Dagur - 22.06.1977, Blaðsíða 4
Útgcfandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar: Ritstjóm U1G6, Augl. og afgreiðsla 111G7
Kitstj. og ábyrgðarm.: ERLINGUR DAVÍÐSSON
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prcntun: Prentverk Odds Bjömssonar hf.
Bjartari
tíð
Þótt íslndingar hafi um sinn lifað í
skugga yfirvofandi verkfalla, var
þeim ekki beitt í þeim mæli, að vem-
leg röskun yrði að, nema hvað snerti
yfirvinnubannið. En þá munu flestir
jafnframt hafa fundið það að hóflega
langur vinnutími er það keppikefli,
sem fyrir löngu var stefnt að, en síð-
an síðan brotið niður á þann herfi-
lega hátt, að mikill hluti þjóðarinnar
hefur búið við stöðuga vinnuþrælk-
un. Þegar þetta er ritað, virðist und-
irskrift heildajsamninga skammt
undan, en í þeim samningum felst
nokkur launajöfnun, svo sem að var
stefnt. En þann skugga ber á, að
stjóm landsins mun tæplega geta
spomað við enn aukinni verðbólgu
vegna launahækkana, þótt launþeg-
um þyki sinn hlutur vart of stór. —
Þrátt fyrir þetta, ber að fagna því, að
til almennra verkfalla kemur vænt-
anlega ekki að þessu sinni og því
geta atvinnuvegimir starfað með
fullum afköstum og skilað þjóðarbú-
inu og þar með þjóðinni allri þeim
hlut óskertum, sem þeir hafa mögu-
leika til.
En nú, er skuggi yfirvofandi verk-
falla og stöðvunar meginþorra alls
atvinnulífs og framleiðslu, er liðinn
hjá, bera að snúa sér af fullum þrótti
að hinum óteljandi verkefnum, sem
framundan em. Hér á Norðurlandi
hefur fólk búið við allgóða afkomu
og jafna, allt frá Þórshöfn til Skaga-
strandar. Á tímum vinstri stjómar
innar var víða lagður grunnur að
aukinni framleiðslu og atvinnu, sem
fólk hefur síðan búið að, og er þetta
byggðastefna í verki, sem þeir einir
sjá ekki og viðurkenna ekki, sem
grafa vilja höfuð sitt í sandinn. Það
er næstum sama hvar komið er á
norðlenska þéttbýlisstaði, því þeir
bera þessu allir vitni og eiga það
sameiginlegt, að atvinnuleysi hvarf
að mestu eða öllu, fólk neytir orku
sinnar við nytsöm störf og hefur
fengið trú á framtíð sína og sinna á
heimaslóðum, fólki fjölgar, ný íbúða-
hverfi rísa, afkoman er betri og
framtíðin bjartari. Jafnframt hafa
mikilvægustu fyrirtæki skilað góðri
afkomu af rekstri síðasta árs, svo
meiri ástæða er til bjartsýni en oft
áður.
Full ástæða er til að benda á, að í
þessum landshluta öllum eiga sam-
vinnufélögin ríkan þátt í hinni ör-
uggu og farsælu atvinnuþróun,
framkvæmdum og sómasamlegum
viðskiptaháttum. Því er það, að
sundrungaröfl þjóðfélagsins sendi
þeim tóninn öðru hverju og tjái hug
sinn tli þeirra samtaka fólksins, sem
best hafa dugað í baráttunni fyrir
betra lífi.
390 nemendur voru í Tónlistar-
skólanum á Akureyri sl. ár
Þrítugasta og önnur skólaupp-
sögn Tónlistarskólans á Akur-
eyri fór fram í Borgarbíói 25.
maí 1977. Nemendur skólans
voru um 390 á vetrinum, en
einnig stunduðu 25 nemendur
nám við útibú skólans á Greni-
vík og álíka margir við Hrafna-
gilsskóla.
