Dagur - 30.08.1979, Side 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGUR
LXII. árg.
Akureyri, fimmtudagur 30. ágúst 1979
55. tölublað
Stöðvast
dagblöðin?
Grafiska sveinafélagið
hefur boðað viðsemj-
endum sínum, að offset-
prentarar muni leggja
niður störf í vakta- og
aukavinnu frá miðnætti
næstkomandi mánudag,
hafi samningar þá ekki
tekist. Talið er, að ef af
vinnustöðvun þessari
verður, muni útgáfa
dagblaðanna í Reykja-
vík stöðvast, og síðar
e.t.v. öll blöð.
*
■
.
3000
grunnskóla-
kennarar
Allt að eitt þúsund
grunnskólakennarar
hafa í sumar sótt nám-
skeið í ýmsum fræðum
til að auka við þekkingu
sína og kennsluhæfni,
m.a. í nýjum greinum,
og til þess einnig að
öðlast full kennararétt-
indi, samkvæmt nýjum
lögum þar um. Enn-
fremur sækja margir ís-
lenskir kennarar nám-
skeið erlendis. í grunn-
skólum landsins starfa
um þrjú þúsund kennar-
ar.
*
Næsta ár nefnt
„Ár trésins“
Skógræktarfélag ís-
lands, sem stofnað var
1930 á Þingvöllum, ætlar
að minnast hálfrar aldar
afmælis síns á næsta ári
með því að gera sérstakt
átak í skógræktarmál-
um, undir kjörorðunum
„prýðum landið, plönt-
um trjám“. Mörg fé-
lagasamtök landsins
hafa heitið stuðningi
sínum við þessa hug-
mynd skógræktar-
manna. Fyrst og fremst á
að glæða skógræktar-
áhugann meðal þjóðar-
innar með áróðri og
fræðslu, en einnig á að
sinna skógræktinni í
verki, og það svo um
munar.
segir Helgi Bergs bæjarstjóri
Á Alþjóðlcgu vörusýningunni 1979 gefur að lfta þetta líkan af Hallgrfmskirkju úr
Lego kubbum 1.60 m á hæð. Getraun er í gangi um fjölda kubba sem fóru f Ifkanið.
Ákveðið hefur verið að likan af Hallgrfmskirkju verði reist i Legoiandi, þeim heims-
fræga skemmtigarði f Danmörku.
Vörukynning
150 fyrirtækja
„NÚ ER verið að koma fyrir
dælu í holu LN 12 á Laugalandi
niður á 230 m dýpi, og væntan-
lega hefst dæling upp úr henni
um helgina. Síðan stendur til að
gera við holu LJ 5 og LJ 7, sem
einnig eru á Laugalandi, og
setja dælur sem fyrir eru í þeim
báðum úr 100 m dýpi niður á um
230 m dýpi, þannig að 140 sekl.
eiga að vera mjög vel tryggðir
upp úr þessum þremur holum.
Framvindan er mjög undir því
komin hvemig tekst með vatns-
öflun á Ytri-Tjö 'num, en þar er
nú verið að vinna að viðgerðum
á holunni TN 1 og þar vonumst
við tii að geta náð u.þ.b. 60 sekl.
200 sekl. er það magn sem við
þurfum í mestu kuldum í vetur.
Ég hef ekki verulegar áhyggjur
af því að það takist ekki að
tryggja þetta vatnsmagn sem við
þurfum“, sagði Helgi Bergs
bæjarstjórí í viðtali við blaðið.
Borunarframkvæmdir, auk við-
gerða á holunni á Ytri-Tjörnum,
eru í landi Grýtu, 4 km sunnan við
Laugaland, en þangað fór borinn
Glaumur, eftir að hafa borað um
1000 m djúpa holu að Reykhúsum,
en þar mun borinn Narfi taka við
frekari borunum. Glaumur er nú
búinn að bora niður á 130 m dýpi.
í vetur er gert ráð fyrir að lokið
verði að tengja 70% af húsum í
bænum við hitaveitukerfið, og að
Sauðárkróki 29. ágúsl. Hér í Skaga-
firði er hryssum tekið blóð um
þessar mundir og það selt til
Danmerkur. Þessi einkennilega
starfsemi er á vegum Hags-
munasamtaka hrossabænda.
Hryssur, sem tekið er blóð,
samsvarandi aflþörf verði komin.
Á næsta ári stendur til að ljúka
þessu verki, tengja alla þá byggð,
sem þá er í bænum við hitaveitu-
kerfið. í framhaldi af því verði ekki
um annað að ræða en viðbætur við
kerfið, vegna nýbygginga.
„Það er ljóst að fyrir heildar-
kerfið þarf meira vatn, heldur en
nú er komið, og menn eru að vonast
eftir meiri árangri vegna þess í
borunum. Hins vegar er nokkurn
veginn hægt að slá því föstu að það
verði ráðist í það að byggja kyndi-
stöð næsta vetur. Þannig að það
verði hægt að nýta það, sem við
fáum til baka í gegnum tvöfalda
kerfið eftir því sem þarf á köldustu
tímabilum, að vatnsþörfin verði
að mestu leyti brúuð þannig, sagði
Helgi Bergs.
