Dagur - 25.11.1977, Síða 2
Almennur bændafundur
í Freyvangi
Búnaðarsamband Eyjafjarðar
gekkst fyrir almennum bænda-
fundi í Frevvangi 17. nóv. sl.
Veður og færi hamlaði mikið
fundarsókn en þó mættu rúm-
lega 100 bændur á fundinn.
Framsögumenn voru þeir
Árni Jónasson framkvæmdastj.
Stéttarsambands bænda og Stef
án Valgeirsson alþingismaður.
Gáfu framsögumenn yfirlit yf-
ir stöðu framleiðslumála eins og
staðan lítur út í dag.
Umræður á fundinum voru
einkum bundnar við þær sam-
þykktir sem gerðar voru á síð-
asta aðalfundi Stéttarsambands
bænda um framleiðslumál. Mikl
ar umræður urðu um þessi mál
og kjaramál bænda almennt.
Fundarstjóri var Jóhannes Sig-
urgeirsson.
f upphafi lagði formaður Bún
aðarsamb. Eyjafjarðar, Sveinn
Jónsson fram eftirfarandi til-
lögur sem samþykktar voru í
lok fundarins.
Almennur bændafundur Bún-
aðarsambands Eyjafjarðar, hald
inn að Freyvangi 17. nóv. 1977
leggur áherzlu á þá staðreynd,
að enn sem fyrr eru bændur
lægst launaða stétt landsins, en
samkvæmt búreikningum 1976
voru meðallaun bænda 68% af
launum verkamanna. Fundur-
inn telur að við allar aðgerðir
er snerta verðlags- og fram-
leiðslumál landbúnaðarins verði
að taka mið af fyrrgreindri stað-
reynd, og að bændur geti ekki
sætt sig við annað en að þeir
fái sambærilegar tekjur við aðr-
ar stéttir, enda sé sá launaút-
reikningur byggður á raunhæf-
um verðlagsgrundvelli. Séu þær
forsendur hins vegar til staðar
er ekki óeðlilegt að bændur
reyni eftir því sem unnt er, að
haga 'framleiðslu sinni þannig
að sem hagkvæmast sé fyrir
þjóðarbúið.
Ljóst er að nokkur vandi er
á höndum með sölu landbún-
aðarafurða eins og mál standa í
dag, þar sem framleiðsla um-
fram innanlandsneyslu er tölu-
verð og verulega vantar á að
þær útflutningsuppbætur sem
lög leyfa, nægi til þess að grund
vallarverð fáist fyrir það sem
út er flutt.
Þetta vandamál er nú stærra
en oft áður og má rekja orsakir
þess til nokkurra samverkandi
ástæðna. Má þar nefna að á
liðnu ári var tíðarfar mjög hag-
stætt um mestan hluta lands-
ins og framleiðsla gekk því eðli
lega fyrir sig. Þá hefur_ á und-
anförnum árum, verið rekinn
mikill áróður og órökstuddur
fyrir því að landbúnaðarvörur
væru skaðlegar heilsu manna
og virðist sá áróður hafa leitt
til minnkandi neyslu. Þá hef-
ur og verið hvatt til aukinnar
framleiðslu með opinfcerum að-
gerðum með áróðri fyrir stækk-
un búa og sérstökum aðgerðum
á vissum svæðum til beinna
framleiðsluaukningar. Slíkar að
gerðir eru góðra gjalda verðar,
þar sem þær gefa jafnframt til
kynna að stjórnvöld vilja allt
fsland byggt.
Þeirri staðreynd, að laun
bóndans eru þau lægstu í þjóð-
félaginu hefur hann mætt með
því að stækka bú sitt og þar
með aukið framleiðsluna. Þessi
Smáauölvsinqai'
Sala
iFélagsHfi
Barnavagn til sölu.
Uppl. I slma 22236.
Hlaupaskautar til sölu, sem
nýir, nr. 43. VerS kr. 12.000.
Uppl. í síma 22565.
Til sölu notað Nordmende
sjónvarpstæki árg. 1971.
Uppl. f síma 21523.
Skfði og klossar óskast á karl-
mann og 12 ára telpu. Skór
nr. 38—39.
Uppl. f sfma 19508 eftir kl. 7
á kvöldin.
Laufabrauðs- og kökubasar
verður f Strandgötu 9, sunnu
daginn 27. nóv. kl. 3 e. h.
Kvenfélag Alþýðuflokksins.
Kóku- og munabasar Kven-
félagsins Framtíðin verður kl.
3 á laugardaginn á Varðborg.
Sýnishorn af munum verður
í Skóv. M. H. Lyngdal á föstu-
daginn. Ágóðinn rennur til
Elliheimilissjóðs.
Atvinna
Kona óskast á sveitaheimili
strax.
Uppl. í síma 22236.
Skmmtanhn Ýmisleút
Spilavist Alþýðubandalagsins
verður fimmtudaginn 24. nóv.
kl. 8,30 að Hótel Varðborg.
