Dagur - 25.11.1977, Síða 3
Fundur um hitaveitumál
Framhald af blaðsíðu I.
áhugi á hitaveitu hér á Akur-
eyri. í desember sama ár skip-
aði bæjarstjórn Akureyrar hús-
hitunarnefnd. Vann hún að at-
hugunum á hagkvæmri hitun
með raforku og svartolíu. En
enn voru gerðar rannsóknir,
með hitaveitu og jarðvarma í
huga. Kom þá til álita að leiða
heitt vatn frá Reykjahverfi og
Bjarnarflagi og voru áætlanir
gerðar um þetta á árunum 1974
og 1975. Vegna fjarlægðar var
þó talið ráðlegt, að gera enn
tilraun með borun til þess að
freista þess að fá heitt vatn
nær og í framhaldi af því hófst
borun á Laugalandi í Onguls-
staðahreppi. Þar renna nú upp
úr jörðinni um 100 lítrar á sek-
úndu af 90—100 gráðu heitu
vatni úr tveim borholum og tal-
ið, að það vatnsmagn megi auka
í 150 lítra á sek. með dælingu,
en orkuþörfin til upphitunar er
talin 220 lítrar. Hitaveitan var
ákveðin og framkvæmdir
standa yfir, svo sem öllum er
kunnugt, og þar er enn leitað
meira vatns.
Síðan rakti hitaveitustjóri
framkvæmdir við hitaveituna
í sumar og eru framkvæmdir í
þrem flokkum: 1 fyrsta lagi
virkjunarmannvirki, aðveitu-
mannvirki og í þriðja lagi dreifi
kerfismannvirki.
/-iYWSlVfDíN
JF-191:
JÖVAN INTERNATIONAL
COLLECTION GIFT SET
2 oz Jðvan Britain. 2 oz.
JövanFrance, 2oz.
Jövan Italy, 2 oz. Jóvan
Spain, 2 oz. Jóvan
Sweden, 2 oz. Jóvan
keland aftershave/
coloQnes,
Unit Peck: 3 sets
herra
dömur
JOVAN
snyrtivörur fyrir
og
Reynið
það
besta
gæði
Ný
tækifæri
ny
Q
Aðveituæðin til Akureyrar er
nær fullgerð,, og innan fárra
daga verða fyrstu húsin vænt-
anlega tengd nýrri hituveitu.
Dælustöð hefur verið byggð og
framkvæmdir við dreifikerfið í
bænum eru meiri en svo að frá
þurfi að segja. Búið er að sam-
þykkja gjaldskrá hitaveitunn-
ar og staðfesta og reiknað með,
að hitunarkostnaður verði 70%
af kostnaði með gasolíu.
Hér er ekki að sinni rúm til
að rekja yfirgripsmikla ræðu
framkvæmdastjórans. En að
henni lokinni og ræðu Sigurð-
ar Óla Brynjólfssonar, hófust
fjörugar umræður, er stóðu
fram að miðnætti. Fyrirspyrj-
endur voru 15 talsins og var
öllum spurningum svarað af
frummælendum.
Miðað við verðlag í ágúst-
mánuði 1976 er heildarkostnað-
ur 3,4 milljarður króna, en síð-
an munu verðhækkanir orðnar
um 30%.
Strengjakliður
Hjá Ægisútgáfunni í Reykjavík
er nýkomin út ljóðabók Hug-
rúnar er nefnist Strengjakliður
Bækur Hugrúnar eru komnar
hátt á þriðja tuginn. Hugrún er
skáldanafn Filippíu Kristjáns-
dóttur frá Brautarhóli í Svarf-
aðardal. Ritstörfin hafa verið
henni hjartfólgin og sumar bæk-
ur hennar löngu uppseldar og
í endurprentun, svo sem Ágúst
í Ási og Úlfhildur. Útgefandi
segir í bókarkynningu, að höf-
undurinn sé löngu kunnur fyr-
ir sögur, ljóð og útvarpserindi
og beri öll verk hennar vitni
um ást og hlýju til alls sem lifir
og hrærist. Verk hennar séu
hugljúf og listræn.
Jafnréflismál
Laugardaginn 26. nóvember kl. 13—19 verður
fundur um jafnréttismál haldinn í Barnaskóla
Akureyrar.
Fundurinn er öllum opinn og er þátttökugjald
ekkert. — Sjá fréttatilkynningu.
UNDIRBÚNINGSNEFND.
DAGUR•3