Dagur - 30.08.1979, Síða 8
DAGUR
Akureyri, fimmtudagur 30. ágúst 1979
RAFGEYMAR
í BÍLINN, BÁTINN, VINNUVÉUNA
VEUIÐ RÉTT
MERKI
Hitaveita á Egils-
stöðum í haust
Á Egilsstöðum er unnið við að-
alæð og dreifikerfi nýrrar hita-
veitu fyrír kauptúnið, en þar býr
rúmlega þúsund manns og fer
fjölgandi með ári hverju. Stefnt
er að því að tengja hitaveituna
fyrir veturinn.
Borað var í fyrra eftir heitu vatni
Unnið við hitaveituna á Egilsstöðum. áþ tók þessa mynd fyrr í sumar
og fengust þá 15-16 sekundulítrar
af 66 gráðu heitu vatni. Þetta vatn
er talið nægja fyrir 120 íbúðir.
Áætlað er, að það verði leitt í 90
íbúðir í Egilsstaðakauptúni og 30
handan Lagarfljóts í Hellnahreppi.
Nú hefst skólastarf í nýja
menntaskólanum á Egilsstöðum nú
í haust. Skólastjóri er Vilhjálmur
Einarsson. Vonast er til, að unnt
verði að fá húsnæði til viðbótar í
nýbyggingu í Valaskjálf fyrir all-
marga heimavistamemendur.
Komnir voru 90 nemendur síðast
þegar ég vissi, sagði Björn Ágústs-
son fulltrúi blaðinu í gær.
Ferðamannastraumurinn hefur
verið allmikill í sumar og meira ber
á útlendum ferðamannahópum en
áður. Má e.t.v. setja það í samband
við ferðir Smyrils. Atvinna hefur
verið meiri en nóg. Byggingaiðn-
aðurinn bindur verulega mikinn
starfskraft. Það er alltaf byggt og þó
(Framhald á bls. 2).
Svæðisíþróttahúsið:
2. áfanga er lokið
Verktakinn Híbýli, sem hefur
haft með höndum byggingu
svæðisíþróttahússins frá upphafi
árið 1976, er nú að Ijúka öðrum
áfanga byggingarinnar. Búið er
Slátrun
hefst
12. sept.
SAUÐFJÁRSLÁTRUN hefst hjá
Kaupfélagi Eyfirðinga 12. septem-
ber. Lógað verður, samkvæmt
áætlun, 63.500 kindum samtals í
sláturhúsum félagsins. Sláturfjár-
aukningin er 3,6% frá síðasta ári.
Verið er að ráða fólk til slátur-
hússstarfa. Erfiðlegar gengur að
ráða sveitafólk nú en oftast áður
vegna þess hve heyskapur og önnur
störf í sveit hafa tafist að þessu
sinni, sagði Þórarinn Halldórsson,
sláturhússstjóri.
að steypa upp hliðarbyggingar
við húsið,, að norðan, austan og
sunnan. Framkvæmdir eru nú að
hefjast við þriðja áfanga bygg-
ingarinnar, sem eru hliðarbygg-
ingar að vestanverðu, ásamt
stofnum hússins. Þessu verki á
verktakinn að skila af sér i júli
næsta sumar, og síðsumars er
fyrirhugað að þakið á húsinu
verði reist, og að húsið verði
fokhelt haustið 1980.
Kostnaður við þriðja áfanga
byggingarinnar er áætlaður um 120
m. kr. „Það er fyrirhugað að UMSÍ
haldi hér landsmót sumarið 1981,
og Ungmennasambandið hefur
lagt áherslu á að það væri þeim
ákaflega mikils virði að húsið væri
komið það langt að þau geti fengið
af því afnot, þó allir geri sér það
ljóst að það verður engan veginn
búið. Þó er ekki útilokað að þá
verði hægt að taka, einhverja hluta
af húsinu í notkun“, sagði Helgi
Bergs bæjarstjóri, í viðtali við Dag.
Nú er verið að kanna hvernig
standa eigi að framkvæmd sund-
laugar í Glerárhverfi, sem er á
fjárhagsætlun í ár. Að sögn bæjar-
stjóra koma þar ymsir möguleikar
til greina, og er húsameistari að at-
huga það nýjasta í plast- og ein-
ingalaugum.
—
£ Stal blóma-
keri
Bjöm Þórðarson, skrifstofu-
maður hjá KEA, Oddagötu 5 á
Akureyri, sagði svo frá í gær:
Á laugardagsmorguninn,
klukkan 6,30 kom maður einn
heim að húsi okkar hjóna, fók
blómaker á fæti með út-
sprungnum eilífðarblómum
og fór burt með það. Til hans
sást þegar hann rogaðist
með blómakerið niður götu.
Nú vil ég fara þess á leit, ef
maður þessi vildi gera sér
það ómak, að hann láti kerið
á sama stað við fyrstu hent-
ugleika.
# Hvenær á
verkafólk
að komast í
bankann?
Degi hefur borist bréf frá Jó-
hannl Árna Jóhannssyni,
verkamanni, þar sem hann
spyr um hvort það sé rétt að
það eigi að loka Landsbank-
anum hér á Akureyri kl. fjögur
á daginn, og hvenær verka-
fólk eigl að geta komist til að
sinna sínum viðskiptum við
bankann, er það vinnur til kl.
fimm, og oft lengur. Dagur
náðl tali af Magnúsi Björns-
syni fulltrúa bankastjóra
Landsbankans, og sagði
hann að þau fyrirmælf hefðu
komið frá stjórnendum bank-
anna, eftir tillögum svokalf-
aÖrar sparnaðarnefndar
bankanna, að frá og með 1.
sept. skulu innlánsstofnanir
vera opnar frá 9.15-16 mánu-
daga til föstudaga, auk þess
sem þær verða opnar frá
17-18 á flmmtudögum.