Stjórnin.
Bifreióir
Vélritun óskast, efni til 40—
50 sfður.
Nánari uppl. í síma 19859.
Smáauglýsingar
Sími 11167
Til sölu er Datsun 100 A árg.
1971.
Uppl. í síma 19968.
bústækkun hefur þó ekki skilað
jákvæðri niðurstöðu hvað laun
snertir en aukið vinnuálag á
bóndann og fjölskyldu hans.
Samfara þessu er síðan vinnu-
liður f grundvallarbúinu rangt
reiknaður.
Þá má einnig benda á að
stjórnvöld nota niðurgreiðslur
á landbúnaðarvörur sem stjórn
tæki á vísitölu kaupgjalds í
landinu. Með niðurgreiðslum
er einnig höfð bein áhrif á
neysluvenjur þjóðarinnar en
minna hugsað um atvinnuveg-
inn sem slíkan. Má þar til nefna
að niðurgreiðslur á smjöri eru
nú um 30% en voru mestar um
74%. Slíkar sveiflur eru mjög
óheppilegar fyrir landbúnaðinn
þar sem langan tíma tekur að
aðlaga framleiðslu slíkum sveifl
um.
Höfuðástæða fyrir þessum
mikla vanda er þó sú taum-
lausa verðbólga sem hér hefur
verið ríkjandi mörg undanfar-
in ár og sem Alþingi og ríkis-
stjórn hafa ekki haft getu til að
hefta. Þessi verðbólga hefur
haft margvísleg áhrif til hins
verra fyrir landbúnaðinn, eink-
um varðandi stórfellda verð-
hækkun á rekstrarvörum hans
og þar af leiðandi verðhækkun
á landbúnaðarvörum, sem síð-
an hefur í för með sér minnk-
andi nevslu i nnanlands og
aukna þörf fyrir útflutning á
sífellt óhagstæðara verði. Þá
rýrir verðbólgan mjög, þann
hluta af launum bóndans sem
kemur í eftirstöðvum afurða-
verðs.
Varðandi þær tillögur fram-
leiðslunefndar sem samþykktar
voru á aðalfundi Stéttarsamb.
bænda 1977, samþykkir fundur-
inn eftirfarandi.
1. Fundurinn telur að við
vissar aðstæður geti verið nauð-
synlegt að leggja verðjöfnunar-
gjald á framleiðsluvörur bænda
enda er þar um að ræða aðferð
til verðjöfnunar milli fram-
leiðslusvæða og framleiðenda.
2. Fundurinn mótmælir að
leggja skatt á innflutt kjamfóð
ur til verðjöfnunar á landbún-
aðarafurðum. Hins vegar, ef
um skatt á kjarnfóður yrði að
ræða, ætti t. d. frekar að nota
það fjármagn sem þannig feng-
ist til þess að greiða niður verð
á tilbúnum áburði og auka
þannig öflun á heimafengnu
fóðri eða til lækkunar á öðrum
rekstrarliðum á lögbýlum.
Þá telur fundurinn að rétt sé
að athuga þá leið að skattleggja
bústofn til verðjöfnunar, frem-
ur en kjarnfóður. Slík skattlagn
ing mundi fremur stuðla að
fækkun gripa og þá um léið að
betri og afurðameiri bústofni
og hagkvæmari búrekstri.
3. Fundurinn tekur undir þá
samþykkt, þar sem lagt er til
að komið verði á kerfi til stjórn-
unar á framleiðslu. Eins og mál
standa í dag þarf að draga úr
framleiðslu i sumum búgrein-
um og verður þvj að beita slíku
kerfi til takmörkunar á fram-
leiðslu. Slíkt kerfi hefur an-
marka í för með sér og eftir
því verður ekki unnið nema
með vissum undantekningum.
Ljóst er að stöðva verður að
mestu framleiðsluauka hjá þeim
sem mest framleiða nú, en leyfa
aukningu hjá þeim sem minnst
framleiða. Leggur fundurinn
áhrezlu á að sem allra fæstar
undantekningar verði veittar og
að kerfi þetta verði gert eins
einfalt og hægt er, þannig að
ekki komi til ágreinings um
framkvæmd.
Þá er einnig skoðun fundar-
ins að samfara þessu verði að
skipuleggja framleiðslu eftir
héruðum, sveitum og jafnvel
innan sveita. Þarf því að gera
úttekt á hverri jörð með tilliti
til hagkvæmastrar framleiðslu.
Með þessum aðgerðum væri
hægt að hafa allgóða stjórn á
framleiðslumagni fyrir landið
sem heild. Fundinum er ljóst að
hér er um viðamikið mál að
ræða og leggur áherzlu á, að
að því verði unnið í fullkom-
inni samvinnu við aðila heima
í héruðum.
Fundurinn leggur áherzlu á
að forsenda fyrir heildar skipu-
lagningu á landbúnaðarfram-
leiðslu sé beinir samningar við
ríkisvaldið um verðmyndunar-
kerfi landbúnaðarvara.
