Dagur - 30.08.1979, Page 7
MARGIR SKOÐA
LAUFÁSBÆINN
Þegar blaðamaður ræddi stutta
stund við sóknarprestinn í
Laufási í gær, séra Bolla Gúst-
avsson, sagði hann m.a. eftir-
farandi:
Árni Björn Ámason, héraðs-
læknir á Grenivík andaðist 15.
ágúst. Hann fæddist 1902, og
hér hefur hann starfað sem hér-
aðslæknir frá 1937, fram til allra
síðustu ára
Otför hans fór fram frá Greni-
víkurkirkju 21. ágúst að viðstöddu
fjölmenni. Ekkja Ama læknis er
Kristín Þórdís Loftsdóttir. Árni
læknir var mjög fær, og naut vin-
sælda og trausts. Með andláti Árna
B. Árnasonar læknis, verður niður
lagt Höfðahverfislæknishérað, og
fellur það undir héraðslæknisem-
bættið á Akureyri.
Heyskapur er meiri en menn
bjuggust við framan af sumri, en
um kartöfluræktina er best að segja
sem minnst, því illa lítur út með
hana, en hún er stunduð í stórum
stíl hér í sveit. Hér næst hafa grös
loks náð fullum vexti, en undir-
vöxturinn er lítill.
í sumar hefur verið geysilega
mikið um ferðamenn, sem koma til
að skoða endurbyggðan Laufás-
bæinn. Oft hafa komið hátt á ann-
að hundrað manns á dag, á laugar-
dögum og sunnudögum og því nóg
að gera í því sambandi. Mest var
aðsóknin í júlímánuði.
Ég fylgist lítið með veiðinni í
Fnjóská, en þó hef ég öðru hverju
heyrt um talsverða laxveiði. Sjálfur
fór ég til veiða á efsta veiðisvæði
árinnar í gær, og varð ekki lífs var.
Mér þykir eðlilegt að stangaveiði-
menn hefðu það svæði til kastæf-
inga, fremur en að selja þar veiði-
leyfi.
Stundum birtast fréttir um æð-
arvörp í landinu. í sumar hefur allt
líf í náttúrunnar ríki verið vikum
síðar á ferðinni en í meðalári.
Þannig var um æðarvarpið hér í
Laufási í sumar. Æðarfuglinn sett-
ist þrem vikum síðar upp en venju-
lega, en varpið var ekki minna en
áður og gekk áfallalaust.
Viðurkenning
OFT HAFA viðurkenningar verið
veittar fyrir hitt og þetta í bænum
okkar, og finnst mér að hitaveitan
sæi sér fært að sýna Grétari Ólafs-
syni viðurkenningu fyrir einstaka
snyrtimennsku og alveg sérstaka
framkomu, sem hann sýndi á hita-
veituframkvæmdum í Lundargötu,
þar sem hann hefur haft stjórn á i
sumar. (Sjón er sögu ríkari)
Marinó Zophoníasson.
— Sandspyrna
(Framhald af bls. 5).
Jeppar án sérútbúnaðar sek
1. Sigursteinn Þórss. Ak. 6.75
Willys Renegate 304 cid
2. Ámi Freyr Antonss. Ak. 6.80
Willys 350 cid
3. Guðmundur Gunnarss. 7.68
Willys 318 cid
Fólksbflar með sérútbúnaði sek
L Gunnar Eiríksson Ak. 7.27
Duster 340 cid.
2. Anna Pétursd. Ak. 9.75
Dodge GT 273 cid.
Fólksbflar án sérútbúnaðar sek
1. Bjami Guðmundsson Ak.
8.87
Dodge 383 cid.
2. Gísli Hauksson Akureyri
9.12
Mustang 351 cid.
3. Sigurbjörn Höskuldsson ak.
10.10
Moskvits 4 cyl.
Mótorhjólaflokkur sek
1. Ólafur Grétarsson Ak. 5.84
Kawasaki 1000
2. Valgeir Sverriss. Ak. 7.30
BSA 500
3. Snorri Jóhannsson Akureyri
Kawasaki 900 8.80
........... i pi ..
AUGLÝSIÐ í DE61
Óvenjulega mikil
gróska til fjalla
Torfufelli í Eyjafirði 21. ágúst.
Heyskapurinn hefur gengið
hægt síðustu dagana. Ein-
hverjir en fáir bændur hér um
slóðir hafa lokið heyskap en
margir eru langt komnir. Hey-
fengur er e.t.v. ekki mikið
minni en í fyrra og heyin munu
víðast vel verkuð, enda flestir
með súgþurrkun og þau ekki
hrakist verulega. En í gær
rigndi mjög mikið og einnig i
dag. Enn er að spretta, einkum
eftir að fór að rigna verulega.
