Dagur - 13.07.1977, Síða 4
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar: Ritstjóm 11166, Augl. og afgreiðsla 11167
Ritstj. og ábyrgðarm.: ERLINGUR DAVÍÐSSON
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Bjömssonar hf.
Rannsókn vegna
Blönduvirkjunar
Gerð hefur verið, af þeim dr. Herði
Kristinssyni og Helga Hallgrímssyni,
náttúrufræðingum hjá Náttúrugripa-
safninu á Akureyri, náttúruvemdar-
könnun á virkjunarsvæði Blöndu.
Könnun þessi, sem gerð var að til-
hlutan Orkustofnunar, hefur komið
út í bók. Er þar að finna lýsingu á
landi og lífríki, sem yrðu e. t. v. fyrir
beinum áhrifum virkjunar. Meðal
annars segir, að fá sérstæð náttúm-
fyrirbæri séu á svæðinu og unnt að
hlífa þeim þótt fmmáætlun virkjun-
ar kæmist í framkvæmd. Þar segir
ennfremur: Auk vemdarsvæðanna,
sem tillögur em lagðar fram um, em
aðalverðmætin fólgin í votlendinu,
þ. e. hinum frjósömu flóum,tjömum
og vötnum, sem framfleyta all fjöl-
breytilegu lífi, og í þeirri staðreynd,
að þurrlendið er mest allt gróið og
með jarðvegslagi. Þar sem mikill
hluti hinna íslensku öræfa em örfoka
land og ógróið, verða þau heiðalönd,
sem enn em með lífmiklu votlendi
og fullgróin, ekki metin til fjár.
Töluverð hætta kann að vera á
skemmdum út frá lónstæðinu og
vatnaleiðinni vegna áfoks og upp-
blásturs þegar frá líður, einkum til
norðurs. Teljum við nauðsynlegt að
vara við þeirri hættu, og ef af fram-
kvæmdum verður, þarf að fylgjast
vel með slíkum áhrifum. Gróður-
samsetning og frjósemi þurrlendis-
ins em mjög rýrð af langvarandi beit,
og gefa því engan veginn rétta mynd
af náttúrlegu gróðurfari heiðarinn-
ar. Beitargildi afréttarins í dag, er
því aðeins hluti af því, sem heiðin
hefur gefið af sér.
Varðandi fyrirætlanir um ræktun
beitilanda í grennd lónstæðisins, vilj-
um við benda á, að erigin reynsla er
fyrir hendi um það, hvemig viðhalda
megi stómm, ræktuðum beitarlönd-
um á hálendinu til lengdar og verja
þau fyrir kali, uppblæstri, vatnsrofi
og öðmm áföllum frá náttúmnnar
hendi.“
Land það, sem hér um ræðir, nær
yfir stóran hluta Auðkúluheiðar og
sneið af Eyvindarstaðaheiði og ræð-
ur Blanda mörkum þeirra. Lón-
stæðið, sem náttúmfræðingarnir
kalla það land, sem fer undir vatn
ef virkjað verður, er 60 ferkilómetr-
ar að stærð.
Um Blönduvirkjun hefur margt
verið rætt og ritað, bæði sjálfa virkj-
unina, en þó eru breytingar á vatna-
svæðinu, þar með mikið uppistöðu-
lón, enn meira umræðuefni og liggja
náttúmfræðilegir þættir ekki eins
ljósir fyrir, og sjálf virkjunin. En vís-
indalegar rannsóknir á þeim svæð-
um, sem raskast við virkjanir, er
nauðsynlegt að gera til glöggvunar
áður en ráðist er í framkvæmdir,
sem valda röskun í náttúmnni.
Iðnaðurinn mun þurfa að taka
við nýju fólki á vinnumarkaðinum
Blaðið hitti að máli Áskel Ein-
arssin, framkv.stjóra Fjórðungs
sambands Norðlendinga, að ný-
loknum tveimur ráðstefnum
sambandsins og spurði hann
frétta af þeim og áliti hans á
ýmsum þeim málum, sem efst
eru á baugi, og svaraði hann
góðfúslega þeim spurningum.
Fjórðungssambandið hefur
verið í sviðsljósinu imdanfarið?
Fjórðungssambandið lifnar
með vori og hækkandi sólu.
