Dagur - 13.07.1977, Síða 2
lilllll í 1' © ’ýsii !
Barnaöæsla i Atvinna Tapad
Barnfóstra óskast til að gæta
3ja ára stúlku.
Uppl. I Dalsgerði 5 a.
g/fre/d/r
Til sölu Volvo stadion árg.
1971 ekinn 100 þjús. km.
Ástand gott.
Simi 21159.
Til sölu vel með farin Toyota
Corona Mark II árg. 1974
ekinn 40 þús. km.
Sími 23495 eftir kl. 19.
Sunbeam 166 L árg. 1975 til
sölu, A 5966. Ekinn 20 þús.
km.
Uppl. i sima 21412.
Citroen G. S. stadion árg.
1976 til sölu. Ekinn aðeins
7.500 km.
Uppl. f sima 21718 eftir kl. 17.
Til sölu Mercedes Benz 280
SE árgerð 1971.
Uppl. I sima 33165.
Tll sölu Skoda árg. 1970 i þvl
ástandi sem hann er eftir
árekstur. Nýleg vél.
Haraldur Hjartarson,
Grund, Svarfaðardal.
Fundið
Óskila kettlingur.
Uppl. f sima 23047.
Vil kaupa vel með farið
vélhjól.
Uppl. t slma 19565 eftir kl. 19.
Lltið vélhjól óskast.
Uppl. í síma 11161 eftir kl. 20.
Unga konu vantar vinnu strax
helst við afgreiðslustörf.
Hef meðmæli ef óskað er.
Uppl. í slma 21335.
Sala
Til sölu Lenco plötuspilari og
Sansui magnari.
Uppl. I sima 19785 eftir kl. 18.
Til sölu New Holland heybindi
vél, lltið notuð, einnig 10
tonna St. Pauls sturtur með
18 feta stálpalli.
Sveinberg Laxdal, Túnsbergi,
slmi 23100.
Til sölu fjögurra hjóla lyftu-
tengd Vicon rakstrarvél.
Snorri Árnason, Völlum.
20 kýr til sölu nú þegar eða
I haust.
Sigurjón. H. Sigurðsson,
Vermundarstöðum, Ólafsfirði.
Til sölu frímerkjasafn og
fyrsta dags umslög.
Slmi 11058.
Barnakerruvagn sem nýr til
sölu.
Uppl. í Hrafnagilsskóla hjá
Garðari Karlssyni.
Nýlegt hjónarúm til sölu.
Uppl. I slma 19553 á kvöldin.
Tún til leigu, ennfremur hey-
vinnuvélar til sölu, svo sem
dráttarvél, múgavél, heytætla
og sláttuþyrla. Allt yngra en
frá 1974.
Uppl. I Böðvarsgarði
I Fnjóskadal.
Bújörð til sölu f grennd við
Akureyri með áhöfn ef viðun-
andi boð fæst. Skipti á húsi
getur komið til greina.
Uppl. í sfma 22967.
Tapast hefur svartur kettlingur
Finnandi vinsamlegast hringi
f síma 22072.
Húsnæðj
16 ára stúlka óskar eftir að
taka herbergi á leigu með að-
gang að eldhúsi og baðher-
bergi f vetur.
Uppl. ( sima 41149 eftir kl.
18,30.
2—3ja herb. ibúð óskast til
leigu frá 1. okt.
Uppl. I slma 22142.
Er á götunni með 3 börn,
hver vill leigja með 2ja—3ja
herb. (búð strax. öruggar
mánaðargreiðslur.
Uppl. f sfma 21335.
Ung stúlka óskar eftir Iftilli
fbúð til leigu frá og með 1.
okt.
Uppl. f sfma 21169.
Óskum eftir leiguíbúð á Ak-
ureyri f skiptum fyrir húsnæði
á Húsavfk.
Sfmi 41353 eftir kl. 7 e. h.
