Dagur - 08.10.1975, Síða 8
Akureyri, miðvikudaginn 8. okt. 1975
s w5"2
STEIN-
HRINGAR
NÝKOMNIR,
MIKIÐ
ÚRVAL
MATT & STORT
a sremsyiimg
LEIKNUM FRÁBÆRLEGA VEL TEKIÐ
Nú hefur Leikfélag Akureyrar
frumsýnt fyrsta sjónleik sinn á
þessu leikári. Það var Tangó,
og aldrei þessu vant var upp-
selt á frumsýninguna. Sjónleik-
urinn Tangó er fullur af fyndni
og gamansemi, en gamanið er
víða grátt. Leiknum var af-
burða vel tekið og útlit fyrir, að
hann verði vel sóttur.
Hér á myndinni sitja konurn-
ar Sigurveig Jónsdóttir og.
Kristjana Jónsdóttir og við hlið.
þeirra Árni Valur Viggósson.
Aftari röð: Júlíus Oddsson,
Aðalsteinn Bergdal, Saga Jóns-
dóttir og Gestur E. Jónasson í
hlutverkum sínum. (Ljósmynda
stofa Páls).
Næstu sýningar verða á
fimmtudag og föstudag. ’ □
Héraðsskólinn á Laugum í
Reykjadal hefur starfað í hálfa
öld. Hann var settur í 51. sinn
hinn 1. október sl. Skólastjóri
er Sigurður Kristjánsson.
| í skólanum eru nú 122 nem-
endur og er hann fullskipaður.
; Nýir fastir kennarar eru þessir:
Níels Eyjólfsson og hjónin Sig-
urður Randver Sigurðsson og
Kolbrún Guðnadóttir. Frá skól-
anum hvarf Hallur Hallsson
; kennari.
] Að þessu sinni starfar fimmti
bekkur skólans í fyrsta sinn.
Jafnt og þétt hefur verið unnið
við byggingu íþróttahússins
sunnan við tjörnina. En ekki
kemst húsið þó undir þak í
haust. Hitaveituframkvæmdir
| eru hafnar. □
Tryggvi Gíslason skólameistari
setti Menntaskólann á Akur-
eyri 1. október. í skólanum
verða 510 nemendur í reglu-
legum deildum skólans.
Nú hefst kennsla í Oldunga-
deildinni og eru þar innritaðir
75 nemendur, til viðbótar fyrri
tölu nemenda. Öldungadeildin
er nýjung við skólann. Þá hefur
sú breyting verið upp tekin við
skólann, að nú er tekið upp
tveggja anna kerfi í stað þriggja
áður, og er þetta tilraun til þess
að nýta og drýgja kennslutím- ,
ann. Þá gilda nú nýjar reglur
um tímasókn, og er gefin sér-
stök einkunn um tímasóknina,
sem reiknast méð í aðal-
einkunn.
Heimavistin er fullsetin og '
eru þar 140 nemendur. Nepa-
endum frá Akureyri hefur fjÖÍg
að að tiltölu og eru þeir nú 45%
nemendanna og fer fjölgandi
með hverju ári. Þá er þess að
geta, að nú eru stúlkur í fyrsta
sinn jafn margar piltum. . .
HVER Á AÐ SJÁ UM
BÖRNIN?
a er reglugerð sú, er kveður
m útivist barna á kvöldin,
;g þverbrotin. Börn fara í
:kum um bæinn, jafnvel
V ærslum, löngu eftir þann
a, sem þau eiga, samkvæmt
Islögum, að gera innan
a. Manni verður á að spyrja:
3. foreldrar ekki, að börn
an 12 ára mega ekki vera á
lannafæri nema í fylgd með
orðnum, eftir klukkan 8 á
Idin á þessum tíma árs?
á Bamaverndamefnd, eða
•eglan að sjá um að lögun-
sé framfylgt?
