Dagur - 07.08.1975, Side 7
7
Dvalarheimili fyrir aldraða í Húsavík íMúsúml
Haustið 1972 var af nokkrum
áhugamönnum stofnað félag,
sem kynnti sig fyrir íbúum
Þingeyjarsýslu og Húsavíkur
með boðsbréfi á þessa leið:
„Hinn 30. september sl. var
stofnað Styrktarfélag aldraðra í
Þingeyjarsýslu. Markmið félags
ins er að stuðla að bættri aðbúð
aldraðra þjóðfélagsþegna og
bættum hag þeirra á allan hátt.
Markmiði sínu hyggst félagið
meðal annars að ná með því að
beita sér fyrir byggingu íbúðar-
og hjúkrunaraðstöðu fyrir aldr
aða í samvinnu við sveitar-
stjórnir, sýslufélög, sjúkrahús-
stjórn og fleiri aðila. Aðalfund-
ur félagsins skal haldinn í
september ár hvert og þá m. a.
kosin 5 manna stjórn. Aðalfund
ur ákveður árgjöld félaga og
var á stofnfundi samþykkt, að
árgjöld fyrir 1973 skuli vera kr.
300,00 og verða þau innheimt
með gíróseðli. Fyrstu stjórn fé-
lagsins skipa Björn Friðfinns-
son Mývatnssveit, Björn Har-
aldsson Kelduhverfi, Óskar Sig-
tryggsson Reykjahverfi, Björn
H. Jónsson Húsavík og Teitur
Björnsson Reykjadal.
Á stofnfundi var samþykkt,
að fyrstu framkvæmdir, sem
félagið beitti sér fyrir, verði
bygging dvalar og hjúkrunar-
aðstöðu fyrir aldraða í tengsl-
um við sjúkrahússbygginguna í
Húsavík, enda liggi fyrir, að
fullnægjandi landrými og heim
ildir verði fyrir hendi. Verður
næsta skrefið það, að stjórn fé-
lagsins taki upp viðræður við
sjúkrahússstjórn og sveitarfélög
um það, hvernig staðið verði að
framkvæmdum, ef vilji er fyrir
hendi hjá þeim aðilum. Stjórnin
hefur einnig í huga möguleika
á því að reka minni dvalar-
heimili í héraðinu í tengslum
við hjúkrunaraðstöðu í Húsa-
vík. Þá vill stjórnin beita sér
fyrir sérstakri félagsstarfsemi
meðal aldraðra.
Það er von stofnenda styrktar
félagsins, að héraðsbúar stuðli
að því, að markmið þessi kom-
ist í framkvæmd m. a. með því
að gerast félagsmenn f félaginu.
Eru nýir félagsmenn beðnir að
rita nöfn sín hér fyrir neðan.
Útfylltum blöðum sé skilað til
einhvers af stjórnarmönnum."
Til viðbótar þessu ávarpi
sendi ég sveitungum mínum
eftirfarandi hvatningu:
„Bætt lífskjör og aðbúð
lengja lífið. Á síðasta manns-
aldri hefur meðalævi íslendinga
lengst meira en um helming.
Þess vegna hraðfjölgar öldruðu
fólki með þjóðinni, margt af
því þarfnast langstæðrar hjúkr
unar síðustu æviárin. Hin fá-
mennu heimili nútímans anna
ekki í mörgum tilfellum þessari
þörf. Elsta og stærsta hjúkrun-
arheimili á þessu landi er 50 ára
um þessar mundir. Þótt það
hafi verið og sé rekið með mikl-
um myndarbrag, annar það
engan veginn þörf þjóðarinnar.
Auk þess er það oft þung raun
öldruðum að dvelja langdvölum
fjari-i, átthögum og ættingjum.
