Dagur - 25.11.1977, Blaðsíða 6
Mesta slysaár aldarinnar
Svo ört steypast ógnir slysa og
dauða vfir lesendur og áhorf-
endur frétta-fjölmiðla að vart
faeðist nýr dagur, af húmi næt-
ur, svo að fyrsta hugsun hvers
manns, er úr draumheimum
vaknar, hljóti ekki að verða
þessi: „Hvaða slysafregn má
búast við í dag?“ Fjölmiðlar
okkar skýra frá slíku tafarlaust
og oft er fréttin svo „hrá“ að
ekki er unnt að birta nafn þess,
eða þeirra, er fyrir slysi verða
— aðstandenda vegna. Ég minn
ist þess, þegar hægri handar
akstur vélknúinna tækja var
tekinn upp, á vegakerfi okkar,
að misjafnt sýndist mönnum
ágæti þeirrar tilbreytni. Þá var
því mest hampað af hvata-
mönnum þessarar nýlundu að
hægri handar akstur væri þá
þegar tekinn upp víðast hvar
um heim og ef að mig misminn-
ir ekki, því meir, var lögð á
það áhersla af sumum flytjend-
um þessa máls, að hér ætti að
forðast mikinn vanda, er útlend
ingar kæmu hingað, með bif-
reiðar sínar, vanir öðrum akst-
ursreglum en hér væru lBg-
mætar. Þetta var líka á þeim ár-
um sem manni skildist að fátt
þyrfti annað að gera, til fjár-
hagsbjörgunar okkar íslendinga
en að bíða, með opna kjafta,
þess að steiktar gæsir flygju i
gin okkar, ef að við aðeins gæt-
um auglýst nægilega vel undra-
fegurð okkar dásamlega fagra
lands og það furðulega lífríki,
sem hér þrífst þrátt fyrir all
norðlæga hnattstöðu.
Slíkt ætti með tilkomu nægi-
lega margra og fullkominna
gistihúsa að bjarga okkur, um
aldur og ævi, fjárhagslega. Að
vísu þurfti að hverfa frá þeirri
aldagömlu veniu að sinna störf
um við lífsundur sveitabúskap-
ar ef aðeins því marki yrði náð
að gæða ísland því segulmagni
er ferðamannastraumur frá stór
þjóðum heims drægist að. Glæsi
leg hugarsýn! Hversvegna, í
andskotanum, áttum við að berj
ast við baslsama afkomu, þegar
svona himingnæfandi mynd af
auðfengnum gróða, án nokkurr
ar teljandi fyrirhafnar, bar fyr-
ir augu?
Að vísu komu fram raddir er
hörmuðu hve við íslendingar
værum vanþroska á þessu sviði
Hve þjónslund okkar væri átak-
anlega áfátt. En ef að við að-
eins gætum lært að umgangast
erlenda auðkýfinga og ferða-
fólk, yfirleitt, á viðeigandi hátt,
var framtíð okkar borgið — um
aldur og ævi! Manngildis-
smækkun? Skítt með það! Fjár
hagsleg velferð ríkisþegna hlýt-
ur að ganga fvrir öllu og sálar-
skarnið á bara að skammast sín
og þegia! Enn þann dag í dag,
má sjá þá fjarstæðu letraða í
dagblöð okkar og ritgerðir, í
ýmsum ritum, er ferðast á flug-
vængjum um landið, að við ís-
lendingar séum staðsettir á yztu
mörkum hins byggilega heims.
Hvílík ósköp! Hverskonar lyg-
ar og blekkingar eru þetta?
Hvað skal þá segja um Græn-
land, Alaska, Síberíu og ótal
marga fleiri staði jarðkringl-
unnar þar sem náttúruhamfar-
ir og veðurharka birtist í mun
skæðari mvndum, en við þekkj-
um? Reyndar hefur þessi bar-
lómur kveðið við um nokkurra
alda skeið frá bölsýnismönn-
6•DAGUR
um og kveður enn þann dag í
dag. Hve langt er síðan kveðið
var:
„Blindar margan blekkt lund,
blandast síðan, verr grand.
Reyndar verður stutt stund,
að standa náir ísland“?