Skipting nemenda eftir náms-
greinum var eftirfarandi:
Forskóli 75
Píanó 135
Strokhljóðfæri 48
Blásturshljóðfæri 65
Söngur 32
Gítar 16
Aðsókn og áhugi fyrir tón-
listarnámi jókst verulega á
þessu ári, en fjölgunin var um
20% frá árinu áður. Kennara-
lið hélst óbreytt eða samtals 17
kennarar. Húsnæði skólans er
þegar of lítið og taka þurfti á
leigu viðbótarhúsnæði hjá
Fyrir fjórum árum var tekinn
upp s áháttur að efna til tísku-
sýninga í Blómasal Hótels Loft-
leiða hvern föstudag. Það voru
fyrirtækin íslenskur heimilis-
iðnaður, Rammagerðin og Hótel
Loftleiðir sem stóðu að sýning-
unum þar sem kynntur var ís-
lenskur klæðnaður unninn úr
íslenskri ull, að miklu leyti
handunninn. í dag hefjast tísku-
sýningarnar að nýju og fara sem
áður fram í Blómasal Hótels
Loftleiða og verða í hádegis-
verðartíma á hverjum föstudegi
til 2. september n. k. Frú Unnur
Arngrímsdóttir hefur frá upp-
hafi séð um tískusýningarnar
og mun stjórna þeim í sumar.
Undirbúningur hefur verið i
höndum Gerðar Hjörleifsdóttur
að hálfu íslensks heimilisiðn-
aðar, Hauks Guðmundssonar
vegna Rammagerðarinnar og
Emils Guðmundssonar fyrir
Hótel Loftleiðir. Ekki verður
unnt að telja upp allt það sem
sýnt verður, en hér eru flíkur
allt frá íslenskum ullarnærföt-
um til dýrindis samkvæmis-
klæðnaðar, en allt unnið úr ís-
lenskri ull. Margar flíkur eru
Framhald af 1. síðu.
Þarna voru einnig 40 ára stúd-
entar og fyrir þeirra hönd tal-
aði Birgir Finnsson og færði
þessi árgangur skólanum mál-
verk af Hermanni Stefánssyni,
gert af Sigurði Sigurðssyni list-
málara, einum úr þessum ár-
gangi. Fyrir hönd 25 ára stúd-
enta talaði Stefán Stefánsson
bæjarverkfræðingur og færði
skólanum að gjöf frá þeim álit-
lega fjárhæð í sögusjóð MA.
En ákveðið hefur verið að gefa
út sögu norðlenska skólans á
100 ára afmæli hans 1980. Sög-
una rita Steindór Steindórsson
frá Hlöðum, Gísli Jónsson,
menntaskólakennari og Tryggvi
Gíslason, skólameistari. Verkið
er hafið og verður í þrem bind-
um. Þar verður skrá um gagn-
fræðinga frá 1880—1930 og
stúdenta frá 1927—1980, ásamt
Karlakórnum Geysi og einnig
Karlakór Akureyrar. Hafin er
gerð áætlunar og fyrstu drög að
teikningu viðbyggingar við skól-
ann í Hafnarstræti 81, og standa
vonir til að skólinn fái 370 ferm.
húsnæði til viðbótar með því
móti. Á vetrinum voru haldnir
11 tónleikar, þar af voru 7 vor-
tónleikar, þar sem 140 nemend-
ur komu fram. Nokkrar tón-
listarkynningar voru haldnar á
vetrinum, en á þeim kynntu og
léku bæði kennarar og nem-
endur tónlist af ýmsu tagi. —
Tvær dagskrár voru fluttar í
barnaskólum bæjarins, en það
var kynning á strengjjahljóð-
færum og einnig píanótónlist.
Um áramótin var haldið viku-
námskeið við skólann, þar sem
Guðný Guðmundsdóttir fiðlu-
leikari, Hafliði Hallgrímsson
sellóleikari og Philip Jenkins
píanóleikari leiðbeindu kenn-
urum og nemendum í samleik
og einleik, jafnframt því að
handprjónaðar eða unnar í
heimahúsum og litlum verk-
smiðjum víðs vegar um land.
Þá mun Guðrún Vigfúsdóttir
frá ísafirði sýna handofinn
klæðnað og Jens Guðjónsson
gullsmiður sýnir silfurskraut.
Þá verða sem fyrr segir íslensku
ullarnærfötin til sýnis, en þau
hafa fyrir löngu hlotið viður-
kenningu allra sem útilíf stunda
og þykja einhlít í köldu lofts-
lagi.