Magnús sagði að eftir því
sem hann vissi til, þá væru
bankastofnanir erlendis ekki
eins mikið opnar elns og ver-
ið hefur hér á landi.
0 Rallhneigðin
á háu stigi
Nú tíðkast röllin stór og smá,
ekki er nema gott um þau að
segja, et menn vilja þolprófa
sjálfa sig og bíla sína á
heimsins hentugustu rall-
vegum og englnn þarf að sjá
eftir vegunum undir bílarall.
Rallhneigð þjóðarinnar er
komin á það stig, að bflaröll
og önnur röll eru eðlileg.
# Iþróttamenn
„duttu íþað“
í fréttum frá norskum frænd-
um okkar segir frá því, að þrír
norskir frjálsíþróttagarpar
hafi verið kærðir fyrir
áfengísneyslu á hefmleið úr
landskeppnisferð í Hollandf
og var það fararstjórinn sem
kærði og getur það haft
keppnisbann í för með sér.
Hefur málið vakið mikla ath-
ygli í Noregi. Gæti þetta með
góðum vilja orðið fslensku
iþrótta fólki gagnlegt íhug-
unarefni, svo ekki sé of djúpt
í árinní tekið.
Fjárskortur
hjá húsnæðis-
málastjórn?
„ÉG VIL ekki staðfesta neitt
um fjárskort, en við megum
ekki fara yfir ákveðna f járhæð,
samkvæmt lánsfjáráætlun og
við erum farnir að nálgast
ískyggilega það mark. Fjár-
skortur getur orðið ef margir
gera fokhelt o.s.frv., sagði
Hilmar Þórisson deildarstjóri
lánadeildar Húsnæðismála-
stofnunar ríkisins en Dagur
hafði fregnað að Húsnæðis-
málastjórn væri fjárvana þessa
dagana og að það hefði dregist
að menn fengju afgreidd lán og
lánsloforð.
„Við erum á mjög svipuðum
tíma og við vorum í fyrra með
állar okkar lánveitingar. Við er-
um búnir að taka ákvörðun um
lán til allra, sem hafa gert fokhelt
fyrir 1. júlí. I fyrra og hitteðfyrra
fórum við til 1. október, þannig
að nú eigum við eftir 3 mánuði,
Undanfarin ár hafa þeir sem hafa
gert fokhelt í ágúst og september
fengið sín lán í nóvember eða
desember og ákvörðun um það
hefur ekki verið tekin fyrr en í
október, þannig að það verður
ekki hægt að segja neitt ákveðið
um lánveitingar til þeirra sem
gera fokhelt eftir 1. júli fyrr en í
haust, sagði Hilmar að lokum.
Sóknarprestarnir áttu merkisafmæli
HINIR vinsælu sóknarprestar á
Akureyri áttu nýlega afmæli og
sýndi Akureyrarsöfnuður þeim
vinsemd af því tilefni. Séra Pétur
Sigurgeirsson, vígslubiskup varð
sextugur 2. júní. Hann var þá
staddur í Israel. Heim kominn
færði sóknarnefndin honum við
guðsþjónustulok Guðbrandar-
biblíu að gjöf.
Séra Birgir Snæbjörnsson varð
fimmtugur 20. ágúst og tilkynnti
söfnuðurinn honum þann dag af-
mælisgjöf, sem er bókarflokkur um
kirkju- og guðfræðilegt efni.
Dagur árnar prestunum allra
heilla og þakkar góða samvinnu á
liðnum árum.
Búfjárskerðing í
Þingeyjarsýslu
Sr. Pétur Sigurgeirsson.
Sr. Birgir Snæbjömsson.
Rangá í Kinn, 29. sept. NÚ er fréttalítið
nema hvað veðráttu snertir. Hin
versta ótíð hefur verið hér, sem
annars staðar og gengur hey-
skapur illa. Allir bændur munu
vera búnir að ná einhverjum
heyjum, en mjög mismunandi
miklum. Þeir sem byrjuðu öðr-
um fyrr að heyja, fengu Htil hey,
en þeir sem síðar byrjuðu hafa
lent í óþurrkum, sem ekki sér
fyrír endann á.
Þurrkar eru engir, aðeins einn og
einn glórudagur. Allt snýst um það
nú, að ná einhverju af heyjum til að
geta haldið bústofni og framleiðslu.
Ekki hefur það þótt heppilegt að
halda uppi framleiðslunni á bú-
vörum, en offramleiðslusöngurinn
er þagnaður að mestu, enda virðast
önnur vandamál erfiðari úrlausnar
um þessar mundir. Hér í sýslu
hlýtur að verða bústofnsskerðing í
haust, svo mikið vantar upp á hey-
fenginn hjá bændum.
Við erum þegar búnir að kaupa
fimm bílfarma af heyi úr
Eyjafirði, og flytja hingað í hrepp-
inn. Óhætt er að segja, að nú vilji
margir kaupa hey, og sjálfsagt
verður heyverð í einhverju sam-
ræmi við framboð og eftirspurn,
þar sem ekkert fast verð er á þessari
vöru.
Aldrei þessu vant hefur Skjálf-
andafljót verið hreint og tært í
sumar, ens og bergvatnsá. Veiði
hefur verið heldur góð, bæði lax og
silungur, þótt ég hafi ekki tölur
handbærar.
B.B.