Dagur - 02.06.1977, Side 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGUR
LX. ARG. AKUREYRI, FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1977
24. TOLUBLAÐ
* \X0. papró1
nuviu—._
Fiskvinnsluskólí
í Hafnarfirði
Nú hafa á annað hundrað
nemendur lokið námi við
Fiskiðnskólann í Hafnar-
firði. Skólinn hófst árið
1971 og útskrifaði fyrstu
nemendur sína fyrir þrem-
ur árum og er hann til húsa
í Hafnarfirði.
Hið merkilegasta við
þennan skóla er það, að
hann skuli aðeins fárra ára
hjá þjóð, sem lifir fyrst og
fremst á því að veiða fisk,
verka hann og selja erlend-
is, og að fyrir hans daga
ýmist spryttu upp nýir
skólar eða þeir eldri tútn-
uðu út'af menntaþorsta ís-
lendinga. Hinsvegar var
það ekkert merkilegt og má
þó vel minnast þess, að það
var norðlenskur þingmað-
ur, Ingvar Gíslason, sem
mest barðist á Alþingi fyrir
stofnun skólans, og að lok-
um með sigri.
„Ódýr
hrollvekja"
Annan hvítasunnudag var
sýnd íslensk kvikmynd í
sjónvarpinu, sem nefnist
Blóðrautt sólarlag og var
myndin kynnt f blöðum
sem „ódýr hrollvekja“, sem
ekki hefði kostað nema 12
milljónir króna. Og svo var
hún frumsýnd á kristinna
manna hátíð. Mynd þessi
sýnir tvo kaupstaðarbúa,
sem taka sig upp og dvelja
sér til hvíldar og hressingar
í eyðiþorpi. Það rennur al-
drei af þessum mönnum. —
Þeir drekka, fara ógætilega
með byssu, rangla um og
skrafa að hætti ölóðra
manna frá upphafi til enda.
Ekki liggur Ijóst fyrir
hvers fólk á að gjalda að
fá þennan hátíðasnoppung
hjá sjónvarpinu.
Fegrum landið
okkar
Landvernd og fleiri sam-
tök, sem láta sér annt um
umhverfið, hefja nú áróð-
ur fyrir bættri umgengni
í náttúrunni og hreinsun-
um við vegi og á ýmsum
fjölsóttum stöðum, þar sem
þess er þörf. Er hin mesta
nauðsyn á þessu og þurfa
sveitarfélög, félög áhuga-
manna og einstaklingar að
taka höndum saman í þessu
efni.
Auglýst er „fegrunar-
vika“ hér á Akureyri í blað-
inu í dag og virðist þess
full þörf, að hún sé tekin
alvarlega. Fátt er leiðara
en ruslið, þar sem það á
ekki að vera, og ber þá að
hreinsa það. Hitt má svo
þakka, að mikil framför
hefur orðið í umgegni fólks
við land sitt á síðari árum.
Iðnskólinn á Akureyri.
(Ljósm. E.D.).
Hálf milljón
Sauðárkróki 31. maí. Um hátíð-
ina var hér í Safnahúsinu mál-
verkasýning Elíasar B. Hall-
dórssonar. Sýndi hann 63 verk,
olíumálverk, pastel,l tréristur,
vatnslitamyndir og myndir, mál-
aðar með viðarkolum og brún-
kalki. Sýn. var mjög vel tekið.
Síðar í sumar sýnir Elías á
Egilsstöðum, enda austfirðingur
að ætt en á heima á Sauðár-
króki. Hann hefur víða haldið
málverkasýningar.
Tún eru orðin fagurgræn,
sauðburður gengur vel og fol-
öld fæðast í haga. Hér var
þýskur maður nýlega og keypti
yfir tuttugu tamda hesta. Fyrir
marga hestana greiddi hann
170—200 þúsund krónur, en
stöku gæðingur var seldur við
miklu hærra verð, jafnvel upp
í hálfa milljón.
G.Ó.
