Dagur - 10.06.1980, Side 4
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur: Tryggvabraut 12, Akureyri
Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207
Sími auglýsinga og afgreiðslu: 24167
Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON
Blaðamaður: ÁSKELL ÞÖRISSON
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf.
Uggvænleg
þróun
Þrátt fyrir fyrirheit og góðan vilja
stjórnvalda um að gera ráðstafanir til
að minnka verðbólguhraðann, bólar
ekki enn á neinum aðgerðum sem
gefa vonir um árangur til að ná því
marki. Að vísu má segja að starfstími
ríkisstjórnarinnar sé það skammur,
aðeins 4 mánuðir, að lítil reynsla sé
fengin um úrræði og getu hennar í
þessu efni. Menn verða einnig að
gera sé Ijóst að ríkisstjórnin hefur
margsinnis lýst því yfir að hún muni
reyna að ná samstöðu við hags-
munaaðilana um þær aðgerðir sem
gripið verður til í því skyni að ná settu
marki.
Umræðan sem fram hefur farið að
undanförnu um verðbólguna og þær
neikvæðu verkanir sem hún veldur í
þjóðfélaginu, gáfu stjórnmálamönn-
um von um að verðbólguhugsunar-
hátturinn væri að breytast — skiln-
ingur almennings á vandanum væri
vaxandi og meiri líkur fyrir því en áður
að hægt væri að ná fram samstöðu
um úrræði, sem að gagni mundu
koma. Því er ekki að neita að aðstað-
an til að ná slíkri samstöðu er erfið,
því almennir launasamningar eru nú
til umfjöllunar og veruleg togstreyta
virðist vera innbyrðist í hinum ýmsu
launþegahópum og samböndum.
Slíkt verður til að torvelda allt sam-
komulag við þessa aðila.
Kjarasamningarnir sem Álfélagið í
Straumsvík gerði fyrir skömmu við
starfsfólk sitt er sérstakur kapituli og
gerir stöðuna ekki auðveldari. Enda
eru uppi grunsemdir um að til þess
hafi leikurinn verið gerður.
Á þessum góðu vordögum virðast
vera margar blikur á lofti í þjóðfélag-
inu og mörg ill tíðindi sem hafa þegar
gerst eða eru í sjónmáli. Verstu tíð-
indin eru þau að söiutregða er á
sjávarafurðum okkar, sérstaklega í
Bandaríkjunum, og margt bendir til
þess að verulegar líkur séu á verðfalli
á þessum vörum þar í landi. Af þessu
leiðir að öll frystihúsin eru að verða
yfirfull af fiski og við blasir fram-
leiðslustöðvun af þessum ástæðum,
ef ekki verður skyndileg breyting. Á
sama tíma og þetta gerist stórhækkar
allur tilkostnaður í landinu — laun
hækka um 11,7% — fiskverð og bú-
vara um hið sama og svo er verið að
knýja fram aimenna grunnkaups-
hækkun í ofanálag að ógleymdri
vaxtahækkuninni, sem varð um síð-
ustu mánaðamót.
Fyrir liggur að frystihúsin voru rekin
með tapi áður en síðustu hækkanirn-
ar komu til. Einnig var rekstrargrund-
völlur útflutningsiðnaðarins brostinn
strax á fyrsta mánuði ársins. Hvort
sem um er að ræða einstaklinga eða
heil þjóðfélög — þá verða allir að
haga lífi sínu eftir aðstæðum ef ekki á
illa að fara. Ekki aukum við hagsæld-
ina í landinu með því að stöðva fram-
leiðsluna — er ekki kominn tími til að
endurmeta stöðuna og gera ráðstaf-
anir samkvæmt því?
Símvirkjar að störfum í sjálfvirku stöðinni. Mynd: á.þ.
Stöðvar, sem búa við númera-
skort eru: Laugabakki, Skaga-
strönd, Hofsós, Varmahlíð, Gríms-
ey, Breiðamýri og Reykjahlíð.
Segja má að eftir framangreind-
ar stækkanir sé ástandið sæmilegt á
stærri stöðum eftir árið, en lakara á
minni stöðum því vitanlega er eng-
inn ánægður að þurfa að bíða lengi
eftir síma.
Aðrar framkvæmdir í sjálfvirk-
um stöðvum er uppsetning á
búnaði fyrir utanlandsval, sem
unnið er að samhliða stækkunum.
