Dagur - 25.11.1977, Page 7
Mokkavörurnar eftirsóttar
en fólk vantar til framleiðslustarfa
— í hverju er starf klæð-
skerameistara fólgið hjá Mokka
deildinni?
— Það er nú fyrst og fremst
hönnun og teiknun fatnaðar
sem hér er framleiddur, segir
Ingólfur. Hálfu ári fyrir fram-
leiðslu, eða um það bil, eru gerð
„módel“ af flíkinni og hún síð-
an send á sýningar innanlands
og erlendis. Síðan, ef flíkin
líkar vel, þá er hafin fjölda-
framleiðsla á henni hérna.
— Hvað afkastar þessi verk-
smiðja þá miklu, Einar?
— Hún á að geta annað um
sjö þúsund flíkum á ári, en það
ræðst að sjálfsögðu af því hvers
konar flíkur er um að ræða.
Það vinna um 35 manns í
verksmiðjunni og hver maður
hefur sitt ákveðna verksvið.
— Hver er gangur framleiðsl-
unnar?
— Skinnin koma hingað úr
sútun, og framleiðslan hefst
með því að skinnin eru flokk-
uð eftir hárum og lit. Þá eru
skinnin sniðin, rökuð og undir-
búin fyrir saum. Síðan tekur
„saumakeðjan“ við þeim. Hver
starfsmaður hefur sitt verksvið,
einn saumar ermar, annar vas-
ana og svo framvegis. Þegar
lokið hefur verið við sauma-
skapinn fer flíkin í mjög stranga
gæðaskoðun. Þar eru athugaðir
allir hugsanlegir gallar sem
kunna að leynast. En þrátt fyrir
mjög strangt eftirlit, er það fá-
títt að flík helltist úr lestinni
vegna galla. En þegar það kem-
ur fyrir, er flíkin seld á af-
slætti.
— En þola íslensku skinnin
samanburð við erlent hráefni?
— Já, og meira en það. ís-
lensku skinnin eru eitt besta
hráefni, sem um ræðir í þessari
framleiðslu í öllum heiminum.
— Viltu skýra það?
— Já, það eru fyrst og fremst
sveipirnir í ullinni sem gera ís-
lensku skinnin að einstöku hrá-
efni. Einnig eru íslensk skinn
léttari en gengur og gerist.
Ingólfur Ólafsson.
— Tapar klæðskurður list-
rænu yfirbragði í fjöldafram-
leiðslu, Ingólfur?
— Nei. Skinnasaumur er í
eðli sínu listgrein, en það hef-
ur verið reynt að ná mikilli
breidd í framleiðslunni, og hún
er orðin svo þróuð_ að verk-
smiðjan hér framleiðir aðeins
úrvalsvöru.
— En eru þetta ekki dýrar
vörur?
— Miðað við gæði eru þetta
ekki dýrar flíkur, sem við fram
leiðum, en það liggur í hlutar-
ins eðli, að skinn er alltaf lúx-
usvara og því dýrari en annar
klæðnaður.
— Annar þú því, Ingólfur, að
hanna allar þessar flíkur?
— Nei, það hefur aukist að
við kaupum „módel“ erlendis
frá, en í framtíðinni hlýtur að
koma að því að sett verður upp
„módel“-teiknistofa í tengslum
við þessa verksmiðju.
— Eins og allir vita, bætir
Einar við, þá eru flutt mjög
mikið út af hálfunnum gærum,
jafnvel hrá-gærum, en ætlunin
er, að sjálfsögðu, að fullvinna
öll skinn hér heima. Það hlýt-
ur að vera óeðlilegt að við þurf-
um að keppa við fyrirtæki er-
lendis sem geta framleitt úr ís-
lenskum skinnum_ sem þau
Einar Bridde.
kaupa hér óunnin. En sú stað-
reynd, að erlend fyrirtæki fram.
leiða úr íslenskum skinnum er
gæðastimpill á íslensk skinn.
Við erum að reyna að komast
inn á Evrópumarkaðinn með
mokkavörurnar, en nú sem
stendur fer mest öll framleiðsl
an fyrir erlendan markað til
Sovétríkjanna. Hafa flíkurnar
verið, í því skyni, á mörgum
sýningum víða um Evrópu, en
það sem háir okkur mest er
fólksfæðin hér í verksmiðjunni.
Okkur vantar alltaf fólk. Og
mesta vandamálið í sambandi
við fólkið sem vinnur hér, er
að það vinnur svo stuttan tíma.
Endurnýjun starfsfólksins er
það hröð, að manneskjurnar eru
rétt komnar inn í starfið þegar
þær hætta.
— Vinnan við þessa fram-
leiðslu er meiri vandavinna en
margur hyggur, og krefst mik-
illar þjálfunar, segir Einar að
lokum.
Dagur þakkar upplýsingarn-
ar og góðar móttökur.