Ungur maður óskar eftir fbúð
á leigu á Akureyri.
Uppl. í sfma 62380.
Fyrirtæki hér I bæ óskar að
taka á leigu 4ra til 6 herb.
fbúð strax.
Uppl. gefur Friðrik Ágústsson
f sima 22211 milli kl. 8 og 17.
Óskum að taka 2ja—4ra herb.
íbúð á leigu sem fyrst. Fyrir-
framgreiðsla ef óskað er.
Uppl. f slma 21834 frá kl.
13—19.
Óska eftir lítilli góðri ibúð til
leigu I 3—4 mánuði.
Uppl. í síma 19607.
Frá lögreglunni á Akureyri
Jón Tryggvason Artúnum
Á föstudagsnótt var bifreið
stolið í Lundarhverfi, en hún
fannst síðan við Landsbankann.
En litlu síðar kom þangað
Landrovereigandi úr Þingvalla-
stræti og hafði bíllinn fengið á
sig skrámu af árekstri og
fannst hjá honum stefnuljós,
sem reyndist vanta á stolna bfl-
inn.
En snemma um morguninn
fóru þjófabjöllur Landsbankans
að láta til sín heyra, enda búið
að brjóta rúðu í hurð að norð-
anverðu í bakanum. Ekki sást
þar annar maður en sá, sem
bílnum hafði stolið í Lundar-
hverfi. Var hann undir áhrif-
um áfengis og var tekinn í
geymslu lögreglunnar. Játaði
hann að hafa brotið glerið í
hurð bankans. Um sama leyti
var rúða bortin í Ljósmynda-
stofu Páls. Grunur leikur á, að
sami maður hafi verið að verki
á öllum stöðunum, og er sá
ekki úr bænum. Þá ók piltur
einn bifhjóli sínu frá kirkjunni
og niður bratta brekku og end-
aði sú för á sjúkrahúsi, með
aðstoð hjálparmanna. Innbrot
var framið í Verslunina Drífu á
sunnudagsnótt og einhverju
lítilsháttar stolið af peningum.
Mikið ber á því í bænum, að
stórvirk tæki skemmi eða slíti
raflagnir og síma, er þeim er
beitt við hitaveituframkvæmdir
í bænum.
Aðalfundur Skógræktarfélags
Eyfirðinga var haldinn 4. júní
sl. Voru gerðar nokkrar skipu-
lagsbreytingar á félaginu, þann-
ig að deildaskipting var lögð
niður, en í stað þess er nú ima
að ræða 'beina aðild allra sem
eiga eða hafa átt heima í sýsl-
unni. Auk þess geta félög, eins
og Ungmennafélög, Kvenfélög,
Búnaðarfélög og önnur félög,
sem stuðla að skógrækt gert að-
ildarfélög að Skógræktarfélagi
Eyfirðinga.
Eins og áður munu félags-
- Fiskverðið
Framhald af blaðsíðu 7.
eftirfarandi tekið fram: Þegar
slægður fiskur eða óslægður
karfi er ísaður í kassa í veiði-
skipi og fullnægir gæðum í 1.
flokki, greiðist 12% hærra verð
en að framan greinir, enda sé
ekki meira en 60 kg af fiski ísað
í 90 Itr. kassa, 45 kg í 75 Itr
kassa og tilsvarandi fyrir aðrar
kassastærðir.
í sambandi við plöntukaup frá
Uppeldisstöð félagsins.
Fram kom á fundinum, að
unnið er markvisst að endur-
uppbyggingu Uppeldisstöðvar-
innar og er vonast til að strax
á næstu árum verði hægt að
bjóða upp á aukna fjölbreytni í
plöntuvali. Samhliða því er
fyrirhuguð aukin fræðsla um
plöntun og hirðingu trjáplantna.
Á síðast liðnu ári var plantað
í reiti félagsins allt um 30.000
plöntum og er áætlað að planta
álíka magni í ár.