Þannig hagar til hér norðan-
lands, að ýmsir örðugleikar
hamla miklum fundahöldum á
vetrum. Við komum því þannig
fyrir, að fundahöldin hefjist
ekki fyrr en eftir sauðburð á
vorin, því bændur taka mikinn
þátt í störfum Fjórðungssam-
bandsins. Nú í ár hófust funda-
höldin fyrri hluta júnímánaðar
og síðan koma ráðstefnur, sem
eru orðnar tvær, sú fyrri haldin
á Húsavík 24. og 25. júní og
sóttu hana 120 manns, en hin
var haldin á Skagaströnd 2. júlí.
Ráðstefnan á Húsavík?
Sú ráðstefna var um iðnþró-
un og var rædd í þrem flokk-
um: Iðnþróun á Norðurlandi,
staða iðnþróunar í landinu og
svo orkubúskapur og nýiðnað-
ur. Á þessari ráðstefnu kom
margt athyglisvert fram, t. d.
það, hve mikla möguleika ullar-
og skinnaiðnaður hefur í byggða
þróuninni. Það kom fram hjá
framkvæmdastjóra Iðnaðar-
deildar SÍS, Hirti Eiríkssyni, að
fjölga mætti atvinnutækifærum
i þeirri grein um 1500 á næstu
árum. En einnig kom það fram,
að útflutningsiðnaðurinn getur
ekki keppt við sjávarútveginn
með sama gengi. Sjávarvörur
hafa hækkað mjög í verði er-
lendis, en iðnaðarvörur minna.
Sjávarútvegurinn hefur því get
að staðið undir verðlagsþróun-
inni, en iðnaðurinn tæplega.
Hvað um nýiðnaðinn?
Um hann er það að segja, að
menn eru í vaxandi mæli farn-
ir að athuga, hvort ekki er unnt
að nota ýmis konar innlend
efni til vinnslu. I ljós hefur kom
ið, að rannsóknir, varðandi hugs
anleg innlend hráefni, eru mjög
skammt á veg komnar. Nú er
það athugað á Sauðárkróki,
hvort hægt sé að koma þar upp
steinullarvinnslu úr bergteg-
undum þar og vestur í Víðidal
fer fram athugun á títaníum,
sem grunur leikur á að þar sé,
en það liggur hins vegar ekki
Ijóst fyrir, í hve miklum mæli
þetta efni kann að vera þar og
hvort það sé nýtanlegt. Og í
Mývatnssveit er mikið af áhuga
verðum jarðefnum, sem kunn-
ugt er. Sá iðnaður, sem byggist
á hráefnum landsins sjálfs, er
miklu eftirsóknarverðari en sá
iðnaður, sem byggir á erlendu
hráefni, svo sem ál og allt slíkt.
Á ráðstefnunni kom það lítið
fram, að menn bindi vonir við
stóriðju sem höfuðleið. Hinn
orkufrekari iðnaður, sem bygg-
ist á erlendu hráefni, virðist
ekki mikið áhugaefni manna.
En ef til vill getum við byggt
upp stóriðnað á okkar eigin hrá
efnum eða innlendum efnum og
innlendri orku. Því er ekki að
leyna, að það virðist mikil iðn-
Viðtal við Áskel Einarsson framkv.stjóra
aðarvakning í þessum lands-
hluta.
Iðnaður mun þurfa að taka við
nýju fólki á vinnumarkaðinum
í framtíðinni?
Já, hér um slóðir verður iðn-
aðurinn að gera það, sem aukin
þjónusta hrekkur ekki til. En
sannleikurinn er sá, að á und-
anförnum árum hefur 60% af
nýju vinnuafli þjóðarinnar far-
ið til þjónustugreinanna en 30
—40% í úrvinnslugreinar og er
iðnaður þar meðtalinn. Þá hef-
ur það komið fram, að í sveit-
um er orðið umtalsvert atvinnu
leysi hjá konum, hvernig sem
það kann nú að hljóma. Þetta er
nýlegt hugtak. En þar sem þétt-
býlt er í sveitunum, vantar létt-
an iðnað og er þetta hlutur, sem
athuga þarf og ráða bót á, svo
sem reynt er að gera erlendis.
Völd og áhrif
Fjórðungssambandsins?