Ennþá stendur þó okkar fagra
land, á sínum upprunalega stað,
á hnattlíkaninu. Og ennþá slá
heit hjörtu í faðmi þess, full af
trú á framtíð sinnar fósturjarð-
ar. Þrátt fyrir það að hér ríkir
stundum nokkur harðneskja í
líki vetrarharðinda, vorharð-
inda og jafnvel sumarsveltu, en
svo vil ég kalla, er sumarið
bregst gróðurhlutverki sínu, þá
Sigtryggur Símonarson.
eigum við þó eitthvert dásam-
legasta land sem Drottinn hef-
ur skapað.
„Það agar oss strangt, með sín
ísköldu él,
en á samt til blíðu, það meinar
allt vel.
Svo kvað eitt aldamóta
kjarnaskáld okkar og sagði
sannleikann, að mínu viti, og
greip meira að segja ekki til
atomkveðskapar. Ef að ein-
hverjir lesendur „Dags“ gang-
ast undir þá. sálarraun að lesa
þessa ófullkomnu ritsmíð bið
ég þá, af einlægu hiarta, af.sök-
unar á þeim langa útúrdúr
sem orðinn er frá fæðingarhlut
verki þessarar greinar. En væri
það óeðlilegt að ætlast til þess
að börn þessa tignarlega, jafn-
aðarlega friðsæla og fagra lands
væru gædd þeim eiginleikum
að vilja fremur bæta og fegra
sitt umhverfi, hvort heldur er í
ríki náttúrunnar eða á sálrænu
sviði mannlegs lífs? Eigum við
ekki að athuga hvernig okkur
hefur tekist þar á aðeins einu
sviði, er kalla má umferðar-
menningu? Ég minnist þess að
þá er leið að akstursbreytingu.
frá vinstri til hægri, birtist í
„Tímanum" grein, eftir Baldvin
Þ. Kristjánsson, sem mér fannst
óþarflega ofstopafull og engum
tilgangi þjóna, nema þá helst
til ills. Mér fannst helzta rök-
semd Baldvins Þ. og þeirra_ er
fylgdu honum að málum, að
með tilkomu þessarar breyting-
ar væri ráðin bót á öllum okk-
ar umferðar vandamálum. Þeg-
ar Baldvin Þ. skrifaði grein sína
var breytingin ráðin og engin
þörf æsilegra skrifa, þar eð vit-
að var að hún hlaut fram að
ganga. Sjálfsagt er að rifja upp
reynslu af þessari endurbót
umferðarlöggjafar.
Fyrsta ár og jafnvel lengur
brá svo við að slysum fækkaði
mjög og var þess ótæpt getið
í fjölmiðlum, til vitnis um hve
ágæt framkvæmd þetta hefði
verið. Áhrifavaldur þessa góða
árangurs var sá að nú þurftu
ökumenn að breyta sínum akst-
ursvenjum og efalaust hafa
margir átt þar erfitt um vik,
því að vaninn er harðstióri, sem
lætur treglega af valdi sínu. Því
var það að bílstjórar keyrðu
yfirleitt af ýtrustu gætni þegar
breytingin var framkvæmd og
lengi þar á eftir. Árangur:
Næsta fá og lítil slys. Ef ein-
hver, sem þetta les, vildi leggja
það á sig að fletta dagblöðum
frá þessum tíma, myndi hann
fljótt finna hrifninguna sem
blöðin birtu yfir því hve þetta
væri dásamlegt. Já, víst var
það dásamlegt, en því miður
stóð sú dásemd stutt. Þó skal
því fagnað, af alhug, að þessi
breyting á ökureglum hefur
örugglega sparað einhver
mannslíf. En hversu lengi var
Adam í Paradís?
Bifreiðastjórar vöndust hægri
handar umferð fljótt. Hraðinn
iókst og slysum fór að fjölga.
Mig undrar ekkert þó að allir
þeir er dásömuðu þessa breyt-
ingu, frá vinstri til hægri, þegi
nú þunnu hljóði og minnist ekki
framar á þessa „dásamlegu"
lausn. Ég vil beina því til þess-
ara ágætu manna að ef þeir
vilja beita sér fyrir breytingu,
á ný_ vfir í vinstri handar akst
ur og fá henni framgengt, mun
slysum og dauðsföllum örugg-
lega fækka — í bili.