Það nýmæli verður á tísku-
sýningunum að nú verður sýnd
tóvinna og sér frú Sigrún Stef-
ánsdóttir um þann þátt sýning-
arinnar. Hárgreiðslu sýningar-
stúlknanna annast Hárgreiðslu-
stofan að Hótel Loftleiðum. —
Undanfarin sumur hafa tísku-
sýningarnar vakið mikla athygli,
bæði erlendra og innlendra
gesta í Blómasal. Þarna gefst
gestum tækifæri til að sjá
margbreytileik íslensks ullar-
iðnaðar, sem ber vott um snilli
þeirra sem framleitt hafa þenn-
an fatnað og skrautmuni.
í Blómasal stendur gestum til
boða mikill fjöldi rétta og þar
er í hverju hádegi kalt borð
skrá um kennara og starfsmenn.
Margar myndir verða í þessum
bókum. Inn í þetta verður felld
byggingarsaga skólans, skráð af
Árna heitnum Kristjánssyni,
menntaskóla'kennara. Þarna
voru og 10 ára stúdentar og fyr-
ir þeirra hönd talaði séra Jakob
Hjálmarsson frá Seyðisfirði og
afhenti hann nemendafélagi
búnað í fundaherbergi.
Nú lætur af störfum við
Mlenntaskólann á Akureyri,
Ragnar Stefánsson, sem kennt
hefur í 13 ár ensku og sögu.
Skólameistarinn, Tryggvi
Gíslason, afhenti prófskírteini
og ávarpaði hina brautskráðu
stúdenta og aðra viðstadda.
Þess má ennfremur geta, að
hinn 11. júní var opnuð í skól-
anum málverkasýning Hrings
Jóhannessonar og lauk henni á
sunnudag, eftir góða aðsókn.
leika sjálf og fjalla um eigin
verkefni. Það var starfi skólans
mikil lyftistöng að fá þessa
ágætu heimsókn, og eru vonir
bundnar við framhald á slíku
starfi. Alls voru þreytt 365 próf
á vetrinum, þar af voru 164 tón-
fræðipróf og 201 hljóðfærapróf.
Stigspróf skiptast þannig eftir
námsgreinum:
píanó 48
fiðla 10
orgel 17
tónfræði 106
píanó 48
Kristinn Örn Kristinsson lauk
einleikaraprófi í framhaldsstigi
á píanó, en hann er fyrsti nem-
andinn sem lýkur sambærilegu
prófi. Kristinn hlaut viðurkenn-
ingu fyrir ágæta frammistöðu í
námi. Þórunn Rafnar lauk 8.
stigsprófi i píanóleik, og hlaut
viðurkenningu fyrir góðan ár-
angur.
með um 60 réttum. Á kalda
borðinu er m. a. íslenskur mat-
ur og hefur hótelið látið sér-
prenta upplýsingar um t. d.
skyr, svið og fleira.
(Fréttatilk. frá Kynningar-
deild Flugleiða hf.).
• Hugleiðing um
yfirlýsingu.