— Hver er heildarkostnaður við
að koma upp síma i þéttbýli annars-
vegar og í sveit eins og t.d. Svarfað-
ardal hinsvegar?
Þessu er dálítið erfitt að svara, en
samkvæmt upplýsingum, sem ég
hefi fengið frá Tæknideild stofn-
unarinnar, sem hannar og sér um
nýframkvasmdir, mun áætlaður
kostnaður við síma í sveit vera um 2
til 2,5 milljónir króna, en í þéttbýli í
bæjum um 1 milljón króna.
Þetta er talsvert breytilegt eftir
í sveit er 2 til 2,5 milljónir króna
en í þéttbýli er kostnaðurinn áætlaður 1 milljón
| „Helstu
| símafram-
| kvæmdir á
| Norður-
1 landi í sum-
1
I aroga .
| þessu ári Áætlaður kostnaður við síma
| verða srma-
I lagnir í
^ sveitum fyr-
^ ir sjálfvirkan
1 síma og
| stækkanir á
| sjálfvirkum
| símstöðv-
| um,“ sagði
^Ársæll
| Magnússon,
| umdæmis-
| stjóri Pósts
|og síma á
| Norður-
| landi þeg ar
^ blaðamaður
i spurði hann
| hvaða fram-
| kvæmdir
Iværu helstar
|á Norður-
| landi í sum-
lar.
I
Ýmsu frestað vegna fjár-
skorts
Það er kunnara en frá þurfi að
segja að forráðamenn Pósts og síma
hafa lýst því yfir að stofnunina
vanti töluvert fé svo hægt sé að
ráðast í þær framkvæmdir sem fyr-
irhugaðar voru í sumar. I upphafi
var Ársæll spurður um hvaða áhrif
fjárhagsörðugleikar Pósts og síma
hefðu á framkvæmdir hér á Norð-
urlandi. Ársæll sagði að Póst og
símamálastofnunin fjármagnaði
sig sjálf af eigin tekjum, byggða á
gjaldskrám. Því verður, að lokinni
fjárlagaákvöðrun Alþingis, að að-
laga gjaldskrár fyrir áætluðum út-
gjöldum. Að lokinni samþykkt síð-
ustu fjárlaga og ákvörðun stjórn-
valda á gjaldskrárhækkun Pósts og
síma, lá það strax ljóst fyrir að
endar næðu ekki saman.
Við endurskoðun á rekstrar- og
fjárfestingaráformum stofnunar-
innar, var samgönguráðuneytinu
og fjárveitinganefnd bent á, að
fresta yrði kostnaðarútgjöldum
fyrir nálægt 1 milljarð króna og
sendar ábendingar þar um.
í þessu umdæmi kemur þetta
niður á húsa-, loftlínu- og jarð-
símarekstri, þar sem beinlínis er
stefnt að takmörkun sem fresta
megi til næsta árs.
í fjárfestingum var lagt til, að
fresta húsbyggingu í Varmahlíð í
Skagafirði og línuframkvæmdum í
sveitum þarsem gera ætti sjálfvirkt,
svo sem í Út-Kinn í Ljósavatns-
hreppi og Blöndudal í A.-
Hún.
Ennfremur var frestað verkefn-
um í sjálfvirkum stöðvum, stækkun
sjálfvirku langlínumiðstöðvar á
Akureyri og í landlínuverkefnum
var frestað tvöföldun á örbylgjuleið
til Reykjavíkur, sem áætlaðar eru
til rekstraröryggis langlínusam-
banda á Norðausturlandi og meg-
inhluta Austfjarða sem fara hér
um.
144 símar tengdir við
sjálfvirka kerfið
— Dagur hefur mikið fjallað um
símamál í sveitum hér fyrir norðan
og eflaust leikur mörgum hugur á að
vita hvaða sveitarfélög geta vœnst
úrbóta í sumar. Einnig vœri fróðlegt
að vita hve margir „sveitasímar“
verða í notkun þegarframkvœmdum
lýkur í haust.
„í dag er ástandið þannig í sveit-
um á Norðurlandi að af um 1800
símum eru um 700 með sjálfvirkan
síma og um 540 með sólarhrings-
þjónustu, en hinir með skertan
þjónustutíma frá 4 klst. til 12 klst. á
virkum dögum. Á þessu sumri og í
byrjun næsta árs er gert ráð fyrir, að
tengja 144 síma við sjálfvirkt síma-
kerfi og er undirbúningur hafinn
að fullu með lagningu jarðsíma í
þeim sveitum, sem eiga að fá sjálf-
virkan síma.
