Dagur - 07.08.1975, Síða 8
AGUR
Akureyri, fimratudaginn 7. ágúst 1975
FULL BÚÐ £
i GULLSMIÐIR
AF NÝJUM ^ (( Æ SIGTRYGGUR
VÖRUM II & PÉTUR
( AKUREYRI
SMÁTT & STÓRT
Unnið er að sraíði brúa yfir þverár í Eyjafirði, og er þessi
ÐERAÐ GERAST í SJÁLFSTÆÐISFLOK
?
Enn hafa átök í Sjálfstæðis-
flokknum um ritstjórn Vísis,
aukið á viðræður og vangavelt-
ur manna á milli um hina sér-
kennilegu afstöðu þessa blaðs
til bændastéttar landsins. Dag-
ur hitti snöggvast Stefán Val-
geirsson alþingismann að máli
nýlega og spurði hann þeirrar
spurningar, sem hér er notuð
sem yfirskrift. Hann svaraði:
Allt frá því í fyrrahaust hef-
1 ur Jónas Kristjánsson ritstjóri
heildsalablaðsins Vísis í Reykja
vík skrifað hvern leiðarann af
öðrum í blaðið um íslenskan
landb.únað. Skrif þessi eru
furðulegri en flest annað um
sama efni, sem sést hefur á
prenti og taka langt fram grein-
um í Alþýðublaðinu, sem löng-
um hafa þó verið frægar að
endemum. Þessir leiðarar Vísis
hafa verið mikið umræðuefni
manna á milli og hafa vakið
almenna reiði allra þeirra, scm
bera eitthvert skyn á þessi mál.
Sjálfstæðismenn hafa reynt að
friða sjálfa sig og talið Jónas
einn að verki og að skrif hans
nú öll svo fáránleg, að falli nið-
ur dauð og ómerk.
'
i
En blaðstjórn Vísis og Jónas?
Því hefur verið hvíslað, að
; blaðstjórn Vísis hafi mannað sig
upp í það að setja Jónasi úrslita
kosti, annað hvort segi hann
upp starfi eða hann verði rek-
inn. Þegar þessar fréttir hafa
verið dregnar í efa, hafa þeir
vísu sjálfstæðismenn sagt frá
því, að Þorsteinn Pálsson blaða-
maður hjá Morgunblaðinu hafi
! verið ráðinn ritstjóri Vísis. Svo
gei'ðist það á aðalfundi Reykja-
prents, sem gefur Vísi út, að
heildsalinn og alþingismaður-
inn Albert Guðmundsson bar
fram tillögu um áskorun til aðal
fundar um að Jónas gegni rit-
stjórastörfum áfram og var til-
lagan samþykkt með yfirgnæf-
andi atkvæðafjölda.
Ný stjórn var svo kosin hjá
hlutaféiaginu Reykjaprenti, að
lokinni þessari sögulegu at-
kvæðagreiðslu. Þar voru í
stjórnina kosnir tveir nýir
menn, þeir Gunnar Thoroddscn
Stefán Valgeirsson
alþingismaður.
ráðherra og varaformaður Sjálf
stæðisflokksins og Svéinn R.
Eyjólfsspn framkvæmdastjóri
Vísis. Talið var að Sveinn
myndi hætta því starfi ef Jónas
Kristjánsson yrði látinn hætta
störfum sem ritstjóri.
Knattspyrnudeild K. A. hefur
ákveðið að efna til hópferðar til
Siglufjarðar í sambandi við
úrslitaleikinn í D-riðli 3. deildar
milli K. A. og Siglufjarðar, sem
fram fer á Siglufirði 9. ágúst nk.
Sjá nánar í auglýsingu á öðr-
um stað í blaðinu. □
Margir á ferðinni í Laxárd:
Kasthvammi, 31. júlí. Hér hefur
verið meira um ferðafólk en
áður. Veiðimannahúsið er löng-
um fullt og oft mikið af tjöld-
um að auki.
Vænn silungur er í ánni og
sumir eru heppnir og aðrir
óheppnir við veiðarnar, eins og
gengur.
Nú hafa 26 laxar verið fluttir
[ upp fyrir virkjun, hingað upp í
dalinn. Margir eru spenntir að
vita, hver veiðir fyrsta laxinn
í Laxárdal.
Hitinn var 20 stig í gær en
jörðin var grá af hélu í fyrri-
nótt.
Grasið er að spretta úr sér,
þar sem óslegið er og útengi er
vel sprottið. Engu vil ég samt
spá ennþá um vænleika dilk-
anna í haust. G. Tr. G.
Margt gerist að tjaldabaki?