Iðnskóla Akureyrar slitið 25. maí
Fyrstu tækniteiknararnir útskrifaðir
Iðnskólanum á Akureyri var slitið
25. maí. í upphafi máls síns
minntist Jón Sigurgeirsson, skóla-
stjóri, Steinbergs Ingólfssonar,
sem fórst af slysförum þann 3.
janúar sl. Steinberg heitinn hafði
starfað í þágu skólans í rúman
áratug og unnið brautryðjenda-
starf við að koma upp málmiðna-
deildinni og ætti skólinn hónum
miklar þakkir að gjalda. Viðstadd
ir heiðruðu minningu hins látna
kennara með því að rísa úr sæt-
um. Þá gerði skólastjóri grein
fyrir vetrarstarfinu, sem hófst fyrr
og lauk seinna en áður. Erfitt
reyndist að kveðja iðnnema í
skóla 1. sept. skv. fyrirmælum.
Annir eru miklar í september á
ýmsum sviðum, ekki síst í bygg-
Á þriðjudaginn voru opnuð tvö
tilboð í hitaveituframkvæmdir
Akureyrarbæjar.
Fyrst voru opnuð tilboð í
annan áfanga dreifikerfisins í
bænum. Þessi tilboð bárust: Frá
Grétari og Rúnari hf. í Reykja-
vík, sem buðu 57 milljónir 269
þúsund. Loftorka hf., Reykja-
vík, buðu 77 millj. kr. 360 þús.,
Norðurverk hf., Akureyri, bauð
52 milljónir 975 þúsund, Miðfell
hf., Reykjavík, bauð 66 milljón-
ingaiðnaði. Því fékkst i/2 mánað-
ar undanþáága sl. haust og fremur
gert ráð fyrir að svo verði áfram.
Gamla fjögurra bekkja kerfið
er senn úr sögunni, og við tekur
3ja áfanga kerfið. Kennsluvikur
þó nánast óbreyttar að tölunni
til, 44—45 vikur samanlagt auk
prófa.
Verknámsdeildir iðnaðarins
verða æ vinsælli, og voru 15 nem-
endur í tréiðnadeild og 7 í málm-
iðnadeild, allir ósamningsbundn-
ir. Báðum deildum bættust nýjar
vélar og fullkomnari búnaður á
starfsárinu.
í skólanum voru alls 307 nem-
endur í 14 deildum. Kennarar
alls 26, þar af 16 stundakennarar.
Kennt var í 19 iðngreinum, auk
ir 790 þúsund krónur. Kostn-
aðaráætlunin hljóðaði upp á 49
milljónir og 149 þúsund krónur.
Minni einingum sleppt.
Hitt tilboðið, sem opnað var á
þriðjudaginn var í uppsetningu
aðalaðveituæðin frá Lauga-
landi. Hún er úr ítölskum stál-
rörum, sem eru komin til Akur-
eyrar. Þessi tilboð bárust: Frá
Aðalbraut hf., Reykjavík, sem
bauð 206 millj. og 510 þúsund
krónur, Slippstöðin hf. á Akur-
rafsuðu. Fjölmennastir sem áður
voru húsasmiðir 99, þá rafvirkjar
25, bifvélavirkjar 24 og ketil- og
plötusmiðir 20.
Hæstu einkunnir á burtfarar-
prófi hlutu:
Aðalsteinn Arnórsson, hús-
gagnasmiður I. ág. einkunn 9,10
og Jón Grímsson, bifvélavirki I.
einkunn 8,80.
Nokkrir nemendur 4. bekkjar
eiga ólokið prófum í einni náms-
grein hver, m. a. af veikindaorsök
um, og má gera ráð fyrir að þeir
ljúki prófum í september.
Tækniteiknaraskólinn hefur nú
starfað í tvo vetur sem l/2 dags-
skóli síðdegis. Alls luku 19 prófi
og gat skólastjóri séstaklega hins
eldlega áhuga og afburða vinnu-
eyri og Norðurverk hf. buðu
209 milljónir og 999 þúsund
krónur, Miðfell hf., Reykjavík,
bauð 149 milljónir og 999 þús-
und krónur, Grétar og Rúnar
hf. og Suða sf. saman, en þessi
fyrirtæki buðu 157 millj. og 766
þúsund krónur. Kostnaðaráætl-
un er 122 millj. og 179 þúsund
krónur.
