Dagur - 30.08.1979, Qupperneq 2
3 Smáauglýsingar^^, " ap
Hala Bifreióir Húsnæói
Tll sölu eru eftirtaldir munir:
Rafha eldavél, Hoover þvotta-
vél með rafvindu og suöuele-
menti. Hoover ryksuga, út-
varpstæki, barnakojur (Stáliðn)
og DBC karlmannsreiðhjól með
gírum. Upplýsingar í síma
22986 eftir kl. 5 áginn.
Svefnsófl til söiu kr. 25.000.
Uppl. ísíma21991.
Stór frystl og kæliskápur (5
hurða) með pressu til sölu,
einnig sundurtekin kæliklefi.
Sími 21889.
Trlllubátur úr plasti til sölu.
Fimm metra langur með skjól-
borðum og stýrishúsi. 13 ha
Lister díselvél. (Skifti koma til
greina á stærri bát).
Uppl. í síma 33137 eftir kl. 8 á
kvöldin.
Hjónarúm til sölu. Uppl. í síma
21423 eftir kl. 7 á kvöldin.
Vantar olfufylta rafmagnsofna
800-1250 w. 60 cm. h.
Tilboð sendist á Dag.
Ford Escord árg. 1974 til sölu.
Ekinn 65 þús. km. Upplýsingar í
síma 22986 eftir kl. 5 á daginn.
Mazda 929, tveggja dyra, harðt.
til sölu. Árg. 1976. og Volvo 144
árg. 1973.
Uppl. ísíma 95-6165.
Volvo 1973 lítið ekinn, sjálf-
skiptur í mjög góðu lagi til sölu.
Uppl. í síma 21733.
Lada stadion 1500 árg. 1979 til
sölu.
Uppl. í síma 21812 eftir kl. 7 á
kvöldin.
Toyota Cressida árg. 1978 til
sölu. Ekin 22.000 km.
Uppl. í síma 41836.
Saab 96 árg. 1971 til sölu. Ekin
35.000 km.
Uppl. í síma 23464 á daginn og
21990 á kvöldin og 95-4317.
Toyota Cressida Hardtopárg.
1978, sjálfsskiptur, til sölu.
Uppl. í síma 21598.
Tll sölu á Skagaströnd er ris-
íbúð. Verð 3,7 millj. Útborgun 3.
millj.
Uppl. í síma 96-24739 og á
Skagaströnd í síma 95-4779
eftir kl. 8 á kvöldin.
Ung barnlaus hjón óska eftir
íbúð á leigu. Reglusemi heitið.
Ársfyrirframgreiðsla.
Uppl. ísíma 22776.
Barnagæsla
Barnfóstra óskast til að gæta
11 mánaða stelpu frá kl. 8-4 á
daginn í vetur. Upplýsingar í
síma 21400 (240)
Systir Uahbilina. — Farið
strax úr jicssu stuttpilsi!
Urslitin í 3. deild
Annar riðill úrslita þriðju
deildar í knattspymu verður
leikinn á Akureyri nú um helg-
ina. Keppendur í þeim riðli eru
Einheiji frá Vopnafirði, Völs-
ungur frá Húsavík og Skalla-
grímur úr Borgarnesi. Þjálfari
Einherja er Þormóður Einars-
Pálmi í Þór
Þórsurum hefur nú bæzt góður
liðsauki í handboltann. Það er
Pálmi Pálmason, sem áður lék
með Fram og landsliðinu. Hann
hefur undanfarin ár leikið og
þjálfað á Húsavík. Ekki er að
efa að hann styrkir liðið, sem
æfir nú af fullum krafti undir
stjórn þjálfara síns, Arnars
Guðlaugssonar.
Prestafundur
AÐALFUNDUR prestafélags hins
foma Hólastiftis verður settur í
Hafralækjarskóla í Aðaldal n.k.
mánudag. En þeir prestar, sem eiga
lengra að koma þangað degi fyrr.
Fundir sem þessi eru haldnir annað
hvort ár, þegar ártalið er stök tala.
Fundinn sækja prestar af öllu
Norðurlandi, svo og guðfræði-
kandidatar og guðfræðinemar af
svæðinu.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa
verður aðal umræðuefnið, nýjung-
ar í kirkjulegri þjónustu. Hafa þar
framsögu séra Jón Aðalsteinn
Baldvinsson Staðarfelli og séra
Vigfús Þór Árnason, Siglufirði. Á
mánudagskvöld verðurkvöldvaka í
Hafralækjarskóla, þar sem séra
Pétur Sigurgeirsson, vígslubiskup,
segir frá för til Israels og sýnir
myndir frá Galíleuvatni. Altaris-
ganga verður í Grenjaðarstaða-
kirkju og er kirkjan opin fyrir alla.