í 19. tölubl. Dags birtist yfirlýs-
ing frá nokkrum Eyfirðingum
út af ummælum um heimilið að
Draflastöðum í Sölvadal í ævi-
minningabók Tryggva Emils-
sonar, „Fátækt fólk“. — Yfirlýs-
ing þessi ásamt greinargerð
vakti athygli mína og umhugs-
un. Ég ,vil taka \ , 5
mér er ekki máli kylt •’ð
neinu leyti og ekk; -’t
um sannleiksgildi uoi.jmnar af
eigin raun. Hinsvegar þekki ég
Tryggva Emilsson sem mesta
sómamann, svo ég gefi honum
sömu einkunn og Ketill á Finna-
stöðum og félagar gefa Drafla-
staðafólki: Ketil og aðra þá sem
undir yfirlýsinguna rita, þekki
ég hinsvegar ekki, en þau ár
sem ég bjó á Akureyri heyrði
ég Ketils getið sem sveitarhöfð-
ingja og heiðursmanns. Ég hefi
því ekki ástæðu til að ætla að
yfirlýsing þessa fólks sé ekki
af heilindum samin og réttmæt
frá þeirra sjónarhóli. En málið
er bara ekki svona einfalt, þótt
hver og einn gefi yfirlýsingar
eftir bestu vitund, segir það
ekki allan sannleikann, sagt er
að sínum augum líti hver á
silfrið og það sem einn segir
svart sýnist öðrum hvítt. —
Tryggvi Emilsson lýsir Drafla-
staðafólki frá sínum sjónarhóli,
en ekki frá bæjardyrum Ketils
á Finnastöðum, ef til vill var
einhver munur á útliti fólksins
frá þessum tveimur sjónarhorn-
um. Ég hefi mikinn áhuga á
æviminningum og les allt sem
ég kemst yfir af slíkum bók-
Eftirtaldir nemendur hlutu
viðurkenningu fyrir fjölþætt
störf í þágu skólans og góða
frammistöðu: Amhildur Val-
garðsdóttir í klarinett og píanói,
Gréta Baldursdóttir í fiðluleik,
Guðrún Kristjánsdóttir í söng,
Gunnfríður Hreiðarsdóttir í
söng, Gyða Þ. Halldórsdóttir í
orgelleik, Helga Alfreðsdóttir í
söng, Hjálmar Sigurbjörnsson í
trompetleik, Hulda F. Hilmars-
dóttir í fiðlu- og harmonium-
leik, Jóhann Baldvinsson í org-
eli og tónfræði, Magna Guð-
mundsdóttir í fiðluleik, Níels
Ragnarsson í harmoniumleik og
tónfræði, Rún Halldórsdóttir í
harmoníumleik og altflautuleik,
Sigurlaug Amgrímsdóttir í
sellóleik, Sveinn Sigurbjöms-
son í trompetleik og Örn Magn-
ússon í píanóleik. Við skólaslit-
in var í fyrsta sinn úthlutað
námsstyrkjum úr Minningar-
sjóði Þorgerðar Eiríksdóttur, og
hlutu Helga G. Hilmarsdóttir og
Hörður Áskelsson styrk að upp-
hæð 100.00 kr. hvort um sig.
Þau stunda bæði framhaldsnám
í orgelleik í Þýskalandi.
Tveir af kennurum skólans
flytja úr bænum á þessu sumri,
en það eru Claudia Hoeltje
fiðlukennari og Agnes Bald-
ursdóttir píanókennari. Þeim
voru færðar þakkir við skóla-
slitin fyrir mjög árangursríka
kennslu. Á næsta hausti þarf
skólinn að ráða 3 nýja kennara.
Starfsemi Tónlistarskólans var
með allra fjölbreyttasta móti á
þessum vetri, og skipar hún
stöðugt vaxandi rúm í tónlistar-
lífi bæjarins.
(Fréttatilk. frá Tónlistarskól-
anum, Akureyri).
menntum, en þar finnst mér
misjafn sauður í mörgu fé, mér
líka ekki þeir ævisöguhöfundar,
sem geta í hvorugan fótinn
stigið út af ótta við að stíga á
einhvers strá, en reyna í þess
stað að tíunda eigið ágæti,
stundum á allhæpnum forsend-
um. Þá vil ég heldur biðja um
æviminningar í stíl Tryggva
Emilssonar. Hann hlífir ekki sér
eða sínu fólki fremur en öðrum.
í greinargerð undrast höfundar
dáðleysi föður hans í sambandi
við vistina á Draflastöðum. —
Svar við þessu er að finna á
bls. 94 í bók Tryggva þar sem
segir: „lýsir ekkert betur fátækt
hans og úrræðaleysi að koma
börnum sínum fram á einhvem
hátt, en sú ráðstöfun að reyra
mig niður í vist, sem barni er
vituð ofraun að þola“. Þetta sýn-
ir að mínu viti að hann dregur
ekki undan hver átti fyrst og
fremst sök á þeirri kvöl, sem
hann telur sig hafa orðið að þola
á Draflastöðum, ekki vegna
neinnar mannvonsku heimilis-
fólksins þar, heldur vegna eigin
volæðis og vonleysis. Þá kem ég
að því atriði sem yfirlýsingin
fjallar um, en það er lýsing
Tryggva á aðbúð hans á þessu
heimili og viðmóti fólksins þar.