í Aðaldælahreppi eru 12 símar,
sem tengjast við sjálfvirka símstöð
að Staðarhóli, í Hrafnagils- og
Öngulsstaðahreppi um 70 símar,
sem tengjast í byrjun næsta árs við
sjálfvirka símstöð, sem sett verður
upp í Hrafnagilsskóla, í Svarfaðar-
dal 54 símar, sem tengdir verða við
Dalvík og í Svínavatnshreppi 8
símar, sem tengdir verða við sjálf-
virku símstöðina í Bólstaðarhlíð.
Að þessum framkvæmdum
verður unnið ef engar frekari tak-
markanir verða gerðar.
Ríkið hirðir sitt
— Hvaða sjálfvirkar siöðvar
verða stœkkaðar á þessu ári og
hvernig er ástandið i símamálum i
þéttbýlisstöðum á Norðurlandi?
Stækkanir á sjálfvirkum sím-
stöðvum hófust strax eftir áramót
oger lokið við stækkun á Blönduósi
og hafin stækkum á Hvammstanga,
síðan kemur Dalvík, Sauðárkrókur,
Bólstaðarhlíð, Grenivík, Siglu-
fjörður og Kópasker.
aðstæðum, en vekja má athygli á
því, að um 40-45% af þessuni
kostnaðartölum greiða símnotend-
ur til ríkisins í formi tolla, vöru-
gjalds og söluskatts af efni sem til
þarf.
Óréttmæt gagnrýni?
— Oft verður Póstur og sími fyrir
gagnrýni afýmsu tagi — m.a. er sagt
að afnotagjöld, stofnkostnaður og
fleiri af gjöldum fyrirtœkisins séu of
há, en þegar þær tölur eru hafðar í
huga sem þú gafst í sambandi við
kostnað — er það ekki niðurstaðan
að gjaldskrá Pósts og síma sé of lág?
Það er augljóst mál, að ef stofn-
unin á að ljúka innan tilhlýðilegs
tíma, því sem telja verður eitt af
forgangsverkefnum þ.e. að gera allt
landið sjálfvirkt, þá eru afnota-
gjöldin alltof lág. Þessi mál hafa
verið til athugunar hjá stjórnvöld-
um hvað varðar framgang sjálf-
virkni í sveitum nú síðustu eitt til
tvö árin.
Mér kemur í hug til samanburð-
ar rafveitur í sveitum, þar sem
komið hefur fram, að þörf er á
endurbyggingu og styrkingu á
dreifikerfi og í því sambandi komið
til tals, að ríkissjóður þyrfti að
koma sérstaklega til aðstoðar á fé-
lagslegum grundvelli, þá væri ekki
óeðlilegt að álykta, að gera þyrfti
átak í símaþjónustu í sveitum ef
skoðaður er þjónustutími frá 4 klst.
í 12 klst. á dag og margir notendur á
sömu línu. í þessu sambandi verður
manni starsýnt á þann skatt, sem
. símnotendur greiða til ríkisins við
nýlagnir, til að leysa þessi mál.
f sambandi við gjaldskrá má
skrifa langt mál, en ég vil sérstak-
lega benda á þær breytingar, sem
gerðar voru á síðasta ári á sjálf-
virkum langlínutöxtum til veru-
legrar lækkunar fyrir símnotendur,
þar sem á lengstu leiðum lengdist
tíminn um 33% og innan sömu
hnútstöðva var settur sami taxti
milli stöðva.
Yfirvofandi skortur á sím-
um á Akureyri
Til viðbótar framangreindu vil
ég sérstaklega geta þess, að hér á
Akureyri verður nú í sumar lagður
1000 Íína jarðsími frá símstöð í
Glerárhverfi og er ráðgert að hluti
leiðarinnar verði í samvinnu við
hitaveitulögn í Glerárgötu. Þess má
geta um leið, að aðeins eru um 190
nr. laus í Akureyrarsímstöð og
stækkun áætluð eftir um 12-14
mánuði, þannig að gera má ráð fyrir
6-8 mánaða tímabili, sem engin
númer verða laus.
