Dagur - 25.11.1977, Qupperneq 8
DAGUR
Akureyri föstudaginn 25. nóvember 1977
Margir eru í enskutímum
Hrísey 23. nóvember. Veðrið er
vægast sagt heldur leiðinlegt
og allmikill snjór er kominn,
en brim er hér lítið, enda norð-
austan átt.
Lionsmenn hér í eynni höfðu
um helgina skemmtikvöld_ sem
var vel sótt og fór ágætlega
fram. Þá bregður svo við, að
margir eru orðnir mjög áhuga-
Fólk
slappar af
Grenivík 23. nóvember. Drang-
ur hefur tvisvar komið hingað
með vörur vegna ófærðar á
vegum, því strax rennir í slóð-
ir þótt mokað sé öðru hverju
þennan ótíðarkafla. Verulegur
snjór er kominn. Bændur vita
um nokkrar kindur, sem eftir
er að ná í og koma til húsa, en
heimtur munu annars sæmilega
góðar. Sjósókn er nær engin nú
um tíma vegna ógæfta. Lítið er
því unnið við fisk og fólk
slappar af eftir mjög anna-
samt haust. Má með sanni segja
að fólki veiti ekki af svolítilli
hvíld. p. A.
Skák
Haustmótið stendur nú yfir og
er teflt í Félagsborg. Keppt er í
2 flokkum fullorðinna og ungl-
ingaflokki. í efri flokki er
keppnin mjög jöfn, þar eru
efstir og jafnir Gylfi Þórhalls-
son, Jón Björgvinsson og Skúli
Torfason með 4 vinninga hver
eftir 5 umferðir. f neðri flokki
er efstur Aðalsteinn Steinþórs-
son með 4V2 vinning. í ungl-
ingaflokki er keppni að mestu
lokið, þar sigraði Eyþór Þór-
hallsson með 8% vinning.
Sl. helgi kom Taflfélag
Hreyfils og keppti við Skákfél.
Akureyrar í 1. deildarkeppn-
inni. Keppt er á 8 borðum. Úr-
slit urðu þau að Skákfél. Akur-
eyrar sigraði, hlaut 6 vinninga
gegn 2 vinningum Taflfél.
HreyfilS.
N. k. fimmtudagskvöld verð-
ur haldið í Félagsborg 15 mín.
mót og hefst það kl. 20.
Skákfréttaritari.
Jafnréttismál
Laugardaginn 26. nóvember
n. k. verður fundur um jafn-
réttismál haldinn í Barnaskóla
Akureyrar. Til fundarins boðar
áhugafólk um jafnrétti kynj-
anna.
Framsöguerindi flytja Gísli
Jónsson menntaskólakennari,
Dómhildur Sigurðardóttir,
kennari, Björn Jósef Arnviðar-
son lögfræðingur, Valgerður
Magnúsdóttir og Ása Jóhannes-
dóttir. Verður rætt í hópum um
ýmis jafnréttismál, svo sem
jafnrétti á vinnustöðum, stöðu-
veitingar, yfirvinnukúgun, kon-
ur í félags- og stjórnmálum
o. fl.
Þátttaka er öllum heimil og
þátttökugjald er ekkert. Fund-
artími er kl. 13—19 og verður
kaffi selt á staðnum.
(Fréttatilkynning).
samir um enskunám og hafa
kannski lengi verið það, en eiga
þess nú kost að njóta kennslu
í því göfga máli, því hér á staðn
um er kennarinn Inger Einars-
dóttir, ung kona og myndarleg,
sem hefur auk sinnar kennslu
við skólann tekið menn í ensku-
tíma og einnig mun hún leið-
beina eitthvað í spánskri tungu
Mig undraði ekki, að heyra eitt
og annað á framandi tungum
áður en langir tímar líða. Get-
ur það líka komið sér einkar
vel nú, því hér eru komnar til
Hríseyjar sex ungar konur til
fiskvinnslustarfa, alla leið frá
Ástralíu og væri ekki fráleitt
að hugsa sér, að hentugt gæti
verið, að kunna fleiri tungu-
mál en íslenskuna, þótt hún
dugi vel.
Því miður er lítið að gera um
þessar mundir því okkur vant-
ar fisk og höfum lítið haft af
honum í eina viku. En bráð-
um kemur Snæfellið og þá lyft-
ist brúnin á mannskapnum.
