsmýri.
íbúðir á Oddeyri, 2ja og 3ja herbergja,
Hef kaupanda að stóru einbýlishúsi, helst með
bílskúr.
ÁSMUNDUR S. JÓHANNSSON, lidl.,
Glerárgötu 20, Akureyri, sími 2-17-21.
Sölustjóri:
RÚNA ÓLAFSDÓTTIR, heimasími 2-22-95.
- Dvalarheimili fyrir aldraða í Húsavík
1 (Framhald af blaðsíðu 7)
ingur félagsins fyrir 1974.
Höfundur umræddra teikn-
inga af Dvalarheimilinu kom
nú á fundinn, sýndi þær og
skýrði. Að lokinni ræðu hans
tók formaður, sem einnig var
fundarstjóri, til máls. Fór hann
hörðum orðum um arkitektinn,
sem kæmi nú með breyttar
teikningar frá því sem þeir
hefðu síðast orðið ásáttir um,
formaðurinn og arkitektinn og
sagði, að þessar teikningar
yrðu aldrei samþykktar, að því
er manni skildist, hvorki af for-
manni styrktarfélagsins, sjúkra
hússstjórn eða ráðuneyti. Arki-
tektinn hélt ákveðið fram sín-
um teikningum af hagkvæmni-
ástæðum, en sagðist ekki vera
hingað kominn „til að munn-
höggvast á fundi“. Sat hvor við
sinn keip, en aðrir tóku ekki
þátt í viðræðu þeirra. Niður-
staða um teikningarnar fékkst
því engin á fundinum, eins og
þó var til ætlast og formaður
sleit fundi hvað eftir annað. Frá
sjónarmiði óbreyttra fundar-
manna lá helst við að álíta, að
teikningarnar mundu hafna í
körfunni.
- Hvað er að gerast í
Sjálfstæðisflokknum
(Framhald af blaðsíðu 8)
„Nú vaknar sú spurning
hvort ekki sé rétt að greiða
hverjum alvörubónda eina
milljón á ári fyrir að leggja nið-
ur búskap. Ríkið hefur engin
aukaútgjöld af slíku og neyt-
endur ættu kost á furðulega
ódýrum, innfluttum landbúnað
arvörum. Þeir gætu lifað í osta-
veislum, svínakjötsveislum og
» kjúklingaveislum upp á hvern
einasta dag, og bændur gætu
hætt að slíta sér út fyrir aldur
fram. Þetta mundi að vísu kosta
nokkurn gjaldeyri- En þá hlið
má leysa með því að reisa svo
sem tvær stórar álverksmiðjur
eða hliðstæða stóriðju og láta
nokkur hundruð starfsmenn
(líklega þó bændur) hafa fyrir
því að afla gjaldeyris sem vant-
ar til þess að allir íslendingar
geti lifað í vellystingum praktug
lega á innfluttum landbúnaðar-
afurðum.“
Ekki fer á milli mála, hver
stefnan er í þessum málum hjá
þeim, sem eiga að gefa Vísi út,
og varaformaður Sjálfstæðis-
flokksins virðist einn í þeirra
hópi. En hvað um sjálfan for-
sætisráðherrann ’okkar? Ekkert
hefur frá honum heyrst um
þessi mál. Fróðlegt verður að
fylgjast með því, sem næst ger-
ist, segir Stefán að lokum. □
Hefði þann veg verið unnið,
sem lofað var í boðsbréfinu
haustið 1972, er öruggt, að
ábyrg samtök viðkomandi fjár-
mögnun hefðu verið mótuð
þegar á árinu 1973 og nefnd
kosin af réttum aðilum þess að
stjórna framkvæmdum. Slíkum
samtökum einum bar réttur og
skylda til að fjalla að öllu leyti
um stofnun Dvalarheimilisins,
stærð þess og gerð, samninga
um lóð (við sjúkrahúsið) og
fjárheimt á hendur ríkinui
Fyrst af öllu átti að tala við
sveitarfélögin, var sagt í boðs-
bréfinu og var þá auðvitað fyrst
og fremst átt við bæjarfélagið í
Húsavík, Þunga lóðið á meta-
skálunum. En þetta var ekki
gert þá og hefur ekki enn verið
gert. Síðan eru bráðum liðin
þrjú ár. Dvalarheimilismálið
svífur í lausu lofti. Við stöndum
í sömu sporum, nema þokað
hafi aftur á bak.
Á fundinum þann 19. þ. m.
var upplýst, að byggðarlag
skammt héðan, hefði tekið á
dagskrá elliheimilisbyggingu
hjá sér um sama leyti og Styrkt
arfélag okkar var stofnað. Þar
væri búið að safna sjóði upp á
10 villj. kr., ná samningum við
Húsnæðismálastjórn um lán
samkv. gildandi kjörum ,og
tryggja ríkisframlagið, sem sagt
búið að grundvalla fjármögnun
elliheimilisins. Það liggur í aug
um uppi að þama hefur á ann-
an hátt verið unnið en hjá okk-
ur. Undanfarin ár hafa verið
þjóðinni gjöful ár. Það hefði átt
að vera hægt hér að leggja til
hliðar 10 millj. kr. eins og þar.