íbúar á Svalbarðseyri hafa beðið
eftir sjálfvirkum síma í um 2 ár og
stóðu vonir til, að lausn fengist á
þeirra máli um sl. áramót, en vegna
óviðráðaniegra ástæðna hefur
dregist, að efni kæmi frá framleið-
anda, en síðustu fregnir eru, að það
hafi verið afgreitt í flugfrakt og
verður strax hafist handa er efnið
kemur.
Tónlistarskólanum
Slltlð i_
Alls stunduðu 465 nemendur
nám við skólann sl. vetur
Ársæll Magnússon, umdæmisstjóri.
Tónlistarskólanum á Akureyri var
slitið í 35. sinn í Akureyrarkirkju,
föstudaginn 23. maí s.l.
Við það tækifæri lék hljómsveit
skólans undir stjórn Oliver J.
Kentish, — 1. þáttinn úr flautu-
konsert í D-dúr eftir Mozart, — ,
einleikari var Jonathan Bager
flautukennari. Einnig fluttu Gréta
Baldursdóttir og Guðrún Þórarins-
dóttir dúetta fyrir fiðlu og lágfiðlu,
sem Oliver J. Kentish sellókennari
samdi og tileinkaði flytjendum,
sem luku 8. stigsprófi á sín hljóð-
færi á þessu vori, með ágætiseink-
unn. f ræðu sinni minntist skóla-
stjóri, Jón Hlöðver Áskelsson, á
þann merka áfanga í starfi skólans,
þegar hin nýja viðbygging, sem er
280 m2, var tekin í notkun þann 9.
mars s.l. Um 1500 bæjarbúar
heimsóttu skólann á þessum opn-
unardegi og tóku þátt í fjölbreyttri
dagskrá. Taldi skólastjóri að þessi
dagur hefði tengt skólastarfið betur
bæjarlífinu, en nokkur annar dag-
ur, og hið mikla sjálfboðastarf
nemenda og starfsfólks hafi sýnt
hve mikils virði þessi þáttaskil voru
öllum hlutaðeigandi aöilum.
Skólastjóri minntist með þakklæti
starfa Jóhanns G. Guðmundssonar
í stjórn skólans, en hann andaðist
fyrir aldur fram í mars s.l.
Alls stunduðu 465 nemendur
nám við skólann á vetrinum, — í
forskóla voru 98, 116 á píanó,: 4 á
pedalorgel, 38 á harmonium, 50 á
fiðlu og lágfiðlu, 7 á selló, 23 á
þverflautu, 16 á klarinett, 23 á
málmblásturshljóðfæri, 18 á
blokkflautu, 16 í söng, 24 á har-
moniku, 32 á gítar.
Örn Arason gítarkennari og
Leifur Þórarinsson tónfræðikenn-
ari flytja nú af staðnum eftir 2ja ára
starf við skólann. Enn er óráðið í
stöður þeirra, auk þess sem staða
píanókennara og kennara á málm-
blásturshljóðfæri er laus til um-
sóknar. Philip Jenkins píanóleikari,
sem var í vetrarleyfi frá störfum við
Royal Academy of Music, kenndi
við skólann í vetur, auk þess sem
hann lék á mörgum tónleikum á
Akureyri, og var mikil lyftistöng í
tónlistarlífi bæjarins. Skólinn
gekkst fyrir píanónámskeiði í maí
með píanóleikaranum Martin
Berkofsky. Mikil ánægja ríkti
meðai þátttakenda með heimsókn
þessa snjalla píanóleikara í skól-
ann. Alls voru haldnir 28 tónleikar
á vegum skólans, en þar af voru 20
tónleikar er fram fóru á laugar-
dögum, og kennarar skiptust á um
að skipuleggja. Blásarasveit skól-
ans tók þátt í móti skólalúðrasveita
í Njarðvík þann 17. maí. Mct þetta
tókst í alla staði vel og var for-
svarsmönnum tónlistarmála í
Njarðvík til mikils sóma. Blásara-
sveitin naut einnig einstakrar gest-
risni og móttöku Skólahljómsveitar
Mosfellssveitar í þessari ferð.