Fjórðungssambandið er valda
laus stofnun eða öllu heldur
frjáls samtök og fyrst og fremst
ráðgefandi. Það stendur og fell-
ur með því, hvemig og hve mik
ið er á þau hlustað. Enginn aðili
í þjóðfélaginu er til þess skyld-
ur að fara eftir viljayfirlýsing-
um Fjórðungssambandsins í
einu né neinu. Þetta er bæði
galli og kostur. Ráðstefnur, er
við höldum, er opinn vettvang-
ur. Til þeirra fáum við valda
ræðumenn til að hafa framsögu
í hinum ýmsu málum og tókst
það mjög vel á Húsavík. Síðan
koma ýmsir heimaaðilar inn í
dæmið og í gegnum þennan
opna vettvang koma allir skoð-
unum sínum og tillögum á fram
færi. Unnið er svo úr öllu þessu
efni, þar með úr tillögum og
ályktunum og sent til Fjórð-
ungsþings, sem síðan kemur
ályktunum áfram til ríkisstjóm
ar og þingmanna. Fjórðungs-
samband Norðlendinga er
stefnumótandi og mótar öðrum
fremur byggðastefnuna og fylg
ir henni eftir.
Á ráðstefnunni á Húsavík
voru aðalræðumenn: Sigurður
Guðmundsson áætlunarfræðing-
ur, Bjarni Einarsson, forstöðu-
maður Byggðadeildar, dr. Vil-
hjálmur Lúðvíksson, Kristinn
Guðjónsson, varaform. Félags
ísl. iðnrekenda, Sigurður Krist-
insson, form. Landssamb. iðn-
aðarmanna og Þórir Hilmarsson
bæjarstjóri. Heimamenn stjórn-
uðu umræðum í hópum og er
það góð venja. Við höfðum á
Húsavík pallborðsumræður,
sem er nýmæli hjá okkur og
gafst vel.
Ráðstefnan á Skagaströnd?
Ráðstefnuna á Skagaströnd,
sem haldin var 2. júlí, sóttu 60
manns. Sú ráðstefna var um fé-
lagsheimili, notkun þeirra og
kom hugmyndin um þessa ráð-
stefnu fram á æskulýðsráð-
stefnu sem Fjórðungssamband-
ið hélt árið 1975.
Þorsteinn Einarsson, íþrótta-
fulltrúi, flutti á ráðstefnunni
mjög yfirgripsmikið erindi og
lýsti könnun, sem gerð hefur
verið um notkun félagsheimila
á Norðurlandi og skýrði það
rækilega.
Þarna var talað um félags-
heimili í þéttbýli sem menningar
miðstöðvar og gerði það Kristinn
Jóhannsson skólastjóri og um
félagsheimili í sveitum ræddi
frú Guðrún Ásgeirsdóttir á
Mæhfelli og gerðu þau Kristinn
og Guðrún málinu rækileg og
góð skil. En Skúh Jónasson,
Áskell Einarsson.
framkv.stj. á Siglufirði ræddi
um þörf félagsheimila 'á þeim
stöðum, sem engin eru. Þarna
var starfað í hópum að erind-
um loknum og máhn rædd.
Fram kom, að félagsheimih í
sveitum sitja við heldur þrengri
kost en önnur í sambandi við
löggæslukostnað. En það kom
einnig vel í ljós í ræðum manna,
að sú kenning, að félagsheimilin
séu fyrst og fremst dansstaðir
sé röng. Félagsheimilin eru í
raun miklar menningarmið-
stöðvar og mikið notaðar sem
slíkar í vaxandi mæli.
Víða vantar enn félagsheimili?
Já, enn er 21 hreppur án
félagsheimilis og víða eru fé-
lagsheimili notuð til „samnota“
svo sem fyrir skóla og félags-
heimili jöfnum höndum og víða
irðist þess full þörf.
Nú er talin nauðsyn að koma
á samstarfi félagsheimila hér á
Norðurlandi. Um landið æða
hópar skemmtikrafta og hljóm-
sveitir eru á uppboði, löggæslu-
kostnaður er erfitt mál. Koma
þarf á samræmi og samstarfi
félagsheimilanna á ýmsan hátt.
Heimamenn þurfa e. t. v. að
geta mætt ýmsum þrýstihópum
í skemmtiiðnaðinum með sam-
stöðu. Verður sérstakur fund-
ur með forráðamönnum félags-
heimila haldinn i ágústmánuði.