Ég get ekki séð við lestur bók-
arinnar að þar sé neitt frá-
brugðið því sem gerðist á þess-
um árum, þegar í hlut áttu
„gustukabörn“, nema síður sé.
Maður hefur oft lesið hroðaleg-
ar lýsingar á meðferð þessara
vesalinga. En í þessu tílfelli er
ekki um neitt slíkt að ræða,
hann er sárasjaldan skammað-
íslenzk tískusýning
að Hótel Loftleiðum hvern föstudag
-114 stúdentar brautskráðir
4 • DAGUR
Doktorsvörn í Lundi
Þann 25. maí sl. varði íslenskur
læknir, Arnar Þorgeirsson ,dokt-
orsritgerð við læknadeild Há-
skólans í Lundi. Ritgerðin
nefnist „Sensitization Capacity
of Epoxy Resin Compounds".
Fjallar hún um ofnæmi af völd-
um Epoxy-plastefna, sem eru
mikið notuð í iðnaði, ekki síst
byggingariðnaði. Leiðir ritgerð-
in í ljós, að ofnæmið stendur
fyrst og fremst í sambandi við
mólekúlstærð þessara plastefna,
enda þótt þau efni, sem notuð
eru til að herða og þynna plast-
efnin, skipti einnig nokkru
máli. Niðurstöður ritgerðarinn-
ar benda eindregið til þess að
koma megi í veg fyrir ofnæmis-
áhrif Epoxy-plastefna með því
að nota aðeins þau þeirra, sem
ekki innihalda minnstu gerðir
mólekúla (Expoxy-ólígómera).
Doktorsvöminni stjómaði
Hans Rorsman, prófessor og
yfirlæknir við húðsjúkdóma-
deild Háskólans í Lundi. And-
mælandi var Jan Wahlberg,
dósent við Karólinska sjúkra-
húsið í Stokkhólmi. Taldi hann,
að niðurstöður ritgerðarinnar
hefðu beint notagildi til að
hindra ofnæmi af völdum
Epoxy-efna, án þess þó að notk-
un þeirra, sem miklu máli skipt-
ir í iðnaði, þyrfti að minnka.
Arnar Þorgeirsson er fæddur
í Húsavík árið 1936, sonur hjón-
anna Ólafar Baldvinsdóttur og
Þorgeirs Sigurðssonar bygg-
ingarmeistara. Kona Arnars er
Guðríður Guðmundsdóttir,
Reykjavík.
(Fréttatilkynning).
Tískufatnaður vestur
um haf frá Akureyri
Iðnaðardeild Sambandsins er
nú að selja fullunnar prjóna-
vörur til Bandaríkjanna og Kan
ada fyrir 140 milljónir króna,
en allt bandið í þennan fatnað
er unnið í Gefjun. Prjónavör-
Minningarsjóður Þorgerðar
inn kemur á tónleikum skólans.
Að þessu sinni bárust sjóðnum
6 umsóknir, og Var sjóðstjóm
samdóma í úthlutun tveggja
styrkja til þeirra Helgu G.
Hilmarsdóttur og Harðar Ás-
kelssonar. Þau stunda bæði
framhaldsnám í orgelleik í
Þýskalandi með ágætum og lof
samlegum vitnisburði. Upphæð
styrkjanna nú eru kr. 100.000
fyrir hvorn styrkþega. Það er
von sjóðstjómar að styrkveit-
ingar þessar megi verða nem-
endum skólans hvatning í
ströngu námi, og að hægt verði
að veita styrki árlega, en það
verður háð fjármögnun og á-
vöxtun sjóðsins á hverjum
tíma. Sjóðstjórnin vill koma
á framfæri þakklæti til þeirra
fjölmörgu aðila, sem styrkt hafa
sjóðinn á einn eða annan hátt.
(Fréttatilkynning).