Hér er á döfinni að fá mann
til að leiðbeina í leiklist. Mun
Þórir Steingrímsson frá Akur-
eyri koma þegar á sjó gefur og
æfa fólk í frumatriðum leiklist-
ar og einnig er hugsað til þess
síðar f vetur að setja leikrit á
svið, undir stjórn Kristjáns
Jónssonar.
í dag erum við að skipa út
hraðfrystum fiski, lítið að vísu
en gott að losna við hann. S. F.
Kraftlyftingamót
Sl. laugardag var haldið minn-
ingarmót Grétars Kjartansson-
ar í kraftlyftingum. Grétar
var einn af frumkvöðlum lyft-
ingaríþróttarinnar hér á Akur-
eyri, og var m. a. einu sinni
íslandsmeistari. í kraftlyfting-
um er keppt í hnébeygju, bekk
pressu og réttstöðulyftu og
ræður samanlagður árangur í
öllum þessum greinum til úr-
slita. Tíu keppendur voru á
mótinu og allir frá Akurevri.
Úrslit urðu þau, að í fjaður-
vikt sigraði Haraldur Ólafsson,
Þór, lyfti samtals 325 kg (125+
62.5+137.5); í millivigt Freyr
Aðalsteinsson, Þór, 477.5 kg
(160+105+212.5); í léttþunga-
vigt Sigmar Knútsson, Þór,
435 kg (155+90+190); í milli-
þungavigt Kristján Falsson,
KA, 525 kg (182.5+132.5+210)
og í 100 kg flokki Jakob
Bjarnason, KA, 460 kg (170+
90+200).
Besta árangri náði samkv.
stigatöflu, Freyr Að'alsteins-
son, og hlaut hann til varð-
veislu glæsilega verðlauna-
styttu sem foreldrar Grétar
gáfu fyrir nokkrum árum. —
Annar varð Kristján Falsson
og þriðji Sigmar Knútsson. —
Þeir Haraldur Ólafsson, Krist-
ján Falsson og Jakob Bjarna-
son settu allir Akureyrarmet
í sínum lyftum.
Haraldur Ólafsson kemst á verðlaunapall á Norðurlandameist-
aramóti unglinga, en hann varð þriðji í sínum flokki.
Lyftingamenn komnir
af N.M. unglinga
Eins og áður hefur verið frá
skýrt fóru nokkur akureyrskir
lyftingamenn á Norðurlanda-
meistaramót unglinga í lyft-
ingum sem haldið var í Sví-
þjóð dagana 5. og 6. nóv. s.l.
Akureyringar stóðu sig allir
vel á mótinu, en þetta var í
fyrsta sinn sem þeir keppa á
erlendri grund, og háði því
keppnisleysi þeim nokkuð. —
Enginn þeirra náði því besta
sem náðst hafði á æfingum
fyrir mótið, en allir skiluðu
þó sínu. Haraldur Ólafsson var
sá eini sem komst á verð-
launapall en hann varð þriðji
í sínum þyngdarflokki. Freyr
Aðalsteinsson varð fjórði í
sínum flokki, Viðar Eðvarðs-
son 5. í sínum, Sigmar 8. í
sínum flokki, en Jakob Bjarna-
son féll út úr keppni. Piltarnir
rómuðu móttökur Svíanna, en
sögðu þó að matur hefði verið
í minnsta lagi.
n
— -j
iv— JL
• Nú kemur
byggðalínan
sér vel
Bilunin í byggðalínunni á
laugardaginn var, var af
mannavöldum, Bar hún)
merki skotmanna og hefur
Iögreglurannsóknar verið
óskað, enda um milljónatjón
að ræða. Skemmdirnar voru
ekki Iangt frá Þingeyri í
Húnaþingi, og fór viðgerð
fram strax og bilunin fannst.
Glöggt hefur komið í ljós,
eftir að byggðalínan var
tengd, hvers virði hún er
Norðlendingum. Rennsli
Laxár hefur sjaldan brugð-
ist meira né raforkufram-
leiðsla Laxárvirkjunar hrap
að meira niður en nú hefur
orðið. Þrátt fyrir öflugar
dísilstöðvar hefði orðið mik-
ill raforkuskortur án raf-
orkunnar að sunnan.
