Dagur - 13.10.1978, Qupperneq 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGTJR
LXI. árg.
Akureyri föstudagur 13. október 1978
61. tölublað
Bóndi
kaupir stóð
Haukur Laxdal í Tungu
á Svalbarðsströnd hefur
keypt yfir 30 folöld og
nokkur veturgömul
tryppi frá Kolkuósi, en
þangað hafa margir sótt
reiðhrossaefni. Bændur
kaupa oft ær og kýr og
eitt og eitt hross, en
sjaldan stóð unghrossa
eins og hér er gert.
Hvorki folöld né tryppi
úr þessum hópi eru til
sölu næstu tvö árin,
sagði Haukur er blaðið
spurði hann frétta af |§|
þessum viðskiptum.
Atvinnuleysis-
skráning 29.
september
1978
í bréfi frá vinnumiðlun-
arskrifstofunni dags. 2.
október s.l. kemur fram,
að hinn 29. september
hafi 17 verið skráðir at-
vinnulausir á Akureyri,
8 konur og 9 karlar.
Meðalaldur þessa fólks
er 65 ár.
í septembermánuði
voru skráðir 277 at-
vinnuleysisdagar og gef-
ið út 21 atvinnuleysis-
bótavottorð með 328
bótadögum.
Fallgryfjur
í bænum
Nokkrar kveðjur hafa
beðið hér birtingar og
eru þær til hitaveitunnar
á Akureyri, en flestar
hafa þó þegar hafnað í
ruslakörfunni. Kveðj-
umar eru frá fólki, sem
hefur ekið bifreiðum
sínum í skurði og gjótur
hitaveitunnar sem
gleymst hefur að setja
hættumerki við, og
einnig frá fótgangandi
fólki, sem í myrkri hefur
kynnst þessum umferð-
argildrum. Eru þessar
kveðjur saman dregnar
og þeim hér með komið
á framfæri til réttra að-
ila.
Eftir u.þ.b. eitt ár á viðgerð Laxdalshúss að vera endanlega lokið. Myndina tók á.þ.
f sl. mánuði.
Laxdalshús
Á að vera lokið
innan eins árs
Stöðugt hefur verið unnið að
Laxdalshúsi í sumar og er það
komið í gott horf, líklega er það
traustara en nokkru Sinni fyrr.
Ekki er unnt að setja í glugga og
ganga frá rennisúð fyrr en næsta
vor, en í haust verður húsinu
lokað, einangrun bætt og sett
upp bráðabirgðahitun. Stefnt er
að því að fyrir haustið 1979 verði
endanlega lokið við húsið.
Annar áfangi hitaveitu
í Öngulsstaðahreppi:
Súlur með
lægsta tilboðið
Stjórn Hitaveitu Akureyrar
hefur ákveðið að taka til-
boði Súlna h.f. í lagningu
annars áfanga dreifikerfis í
Öngulsstaðahreppi, að því
tilskildu að verktakinn geti
sýnt fram á að hann hafi
nægilegum mannafla á að
skipa til þess að Ijúka verk-
inu á fyrirhuguðum verk-
tíma. Kostnaðaráætlun var
rúmar 25 milljónir og
hljóðaði tilboð Súlna upp á
23,5 milljónir, en samtals
bárust fimm tilboð.
Súlur áttu lægsta tilboðið,
en það var 92,36% af kostnað-
aráætlun. Hér á eftir fara nöfn
annarra fyrirtækja, tilboð og
prósenta af kostnaðaráætlun.
Norðurverk h.f., Gunnar
Birgisson og Borð s.f., tilboð:
26,8 milljónir, 105%. Arnar-
dalur s.f., tilboð: 27,2 milljón-
ir 107%. Ásberg h.f., Reykja-
vík, tilboð: 28,5 fnilljónir
112%. Framtak h.f., Akureyri,
33 milljónir 130%. Þess skal
getið að tilboði Norðurverks
fylgdi fyrirvari í þremur lið-
um.
Alþingi sett
Alþingi íslendinga hið
hundraðasta löggjafarþing í
röðinni var sett 10. október í
Alþingishúsinu, eftir að
þingmenn höfðu hlýtt á
messu séra Sigurðar H.
Guðmundssonar í Dómkirkj-
unni.
Af 60 alþingismönnum eru
22, sem hafa ekki áður setið á
þingi og má því segjá að
breytingar séu miklar og
augljós endurnýjun um leið.
Þingsins bíða mörg verkefni.
Efnahagsmálin verða efst á
baugi fyrstu vikurnar, þar með
fjárlagafrumvarpið. En nú þeg-
ar hefur ríkisstjóm Ólafs Jó-
hannessonar brugðist við vanda
yfirvofandi stöðvunar atvinnu-
veganna og atvinnuleysis á
þann veg, að öll hjól atvinnulífs
og framleiðslu snúast og vinnu-
friður ríkir.
ÞRÖNGT MEGA SÁTTIR
SITJA I LAUGASKOLA
Hríseyingar
láta dag-
vinnu nægja
Hrísey 10. október. Nú eru
frískir laufvindar og hlýtt og
gott og gaman að lifa. Dálítið
hvasst í nótt en ekki til skaða.