Nú verða tilboð þessi vand-
lega athuguð og borin saman og
samið eftir þá athugun.
bagða, sem hópuinn í heild hafði
sýnt.
Hæstu einkunnir hlutu:
Halldóra Ágústsdóttir I. ág.
einkunn 9,26 og Ragnheiður Jóns
dóttir I. ág. einkunn 9,15.
Þegar skólastjóri hafði afhent
prófskírteini ræddi hann um
Framhald á 4. síðu.
Akureyringar
sigursælir
Akureyringar stóðu sig vel á sjó-
stangveiðimóti, sem haldið var í
Keflavík síðasta laugardag.
Mestan afla fékk Andri Páll
Sveinsson, Akureyri, 127 kg. Næst
ur varð Ásgeir Nikulásson, Akur-
eyri, með 103 kg. En þessa sigur-
sælu Akureyrarsveit skipuðu til
viðbótar þeir Þorvaldur Nikulás-
son og Einar Einarsson. Næstir í
keppni þessari urðu vestmanna-
eyingar en keflvíkingar urðu í
þriðja sæti.
Fjölbreytt úrval
á Vöglum
Skógarvörðurinn á Vöglum, ís-
lcifur Sumarliðason, biður þess
getið, að í skógræktarrstöðinni sé
til sölu úrval trjáplantna og
runna. Af trjám má nefna reyni,
blágreni, lerki og sitkabastarð.
Surnar trjáplönturnar eru í hnaus
um og upp í 1,5—2 metra háar.
Afhending fer fram alla virka
daga og á laugardögum og sunnu-
dögum kl. 10—12 og 14—16.
Tilboðin opnuð í gær
Landið lyftist og höfnin grynnkar
Kópaskeri 31. maí. Veðráttan
hefur leikið við okkur undanfar-
in hálfan mánuð og jörðin
grænkar og grær eins og best
má verða. Sauðburði er að
Ijúka og hefur gengið vel. Verið
er að aka áburði til bændanna
af miklum krafti þessa daga og
gengur það vel, því vegir eru
allgóðir, þótt harðir séu og of
seint heflaðir, og áburðurinn
var áður hingað kominn og stóð
ekki á honum. Verður eflaust
borið á túnin næstu dagana.
Við sjóinn er mikill daga-
munur á rækjuveiðunum, til
dæmis fékkst mjög góður afli
í gær, en í dag er síðasti rækju-
veiðidagurinn.
Grásleppuveiðin hefur verið
mjög miklu minni en í fyrra,
og telja menn jafnvel, að þar
muni allt að helmingi. Búið er
að salta hrogn í 210—220 tunn-
ur og flestir eru nú að taka upp
netin.
í fyrrakvöld kom hingað ný-
keyptur, sautján tonna, fram-
byggður mótorbátur frá Horna-
firði, sem þeir eiga bræðurnir
Sigurður og Guðmundur Óskars
synir. En báturinn heitir Árni
og mun henta rækjuveiðum vel.
Svo eru menn að byrja að búa
báta sína undir handfæraveið-
arnar í sumar.
Hér á Kópaskeri er einn átta
tonna bátur, þrír 4—5 tonna bát-
ar og allt að tíu trillur, auk
nýja bátsins. Mikil þrengsli eru
hér í höfninni, enda hefur það
skeð, sem óvænt gerðist, en
það var landrisið, sem hefur
grynnkað smábátahöfnina svo
mjög, frá því að hafnarkantur-
inn var lengdur í fyrra. Okkur
virðist landið enn vera að rísa.
Hér er bullandi atvinna og
okkur vantar mannskap. Hér
eru þrjú íbúðarhús í smíðum og
ýmsar byggingar í sveitum hér
í nágrenninu. Ó. F.