• Bæjarstjóm
markaði
stefnuna
Þriggja daga ráðstefna um
söguritun Akureyrar vakti
ekki þá öldu hrifningar, sem,
vænst var, því hún var ekki
nægilega fjölsótt Hitt þótti
sýnt, að ýmis erindi er þar
voru flutt, væru byggð á
góðri þekkingu sögunnar og
því brot af Akureyrarsögu
og ekki svo Iítið. Það kom
einnig fram við hringborðs
umræður í ráðstefnulok á
sunnudaginn, að áhugi er
mikill á sögurituninni. Bæj-
arstjóm hafði markað stefn-
una með peningaframlagi til
ritunar sögunnar og í fram-
haldi af því, var hún að leita
eftir skoðunum manna og
tillögum um tilhögun verks-
ins.
• Tvær leiðir
Allir ræðumenn við þetta
tækifæri, átján að tölu, lýstu
áhuga sínum á því, að rnálið
næði fram að ganga. Einkum
í ræðum manna var nokk-
uð rætt um vísindalega rann-
sóknarstarfsemi, sem grund-
völl söguritunar. Þeir, sem
gaman hafa af vísindaskrafi,
ættu þó manna best að vita,
að söguritun er fyrst og
fremst gagnasöfnun og skrán
ing — þrotlaus vinna og aft-
ur vinna — og til þeirra
starfa þarf atorkumenn.
• Ritgerðir
sjöttubekkinga
Blaðið hefur ekki fengið í
hendur upplýsingar um, hve
mikið hefur verlð skráð af
sögu Akureyrar, sem nota
má í væntanlega útgáfu. En
geta má þess til viðbótar, að
sjöttubekkingar Menntaskól-
ans á Akureyri, hafa undan-
farin ár gert ritgerðir um
ýmis efni, sem til er vandað
með gagnasöfnun, og m. a.
fjalla um þætti í sögu bæj
arins. Geta ritgerðir þessar
flýtt verki eða jafnvel fallið
inn í verkið án efnislegra
breytinga.
var rætt urn, hvort verkið
ætti fyrst og fremst að vera
tvíþætt, annars vegar nokk-
uð ítarlegt söguágrip, með
það í huga, að félög og stofn-
anir bættu þar um með eig-
in sögu f sérstökum bókum
í sama bókarflokki, eða
hvort rita ætti ítarlega sögu
sem þá yrði í mörgum bind-
um og spannaði þá flesta eða
alla umtalsverða þætti sög-
unnar í einu verki.
• Að skilgreina
verkefnið
Árið 1953 kaus bæjarstjóm
nefnd til að undirbúa og
annast söguritun Akureyrar.
Sú nefnd gerði sér meðal
annars grein fyrir verkefn-
inu og skilgreindi það í ell-
efu liðum. Eitthvað mun
söguritunin, eða einhverjir
þættir hennar, hafa verið
komnir áleiðis og munu þeir
vera til.
Lagersala hafin
á Sauðárkróki
Sauðárkróki 23. nóvember. Bú-
ið er að snjóa mikið í rysjutíð
og víða orðið þungfært, t. d.
ófært yfir Hegranesið núna.
Nokkra rigningu gerði á jafn-
fallinn snjó. Nú er að frysta og
verður þá víða haglítið fyrir
hross, nema þar sem vel er
loðið.
Föstudaginn 18. nóvember
opnaði Kaupfélag Skagfirðinga
nýja verslun, lagersölu í nýjum
vöruskála á eyrinni utan við
bæinn. Slíkar verslanir hafa
rutt sér til rúms hin síðari ár,
meðal annars vegna aukins hús-
rýmis, svo aðstaða fólks til
stærri innkaupa í einingum
hefur batnað. Verslanir sem
þessar leggja lítið sem ekkert
upp úr innréttingum. Nánast er
hér um að ræða lager, sem við
skiptavinurinn leggur leið sína
til.
Lagersala KS hefur allar al-
gengustu matvörur á boðstól-
um í heilum og hálfum pakkn-
ingum, svo og hreinlætisvörur
og er verulegur hluti álagning-
ar felldur niður. Það er von
kaupfélagsins, að með þessu sé
komið til móts við óskir við-
skiptavina sinna á þessu sviði.
Á öðrum stöðum er þetta nefnd-
ur vörumarkaður. Umsjónar-
maður lagersölunnar er Sig-
mundur Ámundason. G. Ó.