Það er eins með þessa ráð-
stefnu og hina, að niðurstöður
hennar verða unnar upp og
lagðar fyrir fjórðungsþing, sem
haldið verður 4.—6. september
í Varmahlíð, en sett í Hóladóm-
kirkju, að viðstöddum kirkju-
málaráðherra, og staðurinn
verður sérstaklega kynntur.
Og fleiri fregnir?
Nýlega héldum við einskonar
úttektarfundi um samgöngu-
áætlun Norðurlands. Þar var
ræddur þáttur flugmála, vega-
mála og strandferða á opnum
fundum. Þar mætti yfirverk-
fræðingur Vegagerðarinnarinn-
ar og útskýrði vegaáætlunina,
sem er viðmiðunaráætlun. Hef-
ur verið varpað fram þeirri
hugmynd, að í hverri sýslu yrði
veganefnd, kosin af sýslunefnd
og þessar nefndir sameinuðust
sem hópur, sem Fjórðungssam-
bandið reyndi að sanmræma
sem eina heild. Mál þetta þarf
að skoða betur. Þá kom fram,
að Framkvæmdastofnunin er að
byrja athugun á því, hvemig
unnt er að koma upp skipulagi
á samgöngur, þar sem saman
yrði tengt flugferðir, sjóferð-
imar og landflutningar. Nýjar-
tillögur hafa komið fram um
að endurskipuleggja strand-
ferðirnar sérstaklega. Flugmála-
fundurinn var merkilegur, en
varaflugmálastjóri, Leifur Mark
ússon, upplýsti, að samgöngu-
málaráðherra og flugráð legði
til, að varið skyldi til flugmála
í næstu fjárlögum 900 milljón-
um, sem myndi þýða tvöföldun
á raungildi framlagsins. Þetta
er stórkostlegt mál. Hér á
Norðurlandi eru miklar fram-
kvæmdir fyrirhugaðar í þess-
um málum og má segja, að
ánægja hafi ríkt um þetta at-
riði. Vilji er á því að taka upp
norskar fyrirmyndir. Flugfélag
Norðurlands og Flugfélág Aust-
urlands falla vel inn í þessa
hugmynd, sem byggist á því að
nota litlar flugvélar á styttri
leiðum og hafa tíðar ferðir. —
Litlu flugvellimir í Noregi eru
mjög vel búnir og svo þarf
einnig að verða hér.
Menn spyrja mikið um
Norðurlandsvirkjun
og öll þau mál?
Satt að segja hafa þessi mál
verið í sjálfheldu og hafa þau
meira og minna verið miðuð
við Kröfluvirkjun. Hins vegar
er verið að stofna Orkubú Vest-
fjarða og þar er gengið út frá
því, að það fyrirtæki yfirtaki
ekki mannvirki á því verði, sem
ekki getur staðið undir eðlilegu
raforkuverði. en með þessu yrði
raforkumálin í þeim landshluta
undir einni stjórn. Og þetta er
kjarninn í okkar orkumála-
stefnu. í fyrsta lagi að tryggja
eðlilega orkunýtingu hér
norðanlands og í öðru lagi að
halda raforkuverðinu niðri. Og
svo auðvitað að heimamenn
hafi hönd í bagga. Staðreynd-
in er sú, að vegna þess að
heimamenn höfðu ekki hönd í
bagga um orkurannsóknir, urðu
feilspor, eða kannski feilspor
stigin, eins og að ráðast í
Kröfluvirkjun, vegna þess að
aðrir orkukostir voru ekki
rannsakaðir. Þar á ég við Jökul-
árnar í Skagafirði, sem ekki
fengust rannsakaðar og Skjálf-
andafljót, en virkjunarmögu-
leika þess mátti ekki af ein-
hverjum ástæðum draga fram
í dagsljósið. Framvinda í öflun
raforkunnar er nauðsynleg,
hvað sem stóriðju líður.
Stóriðjumálin?
Þau liggja alveg í láginni, en af
hálfu Fjórðungssambandsins
hefur alltaf verið lögð áhersla á,
að ef um stóriðju væri að .ræða
á Norðurlandi, yrði það mál
skoðað í víðara samhengi og við
höfum farið fram á, að skoðuð
yrðu víðar hafnarstæði en gert
hefur verið, með þann mögu-
leika í huga, að þar verði komið
upp stóriðju, ef henta þætti.