Fé hefur ekki leitað heim og má
það undarlegt heita í þessum kulda
og bleytum. Skýringin er kannski
sú, að það er óvenjulega mikil
gróska til fjalla og gróðurinn, sem
þar sprettur enn, mun vera fram-
úrskarandi góður. Ef verulega góð
veðrátta verður í september, ætti
féð að ná sér verulega á strik.
Ekki er mikið um stórfram-
kvæmdir í minni sveit, en þó eru
fjögur íbúðarhús í smíðum, enn-
fremur fjós á einum bæ og hlaða á
öðrum, auk minniháttar bygginga.
Vegir eru heldur vondir í sumar
og sérstaklega eru það vond hvörf,
sem Vegagerðin virðist ekki hafa
fundið. Dálítið var gert við veginn
fram úr Eyjafjarðardal svo nú er
ágætlega greiðfært fyrir jeppa alla
leið fram í Laugarfell. Um síðustu
helgi var veruleg umferð þangað.
Þegar komið er í Laugarfell
liggja vegir til allra átta. Þaðan er
vegur til Skagafjarðar, Bárðardals
og Sprengisands.
Við höfum nokkrar áhyggjur af
því, hve hestar, sem hestamenn eru
á ferðinni með, ganga nærri gróðr-
inum við Laugarfell, sem ekki er
mikill og mjög viðkvæmur. Reynt
hefur verið að vernda hann. Senni-
lega þarf að girða þar nærri gott
hólf, sá í það grasfræi og rækta það
upp, sem mun vera auðvelt á
söndunum.
Veiði hefur glæðst í Eyjafjarðará
og hefur bæði veiðst lax og silung-
ur. Mann hitti ég við ána í dag og
hafði hann fengið góða veiði, enda
veiðikló. Undanfarin ár hefur
laxaseiðum verið sleppt í ána. Við
höfum haft seiði í eldistjörnum við
ána og virðist ýmislegt benda til
þess að það gefi verulegan árangur.
Sérfróðir menn hafa rannsakað ána
nokkuð. Við erum óhressir yfir því
hve mikið er af netaförum bæði á
laxi og silungi, sem veiðist í ánni.
Vonandi stendur það til bóta með
hinni nýju reglugerð um sjóveið-
ina. S.J.
Auði
Þjónusta
F'Eigendur Audi og V.W. bifreiðal
Okkur er ánægja að tilkynna að frá og með 1. júní s.l. er Bifreiðaverkstæðið
Viðgerðir
sími22701
Varahlutir
s1mi 22875
Þórshamar hf.
umboðsaðili okkar fyrir Audi og V.W. bifreiðar á svæðinu Akureyri og Eyjafjörður.
ÞÓRSHAMAR HF. annast sölu á nýjum Audi og V.W. bifreiðum, varahlutaþjónustu
og alhliöa viðgerðarþjónustu, svo sem réttingar, málun, vélaviðgerðir, mótorstill-
ingar og rafvélaviðgerðir.
Einnig rekur fyrirtækið fullkomna smurstöð.
Við viljum benda viðskiþtavinum okkar, sem á þurfa að halda og staddir eru á
áðurnefndu svæði að snúa sér til ÞÓRSHAMARS HF. Akureyri.
HEKLA
HF.
LAUGAVEGI 170-172
Óskum eftir að ráð starfsfólk til
verksmiðjustarfa
Upplýsingar hjá verksmiðjustjóra.
Efnaverksmiðjan Sjöfn
Sendill óskast
barf að hafa bifhjólapróf.
Þórshamar hf.
Veitingasalan Varðborg óskar að ráða
starfsstúlku
Upplýsingar á staðnum, ekki í síma.
Getum bætt við okkur
verkamönnum
nú þegar.
NORÐURVERK H.F.
Furuvöllum 13, sími 21777
Til sölu
í Hafnarstræti 22, Akureyri (Tunnuverksmiðjan)eru
til sölu fimm iðnaðarhúsnæði, sem geta selst öll
saman eða hvert um sig.
Vélsmiðjan Atli h.f.
sími23000
Frá Tækniskóla
íslands, Akureyri
Frumgreinadeildir Tækniskólans hefjast miðviku-
daginn 5. sept. kl. 9.00, en ekki 19.00 eins og mis-
ritaðist í síðasta tölublaði Dags.
SKÓLASTJÓRI.
Dagur kemur út tvisvar í
viku, á þriðjudögum og
fimmtudögum. Dagur er
útbreiddasta fréttablaðið á
Norðurlandi, og eru þá öll
dagblöðin meðtalin.
Fylgist með atburðum á
Norðurlandi - lesið út-
breiddasta fréttablað
Norðurlands!
DAGUR.7