Við skólaslit Tónlistarskólans á
Akureyri þ. 25. maí síðastliðinn
fór fram fyrsta styrkveiting úr
Minningarsjóði Þorgerðar Ei-
ríksdóttur. Sjóðurinn, sem er í
vörslu og umsjá Tónlistarskól-
ans á Akureyri, var stofnaður
eftir fráfall Þorgerðar Eiríks-
dóttur veturinn 1972, en Þor-
gerður var gædd miklum tón-
listarhæfileikum, og einn af dug
legustu nemendum er stundað
hafa nám við skólann. Markmið
sjóðsins er að styrkja efnilega
nemendur til framhaldsnáms í
tónlist að loknu námi við Tón-
listarskólann á Akureyri. Sjóð-
urinn er ávaxtaður að veruleg-
um hluta í vísitölutryggðum
skuldabréfum, en tekjur hans
byggjast á sölu minningarkorta
í bókaverslununum Huld og
Bókval á Akureyri, einnig á
frjálsum framlögum og því, sem
urnar eru úr íslenskri ull og er
tískufatnaður, svo sem peysu-
kápur, ýmist í sauðalitunum
eða öðrum litum.
Ennfremur er fyrirhugað, að
Gefjun vefi 75 þúsund metra
af kápuefni og er væntanlegt
söluverðmæti um 100 milljónir
króna. Þriðjungur þessa efnis
hefur þegar verið framleiddur.
Til stóð að framleiða flíkur úr
þessu efni hér, og búið var að
hanna 28 flíkur, en framleiðslu-
geta var ekki fyrir hendi og
er hugsað til að gera það síðar.
Umboðsfyrirtæki Sambands-
ins í Bandaríkjunum, Icelandic
Fashions Corporation í New
York, hafði milligöngu til fyrir-
tækisins Kintic í Kanada, er
hefur höfuðstöðvar í Montreal
og rekur víðtæk viðskipti í
Bandaríkjunum.
Sem kunnugt er, er stjórn
Iðnaðardeildar Sambandsins á
Akureyri. Framkvæmdastjóri
hennar er Hjörtur Eiríksson, en
sölustjóri útflutnings Iðnaðar-
deildar er Jón Arnþórsson. Q
Ý
Sigurjón
Friðriksson
F. 8. sept. 1911
D. 16. okt. 1975
KVEÐJA FRÁ AFABÖRNUM, KTODA, HÖNNU,
OG HEIÐBJÖRTU IDU.
Með þakklátum huga þér sendum við senn
síðbúna kveðju í ljóði,
því minjamar dýrmætu eigum við enn,
afi okkar, trygglyndi og góði.
Frá ámnum liðnu við munum svo margt
sem mætti úr safninu tína.
Þótt syrti í álinn var brosið þitt bjart,
við blessum öll minningu þína.
Er vorgolan hlýja um vanga þér strauk,
oft vanliðan tókst þá að dylja.
Með trúmennsku og dyggð þínu dagsverki lauk,
við dáðum þinn baráttuvilja.
Þín frásagnarsnilld var svo lifandi létt,
þú löngum varst maðurinn sterki.
Sannkölluð hetja í sjómannastétt,
það sýndirðu í orði og verki.
Dr. Arnar Þorgeirsson.
Töluverð starfsemi verður fyrir
aldraða í sumar á vegum Félags-
málastofnunar Akureyrar. —
Sumardvöl verður að Löngu-
mýri í Skagafirði dagana 8.—19.