En aðalviðfangsefni sumars-
ins í trjáreitum á vegum félags-
ins verður grisjun og hirðing,
einkum í elstu reitunum, sem
víða eru orðnir mjög þéttvaxn-
ir. Umferð um útivistarsvæðið í
Kjama hefur farið mjög vax-
andi seinni árin og um mitt sl.
sumar fór fram talning á bfla-
umferð um svæðið og kom þá
í ljós að um 100 bílar fóru um
svæðið á viku.
Jón Tryggvason bóndi og odd-
viti í Ártúnum Blöndudal er
sextugur í dag. Hann er sonur
hjónanna Guðrúnar Jónsdóttur
og Tryggva Jónassonar bónda í
Finnstungu. Þau eru bæði lát-
in fyrir allmörgum árum.
í fimmtugsafmæli Jóns flutti
ég ræðu sem fór fyrir ofan garð
og neðan hjá okkur báðum og
öllum viðstöddum. Þannig gæti
einnig farið með þennan greinar
stúf.
Ártún stendur á nesi, sem
gengur útfrá Tungunni og blas-
ir við af norðurlandsveginum.
Þar fyrir norðan koma Svartáin
og Blanda saman og renna í
einum farvegi til sjávar.
-Á þessu nesi stóð býlið Ytra-
tungukot áður í litlu túni með
samsvarandi byggingum komn-
mn að fótum fram og flagmóa
allt í kring.
Á furðulega skömmum tíma
urðu þama viðlíka undur og
Hamsun lýsir í Gróðri jarðar.
Mennirnir sem stórvirkin gerðu:
fsak í Landbrotum og Jón
Tryggvason, annars eins ólíkir
og dagur og nótt.
Þama á nesinu eða Tungu-
sporðinum reis á skömmum tíma
nýbýli frá grunni. Jón mun al-
drei hafa tekið víxil fyrir sjálf-
an sig meðan á þessum fram-
kvæmdum stóð, en einu sinni
skuldaði hann tvö þúsund krón-
ur í kaupfélaginu yfir áramót.
Hann vann þetta mikið einn
með bræðrum sínum. Ég vissi
ekki hvemig hann kom því í
verk og það var fleirum hulið.
Sveitungamir spáðu illa fyrir
honum og sögðu hann færi á
hausinn. Allt í einu stóðu samt
húsin þama í sléttu túninu eins
og ekkert hefði í skorist.
Nátthrafnar, sem oft eru á
ferli upp úr miðjmn nóttmn,
sáu stundum til Jóns reka
ásæknar túnrollur úr vellinum
fram á Tunguna, ævinlega hund
lausan en frábærlega léttan á
fæti. Stuttu síðar bárust
kannski hamarshögg út í vor-
næturkyrrðina og fleiri hljóð,
sem verða af önn manna við að
byggja yfir sig og búpening
sinn. Engan heyrði ég kvarta
yfir að þessi nötnu amsturhljóð
manns sem vel var kominn að
verki brytu í bága við lögmál
þagnarinnar er ríkja skyldi á
þessum tíma sólarhrings á svo
fögrum stað, heldur þvert á
móti.
Aldrei brást, að þegar gestir
fóru að týnast þangað heim upp
úr miðjum morgni einhverra
erinda — stundum fyrr — var
Jón kominn í bæinn glaður og
viðræðugóður að leysa vanda
fólks og hlusta á það sem að-
komumenn höfðu að segja um
tíðina og skepnuhöldin heima
hjá sér. Sjálfur heyrðist hann
ekki segja margt um þá hluti.
Fé hans bar ævinlega án þess
að orðum væri að því eitt,
heima á túni eða inn í húsum,
áður en sauðburður hófst á öðr-
um bæjum.
