Dagur - 02.06.1977, Page 8
HÖGGDEYFÁR
í FLESTA BÍLA
CM
CM
CO
<J>
i
w
Aðalsteinn Bergdal og Þorsteinn Marinósson.
((Ljósm.st. Póls).
Karlinn í kassanum ferðast
Leikár Leikfélags Akureyrar fer
nú senn að líða, enda eru akur-
eyrskir áhorfendur frekar farnir
að hugsa um útiveruna á þessum
volgu vordögum, en að sitja á
samkomum, hverju nafni sem þær
kunna að nefnast. Verkefnaval
félagsins hefur verið fjölbreytt í
vetur og hófst leikárið með því
að sýnt var leikritið „Karlinn 1
kassanum" eftir Arnold og Bach,
og hlaut það mjög góðar viðtök-
ur. Síðan var íslenski söngvaleik-
urinn „Sabína' eftir Hafliða
Magnússon; síðan „Öskubuska"
eftir Evgení Schwartz; „Sölumað-
ur deyr" eftir Arthur Miller og
að lokum „Afbragð annarra
kvenna" eftir Carlo Goldoni.
Er nú í ráði að efna til leik-
ferðar með gamanleikinn „Karl-
inn í kassanum'' og er Eyvindur
Erlendsson leikstjóri. Leikarar
Fólkið er ekki lengur dauð-
þreytt að vinnu lokinni
Dalvík 31. maí Vegurinn milli
Dalvíkur og Akureyrar hefur
verið mjög harður og illur yfir-
ferðar, enda hefur heflun vant-
að. Nú er í dag verið að gera
úrbætur á hluta vegarins og er
það til mikilla bóta. Vegurinn
er vatnsborinn og heflaður og
verður vonandi framhald á því.
Björgvin er að landa 130 tonn-
um af fiski. Hluta aflans verður
ekið til Ólafsfjarðar, því þar
stendur þannig á spori, að unnt
er að taka á móti fiski þar. Var
byrjað að flytja fiskinn á bílum
strax í morgun. Einn fiskbíllinn
valt hjá Hóli og losaði sig við
farm sinn þar, en öðrum gekk
slysalaust, það ég best veit.
Grásleppuveiðum er að ljúka.
Veiðin var heldur reitingsleg og
heldur léleg. Rækjuveiðar hafa
legið niðri um tíma, því að
rækjubáturinn Arnarborg var
bilaður. En hann kemst á veið-
ar seinna í vikunni. En bátur
frá Þórshöfn, að nafni Langa-
nes, er að byrja hér rækjuveið-
ar og vonandi fer allt að snúast
hér á ný.
Til sveitarinnar er blómlegt.
Bændur eru að dreifa hér
áburði á tún sín í ákafa. Jörðina
vantar nú rigningu, því hún
gerir nú tilkall til vætunnar
eftir alla þurrkana og hitana.
Atvinna er góð á Dalvík, þótt
eitthvað kunni að falla úr og
fólki líður vel, að því er best
verður séð. Og ekki er fólkið
eins þreytt að kveldi og áður,
þar sem yfirvinnan er af lögð
um sinn. Kann það að vera
mörgum kærkomið, þótt ein-
hverju muni það á pyngjunni.
V. Ó.
eru alls ellefu, auk bílstjóra og
mun leikflokkurinn byrja sýning-
ar að Miðgarði í Skagafirði þann
3. júní n. k. Síðan verður haldið
vertur á bóginn, á Vestfirðina.
Verður þá haldið frá Miðgarði,
Hvammstanga, Sævangi, Búðar-
dal, Patreksfjörð, Þingeyri, ísa-
fjörð og nágrenni. Síðan verður
haidið suður á Snæfellsnesið,
Stykkishólm, og svo þaðan niður
í Borgarfjörð og alveg niður á
Skaga, en Jrar verður sýnt þann
17. júní. Síðan verður haldið í átt
til Akureyrar, með viðkomu í
Borgarnesi, en þar verður sýnt
þann 18., Blönduósi þann 19. og
Siglufirði þann 20.
