Dagur - 16.02.1977, Qupperneq 8
DAGUR Akureyri, miðvikudagmn 16. febrúar 1977 jlTSTJÓRN | 11 IG 1 | AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA § 111 18 iJ
Snjótroðarinn og biðröðin við skíðalyftuna í Hliðarfjalli.
(Ljósm.: E. D.)
Paradísin í Hlíðarfjalli
mjög fjölsótt
TTlíðarfjall við Akureyri hefur verið mikil skíðaparadís
undanfama daga og vikur. Þar hefur skíðasnjór verið
eins og best verður á kosið og þangað hafa bæjarbúar farið
um helgar, þúsundum saman. Og fram til páska tekur Skíða-
hótelið á móti hópum skólafóiks víðs vegar að, og er þegar
áskipað allan þennan tíma.
Þegar blaðamaður Dags
skrapp upp í Hlíðarfjall á laug-
ardagmn, var skíðalyftan í
gangi og löng biðröð við hana,
ennfremur eru togbrautimar
þrjár mikið notaðar. Þann dag
komu 1500 manns í Hlíðarfjall
og sýndust allir una vel sínum
hag í sólskininu, flestir á skíð-
um en þeir yngstu á snjóþotum
sínum. Og á sunnudaginn munu
um 1000 manns hafa komið í
Hlíðarfjall, einnig í kyrru og
björtu veðri.
Um helgina var skíðamót
bama og unglinga og var mikil
þátttaka í því. Að sögn ívars
Sigmundssonar forstöðumanns
Skíðahótelsins, hefur verið
óvenjulega mikill fólksstraum-
ur í Hlíðarfjall, það sem af er
árinu, og nú er Skíðahótelið
opið hvem dag.
Skíða-stóllalyftan er eitt þús-
und metra löng og ákaflega
mikið notuð. Hún getur flutt
580 manns á klukkustund. Hæð-
armunur er 200 metrar. Þá eru
þrjár togbrautir í fjallinu, allar
ofan við hótelið og þar af 500
metra togbraut ofan við stóla-
lyftuna.
Á mánudaginn kom fyrsti
skólahópurinn á þessu ári í
Hlíðarfjall og er hann frá
Varmahlíð í Skagafirði. Síðan
er hver einasti virkur dagur
ásetinn fyrir skólahópa, fram
að páskum. En hver skólahópur
dvelur frá einum degi upp í
þrjá daga. Hér er bæði að ræða
um skóla bæjarins og skóla
annars staðar á Norðurlandi,
sem sækja Hlíðarfjall og dvelja
þar eins og fyrr segir.
Sextán manns vinna í Hlíðar-
fjalli um þessar mundir. Skíða-
skóli er starfandi og hefur
hvert námskeið verið fullskipað.
Þetta er þriðja árið, sem hann
er starfræktur í Hlíðarfjalli, en
að þessu sinni hófst hann 10.
janúar. Hvert námskeið stendur
í viku og á mánudaginn hófust
tvö, bæði fullskipuð.
Slys hafa verið óvenju fá í
vetur, og er það talið skíðaskól-
anum að þakka að verulegu
leyti. SnjótroÖEU-inn er alltaf í
gangi þegar þörf er á, og hefur
hann gjörbreytt aðstöðunni til
skíðaiðkana.
AJcureyrarbær kom upp skíða
aðstöðunni í Hlíðarfjalli og
Skíðahótelið hefur verið starf-
rækt í fjallinu síðan 1962. Flóð-
lýsing er í fjallinu og lengir það
æfingatíma skíðafólksins í
skammdeginu.
Skíðafólk kemur langt að, svo
sem að sunnan, með skipulögð-
um skíðaferðum. í hótelinu er
svefnpokapláss fyrir 70 manns,
en einnig eru 11 tveggja manna
herbergi. Góð aðstaða er til
veitingasölu í rúmgóðum veit-
ingasal. □
Gflffl
ra
\h
m
UÚ
• Ókuá
KerKngarfjall
Hinn 8. febrúar óku átta
menn úr Öngulsstaðahreppi
á vélsleðum upp á Kerlingar
fjall og var farið upp frá
Kroppi, þaðan upp á Súlu-
mýrar og vestur á Glerárdal,
alla leið fram að hamravegg
þeim, sem girðir efsta tind-
inn að norðan. Þaðan er hið
dýrlegast útsýni allt austur
á Snæfell og um öll öræfin
norðan Vatnajökuls. Þá sést
vel til Mývatnssveitar og
gufustrókanna í Bjamar-
flagi, sem virtust undarlega
nærri. Veður var hið besta,
ekki skýhnoðri á lofti og
sleðafærið var sæmilega
gott. — J. H.