Engum; dettur £ hug, að með
árgjöldum einum verði Grettis-
takinu lyft. En fjármagn mun
koma frá opinberum aðilum, ef
mikill almennur áhugi stendur
að baki góðu máli. Það er
ánægjuleg hending, að rétt eftir
að bréf íélagsstjórnar er sent út,
er lagt fram á Alþingi stjórnar-
frumvarp, þar sem ríkissjóði er
ætlað að leggja fram þriðjung
byggingarkostnaðar elliheimila.
Verði frumvarp þetta að lögum,
ættu Þingeyingar að geta orðið
ofarlega á • blaði á þeim vett-
vangi.
Félagsþroski í Kelduhverfi
hefur lengi verið á háu stigi.
Sýnum hann nú í verki með því
að fjölmenna í þetta nýja félag.
Mikil félagsleg þátttaka auð-
veldar öldruðum sveitungum
okkar lífsbaráttuna. — — —
29. okt. 1972.“
Árangur þessa ávarps varð
sá, að fimmti hver íbúi sveitar-
innar gerðist félagi. Var það
met-þátttaka. Samskonar vakn-
ing fór um Húsavík og aðrai'
nágrannasveitir að sögn, en
spurningum um fjölda félaga,
hefur aldrei verið svarað ákveð
ið, né félagatal lagt fram. En
þegar fyrir stuttu var boðað til
almenns fundar í félaginu, voru
fundarboð send 500 einstakling-
um.
Síðan Styrktarfélag aldraðra
var' stofnað er liðið hátt á þriðja
ár. Þótt nokkur umsvif hafi
verið á vegum formanns, er
vafamál hvort Dvaíarheimilinu
hefur þokað áleiðis. Þeim
ákveðnu línum, sem markaðar
voru í boðsbréfi stofnenda hef-
ur lítið verið' sinnt. í stað. þess
að leita eftir ábyrgri þátttöku
sveitarfélaga svo og bæjarfélags
Húsavíkur og sýslufélaganna
tveggja, tók formaður í sínar
hendur framkvæmda-forystu í
byggingarmálinu. Formaður
hefur haldið nokkra stutta
stjórnarfundi, sem einkenndust
af eftirá samþykktum. Á hverj-
um fundi spurði ég formann
um afstöðu sveitar, bæjar og
sýslufélaganna og minnti á fyr-
irmæli samþykkta styrktar-
félagsins í boðsbréfinu sæla.
Lét formaður jafnan vel yfir
undirtektum og lofaði öllu
fögru um bráðar niðurstöður í
því efni. Á síðasta fundi kvað
þó við annan tón. Þá var að
heyra, að ekkert lægi á að ræða
við sveitarfélögin. Eftir könnun
þessa máls, er helst að ætla, að
við enga af þessum aðilum hafi
formaður rætt.
Formaður hefur haldið því
fram á fundum, að Suður-Þing-
eyjarsýsla hafi lofað aðild að
Dvalarheimilinu. Þetta virðist
hann byggja á vinsamlegum
ummælum £ aðalfundargerð
sýslunefndar frá vori 1972 um
vandamál aldraðra. Þessi bókun
er gerð nokkrum mánuðum
áður en Styrktarfélagið var
stofnað. í bókuninni er á það
bent viðkomandi elliheimili í
sýslunni, að fyrst :þurfi að rann-
saka, hvort þörf sé fyrir hendi,
síðan að leita að stofnunar-
aðilum. Sé hvort tveggja fyrir
hendi og að fenginni þátttöku
ríkissjóðs í byggingarkostnaði
sé næsta skrefið að ná sam-
komulagi um staðsetningu
dvalarheimilisins. Af þessu sést,
að það er ekki Dvalarheimili
aldraðra í Húsavík, sem þarna
hefur verið rætt um. Loks er í
bókuninni fram tekið, með hlið-
sjón af framansögðu, að aðild
Suður-Þingeyjarsýslu komi til
mála „að meira eða minna
leyti,“ ef í verði ráðist.