NÞEKKING EÐA ANNAÐ
leiðara íslendings eftir
BI. segir: „Því miður hefur
áð skort á það, að bæjar-
irn Akureyrar hafi verið
nægilega vakandi í atvinnu-
málum.“ Síðar segir: „Ályktun
. bæjarstjónarinnar fyrir
skömmu um fiskkassaverk-
smiðju á Akureyri er óvæntur
. og kærkominn vottur þess, að
cnn megi einhvers vænta frá
þéirri stofnun, er til gagns
mætti verða.“
Bæjarstjórn Akureyrar liefur
níéira og betur stutt við bakið
á átvinnuvegumím í sínum bæ
þcgar þess hefur mest þurft, em
annars staðar tíðkast, svo sem
U. A. og stálskipasmíðin eru
dæmi um. Framangreind orð
fslendings vitna því um furðu-
lega vanþekkingu, nema aðrar
lrvatir, í sambandi við kassa-
- verksmiðjuna komi til.
. ÞRESTIR í ÞÚSUNDATALI
í sumar var fremur lítið af
‘þröstum á Akureyri, miðað við
venju, og svo einkennilega
völdu rnargir þeirra Iireiður-
'stæði sín, að þeir verptu á jörð-
Tnni, í stað þess að verpa í trján
um og var þetta ekki síst áber-
andi í gömlu Gróðrarstöðinni.
En nú á haustdögum eru þús-
undir þrasta í bænurn, eins og
þeim hafi rignt ofan úr skýj-
unum, og gæða þeir sér nú
.einkum í reyniberjum, sem nú
Sá
sílaði vel
Gamall sjómaður á Húsavík,
Þorgrímur Maríusson, fiskaði í
júlímánuði í sumar rauðsprettu
j fyrir 300 þúsund krónur og
lagði net sín skammt undan.
Þetta sagði Tryggvi Finnsson,
| forstöðumaður Fiskiðjusamlags
Húsavíkur, blaðinu á mánudag-
; inn. Aðspurður ,um aflabrögðin,
; sagði hann að það vantaði til-
j finnanlega fisk til vinnslu, því
] afla vantaði í grunnslóð, enn-
j fremur, að yfir stæði athugun
á skuttogarakaupum í Noregi,
j þótt naumast væri enn frétt-
| næmt. □
Daguk
kemur næst út 15. október.
Mánudaginn 29. sept. síðastlið-
inn gekk stjórn Sveinafélags
járniðnaðarmanna á Akureyri
á fund skólastjóra Iðnskóláns
og skólanefndar. Auk þeirra
mættu á fundinum kennari í
j árniðnaðargreinum, skólastj óri
Vélskólans og formaður Félags
málmiðnaðarfyrirtækj a.
Við þetta tækifæri og í til-
efni þess að Iðnskólinn á Akur-
eyri tekur nú til starfa í sjö-
tugasta sinn, afhenti Sveina-
félag járniðnaðarmanna skólan-
um að gjöf verkfæri sem ætluð
eru til kennslu í • járniðnáði:
Með því vill félagið vekja at-.
hygli á þeirri skoðun sinni, að
brýn nauðsyn sé á að verklegt
nám iðnaðatmanna fari fram á.
vegum skólans. En eins og nú
standa sakir vantar skólann
hús og flesta þá hluti sem. til
þarf að svo megi vera.
Hvetur því félagiö forráða-
menn skólamála og almenning
allan, að ljá máli þessu lið,
bæði með orðum og gerðum.
Því þrátt fyrir það að hér sé
um nokkuð kostnaðarsama
Tramkvæmd að ræða má það
I ekki standa jafn þýðingarmiklu
atriði fyrii’ þrifum.
Þjóðin þarfnast hæfra iðnað-
armanna og aukinnar verk-
menntunar sjálfri sér til hags-
-Skólinn þakkar gjöf þessa og
ekki síður þann hug allra
þeirra er fundinn sátu. □
Náttúrulækningafélag íslands
hefur stofnað til happdrættis
vegna starfsemi sinnar. Vinn-
ingar eru meðal annars bifreið,
ferðir til sólarlanda ag fleira.
Rétt þykir að benda Norðlend-
ingum á, að helmingur ágóðans
af happdrættinu rennur til
byggingar heilsuhælis á Norður
landi. Eru því þeir, sem fengið
hafa senda happdrættismiða,
eindregið hvattir til að senda.
andvirði þeirra til happdrættis-
ins, samkvæmt meðfylgjandi
gíróseðli, og flýta þannig fyrir
byggingu heilsuhælisins í
Skjaldarvík.
Stjórn Náttúrulækninga-
félags Akureyrar.
VERKFALLSRETTUR?
Á laugardaginn, 11. október, kl.