Það gerist vegna þess að nú
eru menn, fyrir löngu, orðnir
jafn vanir hægri handar um-
ferð og beir voru vinstri umferð
á sínum tíma. Á meðan breyt-
ingin fer fram, og fyrst á eftir,
eru ökumenn hikandi og hrædd
ir við umferðina, jafnvel þó að
góðir bílstjórar séu. Að vísu er
tími æfintýranna ekki liðinn,
sem betur fer, og hættir von-
andi aldrei að vera til, en þess
er ég fullviss að engin töfra-
brögð eru til sem leysa umferð-
arvandamálin. Slysa- og morð-
öldu umferðarinnar lægir ekki
fyrr en við lærum að haga
okkur sem skyni gæddar ver-
ur í samskiptum við náunga
okkar í daglegri umferð.
Ég hefi rætt hér mest um
bifreiðastjóra, en þáttur gang-
andi vegfarenda er engu betri.
Og þótt leitt sé frá að segja eru
unglingar oft hættulegir skað-
valdar og þó nær eingöngu
karlkynið. Það er ekkert óvana-
legt að siá stráka, um ferming-
araldur, aka þvert í veg fvrir
bifreið, sem á í erfiðleikum
vegna glóandi hálku, ganga
hægt og settlega og líta stork-
unaraugum til bílstjórans. Þetta
gerist jafnt þó að ekki sé um
gangbraut að ræða. Mér skilst
að skyn bama gagnvart fjar-
lægðum og hraða, sé nokkuð
annað en hinna fullorðnu og
sorglega mörg eru banaslys
barnanna. Gamalt fólk hefur
oft takmarkaða hreyfigetu, hlut
ur þess stór í umferðarslysum,
enda jskyn 'þess á umferðar-
hraða vafalaust oft þokukennt.
Um völdun slysa ræður mestu,
hve ökuhraði er alltof mikill í
þéttbýli og þá ekki síður úti á
þjóðvegum, sem oft eru of mjó-
ir til þess að á þeim verði mæzt
á ýtrasta hraða, svo að ekki sé
nú talað um gömul ræsi, er
mjókka vegarbreidd að miklum
mun mjög víða. En ferðahraði
virðist ein æðsta ósk flestra
vegfarenda og máske eðlileg
þegar þess er gætt að sífellt
meiri hraði er heimtaður í öll-
um störfum og á flestum svið-
um þjóðlífs okkar. Svo mikill
er hraðinn orðinn að allt of
fáir gefa sér tóm til þess að
staldra við og athuga umhverfið
áður en þeir álpast út í óvissu,
slys og jafnvel dauða, fyrir ald-
ur fram.
En hvað er þá til ráða? Spyr
sá er ekki veit. Er það missýn-
ing mín að hvar sem um fold
er farið sé leyfilegur ökuhraði
einskis virtur, af mörgum. Er
það misminni mitt að alloft sé
viðbára ökumanna, er slysum
valda: „Ég sá bara ekkert, sól-
in blindaði mig.“ Eða: „Það var
svo mikið kóf að ég sá ekki
neitt.‘ Samt er ekið og líklega
treysta margir ökumenn þá
meira á aðra vegfarendur en
sjálfa sig. Fyrst og fremst virð-
ist ökuhraði mesti slysavaldur-
inn og vafalaust verður svo um
ófyrirsjáanlega framtíð, ef að
menn átta sig ekki á því að
enn er í gildi gamall málshátt-
ur, er hljóðar svo: „Farðu hægt,
svo að þú komist áfram.“ Ef að
menn fylgdu þeirri réglu, sem
reyndar er fullkomin andstæða
kröfum nútímans, myndi slys-
um stórlega fækka.
Góðir lesendur! Þetta er orð-
ið langt og máske þreytandi
mál fyrir þá er trúa á styrk
sjónar sinnar og handa og rétt
viðbrögð, er vanda ber að hönd
um. Mesta stórhátíð ársins fær-
ist óðum nær. Liðnir atburðir
verða ekki afturkallaðir. En
myndi ekki fæðingarhátíð þess
trúarleiðtoga, er við kennum
trú okkar við verða bjartari í
vitund okkar ef að við gætum
sameinast um þá viðleitni að
úthella ekki meira blóði og fram
kalla ekki fleiri tár, en stað-
reyndir liðins árstíma benda
til?
Að síðustu: Löggæzla virðist
lítil.
16/11 1977
Sigtr. Símonarson.
Afmælishátíð í
Möðruvallakirkju
Síðastliðinn sunnudag, 13. nóv-
ember, var þess minnst við há-
tíðarguðsþiónustu að Möðru-
völlum í Hörgárdal að 110 ár
eru nú liðin frá því kirkian var
fullbyggð og afhent söfnuðinum.