Um þátttöku Norður-Þing-
eyjarsýslu hefur ekki verið
spurt. Það hefur formaður þó
gefið í skyn, að hafi verið gert.
Bæjarstjórn Húsavíkur hefur
1974 samþykkt fjárveitingu til
Dvalarheimilisins 100 þús. kr.
eftir beiðni formanns styrktar-
félagsins, en um ábyrga aðild
virðist ekki hafa verið rætt. Og
fram hjá sveitarfélögum hefur
alveg verið gengið.
Skal þá vikið að framkvæmda
athöfnum formanns.
Síðan 1973 hefur formaður
staðið í sambandi við arkitekt í
Reykjavík, sem hann á því ári
réði til að teikna Dvalarheimil-
ið. Iiann hefur gert samkomu-
lag við stjórn sjúkrahússins í
Húsavík um lóð fyrir bygging-
ar heimilisins og einnig sótt um
framlög úr ríkissjóði samkvæmt
Formaður boðaði til almenns
fundar í Styrktarfélagi aldraðra
hinn 19. þ. m. með félagsbréfi,
er hann nefndi svo og sendi um
500 félögum, konum og körlum,
svo sem áður er getið. Á fund-
inum, sem haldinn var í félags-
heimilinu á Húsavík, mættu um
20 manns aðallega af Húsavík.
Formaður kvað teikningar af
umræddu dvalarheimili aldr-
aðra nú fullbúnar til ákvörðun-
ar og yrðu þær lagðar fram og
skýrðar af höfundi þeirra síðar
á fundinum. Tafsamt hefði ver-
ið að ná samstöðu um teikning-
arnar milli viðkomandi aðila
heima og heiman, hefðu mis-
munandi byggingaform verið
borin við. Sér í lagi hefði verið
um það fjallað, hvort heimilis-
menn skyldu búa í „kjarna“-
byggingu eða í smáhýsum og
hefði heilbrigðismálaráðuneytið
beitt neitunarvaldi smáhýsun-
um til framdráttar. Á teikning-
unum væru því vistir allar í 27
smáhýsum, hvert hús fyrir tvo
(hjónahús). Teikningarnar
næðu einnig yfir þjónustubygg-
ingar svo sem mötuneyti, dag-
stofur, félagsaðstöðu, föndur,
geymslur o. fl. Allar þessar
byggingar taka yfir stórt svæði
báðumegin við einn af umferð-
arvegum Húsavíkurbæjar.
Á fundinum kom fram
óánægja út af skipulagsleysi
byggingarmálsins í héraði og
seinagangi með framkvæmdir.
Komst einn Húsvíkingur svo að
orði á fundinum efnislega, að
hann þyrfti nú orðið að leggja
leiðir sínar um bæinn að húsa-
baki, ef hann ætti að komast
hjá félagsmönnum með áleitnar
spurningar um Dvalarheimilis-
rnálið.
Af kynningu gjaldkera Styrkt
arfélagsins upplýstist, að greitt
hafði verið af sjóði félagsins
340 þús. kr. fyrir umræddar
teikningar af Dvalarheimilinu.
Tekjur félagsins eru iðgjöld og
gjafafé. Ekki var tilbúinn reikn-
(Framhald á blaðsíðu 6)
1—2 herb. óskast til
leigu.
Sími 2-25-65.
Lítil íbúð eða herbergi
með eldunaraðstöðu
óskast fyrir barnlaus
hjón.
Hringið eða skrifið til
Guðfinnu Jónsdóttur,
Kaplaskjólsvegi 54,
Reykjavík,
sími 91-25534.
4ra herb. íbúð til leigu.
Laus nú þegar. Listhaf-
endur leggi inn nafn og
símanúmer á afgr. blaðs
ins fyrir kl. 5 á föstudag.
Einstaklingsíbúð, 1—2
herb., óskast sem fyrst
til leigu.
Uppl. í símum 2-12-23
og 2-22-31. Skúli Krist-
jánsson tannlæknir.