Jó, þeir sem best þekkja hvað
gerist að tjaldabaki hjá Sjálf-
stæðisflokknum, segja, að við-
ræður hafi farið fram við þá
Jónas og Svein, um að þeir
tækju að sér stjórn og rekstur
Alþýðublaðsins, og má telja, að
þar hefðu réttir menn verið á
réttum stað, eins og einn sjálf-
stæðismaðurinn orðaði það.
Aðrir í stjórn Reykjaprents eru
Ingimundur Sigfússon forstjóri
Heklu, sem að undanförnu hef-
ur verið formaður, Þórir Jóns-
son forstjóri Sveins Egilssonar
h.f. og Guðmundur Guðmunds-
son forstjóri Vísis.
Þessi átök eru nú orðin lands-
kunn?
Það athyglisverðasta við þessi
átök, sem að undanförnu hafa
átt sér stað í sambandi við rit-
stjóra Vísis, Jónas Kristjánsson,
er, að þau má eingöngu rekja til
skrifa hans um landbúnaðar-
málin og dreifbýlismálin yfir-
leitt. í herbúðum Sjálfstæðis-
flokksins hefur því óspart verið
haldið fram, að ritstjórinn einn
stæði að þessum misheppnuðu
skrifum. Nú hefur komið í ljós,
að aðeins lítið brot af þeim, sem
standa að útgáfu Vísis telja
þessi skrif ámælisverð og ekki
svo að þau réttlæti brottrekstur
Jónasar. Og nú er Jónas Krist-
jánsson og Þorsteinn Pálsson
skráðir ritstjórar Vísis. Ekki fer
á milli móla, að skrif Jónasar
eru eigendum blaðsins þóknan-
leg, enda bera þeir fulla ábyrgð
á öllum hans skrifum, eins og
atkvæðagreiðslan á aðalfundin-
um ber með sér.
Hvernig taka sjálfstæðismenn
í sveitunum þessu?
Ekki tel ég líklegt, að sjálf-
stæðismenn hér úti á lands-
byggðinni taki þessum nýju tíð-
indum þegjandi, sé við það mið-
að, hvað þeir hafa sagt um þessi
mál að undanförnu. Því er sú
spurning á allra vörum nú:
Hvað er að gerast innan Sjólf-
stæðisflokksins? Hvað láta
menn bjóða sér?
Ritstjórnargreinar Vísis vitna
vel og greinilega um rógskrifin.
í fyrstu greininni um þetta mál
í Vísi segir 5. nóvember undir
fyrirsögninni, Milljón á mann:
(Framhald á blaðsíðu 6)
BATNANDI UMFERÐ
Eflaust eykst umferðarmenning
in á þjóðvegum með hverju ári
- sem líður, þótt slysatölur sýni
of mörg umferðaróhöpp. Um-
’ferðarþunginn hefur aukist
mjög, vegimir aftur á móti víða
batnað, og þeim fækkar óðum,
ökumönnunum, sem eru tillits-
lausir og hættulegir í umferð-
-inni. Þetta ber að viðurkenna
og þakka, en um leið er liér
komið á framfæri ósk um það,
að lögreglumenn ferðist nokkuð
um fjölfarnar akstursleiðir, t. d.
um helgar, og leiðbeini sérstak-
lega þeim ökumönnum, sem
ekki kunna nægilcga til verka
; við aksturinn án þess e. t. v. að
, gera sér það sjálfum ljóst. Þar
kcmur til greina mæting, fram
úrakstur, notkun Ijósa, öku-
hraði og sitthvað fleira, sem
flestir myndu taka vel.
1200 ÍSLENDINGAR
Síðasta dag júlímánaðar komu
- enn tvær stórar flugvélar frá
fslandi til Manitoba til hátíðar-
haldanna miklu í minningu
þess að 100 ár eru liðin síðan
íslendingar hófu landnám sitt
í Kanada. Fólk af íslensku bergi
' brotið, búsett vestra, hefur tek-
ið svo vel á móti fólkinu frá
„gamla landinu“, að rómað er.
Aldrei áður hafa svo margir
menn farið frá íslandi til Kan-
- ada í einum hópi og nú. Mun
það enn treysta vináttuböndin.
HJÁLMAR OG BELTI
Talið er verulegt öryggi í notk-
un bílbelta, en ekki ber öku-
mönnum skylda til að nota þau.
Talin er nauðsyn á notkun stál-
hjáhna á biflijólum og mótor-
hjólum, en ekki er ökumönnum;
skylt að nota þá. Notkun bíl-
beltanna færist öðum í vöxt,
enda liafður uppi sterkur áróð-
ur fyrir notkun þeirra, og ef-
laust mun löggjafinn innan tíð-
ar lögbjóða þau í bifreiðum að
hætti sumra annarra þjóða.