Við þessa athöfn predikaði
vigslubiskupinn, séra Pétur
Sigurgeirsson, en sóknarprest-
urinn. séra Þórhallur Höskulds-
son, rakti sögu kirkiu og stað-
ar og skýrði frá tjiöfum og
framkvæmdum við kirkiuna.
Kirkjuna á Möðruvöllum
reisti athafnamaðurinn og
kirkjusmiðurinn, Þor.steinn
Danielsen á Skipalóni, og var ,
hún nýreist ein stærsta og feg-
ursta kirkja landsins, rúmar
um 250 manns í sæti. Enn er
kirkjan hið ágætasta hús, enda
vel við haldið og varðveitt sem
líkust því sem upphaflega var.
í tilefni þessa afmælisárs hef-
ur hún hlotið ýmsar aðgerðir,
bæði til endurbóta og prýði. —
Nýjar útihurðir voru smíðaðar
á ytri hurðarkarma í sömu gerð
og þær gömlu, endurnýjaðir
hlerar á kirkjuturni og turninn
þéttur. Þá fór fram gagnger
viðgerð á undilrstöðum undir
kirkjugólfi, kirkjan rétt af og
aukabitar settir undir gangveg.
Eru þetta allt hin ágætustu
verk, enda orðin aðkallandi. Þá
voru sett teppi á kór kirkjunn-
ar, gang og forkirkju og kirkju-
gólf annað málað og endurnýjað
áklæði á kropbeði og stólum í
í kór. Enn má geta þess, að ný-
lega var raflögn kirkjunnar
endurnýjuð og sett upp ný raf-
magnstafla. Allar framkvæmdir
við kirkjuna hafa verið unnar
í samráði við þjóðminjavörð,
Þór Magnússon, en að hans til-
hlutan hefur kirkjan líka eign
ast fvrir skemmstu vandaðan
stálskáp, þar sem varðveittar
eru bókagersemar kirkjunnar,
frumútgáfa Guðbrandsbiblíu og
hin fágæta bók Summaria,
prentuð á Núpufelli 1589—1591.
Frekari framkvæmdir eru
enn fyrirhugaðar bæði málning
á kirkjunni að utan, og eins er
stefnt að viðgerð og klæðningu
á bekkium kirkjunnar. í þeim
tilgangi er ákveðið að leita til
allra vina og velunnara kirkj-
unnar í þeirri von að helst
mætti koma því verki í fram-
kvæmd með samstilltu átþki.
Ollum er kunnugt hve þröng-
ur fjárhagur margra kirkna er
nú á tíð og ekki síst í fámenni
sveitanna, og það því fremur
þegar um er að ræða svo veg-
legt timburhús sem Möðru-
vallaklausturskirkja er. En
þeim mun þakkarverðari eru
bær kostnaðarsömu framkv.
sem begar hafa átt sér stað. —
Margir hafa líka lagt þar gott
lið með giöfum og vinnu. Kon-
ur í sókninni efndu fvrir ári
síðan til almennrar fjáröflunar
til teppalagningar og á þessu
ári hafa kirkjunni borist veg-
legar peningagjafir, bæði
minningargjafir og gjafir til
ákveðinna verka, sem síðar
verður getið í blaðinu.
Þá hefur kirkjunni einnig
borist gestabók frá Kvenfélag-
inu Freyju í Arnarneshreppi.
Hún er fagur og listrænn grip-
ur með táknrænni mynd fyrir
sögu staðarins, sem er haglega
útskorin á kápu bókarinnar af
Matthíasi Andréssyni, Kópa-
vogi. Bókinni fylgir borð, sem
einnig er ætlað það hlutverk að
vera lespúlt.
í sóknarnefnd Möðruvalla-
klausturskirkju eru: Páll Ólafs-
son, Dagverðartungu, formaður.
Ingimar Brynjólfsson, Ásláks-
stöðum. Magnús Stefánsson,
Fagraskógi. Jóhannes Hermanns
son, Hjalteyrarskóla og Sverrir
Haraldsson, Skriðu.
Við kirkjuna starfar hinn
ágætasti kirkjukór undir stjórn
organistans, Jóhanns Baldvins-
sonar, Akureyri. — Formaður
kórsins er Ásta Ferdinantsdótt-
ir í Spónsgerði.
Eftir guðsþjónustuna á
sunnudaginn var kirkjugestum
boðið til kaffidrykkju að fé-
lagsheimilinu að Freyjulundi.