2-e. h. heldur Bandalag starfs-
•manna ríkis og bæja fund á
Hótel KEA, Akureyri, um verk-
fallsrétt opinberra starfsmanna.
Ríkisstjórnin hefur fengið í
hendur kröfu samtakanna um
verkfallsrétt og afnám Kjara-
dóms, þegar á þessu ári.
Fundir eru nú haldnir um
land allt til að kanna og móta
afstöðu BSRB til málsins. Á
fundunum fara fram leynilegar
skoðanakannanir um verkfalls-
yéttinn, og vegna þeirra þarf
mikla fundarsókn til þess að
skoðanakönnunin sé marktæk.
eru fullþroskuð og húsmæður
liirða ekki.
UMFERÐARLJÓSIN ERU
NAUÐSYN
Ökunienn eiga að kunna um-
ferðarreglurnar og fara eftir
þeim og aðrir vegfarendur
einnig. Þetta er forsenda
óliappalausrar umferðar bæði í
þéttbýli og dreifbýli og ekkcrt
getur í raun og veru kornið í
staðinn fyrir þetta. Þó eru nán-
ari merkingar á gatnamótum
mikil nauðsyn, til enn frekari
áherslu. Umferðarljós þau á
Akureyri, sem reynsla er feng-
in af, hafa sannað þctta svo
ekki verður um yillst. Bæjar-
yfirvöld liafa þó verið fremur
hæglát á meiri framkvæmdir af
þessu tagi, þar til Ioks fyrir
skömmu, að á einum stað var
úr bætt og þyrfti þó að setja
umferðarljós víðar upp í bæn-
um.
UMFERÐARFRÆÐSLA
ER NAUBSYN
En þar sem umferðarljós á göt-
um leysa ekki allan vanda, er
sú nauðsyn jafn brýn og áður,
að halda uppi umferðarfræðslu,
og alvcg sérstaklega í ljósi
þeirrar döpru staðreynda, hve
slys hafa verið tíð á Akureyri
nú í sumar. Umferðarfræðsla í
skóium er e. t. v. nauðsynlegri
en flest annað sem þar er
af góðum lilutum kennt. Hlutur
lieimilanna í umferðarfræðsl-
unni þarf einnig að vera miklu
meiri og er það útgjaklalaust,
ennfremur er nauðsyn meiri
fræðslu í ökukennslunni og síð-
ast en eklsi síst virðist mjög á
skorta, að lögreglan sinni eða
geti sinnt ströngu eftirliti á göt-
um bæjarins. í þessu efni, sem
mörgum öðrum, er það þó
fræðslan, sem öðru fremur má
vænta árangurs af. '
EITTHVAÐ BOGIÐ VIÐ
SKATTANA
Fimmtíu skattborgarar í Bol-
ungarvík undirrituðu bréf til
skattstjórans í Vestfjarðarum-
dæmi í sumar, þegar skatta-
skráin var komin út. Þar segir
m. a. svo efnislega:
Við undirrituð mótmælum
eindregið því misræmi, sem
fram kemur í skattskrá Bolung-
arvíkurkaupstaðs 1975, þar sem
fram kemur, að nær allir þeir
sem vélbátaútgerð stunda eru
skattlausir, en ekki fer inilli
mála, að tekjur þeirra aðila eru
miklar. f því sainbandi er bent
á bílakaup, siglingar o. fl.
SAMANBURÐUR
Bréfritarar benda á, að ein-
hleypar konur og einstæðar
mæður, er vinna v!ið fiskverk-
un, fái 1—200 þúsund krónur í
tekjuskatt. Þess séu einnig
dæmi í iðnaði og verslun, að
þeir aðilar beri ekki tekjuskatt
á við liálf-sjötugan mann, sem
vinnur í fiskverkun. Getur ver-
ið, spyrja bréfritarar, að skatta-
löggjöfin séu svona tillitssöm
við þessar atvinnugreinar.
BREYTT VERÐI SKATTA-
LÖGUM
Bréf þcirra bolvíkinga hefur
vakið mikla athygli, sem sjá má
af blaðaskrifum síðan. Nú liefur
Starfsmannafélag Reykjavíkur-
borgar samþykkt ályktun, þar
sem þess er krafist af Alþingi,
(Framhald á blaðsíðu 5)