ur og ekki er hann barinn ef frá
eru taldir hrekkir vinnumanns-
ins, sem tæpast er hægt að
flokka undir mannvonsku þótt
sannir væru, enda virðist ekki
hafa þurft mikið við drenginn
að koma svo að hann kveinkaði
sér, enda reynir Tryggvi oftar
en einu sinni í bók sinni að af-
saka þessar gerðir hans, með
því að hann hafi átt harðýðgi
að mæta í uppvexti. Þar -að
auki þekki ég fleira en eitt
dæmi þess að menn hafi verið
hrekkjóttir á yngri árum en
reynst síðar sómamenn og hvers
manns hugljúfar. Um eldri
hjónin vil ég segja það, að lýs-
ing hans á þeim virðist mér
mjög sannferðug, á þessa tíma
mælikvarða, hvernig var hægt
að búast við því að þessi hjón
sem þræluðu myrkranna á milli
í fullkomnu miskunnarleysi við
sjálft sig sýndi öðrum glaðværð
og tillitssemi. Það þóttu engir
sómamenn í þá daga sem ekki
gátu séð sér og sínum farborða,
en það var ekki hægt nema með
stanslausu striti og hörku. Þessi
þáttur bókarinnar er í mínum
augum lýsing á sjúklegri sálar-
kvöl drengs, sem þekkti betri
kjör og hafði hvorki þrek né
hugarstyrk til að taka því sem
að höndum bar, enda ungur að
árum. Þessi tími hefir því meitl-
ast í huga hans sem endalaus
röð dimmra daga, þar sem
hvergi sá vonarglætu og allir
virtust honum andsnúnir, jafn-
vel hans eigin faðir. En þarna er
líka að finna meistaralega lýs-
ingu á búskaparháttum og hí-
býlaskipan þessa tíma. Að þessu
athuguðu virðist mér yfirlýsing
Ketils og félaga vera vafasamur
greiði við afkomendur Drafla-
staðafólks og vera til þess eins
að vekja óverðskuldaða athygli
á því sem höfundur segir þessu
fólki til hnjóðs, því ég þykist
vera þess fullviss að afkom-
endur okkar muni lesa þessa
bók sem aldarfarslýsingu, sam-
fara frásögn af lífshlaupi höf-
undar, en ekki sem úttekt á
mannkostum Draflastaðafólks,
sem að mínu viti eru hvorki
meiri eða minni en hjá öllum
þorra bændafólks á þessum tím-
um, sem má í einu orði kalla
mesta sómafólk, sem við og lít-
um til með þakklæti fyrir það
að hafa þreyð þorrann og gó-
una, og undirbyggt þá þróun,
sem hefir valdið byltingu í lífi
okkar sem nú eru ofar moldu,
og það svo, að synir okkar og
dætur trúa því vart að hægt hafi
verið að framfleyta lífinu við
þau kjör sem fólkið í landinu
bjó við upp úr síðustu aldamót-
um.
Þetta er nú orðið lengra mál
en ég hafði ætlað mér i upphafi
og vonast eg til að það gefi ekki
tilefni til nýrra yfirlýsinga. Vil
ég svo biðja Ketil á Finnastöð-
um afsökunar á því að ég hefi
notað nafn hans á nokkrum
stöðum sem samnefnara fyrir
undirskriftarfólk.
Þótt mig langi til að skrifa
meira um bók Tryggva Emils-
sonar, sem ég tel í rnegindrátt-
um góðar bókmenntir læt ég
hér staðar numið að sinni.
Reykjavík 10. maí 1977.
Höskuldur Egilsson.
Félagsstarf aldraðra í sumar
ágúst og verður farið þaðan í
dagsferðir um Skagafjörð. Fæði
og ferðir til og frá Löngumýri
og einnig um Skagafjörð eru
innifaldar í verði, en þátttak-
endur þurfa að greiða kr.
20.000. Kostnað umfram þá upp-
hæð greiðir Félagsmálastofnun-
in. Fólk þarf að taka með sér
rúmfatnað. Fararstjóri verður
sr. Pétur Sigurgeirsson. Þeir,
sem áhuga hafa á sumardvöl að
Löngumýri ,eru beðnir að snúa
sér til Félagsmálastofnunar-
innar sem fyrst.
Opið hús verður annað slagið
í sumar í húsakynnum skóla-
dagheimilisins Brekkukots að
Brekkugötu 8. Verður 6. og 20.
júlí og einnig 3. og 24. ágúst kl.
3—6. Verður þar selt kaffi og
spil og töfl liggja frammi.
Farið verður í stutta ferð
fimmtudaginn 23. júní til Greni-
víkur. Lagt verður af stað frá
Ferðaskrifstofu Akureyrar við
Strandgötu kl. 1.
Hengd hefur verið upp aug-
lýsingatafla í afgreiðslu Trygg-
ingastofnunar ríkisins,
Þessi mynd af Stefaníu Vil-
hjálmsdóttur húsfreyju á Urr-
iðavatni átti að fylgja minn-
ingarljóði, sem búið er að birta
hér í blaðinu, en kom ekki í
tæka tíð. Stefanía fæddist 13.
ág. 1939 en andaðist 3. febr. 1977.
DAGUR•5