Einstæð móðir með eitt
barn óskar eftir 2—3
herb. íbúð á Oddeyri
fyrir 1. okt.
Uppl. í síma 1-13-92
nrilli kl. 5 og 7.
Eldri hjón óska eftir að
taka á leigu 2 lierb. íbúð
strax.
Uppl. í síma 1-14-95
eftir kl. 18.
Tvær menntaskólastúlk-
ur með 2 börn óska eftir
lítilli íbúð til leigu frá
1. okt.
Uppl. í síma 2-10-14
eftir kl. 18.
Bifreiðaskoðun 19J5
Aðalskoðun bifreiða á Akureyri, Dahík og í
Eyjafjarðarsýslu lýkur 15. ágúst 1975. Skoðunin
fer fram við skrifstofu bifreiðaeftirlitsins senr
hér segir:
Mánudaginn 11. ágúst
Þriðjudaginn 12. —
Miðvikudaginn 13. —
Fimmtudaginn 14. —
Föstudaginn 15. —
einkennisnúmer.
A-5001 til A-5150
A-5151 - A-5300
A-5301 - A-5450
A-5451 - A--5600
A-5601 og hærri
Við skoðun skulu ökumenn sýna ökuskírteini
sín o gskilríki um að lögboðin gjöld af ökutækj-
unum hafi verið greidd. lEinnig skal framvísa
1 jósastillingarvottorði.
Vanræki einhver að korna bifreið sinni til skoð-
unar á auglýstum tíma verður hann látinn sæta
sektum skv. umferðarlögum og bifreiðin tekin
úr umferð.
BÆJARFÓGETINN Á AKUREYRI OG
DALVÍK.
SÝSLUMAÐURINN í EYJAFJARÐARSÝSLU.
■ oBSBi Vil selja gúmbát og Suzuki bifhjól, vel með farið, árg. 1974. Uppl. milli kl. 6—8 e. h. í síma 2-32-99.
Til sölu vagnkerra. Uppl. í síma 2-10-36 eftir kl. 18.
18 tommu einskeri og tvær Alfa Laval mjólk- urvélar með dælu til sölu. Sími 2-10-16 kl. 7-10 ‘ e. h.
Til sölu fjórar lítið not- aðar felgur (5x13”, passa á Fíat og Simcu) 4 dekk (lítið notuð 145x13) og 4 „spacerar“ (U/2” passa á Fíat). Gott verð. Halldór Jónsson, Munka þverárstræti 23, sími 1-11-63.
Til sölu nýr 10 feta hraðbátur, lientar fyrir 10—20 ha mótor. Uppl. í síma 6-11-61 eftir kl. 7.
Timbur til sölu, U/ix4 og 2x4. Uppl. í síma 2-33-43.
Sófasett til sölu (nýtt áklæði). Uppl. í síma 2-35-41.
Til sölu DBS-hjól með gírum. Sími 2-17-89.
Pioner sambyggt segul- band og útvarp í bíl til sölu. Spólur fylgja. Uppl. í síma 2-23-68.
Nýtt hjónarúm til sölu. Uppl. gefur Guðmund- ur í síma 2-30-82 frá kl. 8-17.
Mótatimbur til sölu í Lyngholti 7. Uppl. í símum 2-28-73 og 2-10-33.
Kýr til sölu. Uppl. í síma 2-27-82, Akureyri.
Til sölu tveir hamstrar ásamt búri. Uppl .í Grænugötu 10 (kjalíara) eftir kl. 7 á kvöldin.
Til sölu mótatimbur. Upplýsingar í Kotár- gerði 25, eða í síma 2-26-12.
TTTTTTTTCTTTTTTTTTTTTTTTrrrmTT
HÓTEL HOF
Nýtt liótel
í Reykjavík
i»iwwwi®Rr—
Rauðarárstíg 18
Sími 2 88 66
itmttiiiitiittiiiiíiiittitiiii