Stundum þegar gamalgrónir
sveitamenn eru sestir að í sjáv-
arplássum geta þeir ósjálfrátt
farið að hugsa upphátt um lagð-
prútt sauðfé renna heim að hús-
um til innlátningar í kvöldkyrr-
unni á útmánuðum. Sveitungar
Jóns hafa verið svo lánsamir að
þurfa ekki að sjá á eftir honum
í einhvem kaupstaðinn til bú-
setu. Eigi að síður minnir mig
ég hafi heyrt hann nefna út-
mánuði í miðju skammdeginu
hýran í bragði. Ekki með nein-
um yfirborðskenndum fögnuði
eða látum, heldur með þýðleika
í röddinni, sem minnti á vor-
dægur eða fyrsta þeyvind sum-
arsins. — Kannski hefur mig
dreymt þetta.
Ég las nýverið sögu eftir kín-
verskan höfund, sem heitir
Fjallaþorpið. Hún hefst á þessa
leið:
„í góðærum ómaði dalurinn
jafnan af söng frá morgni til
kvölds, jafnvel þótt enginn lyki
upp mimni var eins og söngur-
inn lægi f loftinu og þrjóskaðist
við“.
Núna, eftir að ég er fluttur
úr sveitinni, finnst mér að þar
hafi alltaf verið góðæri og mik-
ill og fagur söngur. Jón Tryggva
son var þá og er enn í dag afl-
vaki og stjórnandi þessa söngs.
Hann hefur stjómað Karlakór
Bólstaðarhlíðarhrepps í aldar-
fjórðimg. Alltaf þegar söng ætl-
aði að bresta, þrjóskaðist Jón
við, uns söngur ómaði á ný. —
Með mjúkri glettni og gaman-
mál á vörum, mætti hann á æf-
ingum oftast manna fyrstur.
Tónninn var gefinn og mennim-
ir skipuðu sér í raðir. Fram-
koma Jóns skapaði andrúmsloft-
ið á þessum samfundum. Þessu
vetrarstarfi lauk um sama leyti
og farfuglamir létu til sín
heyra á vorin.
Jón hefur starfað mikið í fé-
lagsmálum fyrir sveit sína og
sýslu. Hann hefur setið í flest-
um þeim stjómum og nefndum
sem falla til á slíkum stöðum.
Hann er róttækur í skoðunum,
eindreginn talsmaður gegn er-
lendri stóriðju og hverskonar
erlendri áslæni. Því fólki fer
nú að sögn ört fjölgandi sem
betur fer, er halda vill landi
sínu hreinu og frjálsu.
Kona Jóns er Sigríður Ólafs-
dóttir frá Mörk í Laxárdal. Hún
er mikilhæf kona og honum
samhent um allt sem horft hef-
ur til uppbyggingar og bóta fyr-
ir heimili þeirra og sveit. Þau
eiga sjö mannvænleg börn sem
allstaðar hafa kynnt sig vel,
eins og þau eiga ætt til.
Ég óska Jóni og fjölskyldu
hans allra heilla imi leið og ég
þakka fyrir mig.
Skr. 28. mars.
Guðmundur Halldórsson
frá Bergsstöðum.
E.s.
Þessi greinarstúfur var sendur
Tímanum til birtingar 28. mars,
en hafði ekki séð þar dagsins
ljós 4. júlí, þrátt fyrir ítrekaðar
óskir mínar. — G. H.
Hestur í óskilum
í Syðra-Holti, Svarfaðardal. Alrauður, járnaður ca.
5—6 vetra. Mark líkist blaðstíft framan, fjöður
aftan hægra. Vaglskora framan, biti aftan vinstra.
Hreppstjóri Svarfaðardaishrepps.
Auglýsing um uppboð
Opinbert uppboð fer fram á óskilamunum í vörslu
lögreglunnar á Akureyri við lögreglustöðina á
Akureyri föstudaginn 15. júlí 1977 kl. 16,00.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
UPPBOÐSHALDARINN Á AKUREYRI
12. júlí 1977.
Frá Skógræktarfélagi Eyfirðinga
2•DAGUR