Fundurinn heldur áfram til há-
degis á þriðjudag og endar í sum-
arbúðum ÆSK við Vestmanns-
vatn. Formaður Prestafél. er séra
Pétur Sigurgeirsson og með honum
fjórir prófastar.
son, sem í fyrra þjálfaði Magna
frá Grenivík, og kom þeim í
aðra deild. Hvort Þormóður
leikur sama leikinn í ár skal lát-
ið ósagt. Leikið verður í þessari
röð:
Fimmtudagur kl. 17.00.
Aðalvöllur: Völsungur - Ein-
herji
Laugardagur kl. 17.00.
Menntaskólavöllur: Skalla-
grímur - Einherji.
Mánudagurkl. 18.00.
Menntaskólavöllur: Völsungur
- Skallagrímur.
— Hitaveita á
Egilsstöðum..
(Framhald af bls. 8).
er hér alltaf húsnæðisvöntun, enda
fjölgar fólkinu ört.
Við höfum hér, sagði Björn,
Prjónastofuna Dyngju, sem gekk
vel á siðasta ári, jók framleiðslu
sína fyrri hluta þessa árs, en mun
ekki fara varhluta af þeim erfið-
leikum, sem kunnir eru í þessari
grein hér á landi síðustu mánuði. 1
Prjónastofunni vinna 30-40 konur
og er það verulega til bóta hér í
kauptúninu.
Heyskapur hefur gengið sæmi-
lega á Mið- og Upp-Héraði en mun
verr á út-Héraði, sagði Björn
Ágústsson að lokum.
Auglýsing í Degi
BORGAR SIG
Hvað er góðauglýsing?Allir auglýs-
endur borga fyrir að fá auglýsingu
birta í blöðum. Hvers vegna auglýsa
fyrirtæki þá vöru sína? Jú, til þess
að hún seljist. Þannig er hægt að
láta auglýsingu borga sig. En það er
ekki sama í hvaða blaði auglýst er,
því mörg hafa litla útbreiðslu og fáa
lesendur. Dagur hefur aftur á móti
mikla útbreiðslu og lesendur eru
fjölmargir.
Það borgar sigþví að auglýsa iDegi,
þar eru allar augtýsingar góðar aug-J
lýsingar.
4
GUR
(AGUR
AGUR
DAGUR
2.DAGUR
Gítarkennsla (kerfi)
fyrir börn og fullorðna. Þið sem hafið ánægju af að
syngja en vantar undirleikinn, nú er tækifærið.
Tveggja mánaða námskeið hefst 3. september n.k.
Upplýsingar og innritun alla virka daga í Tónabúð-
inni og í síma 25724.
Kálfaslátrun
Meðan sauðfjárslátrun stendur yfir verður kálfa-
slátrun á föstudögum en ekki á mánudögum og
þriðjudögum eins og verið hefur.
Síðasta mánudags- og þriðjudagsslátrun verður 3.
og 4. sept., og fyrsta föstudagsslátrun 14. septem-
ber n.k., og skal þá koma með kálfana milli kl. 2 og
5 e.h. á slátrunardegi.
Sláturhús K.E.A.
FIRMAKEPPNI
í knattspyrnu
Firmakeppni í knattspyrnu fer fram í september.
Þátttökutilkynningar sendist K.R.A. pósthólf 552,
fyrir 11. sept. n.k. Þátttökugjald kr. 30.000 skal
fylgja þátttökutilkynningu, annars verður hún eigi
tekin til greina.
Reglugerð fyrir keppnina liggur frammi á skrifstofu
ÍBA, íþróttahúsinu við Laugargötu 6. sept. kl. 20-22
og hjá formanni KRA.
Knattspyrnuráð Akureyrar.
Almanak
Ólafs S. Thorgeirssonar í
Winnipeg, 1-60. árgangur
Lokið er Ijósprentun á almanakinu, alls sextíu ár-
göngum, sem koma út 1895-1954. Gefst nú bóka-
mönnum kostur á að eignast þetta öndvegisrit
samstætt. Þar er að finna ómetanlegar heimildir úr
sögu íslendinga í Vesturheimi, sem hvergi annars
er að fá. Almanakið er gefið út í mjög litlu upplagi,
og ættu því væntanlegir kaupendur sem fyrst að
tala við okkur.
Bókaútgáfan Edda
Ámi Bjarnarson, símar 24334 og 23852.
\ ÚTSALA — ÚTSALA
{ Útsalan
| hefst mánudaginn
{ 3. sept.
I MIKIL VERÐLÆKKUN
| GERIÐ GÓÐ KAUP
! tískuverslunin
j venus
^ Strandgötu 11, gegnt B. S. O., sími 24396