Menn stunda sína dagvinnu og
láta sér það vei líka. Það er mun
skynsamlegra og fólkinu líður
miklu betur með því að vinna
aðeins dagvinnu, eða það heyrist
mér. Hér var mikil vinna í sumar
og nú er vinnuoki Iétt verulega
af um tíma og veitti ekki af.
Hér leggja upp tveir bátar frá
Dalvík, einn af Litla-Árskógssandi,
og einn héðan og hafa þeir allir
verið með dragnót. Trillurnar hafa
ekki komist á sjó vegna ógæfta.
Það er ljótt með rjúpuna. Hún
sest varla í Hrísey og við söknum
hennar því Hrísey á að vera hennar
góði griðastaður. Fréttir hafa borist
af óvenjulegu rjúpnaleysi. I Gjá-
stykki, sem er ákaflega mikið
rjúpnaland, sáu gangnamenn flest
sex rjúpur í göngunum í haust.
Annars sá ég dálítið af rjúpu austur
á Sléttu í sumar, hvað sem af þeim
hefur nú orðið. En þetta rjúpna-
leysi er alveg eindæmi í Gjástykki.
Hin ýmsu félög í eynni eru ekki
vöknuð ennþá, en kannski rumska
þau upp úr veturnóttunum. S.F.
Samkvæmt upplýsingum bæjar-
ritara nemur kostnaður vegna
Laxdalshússins nú rúmum átta
milljónum króna. Ekki eru taldar
neinar líkur á að sá kostnaður, sem
eftir er að koma á þessu ári, fari
fram úr fjárveitingu.
Á fundi, sem Húsfriðunarsjóður
hélt fyrir skömmu var rætt um
framtíðarnotkun hússins. Voru
fundarmenn sammála um að æski-
legast sé að íbúð verði í húsinu, auk
þess sem einhver almenn starfsemi
fari þar fram. Óskað hefur verið
eftir tillögum frá Hjörleifi Stefáns-
syni um framtíðarnotkun hússins á
grundvelli þeirra hugmynda sem
fram hafa komið. Þess má geta að
Hörður Ágústsson, arkitekt og
áhugamaður um gömul hús, skoð-
aði Laxdalshúsið fyrir skömmu og
gat Gísli Jónsson, menntaskóla-
kennari, þess að Hörður hefði lýst
yfir ánægju sinni með fram-
kvæmdimar.
Laugaskóli í Reykjadal var sett-
ur 1. október. I skólanum eru
125 nemendur og tugum nem-
enda varð að vísa frá vegna
þrengsla. í framhaldsdeildum
eru um 60 nemendur. Nú er farið
af stað með fyrsta bekk í fram-
haldsdeild í fyrsta sinn, og er
það uppeldisbraut.
Á Laugum er starfræktur verk-
námsskóli, þar sem nemendur geta
lokið öllum bóklegum greinum
iðnskóla. Þurfa iðnnemar þá aðeins
að vinna tvö ár hjá meistara, til að
ljúka sínu námi.
Enn er þess að geta, að byrjað er
að kenna í nýja íþróttahúsinu. Ekki
er enn hafin bygging sundlaugar,
sem þar á að koma.
íþróttakjörsvið er í skólanum og
hefur verið í þrjú ár. Það er þjálf-
araskóli ÍSÍ.
Allir nemendur eru í heimavist.
Kennaralið er óbreytt að mestu.
Skólastjóri er Sigurður Kristjáns-
son.
1 Húsmæðraskólanum eru nám-
skeið í vetur, eins og fyrri vetur en
sérstakt húsmæðranám eftir ára-
mótin.
Aðalfundur Fram-
sóknarfélags Ak
Aðalfundur Framsóknarfélags Ak-
ureyrar var haldinn sl. þriðjudag.
Pétur Valdimarsson formaður fé-
lagsins gerði grein fyrir störfum
stjórnar síðastliðið ár, og kom þar
fram að starfsemi félagsins var
mjög mikil. Reikningar félagsins
voru lagðir fram og greint var frá
reikningum Dags. Ný stjórn var
kjörin og skipa hana Pétur Valdi-
marsson formaður, Þóra Hjalta-
dóttir ritari, Jóhann Karl Sigurðs-
son gjaldkeri og Karl Steingríms-
son og Ólafur Ásgeirsson með-
stjórnendur.
OLAFSFIRÐINGAR SKERA UPP
HERÖR GEGN TANNSKEMMDUM
Komin eru til landsins tann-
læknatæki er eiga að fara til
Ólafsfjarðar. Gert er ráð
fyrir að heildarkostnaður
vegna tækjakaupa og upp-
setningar nemi átta til níu
milljónum króna. Til að
byrja með verða þau sett upp
í gamla barnaskólanum, en
þar eru fyrir gömul tann-
læknatæki. Illa hefur gengið
að fá tannlækna til að nota
þau, enda með öllu úrelt.
Ólafsfirðingar hafa hug á að
fá tannlækni til starfa í bæn-
um, en fram að þeim tíma
verður reynt að fá tannlækna
til að heimsækja staðinn og
leggja til atlögu við
skemmdarfýsn Karíusar og
Baktusar.