Nú skilst mér, að viðræðu-
nefnd um orkufrekan iðnað hafi
látið gera þetta og að nú komi
fleir istaðir til greina en áður,
með tilliti til hafnarskilyrðanna
en ströndin við Eyjafjörð.
Eru menntamálin á dagskrá?
Enn verður fundur haldinn um
mikilvægt mál. Þannig er mál
með vexti, að í vetur var samið
frumvarp um framhaldsskóla,
en samkvæmt því á að sameina
alla framhaldsskóla, sem nú
starfa í landinu. En ætlast er
til, að sveitafélögin verði veru-
legur þátttakandi í þessu, kostn-
aðarlega. Þetta á að skapa
möguleika fyrir sveitarfélögin,
að hafa áhrif á dreifingu skóla-
kerfisins. En þetta er verulegur
kostnaðarauki fyrir sveitafélög-
in og eitt af því sem ríkið hefur
gert án þess að spyrja sveita-
félögin að. Nú er það ætlun
Fjórðungssambandsins að taka
þetta mál til umræðu með
skólastjórum framhaldsskól-
anna, fjórðungsráði, menning-
armálanefnd sambandsins og
fræðsluráðum. Ráðstefna um
þetta verður á Akureyri 22.
júlí.
Blaðið þakkar viðtalið við
Áskel Einarsson, framkvæmda-
stjóra Fjórðungssambands Norð-
lendinga. E. D.
Urval þýddra Ijóða komið
hjá Almenna Bökafélaginu
Út er komið hjá Almenna bóka-
félaginu 5. bindi íslensks ljóða-
safns, 4. bókin hjá Bókaklúbbi
AB þetta ár. Ritstjórn, val ljóða
og alla umsjón verksins hefur
Kristján Karlsson annast.
Hér er um að ræða úrval
þýddra ljóða, hið fyrsta sinnar
tegundar á íslandi, þar sem
valið er úr öllum ljóðum sem
þýdd hafa verið á íslensku. —
Alls eru þýðendur ljóða í bók-
inni 42, hinn fyrsti Jón Þor-
láksson á Bægisá og hinn síð-
asti Aðalsteinn Ingólfsson,
fæddur 1948. Höfundar ljóða í
bókinni eru samtals 133 frá 27
löndum.
Kristján Karlsson segir í for-
mála m. a. á þessa leið:
,/Kvæðin eru flbkkuð eftir
þýðendum. Með því fyrirkomu-
lagi vildi ég taka af skarið um
það, að hér er engin tilraun
gerð til þess að veita yfirlit um
ljóðagerð annarra þjóða né verk
einstakra erlendra höfunda. —
Slíkur tilgangur væri úrvalinu
ofviða og sjálfsblekking að hafa
hann í huga. Ég hefi enga þýð-
ingu tekið með vegna höfundar-
nafns, heldur einungis kvæði
sem mér virtust góður skáld-
skapur á íslensku. Eða þegar
best lætur frumlegur skáld-
skapur á íslensku. Ég fór eftir
þeirri trú, að ekki sé til alls-
herjar mæhkvarði á gildi
kvæða. Allt úrval er gjörræði.
Ég leyfi mér aftur á móti að
vænta þess ,að úrvalið megi
veita sæmilega hugmynd um
þýðingar sem grein íslenskrar
Ijóðagerðar undanfarin hundrað
og fimmtíu til tvö hundruð ár.
Bindið hefst á köflum úr Para-
dísarmissi sem kom út árið
1828, en lýkur á kvæði, sem
birtist 1975.
Bókinni fylgir, auk formála
ritstjórans og tvöfalds efnisyfir-
lits, æviágrip þýðenda og skrá
yfir höfunda eftir þjóðernum
þeirra svo og greint frá hvenær
þeir voru uppi og hvað í bók-
inni þá sé að finna.
Þýðingasafnið er 430 bls. að
stærð, prentað og bundið i
Prentsmiðju Hafnarfjarðar.
Með þessari bók eru komin
út 4 bindi ljóðasafns AB. Fjórða
bindið — 20. öldin — er enn
ókomið, en þess verður ekki
langt að bíða.
(Fréttatilkynning ).
Fáein orö til Þormóðs S.