I
Þá fagnar fundurinn þeirri
fjárveitingu til markaðsleitar
sem samþykkt var og væntir
þess að unnið verði ötullega að
markaðsleit fyrir landbúnaðar-
vörur.
Varðandi þá erfiðleika sem
nú steðja að graskögglaverk-
smiðjunum telur fundurinn
eðlilegt og skorar á stjórnvöld,
að þau greiði niður framleiðslu
verksmiðjanna, þannig að hún
verði á samkeppnisfæru verði
við innflutt fóður. Þá skorar
fundurinn á stjórnvöld að þau
búi þannig að rekstri þessara
verksmiðja að samkeppnisað-
staða þeirra batni til muna. Má
þar nefna niðurfellingu á skött-
um af rekstrarvörum þeirra og
lækkun á raforkuverði til sam-
ræmis við annan orkufrekan
iðnað.
sjónvarp
Mánudagur
28. NÓVEMBER 1977
20.00 Fréltlr og veSur.
20.25 Aug ýsingar og dagskrá.
20.35 fþróttir.
21.10 Umhvertisvernd í Evrópu. Frönsk
træOslumynd um mengun af iSnaði I
Evrópu og tilraunir til endurhreinsunar
á vatni.
21.30 LlSin tlð. Sýnind Þjóðleikhússins
á leikriti ettir Harold Pinter. Endur-
sýning.
22.40 Dagskrárlok.
Þriðjudagur
29. NÓVEMBER 1977
20.00 Frittir og veSur.
20.25 Aug ýsingar og dagskrá.
20.35 LandkönnuSir. 7. þáttur. Alexander
Humbolt (1769-1859).
21.25 S|ónhendlng. Erlendar myndir og
málefni.
21.50 17 svlpmyndir aS vori. Sovískur
njósnamyndaflokkur. 2. þáttur.
23.00 Dagskrárlok.
Miðvikudagur
30. NÓVEMBER 1977
Fösfudagur
2. DESEMBER 1977
20.00 Frétt:r og veður.
20.25 Aug ýsingar og dagskrá.
20.40 Prúðuleikaramir (L).
21.15 Kastljós (L). Þáttur um innlend
máefni.
22.20 Hermennimir. Bandarísk bíómynd
frá árinu 1950.
23.45 Dagskrárlok.
Laugardagur
3. DESEMBER 1977
16.30 Iþróttlr.
18.15 On We Go. 7. þáttúr endursýndur.
18.30 Katy (L). 4. þáttur.
18.55 Enska knattspyrnan.
Hlé.
20.00 Frétt r og veður.
20.25 Aug ýsingar og dagskrá.
20.35 Gestateikur (L). Ólafur Stephen-
sen stjórnar spurningaleik I sjónvarpssal
21.15 Uppa.’endur f dýrarfkinu. Brensk
fræðslumynd.
22.10 FortfSin kvödd. Þýsk blómynd frá
árinu 1966.
23.35. Dagskrárlok.
Sunnudagur
18.00 Litll sótarinn.
18.15 Rokkveita ríkisins. — Hljómsveitin
Cirkus.
18.40 Cook skipstjóri. 3. og 4. þáttur.
19.000n We Go. Enskukennsla. 7. þáttur
frumsýndur.
H.é.
20.00 Frótt r og veður.
20.25 Aug ýsingar og dagskró.
20.40 Nýjasta tækni og vís ndi.
21.10 Varnarræða vitfirrings (L). Loka-
þáttur.
22.00 Smáborg f Póllandi. Sænskir sjón-
varpsmenn tóku þessa mynd [ borginni
Pulawy, þar sem búa um 50.000 manns.
23.00 Dagskrárlok.
4. DESEMBER 1977
16.00 Húsbændur og hjú (L).
17.00 Þriðja testamentiJ. 4. þáttur. Sör-
en Kirgegor.
18.00 Stundin okkar (L að hluta).
19.00 Skákfræðsla (L).
HI6.
20.00 Frétt'r og veður.
20.25 Aug.’ýsingar og dagskrá.
20.45 Róbert Elíasson kemur heim frá
útlöndum. Sjónvarpsloikrit eftir Davíð
Oddsson.
21.45 Popp. Bandarískar hljómsveitir.
22.00 Gæfa eða gjörvi'eiki. 8 þáttur.
22.50 Að kvöldi dags (L). Séra G(sli
Kolbeins flytur hugvekju.
23.00 Dag8krórlok.
«ti
Þökkum innllega öllum er sýndu okkur samúð og vinarhug
við andlát og útför eiginmanns míns
SIGURÓLA TRYGGVASONAR,
Gránufélagsgötu 22, Akureyri.
Björg Sigurjónsdóttir,
Marteinn Sigurólason, Birna Jakobsdóttir,
Siguróli Marteinsson, SigfriS Friðöergsdóttir.
2•DAGUR