Vörurnar sem þarna eru fram
leiddar eru kápur, jakkar, frakk
ar og annar skjól- og tísku-
fatnaður. Mokkavörurnar eru
tískufatnaður sem hefur hlotið
viðurkenningu víða um heim,
og er mjög eftirsótt vara, sök-
um þess að þar fer saman hlýr
fatnaður og léttur.
GM
Dagur heimsækir Mokkadeild Heklu
Á efri myndinni sést gæðamat verksmiðjunnar. Þama er
verið að yfirfara kápur. Á neðri myndinni sést yfir hluta |
„saumakeðjunnar“.
(Ljósm.: GM).
Mokkavörumar, kápur, frakkar, jakkar og fleira, frá Fata-
verksmiðjunni Heklu eru öllum landsmönnum kunnar
fyrir gæði og smekklegt útlit. Þess vegna ákvað Dagur að
forvitnast örlítið um þessa merku starfsemi, sem fram fer
hér á Akureyri. Verksmiðjan er á Óseyri í mjög góðu hús-
næði. Hreinlæti og smekkvísi ræður þar ríkjum, m. a. hafa
verið sett upp blómaker víða um verksmiðjusalinn, og er
það ekki algeng sjón í íslenskum verksmiðjum.
Einar Bridde framleiðslu-
stjóri og Ingólfur Ólafsson klæð
skerameistari ráða þarna ríkj-
um og ferst það greinilega vel
úr hendi. Einar er hálærður
Viðtal við Einar
Brydde og Ingólf
Ólafsson hjá
Mokkadeild
Heklu
maður í þessari iðngrein; lærði
í pelsaskóla í Svíþjóð samtímis
þv£ sem hann vann hjá einu
þekktasta pelsafyrirtæki heims-
ins, Wigén. Þar áður vann hann
hjá þýsku skinnafyrirtæki rétt
hjá Frankfurt. Kom Einar til
Akureyrar fyrir um það bil
einu ári og tók við stöðu fram-
leiðslustjóra Mokkadeildarinn-
ar. Ingólfur hefur aftur á móti
unnið við deildina allt frá stofn
un hennar á Akureyri 1967.
Mokkadeildin hefur því vaxið
og dafnað undir handleiðslu
Ingólfs.
Landsmót votta Jehóva
Eitt rekur sig á annars horn
Dagana 20. til 23. október héldu
vottar Jehóva landsmót í sam-
komuhúsi sínu í Reykjavík, Stef
mótsins nefndist ,,Glaðir verka-
menn Drottins" og voru siö full-
trúar frá söfnuðinum á Akur-
eyri viðstaddir mótið. Hver dag-
ur mótsins fjallaði um ákveðið
viðfangsefni og var til dæmis
dagskrá fyrsta dagsins helgaður
fjölskyldulífinu. Skírnarathöfn
var á mótinu og létu þrír skír-
ast, þar af einn skírnþegi úr
söfnuðinum á Akureyri.
Hámark mótsins var opinber
fyrirlestur er nefndist „Hvernig
Guðsríki getur verið þér til
gagns“, sem fluttur var af full-
trúa safnaðarins í Reykjavík,
Kjell Geelnard og var þá auk
vottanna margt áhugasamt fólk
viðstadd. Mótsdagsskráin sem
flutt var á þessu móti hefur ver-
ið flutt víða um heim á nýliðnu
sumri og hafa hundruð þúsund-
ir manna verið viðstaddir.
í nóvember munu vottarnir
hér á landi dreifa sérstöku
fréttablaði til almennings sem
fjallar um biblíulegar ráðlegg-
ingar til eflingar fjölskylduein-
ingar. Blað þetta er dreift að
kostnaðarlausu og mun söfnuð-
urinn hér á Akureyri hefjast
handa með þessu starfi í þess-
ari viku.
í þá veru var kveðið á Bægisá
forðum og gildir það enn, svo
sem í umferðinni, sagði varð-
stjóri hjá lögreglunni í gær, er
blaðið leitaði frétta. Hann sagði
ennfremur:
í umferðinni er smáhnoð og
skemmdir á ökutækium, sem
eru dýrar, þótt ekki teljist mikl
ar og hafi ekki valdið slysum
á fólki síðustu daga.
Og margir leggja af stað á bíl-
um sínum á morgnana, án þess
að hreinsa nægilega af rúðum,
láta sér jafnvel nægja eitt
gægjugat á framrúðunni. Slík-
an trassaskap mega ökumenn
ekki láta henda sig, enda hefur
það reynst ýmsum dýr trassa-
skanur, svo ekki sé meira sagt.
Olvun er ekki mikil þessa
daga, svona í miðri viku, en
athyglisvert er og ekki ánægju-
legt, að nú virðast sumum ekki
nægja þrír dagar vikunnar til
drykkjunnar, heldur byrja þeir
á fimmtudögum og í því efni
má segja, að þá sé skörin farin
að færast upp í bekkinn.
Holger Frederiksen úr söfnuðinum á Akureyri stýrir umræðum
sem fram fóru á dagskrá landsmótsins í Reykjavík.
DAGUR•7