Staka til Norðlendinga
Eg vil biðja eyfirðinga
okkur styðja í hjáverkum,
að hindra iðju útlendinga
í eitursmiðju-framkvæmdum.
Eftirfarandi bréf barst blaðinu
frá „Suður-Borgfirðingi“:
Þar sem það hefur hvað eftir
annað komið í ljós, að hroka-
fullir valdsmenn hafa glúpnað
fyrir norðlendingum, þótt þeir
beiti valdi sínu af ótrúlegri
frekju á öðrum stöðum, datt mér
í hug að senda ykkur eyfirð-
ingum þessa stöku:
Það er okkur styrkur að sem
flestir landsmenn lýsi vanþókn-
un sinni á framferði stjórnvalda
í Grundartangamálinu, og gæti
þá verið, að svoleiðis verksmiðj-
ur yrðu ekki margar hér á landi.
ísland fyrir íslendinga.
„Spjall um málefni þroska-
heftra", hét grein er ég fékk
birta í Degi þann 29. júní sl.
Forstöðumaður Sólborgar,
Þormóður Svafþrsson, fann
ástæðu til að svara grein minni
— að ég væri með illa skil-
greindar dylgjur í garð heim-
ilisins.
Ég er í Styrktarfélagi vangefr
inna og á þroskahefst bam, sem
dvaldi fyrir nokkrum árum um
tíma á Sólborg í dagvistun.
Ég hefi kynnst góðu fólki við
stofnunina. Kynnst ágætu fólki
í félaginu og veit að margar
fórnfúsar hendur hafa lagt mik-
i ðaf mörkum fyrir málstað
þroskaheftra á Sólborg. — Ef
einmitt þeir sem ég met mikils
fyrir störf þeirra í þágu vist-
heimilisins hafa lesið greinina
mína sem slíka — að ég væri að
rægja þessa stofnun, þætti mér
leitt og sárt að vita.
Nei, Þormóður Svafarsson, ég
var ekki að drótta neinu að Sól-
borg. Ég skrifaði greinina af
þörf, haldin þeim ótta gegn
þröngsýni þjóðfélags, að alla
þroskahefta eigi að einangra á
sérstofnunum. Það er ekki eðli-
leg þróun.
Fyrir nokkrum dögum las ég
athyglisverða grein eftir N. E.
Bank-Mikkelsen deildarstjóra í
danska félagsmálaráðuneytinu,
sem sér um málefni vangefinna.
Hann segir m. a.: „aðgrein barna
heimili fyrir þann fatlaða eru
nú að hverfa í Danmörku. Þau
fá inni á venjulegum barna-
heimilum (það er kominn vísir
að slíku hér á Akureyri, innsk.
J. T.) . . . Sama er að segja um
skólana, reynt að hafa sem
flesta í venjulegum skólum
með hjálparkennslu, en undan-
tekningar fyrir þá, sem eru verst
staddir, fá fræðslu í sérskólum."
— Hann segir einnig þégar hann
• „Fátækt fólk“.
Það hefir dregist að þakka göml-
um kunningja góða bók. Ef til
vill er það best að hugsa hvert
mál tvisvar, áður en látin er
skoðun í Ijós. — Þegar Tryggvi
Emilsson ritar endurminningar
sínar gerir hann sér auðsjáan-
lega far um að segja sem sann-
ast og réttast frá því sviði sem
að honum sneri og reynsla hans
brá kastljósi yfir. Meira verður
ekki krafist af neinum. Fjodor
Dostojewski og Martin Ander-
son Nexö skýrðu frá reynslu
sinni í formi skáldrita og minn-
inga. Vera má, að ýmsir sam-
tíma menn þeirra hafi séð aðr-
ar hliðar á tíð og anda þá. Allt
um það var reynsla Dostojew-
skis og Nexös jafn sönn.
Nafnið á bók Tryggva gefur
strax til kynna um hvað er
fjallað. Það er nú svo, að hver
sem lifir bernsku sína og æsku
í nöktustu fátækt og við lítinn
kost upplýsingar, fær sjaldan
komið þroska sínum svo til vegs,
að hvergi sjáist merki krappra
kjara þótt aldur og aðstaða
breytist. Þó tekst a. m. k. höf-
undi bókarinnar Fátækt fólk
tekist svo vel að sigla milli
skerja, að fágætt mun þykja. Og
stolt mætti íslensk bókmennta-
saga hafa orðið af þeim ritum,
sem þessi höfundur kynni að
hafa skráð, við snemmkomin
menntunarskilyrði og betri kjör.