Verðlaun fyrir námsárangur og
áhuga hlutu: Halldór Halldórsson
trompetnemandi, Árni Hilmarsson
orgelnemandi, bræðurnir Sveinn
og Hjálmar Sigurbjörnssynir
trompetnemendur — en þeir eru
nú á förum til Reykjavíkur í fram-
haldsnám —, Gréta Baldursdóttir,
er lauk 8. stigsprófi í fiðluleik með
ágætiseinkunn og Guðrún Þórar-
insdóttir er lauk 8. stigi á lágfiðlu
með ágætiseinkunn. Við skólaslit
fór fram fjórða úthlutun náms-
styrkja úr minningarsjóði Þorgerð-
ar S. Eiríksdóttur, en áður höfðu 5
nemendur frá skólanum hlotið
styrki til framhaldsnáms í tónlist.
Að þessu sinni hlutu Gréta Bald-
ursdóttir fiðlunemandi, Guðrún
Þórarinsdóttir lágfiðlunemandi og
Sólveig A. Jónsdóttir Píanónem-
andi, — en hún lauk 8. stigsprófi á
píanó frá skólanum vorið 1979 —,
styrki að upphæð kr. 200.000,-
hver.
Athugasemd
Vegna greinarstúfs í Helgardegi, föstudaginn
30. maí, óskar undirritaður, höfundur bókar-
innar/f kureyri og norðriö fagra, að taka fram
að heimildir sínar um þátt frú Margrétar
Schiöth í tiiurð Lystigarðsins á Akureyri sótti
hann í Afmælisrit, gefið út að tilhlutan
hátíðarnefndar Akureyrarkaupstaðar á 100
ára afmæli bæjarins 1962.
Kristján frá Djúpalœk.
ÞÓR:
Afmælissigur
Á föstudagskvöldið lék Þór
sinn fyrsta leik í íslandsmót-
inu í knattspyrnu og að þessu
sinni var andstæðingurinn
Ármann úr Reykjavík. Sér-
stök hátíðarstemning var á
vellinum í tilefni af 65 ára
afmæli Þórs, og lék Lúðra-
sveit Akureyrar fyrir leikinn.
Fyrirliði Ármanns afhenti
Áma Stefánssyni, fyrirliða
Þórs, blómvönd í tilefni
dagsins og sama gerði Elmar
Geirsson fyrirliði KA liðsins.
Þór vann auðveldan sigur á
andstæðingum sínum í þess-
um leik, en þeir skoruðu þrjú
mörk gegn engu.
Þór hóf leikinn af miklum
krafti og fékk fljótlega góð
marktækifæri. Sérstaklega var
það Óskar Gunnarsson sem var
Ármanni skeinuhættur. Hann
lék mjög vel og yfirvegað, og
sendingar hans á samherja sína
voru nákvæmar og góðar. Á 9.
mín. brýst hann upp hægri
kantinn og skýtur á markið úr
mjög þröngri aðstöðu, en bolt-
inn fór í stöngina og út. Tveim
mín. síðar brennir Guðmundur
Skarphéðinsson af eftir glanna-
legt úthlaup hjá markmanni
Ármanns. Fyrsta mark leiksins
kom síðan á 13. mín. Þá spiluðu
Þórsarar vöm Ármanna sundur
og saman og fyrir rest rennir
Guðmundur Skarphéðinsson
boltanum á Óskar Gunnarsson
sem var í dauðafæri og hann
skorar örugglega. Skömmu síð-
ar bjargar varnarmaður hjá Ár-
manni á línu eftir skot frá Ósk-
ari. Annað markið kom á 24.
mín., en þá átti Óskar góðan
bolta fyrir markið og þar kom
Rúnar Steingrímsson og skall-
aði glæsilega í markið.
Á 43. mín. á Þor hörkusókn
sem endar með skoti frá Nóa, en
yfir. Þannig var staðan í hálfleik
tvö mörk gegn engu. Guð-
mundur Skarðhéðinsson bætti
þriðja marki Þórs við á fjórðu
mín. síðari hálfleiks. Eftir þetta
drógu Þórsarar sig aðeins til
baka, en vörn þeirra var góð og
náði Ármann sjaldan að nálgast
markið.
í þessum leik átti Óskar
Gunnarsson stórleik, eins og
áður segir en í heild var Þórs-
liðið gott, og eflaust eitt það
sterkasta í deildinni. Lið Ár-
manns var slakt og enginn þar
áberandi bestur. Leikinn
dæmdi Steindór Gunnarsson,
og línuverðir voru Þóroddur
Hjaltalín og Geir Guðsteinssor,
og gerðu þeir leiknum góð skil.