Bæjarstjóri kvað rétt að undirstrika
það, að hitaveitan er mjög hag-
kvæmt fyrirtæki. Hitaveitan stend-
ur undir kostnaði af sjálfri sér, og
getur greitt þau lán til baka sem
tekin hafa verið vegna hennar,
jafnvel þó að hitunarkostnaður
bæjarbúa væri miklu lægri, heldur
en ef kynt væri með olíu. Það mun
ekki vera langt frá því að hitunar-
kostnaður með hitaveitunni nú sé
50% af því, sem það kostar að hita
með olíu. „Það er of lágt verð, og
það munu verða hækkanir á því á
næstunni, enda var reiknað með
því að fyrstu árin sem hitaveitan
væri í notkun, þá yrði þetta hlutfall
um 80%“, sagði Helgi bæjarstjóri
þurfa að vera með fyli, og hafa
gengið með frá 50-90 daga. Það
er Einar Birnir lyfsali í Reykja-
vík og Tilraunastöðin á Keldum,
sem hafa umboð fyrir hið
danska fyrirtæki, sem blóðið
fær.
ALÞJÓÐLEGA vörusýningin í
Laugardaishöll í Reykjavík
hófst, sem kunnugt er síðastlið-
ið föstudagskvöld og þar munu
um 150 fyrirtæki kynna vörur frá
fjölmörgum þjóðlöndum á sam-
tals 6000 fm sýningarsvæði inn-
anhúss og utan. Flugleiðir mun
nú sem á aðrar sýningar sem
Einar Birnir og Eggert Gunn-
arsson, dýralæknir á Keldum, hafa
yfirumsjón með blóðtökunni úr
hiyssunum, sem stenduryfir frá 10.
ágúst, og fram í október. Einar
Gíslason, ráðunautur í Skörðugili,
sagði, að þegar væri búið að taka
sýni úr 58 hryssum og taldi líklegt
að þau yrðu tekin úr 70 hryssum
alls. Mætti þá búast við, að 60
þeirra svöruðu með jákvæðri hor-
mónastarfsemi, sem sótt er eftir. En
blóðið er notað í örvunarlyf handa
fólki.
Úr hryssum með jákvæð svör er
áætlað að taka blóð fimm sinnum,
fjóra lítra í einu, en lítrinn er seldur
á 2 þús. kr. Hver hryssa gefur því
eiganda sínum 40 þúsund krón ur.
Hryssur þær, sem blóð er tekið úr,
eru stóðhryssur og virðist þeim ekki
verða meint af, nema e.t.v. af
hnjaskinu, sem þær venjast þó
fljótt, því þær verða spakar á bás-
unum eftir eitt - tvö skipti.
Sala hrossa á erlenda markáði
hefur verið lítil í sumar. Búist er við
miklu framboði hrossakjöts í haust,
og kemur þar tvennt til, að úthagi
er illa sprottinn í sumar, og verður
því beitiland lélegt í vetur. Þá verða
hvarvetna minni hey í haust en
venjulega, nema í mið-héraðinu.
G.Ó.
haldnar hafa verið veita afslátt
af fargjöldum á áætlunarleiðum
innanlands fyrir þá sem hyggjast
heimsækja sýninguna.
Kaupstefnan h/f hefur skipulagt
sýninguna, en þetta er 6. stórsýning
Kaupstefnunnar á þessum áratug.
Á síðustu stórsýningu Kaupstefn-
unnar hf „Heimilinu“ 1977 var
reistur stærsti stóll í heimi, sem
tákn þeirrar sýningar og hefur það
nú verið staðfest, sem heimsmet í
heimsmetabók Guinness. Að þessu
sinni var það tveggja hæða strætis-
vagn frá London, er varð fyrir val-
inu sem sýningartákn og er boðið
upp á skoðunarferðir í strætis-
vagninum um höfuðborgina. Sýn-
ingargestir freista gæfunnar í
happdrætti sýningarinnar, en
hverjum aðgöngumiða fylgir
happdrættismiði. Þá eru daglega
haldnar tískusýningar og lands-
frægir skemmtikraftar troða upp.
Samið
um bygg-
ingu á 19
leigu-
íbúðum
„Þessa dagana er verið að
ganga frá samningum við
verktakana, Aðalgeir & Við-
ar og Híbýli, um byggingu á
19 leiguíbúðum, sem byggðar
verða samkvæmt lánakjörum
í lögum um byggingu 1000
sölu- og Ieiguíbúða“, sagði
Helgi Bergs bæjarstjóri
Fyrr í vor voru teknar í notk-
un 20 slíkar leigu- og söluíbúðir.
I verkamannabústöðum er
unnið að byggingu 21 íbúðar,
og er gert ráð fyrir að þær verði
tilbúnar í október eða nóv n.k.
Hryssunum virðist ekki verða meint af blóðtökunni.
Hryssum tekið
blóð í Skagafirði
Nægjanlegt
vatnsmagn ætti
að lást í vetur