Oft virðist svo sem þjóðfélög
þurfi að fórna hæfu fólki til
þess að fram komi, með tilstyrk
einhverrar listgreinar, sá sann-
leikur sem þeim er lífsspurnar-
mál að vita. Þegar sögn og saga
meta slík verk síðar, er ekki
fengist um smáatriðin. Alls er
vert um meginþráðinn. Þá eru
heldur ekki felldir dómar um
einstaklinga, ef það skilst að
verið hafa í sömu kreppu
hnepptir að ýmsu leyti, eins og
sá er kynni að hafa lýst aldar-
fari. Lifni og lifi eitthvert lista-
verk í slíkum hraksjó, verður
meginboðun þess aðalatriðið og
gildir fyrir alla jafnt.
Ekki verður það sagt um Fá-
tækt fólk, að höfundur þess
gangi berserksgang dómgirni og
hefndarhugs. Vart getur inni-
legri og sanngjarnari bók á all-
an hátt. Frásögnin líður fram
eins og sá niður aldanna, sem
svo vel er þekktur úr bestu ís-
lendingasögum. Og það er ekki
höfundi að kenna, þótt veru-
leikinn sé oft hrjúfur. Það er
grunur minn, að höfundur hafi
nokkuð oft látið undir höfuð
leggjast, að t. d. svara með kald-
yrðum, þar sem ástæða var til.
Ýms dæmi í bókinni virðast
bera vott um það. Og svo hitt,
af hve mikilli alúð hann fjallar
um ýmsar skemmtilegar minn-
ingar. Að ekki sé minnst á þær
sem eru hugljúfar eða sárar.
Ekki tek ég undir það, sem
einhversstaðar var sagt, að dul-
rænu sögurnar í bókinni yrðu
ekki teknar trúanlegar. Um slik
mál dæmir margur af fullkoni-
inni vanþekkingu og uppstopp-
aðri andúð. Enga lausn gefur
að stinga höfðinu niður í sand-
inn. Á fyrirbrigðum eins og
þeim, sem koma fyrir í Fátæku
fólki, kunna ströngustu rann-
sóknarmenn bestu skil. Og um
þau eru til mýmörg dæmi, víðs-
vegar að af allri jarðarkringl-
unni. Sagan um litlu stúlkuna
sem kveður bróður sinn góða
andartaki eftir skilnaðarstund-
ina, er ein af hinum mörgu
perlum fyrirbrigðafrásagna, og
ýmist jafnast á við eða tekur
fram þeim sýnum, sem William
Barret sagði frá í bók sinni
fyrir mörgum áratugum.
Dæmi eru þess, að heimsfræg
stórskáld hafa skrifað um ævi
sína sem skáldskap og veru-
leika. Það gefur til kynna að
reynsla þeirra hafi fært þeim
þá þekkingu, að hið yfirskilvit-
lega er órjúfanlega samofið
hversdagslegum veruleika. —
Dulargáfur Goethes áttu ríkan
þátt í bókmenntaafrekum hans.
Og hvernig ætti það öðruvísi
að vera, en að í lífi hvers manns,
einkum þeirra er gleggst gera
sér grein fyrir eðli hlutanna,
verði vart uppsprettunnar lind-
ar sem sér djúpin að baki.
Sig. Draumland.
13. hefti af Súlum
komið út, fjölbreytt að vanda
Út er komið nýtt hefti af Súl-
um, norðlenska tímaritinu, sem
þeir ritstýra, Valdimar Gunn-
arsson og Jóhannes Óli Sæ-
mundsson. Útgefandi er Sögu-
félag Eyfirðinga og heftið er
hið 13. í röðinni. Þetta norð-
lenska tímarit hefur eignast
marga fasta áskrifendur, sem
stöðugt fjölgar, og er það mikið
ánægjuefni.
Kristján Eldjárn, forseti, rit-
ar langa og merka grein í þetta
hefti og ber hún heitið Ingólfs-
höfði í Svarfaðardal; Rósa S.