Á stjórnarfundum Styrktar-
félagsins hefur verið sagt frá
mönnum, sem fúslega vildu
leggja fram fé í sjóð Dvalar-
heimilisins og þeim ekki svo
fáum, jafnvel fé fyrir heilum
íbúðum, en ekkert hefur verið
gert til að örva fólk til slíkra
framlaga. Hér var og er verðugt
og ærið verkefni fyrir Styrktar-
félag aldraðra.
Þessi raunasaga er ekki sögð
til þess að minnka einn eða
neinn, heldur til að eggja rétta
aðila til raunhæfra aðgerða.
Sveitarfélögin hafa fulla ástæðu
til að láta Dvalarheimili aldr-
aðra í Húsavík til sín taka nú
og þó fyrr hefði verið. Og for-
ystunnar vil ég vænta af sterk-
asta aðilanum, bæjarfélagi Húsa
víkur. Ég er ekki í minnsta
vafa um, að skilningur á vanda
málum aldraðra og nægilegur
áhugi er fyrir hendi hjá bæjar-
stjóm Húsavíkur og sveitar-
stjórnum þeirra hreppa, sem
taka Húsavík fram yfir aðra
staði sínu aldna fólki til dvalar,
til þess að þær ótilkvaddar taki
málið alvörutökum. Það er
engin ástæða til að sitja lengur
hjá af kurteisisástæðum.
26. júlí 1975.
Bjöm Haraldsson.
FRÁ
KJÖRMARKADI KEA
TÓMATSÓSA kr. 150 gl.
FLÓRSYKUR1 lbs. kr. 103 pk.
PÚÐURSYKUR 1 lbs. kr. 114 pk.
FERSKJUR niSurs. kr. 81 i/2dós
PERUR niðurs. kr. 99 i/2 dós
APRIKOSUR niðurs. kr. 99 ' 2 dós
SÚPUR í bréfum kr. 44 br.
- kaupið ódýrf!
KJÖRMARKAÐUR KEA
VIÐ GLERÁRGÖTU.
Lykiakippa
tapaðist í miðbaaium föstudaginn 1. ágúst.
Vinsamlegast skilist á lögreglustöðina gegn
fundarlaunum.
©
&
I
Þaklia innilega ylikur öllum œttingjum, gömlutn
nágrönnum 'og vinum, sem fœrðu mér gjafir og
senduð mér hlýjar kveðjur á sjötugsafmœli mirui,
29. júli s.l. — Lifið heil.
% GARÐAR VILHJALMSSON.
&
&'i-*S-©'l-:frS-©'i-í;'í-í-©'i-^S-©'i-*S-©-i-v.';S-©^i?:S-©'i-*S-©^'^c->©'l-í(';S-©^*S-©^*'
Innilegar þakkir til allra ættingja, tengdafólks
og vina, sent sýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og jarðarför
KRISTÍNAR BENEDIKTSDÓTTUR,
Eyrarlandsvegi 28, Akureyri.
Sérstakar þakkir færum við læknum og starfsfólki
B-deildar Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri fyr-
ir góða hjúkrun og uinönnun.
Árni Friðgeirsson,
Ingimar Ámason.
Móðir okkar,
HELGA ÁRNADÓTTIR,
andaðist að Kristneshæli 1. ágúst. — Jarðarförin
fer fram að Grund í Eyjafirði 9. ágúst og hefst
kl. 1 eftir hádegi.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkað en þeim,
sem vildu minnast lnennar, er bent á Elliheimili
Akureyrar. — Sætaferðir frá Ferðaskrifstofu Ak-
ureyrar, Strandgötu 5, kl. 12.30 eftir hádegi.
Hildigunnur Magnúsdóttir,
Freygerður Magnúsdóttir, i
Ámi Magntisson,
Aðalsteinn Magnússon.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinatihug
við andlát og jarðarför eiginmanns iníns, föður
okkar, tengdaföður og afa,
TRYGGVA ÞORSTEINSSONAR
skólastjóra á Akureyri.
Sérstakar þakkir til skátanna á Akureyri fyrir
ómetanlega aðstoð.
Rakel Þórarinsdóttir,
Bryndis Tnggvadóttir, Már Ingólfsson,
Þórdís Tryggvadóttir, Guðmundur Ketilsson,
Viðar Tryggvason, Margrét Sveinbjömsdóttir
og bamaböm. )
Y'-Vi' 'S-'dJ A'vl' 'S'í 'J'