Elmar Geirsson fyrirliöi knattspymuráðs K.A. afhendir Árna Stefánssyni
fyrírliða Þórs blómvönd I tilcfni afmælis Þórs. Fyrirliði Ármanns er fyrir miðri
myndinni, en Árni fékk cinnig blóm frá honum.
BÆJAKEPPNI
ILYFTINGUM
Á laugardaginn fór fram árleg bæjarkeppni í lyftingum milli
Akureyrar og Vestmannaeyja, og að þessu sinni var keppt í
Eyjum. Fimm keppendur voru. í hverju liði og var keppt í
kraftlyftingum. Vestmannaeyingar sigruðu og unnu í annað
sinn bikar sem gefin er af Híbýli h.f.
Eitt Akureyrarmet sá dagsins 720 kg, Halldór Jóhannesson
ljós og var það hjá Kára Elíssyni
í hnébeygju, 195 kg.
Samanlagður árangur akur-
eyrsku keppendanna var sá að
Víkingur Traustason
„Heimskautabangsinn" lyfti
675 kg, en sá árangur hefði nægt
honum til að vinna íslands-
meistaratitil fyrir skömmu.
Flosi Jónsson lyfti 475 kg, Kári
Elísson 530 kg og Jóhann Jó-
hannesson 390 kg.
Vormót fatlaðra
Vormót Iþróttafélags fatlaðra
fór framm um Hvítasunnuhelg-
ina. Keppt var i 3 greinum
Borðtennis, bogfimi og boecia.
Átta manns luku keppni og úr-
slit urðu þessi: Boccia 1. Guð-
Jafntefli hjá K.A.
KA lék við Hauka í annarri
deild í knattspyrnu á laugar-
daginn. Bæði þessi lið féllu úr
fyrstu deildinni í fyrra, en KA
þó með mun fleiri stig.
Leikur þessi fór fram á mal-
arvellinum á Hvaleyrarholti í
góðu veðri. í fyrri hálfleik var
leikurinn í nokkru jafnvægi, en
KA þó skárri aðilinn. Seint í
hálfleiknum braust Elmar upp
kantinn og alveg upp að enda-
mörkum og lagði boltann vel
fyrir Jóhann Jokobsson sem
skaut í stöng, en fékk boltann
aftur og sendi hann í netið.
Þannig var staðan í hálfleik.
Haukarnir voru sprækari í síð-
ari hálfleik, og jöfnuðu fljót-
lega, og það urðu úrslit leiksins,
eitt mark gegn einu.
mundur Gíslason 2. Stefán
Árnason 3. Tryggvi Gunnarsson
4. Ingvar Eiríksson.
Borðtennis: 1. Hafdís Gunn-
arsd. 2. Guðmundur Gíslason 3.
Stefán Árnason 4. Sigurrós
Karlsd. Bogfimi: Stefán Árna-
son 2. Aðalbjörg Sigurðard. 3.
Ingvar Eiríksson. 4. Guðmund-
ur Gíslason. 5. Hafliði Guð-
mundsson.
ÞRIÐJA DEILD
Urslit
Nokkrir leikir fóru fram í þriðju
deild Islandsmótsins í Norður-
landsriðli. Á Grenivíkurvelli
kepptu Árroðinn og Magni og
sigraði Árroðinn með þremur
mörkum gegn tveimur. Hringur
ogJón Lár skoruðu fyrir Magna
en Örn Tryggvason gerði öll
mörk Árroðans.
Reynir frá Árskógsströnd lék
við Eflingu úr Reykjadal og
sigruðu Reynismenn með 6
mörkum gegn 1.
Þá léku einnig Dagsbrún og
Tindastóll frá Sauðárkróki og
sigruðu Sauðkræklingar með
einu marki gegn engu.
Hús-
víkingar
koma
áóvart
Lið Völsunga frá Húsa-
vík hefur svo sannarlega
komið á óvart í annarri
deiidinni í knattspyrnu.
Þeir hafa leikið þrjá
leiki og unnið þá aila, og
hlotið fullt hús stiga.
Þeir eru nú efstir í
deildinni með 6 stig,
einu stigi á undan ís-
firðingum sem eru með 5
stig. Um næstu helgi
leika Völsungar við Þór
fyrir austan.
4.DAGUR
DAGUR.5