Benediktsdóttir ritar greinina
Hús foreldra minna; Jóhanna
Katrín Sigursturludóttir ritar
um Gautlandaheimilið frá ár-
unum 1872—1878; Eiríkur Sig-
urðsson skrifar um skáldið í
Strandgötunni, Davíð Þorvalds-
son, og aðra grein, Gamla timb-
urmeistarann á Akureyri, og
Júlíus Oddsson ritar „stemn-
ingu“ frá Siglufirði á síldarár-
unum. Þá birtist Hörgdælinga-
þáttur Eiðs Guðmundssonar og
fjallar hann um Jón Flóvents-
son, og Sigurður Kristjánsson
ritar greinina Með mann í
taumi; Hólmsteinn Helgason
ritar um sjóhrakninga og Sig-
urður Marteinsson greinina
Þrifið í stýri. Auk þessa er
margt smálegt, bæði til skemmt-
unar og fróðleiks.
4•DAGUR
er að tala um að þetta fólk
„ætti að lifa eðlilegu lífi, þá
væri átt við jafnrétti — þ. e.
sömu réttindi og skyldur fyrir
alla þegna þjóðfélagsins."
Ég skora á alla að lesa þessa
grein eftir Bank-Mikkelsen, en
viðtal við hann birtist í Morg-
unblaðinu þann 6. júlí sl. Ég
skora líka á foreldra allra
þroskaheftra að standa saman í
þeirri baráttu að sá þroskahefti
eigi að búa við jafnrétti, nái
bestum þroska við heilbrigðar
aðstæður — verði viðurkennd-
ur af þjóðfélaginu sem mann-
eskja.
Jóhanna Tryggvadóttir.
Danir keppa
í Árskógi
Næstkomandi sunnudag og
mánudag verður hér í heimsókn
á vegum Ungmennafélags ís-
lands og Ungmennasambands
Eyjafjarðar 45 manna hópur
íþróttafólks frá Danmörku.
Á sunnudagskvöldið kl. 7.30
keppa gestirnir við norðlenskt
frjálsíþróttlafólk á íþróttavell-
inum á Árskógsströnd.
Halldór Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri UMSE, hefur
beðið blaðið að hvetja áhuga-
fólk um frjálsar íþróttir til
keppni og til að fylgjast með
þessu sérstæða íþróttamóti.
Störf eiga aö vera
opin konum
jafnt sem körlum
Jafnréttisráð vekur athygli aug-
lýsenda og fjölmiðla á 4. gr.
laga nr. 78/1976 um jafnrétti
kvenna og karla: „Starf sem
auglýst er laust til umsóknar,
skal standa opið jafnt konum
og körlum. í slíkri auglýsingu
er óheimilt að gefa til kynna að
fremur sé óskað starfsmanns af
öðru kyninu en hinu.“
Jafnréttisráð er fahð að sjá
um að ákvæðum þessum sé
framfylgt. Jafnréttisráð er fal-
ið að sjá um að ákvæðum þess-
um sé framfylgt. Jafnréttisráð
bendir ennfremur á 12. gr.
sömu laga, sem hljóðar svo: „Sá
sem af ásettu ráði eða gáleysi
brýtur gegn lögum þessum, er
skaðabótaskyldur samkvæmt al-
mennum reglum.
Slíkt brot skal varða fésekt-
um, nema þyngri refsing liggi
við að lögurn."
Jafnréttisráð tók þá ákvörð-
un, er það tók til starfa, að
eðlilegt væri að nokkur aðlög-
unartími yrði á að framfylgja
þessu ákvæði laganna, þar sem
hér er um nýmæli að ræða í
lögum. Nú hefur þessi aðlögun-
artími verið tæpt ár og ætti það
að hafa gefið flestum nægjan-
legt svigrúm til þess að aðlagast
nýmæli þessu.
Þeir sem auglýsa eftir 1. júlí
1977 þannig, að andstætt er of-
angreindu ákvæði, geta átt von
á að mál verði höfðað gegn
þeim.
Jafnréttisráð lítur á ákvæði
þetta sem lið í þeirri baráttu að
brjóta niður þá hefðbundnu
starfsskiptingu, sem ríkt hefur
í karla- og kvennastörf og þann
launamismun sem við það skap-
ast.
Reykjavík 24/5 1977.
Bergþóra Sigmundsdóttir
framkv.stjóri Jafnréttisráðs.
(Frétta tilkynning)
DAGUR•5