Þar sem leikritið fékk frábærar
móttökur, er í ráði að halda eina
aukasýningu á því fimmtudags-
kvöldið 2. júní 1977 á Akureyri
og verður það bara þessi eina
sýning.
■
L
• Smátt og stórt.
Þess hefur verið sérstaklega
óskað við blaðið, að það opn-
aði rúm á einhverju stðunni
til spuminga fyrir lesendur,
er blaðið síðan birti svör við.
Um leið og fallist er á
þessa ósk, hafa lesendur ætíð
aðgang að blaðinu og not-
færa sér það á ýmsa Iund,
mjög oft símleiðis en einnig
með því að senda erindi sín
í rituðu máli til blaðsins. —
Blaðið er alltaf og öllum op-
ið og hefur jafnan verið það,
eftir því sem rúm þess fram-
ast leyfir.
• Smimingar
og svör.
En samkvæmt framkominni
ósk um spurningar og svör
vill blaðið benda á, að spum-
ingamar þurfa að vera
stuttar og afmarkaðar, þá
mun blaðið reyna eftir bestu
gctu að svara þeim. Sendið
blaðinu spurningarnar, gjör-
ið svo vel, cn blaðið áskilur
sér rétt til að velja úr ef mik-
ið berst að og getur ekki
fyrirfram lofað svömm við
öllum spumingum. En nú
sjáum við hvað setur. Blaðið
hefur svarað óskum um
spurningar og svör, játandi,
og þá er eftir hlutur þeirra,
sem spyrja
ýmis konar áróðri að lesend-
um. Sem betur fer er árátta
þessi þó í rénun, enda eiga
almennir blaðalesendur
heimtingu á að fá fréttir
ómcngaðar, eftir því sem
blaðamaður veit þær sann-
astar. Það getur svo verið
hlutverk annarra að draga af
þeim, og yfirleitt hverju sem
er, sínar ályktanir, t. d. í
pólitískum tilgangi. Hinn al-
menni fréttafiutningur verð-
ur að vera heill og ósvikinn.
Fréttaskýringar er önnur
grein ritstarfa og þykir nú
hvergi lengur við hæfi, nema
í sorpblöðum, að blanda
þessu saman. Er á þetta
minnt hér vegna þeirra
manna, sem enn vilja sjá
„stefnu blaðsins“ í hverri
fréttaklausu.
• Ömengaðar
^singar.
Sú árátta hefur orðið lífseig
meðal íslenskra blaðamanna,
að nota almennan fréttaflutn-
ing til að læða með honum
að fræðast um
garðyrkju?
Hvarvetna er fólk að vinna
í görðum við hús sín, auk
kartöflugarðanna. Einn lær-
ir af öðrum og reynslan hef-
ur verið mörgum dýrmæt
Til er Garðyrkjufélag Akur-
eyrar, sem ætlar að hafa
„opið hús“ í Gróðrarstöðinni
næstu finuntudaga og gefa
fólki þær upplýsingar um
hvers konar ræktun í skrúð-
görðiun, er það má. Munu
þeir fyrir svörum sitja, er
miðlað geta af þekkingu
sinni. Er fólki ráðlagt að
leggja leið sína í Gróðrar-
stöðina og bera upp spurn-
ingar sínar. Nánar er um
þetta í auglýsingu á öðrum
stað.
Nýtt kal er ekki sjáanlegt
Gunnarsstöðum í Þistilfirði 28.
maí. Til hins betra brá um veðr-
áttuna 16. júní og síðan hefur
verið ágætis veður dag hvern
og snjór horfinn á láglendi,
nema í stöku giljum. Sauðburð-
ur hefur gengið vel.
Nýtt kal er ekki sjáanlegt í
þeim túnum, sem ég hef farið
um, og það sem ekki kól í fyrra,
lítur nú mjög vel út. Gróður er
ekki kominn í úthaga ennþá,
ekki einu sinni geldfjár gróður.