Tímarit lögfræðiiiím
c o
Fyrsta hefti 25. árgangs er kom-
ið. Lögfræðingafélag íslands
gefur það út en ritstjóri er Þór
VilhjálmsSon. Þar skrifar Krist-
jana Jónsdóttir grein í tilefni
kvennaárs, Jóhannes Skaftason
og Þorkell Jóhannesson rita um
ákvarðanir á alkóhóli í blóði,
Magsús Thoroddsen hugleiðing-
ar eftir námsför til Bandaríkj-
anna og sagðar eru fréttir frá
aðalfundi Lögmannafélagsins,
Bandalagi háskólamasna og frá
Lagadeild Háskólans. Auk þess
gerir Hans G . Andersen ör-
stutta grein fyrir hafréttarmál-
um og fleira efni er í ritinu. □
MIKILL FJOLDI
BIFHJÓLA
Hér á Akureyri er fjöldi léttra
vélhjóla og raunar einnig
þyngri og öflugri, tvíhjóla farar
tækja. Öll eru þessi farartæki
skráð, og þau eru alveg ótrú-
lega mörg. Þetta eru yfirleitt
góð farartæki til að fara á þeim
í vinnu og úr og einhver hluti
þeirra er gagnlega notaður.
Stór meirihluti er þó aðeins
notaður af unglingum frá 15 áral
aldri, sem leiktæki á götum
bæjarins.
DÝR OG HÆTTULEG
LEIKTÆKI
Véllijólin eru ákaflega illa
þokkuð, þegar þau eru notuð á
þennan hátt af unglingum, sem
fyrr grcinir. Þau valda oft slys-
um í umferðinni og kvöld- og
næturskrölt þeirra er títt um-
kvörtunarcfni. í sambandi við
slysahættu hjólreiðarmanna,
mun ekki hægt að skylda neinn
til að hafa stálhjálm á liöfði, en
er þó alveg sjálfsögð regla, sem
margir bregða ekki út af og erui
í því til fyrirmyndar.
AÐ BANNA AKSTUR
HLUTA SÓLARHRINGS
Skynsamlegt væri að banna
alla óþarfa umferð á bifhjólum,
vegna tíðra slysa og ónæðis af
hennar völdum, einkum um
kvöld og nætur. Og víst
gætu yfirvöld bæjarins sett
reglur um notkunartíma og
bannað kvöld- og næturnotkun
þessara farartækja sem leik-
tækja á götum bæjarins, og lagt
áherslu á notkun stálhjáhnanna
utan boða og banna.
BRETAPRINS í HOFSÁ
Þessa viku mun Karl Breta-
prins vera að veiðum í Hofsá í
Vopnafirði. Þar er nýtt og vand
að veiðihús, sem vcrður dval-
arstaður hins tigna gests á mcð-
an liann er við veiðarnar. Hofsá
í Vopnafirði er nú mjög góð
veiðiá, full af laxi síðustu árin.
Áður var þar án efa ofveiði,
sem nú er tekið fyrir og ræktar
áin sig sjálf upp að mestu leyti
cftir að veiðarnar voru takmark
aðar við þann stangafjölda sem
nú er. Einnig mun það hafa
stuðlað að liinum góða árangri,
að mjög var takmörkuð veiðin
fremst í ánni, þar sem hrygn-
ingarsvæði eru talin vera og
daglegur veiðitími í ánni var
einnig styttur. Þá herma fregn-
ir, að Kekkoncn, forseti Finn-
lands, komi einnig til íslands í
þessari viku til að veiða lax, en
það liefur hann oft áður gert.
MYNDARLEGT MÖTUNEYTI
Slippstöðin á Akureyri hefur
komið upp mötuneyti í mjög
góðum liúsakynnum og verður
sagt frá því síðar.
SAMVINNAN
Nýtt hefti Samvinnunnar er
komið út. Útgefandi er Sam-
band íslenskra samvinnufélaga,
ritstjóri Gylfi Gröndal.
í þetta hefti ritar Árni Reynis
son, framkvæmdastjóri Náttúru
verndarráðs, greinina 29 staðir
og svæði friðlýst- Smásagan
Gamall maður eftir Kjartan
Jónasson er í þessu hefti, enn-
fremur vangaveltur Sigvalda
Hjálmarssonar um anna'ð- fólk
og annan heim. Þá segir frá
fyrstu stúdentunum, brautsla'áð
um hjá Samvinnuskólanum, frá
aðalfundi Sambands íslenskra
samvinnufélaga og frá Alþjóða-
sambandi samvinnumanna 80
ára. Og enn má nefna grein
Jónasar Guðmundssonar, nem-
anda í Menntaskóla ísafjarðar,
er hann nefnir Þar ríkir mann-
gildi yfir fjármagni, og er hún
um samvinnuhreyfinguna. □