• Mikið heitt vatn
Síðan var farið að bora eftir
heitu vatni á Syðra-Lauga-
landi og síðan á Ytra-Lauga-
landi, er minnst orða hinnar
margvísu og dulrænu konu,
Kristínar Kristjánssonar,
sem bjó vestan hafs en
dvaldl um skeið á Syðra-
Laugalandi fyrir allmörgum
árxun, en hún sagði svo ýms-
ir heyrðu, að það væri mikið
heitt vatn í jörðu á Lauga-
landi. Þykir framsýni henn-
ar mikil í þessu efni, og um
þá gáfu hennar vissu margir.
Hitt er svo annað mál, hvem
ig til tekst að ná meira af
heitu vatni en orðið er, og
vona menn þó hið besta í
því efni.
• Aðhald
bankanna
Yfirmenn Seðlabankans, við
skiptabanka og sparisjóða-
sambandsins hafa kontið sér
saman um að minnka útlána-
aukninguna niður í 19%, en
hún var á síðasta ári yfir
25% og fór þá verulega yfir
það markmið, sem þessar
peningastofnanir höfðu sett
sér. f fréttatilkynningu um
þetta segir, að innlánsstofn-
anir muni því hafa lítið fé til
útlána fram til aprílloka.
• Handknattleiks-
liðið
Landslið íslendinga í hand-
knattleik hefur getið sér
rnikið orð á allra síðustu tím
um, ekki aðeins hér á landi,
heldur á erlendum vett-
vangi, með því að sigra
heimsþekkt, erlend hand-
knattleikslið og skipa sér
þannig i flokk með sterkustu
liðum. Frammistaða þeirra
hafa vakið stjómvöld, sem
greiða vilja götu liðsins, og
almenningur víða um land
hefur sýnt hug sinn í verki
með fjárframlögum. Stend-
ur handknattleikur hér á
landi nú öðmm hópíþróttum
framar.
• Bretar beittu
pyndingum
frar kærðu breta fyrir mann
réttindadómstólnum, fyrir
að nota pyndingar við fanga
á írlandi. Bretar viður-
kenndu verknað sinn og
báðu íra að draga kæm sína
til baka og falla frá málsókn
en írar neituðu og vilja fá
fram algera fordæmingu á
framferði breta í Ulster á
áranum 1971—1974. Jafn-
framt fögnuðu írar þeirri
yfirlýsingu breskra stjóm-
valda, að aðferðir af þessu
tagi yrðu ekki notaðar
framar.
Jötunn situr fastur í holunni
Jarðborinn Jötunn sat ennþá
fastur í hinni 463 metra holu
sinni að Ytra-Laugalandi í
gær og er nú senn liðinn hálfur
mánuður síðan hann festist og
hefur verið unnið að losun hans
síðan. Skolun, síðan sprengiefni
var notað og síðast hefur verið
borað niður með hinum fasta
* ^
zæsgi
Jarðborinn Jötunn á Ytra-Laugalandi.
(Ljósm.: E. D.)
bor. Er því verki haldið áfram,
en samkvæmt þeim fregnum,
sem blaðið aflaði sér hjá bor-
stjóra í gær, getur enn dregist
að borinn losni, en þó var hann
vongóður um, að það myndi
takast.
Á væntanlegu hitaveitusvæði
bíða menn fregna um árangur
jarðhitaleitarinnar, enda mikið
í húfi hversu til tekst nú, og
hver viðbót heits vatns ákaf-
lega þýðingarmikil fyrir fram-
vindu hitaveitumálanna á Akur
eyri og í næstu sveitum. □
Seiir og
skautamenn
Margir selir hafa að undan-
fömu spókað sig á ísnum á Leir
unum. Um helgin vom þeir
horfnir, enda fóm skautamenn
á Stjá og notuðu hinn ágæta
skautaís á Pollinum, auk þess
sem nokkrir fóm á dorg. □