Hér áður voru þrjú gróðurstig
á orði á vorin. Talað var um
geldfjárgróður, sauðfjárgróður
og lambærgróður.
Sjómaður sagði mér í gær, að
nú væri dauður sjór, alger ör-
deyða. Grásleppuvertíð er að
ljúka og lokið hjá flestum. Afl-
inn er miklum mun minni en
árin á undan.
Átta ára drengur drukknaði
Vopnfirðingar fljúga mest
Tíu daga veðurblíða og hitar,
jafnvel yfir 20 gráður fyrir há-
tíðina, breytti öllu. Snjórinn
hvarf og jörð byrjaði að grænka.
Fram að þeim tíma var mjög
mikill snjór, einkum inn til dal-
anna. Jörðin er nær klakalaus
og grær því fljótt.
Sauðburður, sem nú er að
ljúka, gekk vel. Frjósemi ánna
var með allra mesta móti og
eru þrílembur ekki neitt lengur
sjaldgæfar.
Innan sveitar eru vegir sæmi-
legir, en Sandvíkurheiði er ó-
fær og var þar fyrna mikill
snjór. Þar urðu vegaskemmdir
af vatnavöxtum og svo aur-
bleyta.
Brettingúr hefur fiskað ágæt-
lega það sem af er árinu og
skapar það mikla vinnu í þorp-
inu. Má telja, að samfelld vinna
hafi verið í frystihúsinu. Þá
var loðnu landað í miklum mæli
og jók það enn atvinnuna í
lengri tíma. Grásleppuveiðin er
mun lélegri en áður og óttast
menn, að farið sé að ganga á
grásleppustofninn. Auk þess
hafa menn reytt nokkuð af há-
karli, nokkra tugi. Hákarlinn
er verkaður á staðnum, svo sem
verið hefur undanfarin ár.
í Vopnafjarðarkauptúni er
allmikið byggt og undanfarin ár
hefur verið byrjað á tíu íbúðum
ár hvert og verður svo einnig
nú, eða jafnvel fleiri. Fólks-
fjölgun hefur orðið í kauptún-
inu. Nú í sumar á að endur-
bæta flugvöllinn verulega, bæði
á að hækka flugbrautina veru-
lega og koma upp ljósabúnaði,
enda er völlurinn ákaflega mik-
ið notaður. Næstum má segja,
að vopnfirðingar ferðist nær
eingöngu með flugvélum. Til
marks um það er, að fyrstu
mánuði þessa árs voru þúsund
farþegar búnir að fara um völl-
inn, og er það mikið þegar til-
lit er tekið til þess, að íbúar eru
ekki nema 840 talsins. Og í fyrra
fóru um 2500. farþegar um völl-
inn. Það er eðlilegt, að vopn-
firðingar noti flugið öðrum
meira, vegna þess hvernig veg-
um er háttað í þessu byggðar-
lagi. Þ. Þ.
nýlega í Hvammi. Hann hét
Sigfús, yngsti sonur Ara Aðal-
björnssonar og Hönnu Sigfús-
dóttur. Ó. H.
Jörðin
þornar fljótt
Kasthvammi 31. maí. Snjórinn
var fljóur að hverfa eftir að
hlýnaði, og þar sem jörð er
klakalítil, þornar hún fljótt. —
Sauðburði er að ljúka og þrátt
fyrir lækna og lyf, hafa orðið
ofurlítil vanhöld á lömbum í
vor.
Mikill vöxtur hefur verið í
Laxá og áin er talsvert lituð.
Margir voru að veiðum þar í
gær, en um árangur veit ég
ekki.
Hallgrímur Hallgrímsson i
Hólum hér í Laxárdal varð ní-
ræður í gær. Hann er eyfirð-
ingur að ætt. G. Tr. G.
DAGUR
kemur næst út miðvikudaginn
8. júní ef verkfall hamlar ekki.