Dagur - 01.07.1980, Blaðsíða 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGUR
LXIII. árgangur. Akureyri, þriðjudagur 1. júlí 1980
46. tölublað
Vigdís Finnboga-
dóttir kjörin
forseti fslands
Vigdís Finnbogadóttir, leik-
hússtjóri, hefur verið kjörin
forseti íslands. Hún er fyrsta
konan sem er kjörin forseti í
lýðræðislegum kosningum.
Það var ekki fyrr en um
klukkan 6 á mánudagsmorgun
sem úrslit voru Ijós og ekki
lauk talningu fyrr en um
klukkan 8. Vigdís Finnboga-
dóttir er fjórði forseti íslenska
lýðveldisins.
Þegar úrslit voru kunn átti
sjónvarpið viðtal við Vigdísi í be-
inni útsendingu. Þar sagði Vigdís
m.a. að úrslitin í Reykjavík hefðu
komið sér á óvart, en hið sama
væri ekki hægt að segja um nið-
urstöðuna víðsvegar um landið.
Vigdís taldi að sú staðreynd að
hún hefði einungis rúm 30% at-
kvæða, myndi ekki veikja hana í
forsetaembættinu. Nefndi hún að
þau Guðlaugur hefðu höfðað til
mjög svipaðs hóps kjósenda og
myndu þeir sem kusu Guðlaug
eflaust geta sætt sig við hana sem
forseta. Þetta þýddi m.ö.o. að
röskur helmingur kjósenda styddi
hana í embættinu.
Guðlaugur Þorvaldsson sagði
að ljóst hefði verið að baráttan
myndi standa milli hans og
Vigdísar. Guðlaugur óskaði
nýkjörnum forseta til hamingju
og hvatti landsmenn til þess að
styðja hann og styrkja í embætt-
inu. Albert Guðmundsson tók í
sama streng en varðandi eigin út-
komu sagði hann, að í sinn hlut
hefðu fallið færri atkvæði en
hann hafði búist við. Pétur Thor-
steinsson sagði i viðtali að hann
óskaði Vigdísi Finnbogadóttur
allra heilla.
Eins og fyrr sagði voru úrslit
ljós um klukkan 8 á mánudags-
morgun. Atkvæði féllu þannig:
Albert Guðmundsson hlaut
25.567 atkvæði eða 19.8%
greiddra atkvæða. Guðlaugur
Þorvaldsson hlaut 41.624 atkvæði
eða 32.2% greiddra atkvæða. Pét-
ur J. Thorsteinsson hlaut 18.124
atkvæði eða 14.0% greiddra at-
kvæða. Vigdís Finnbogadóttir
hlaut 43.530 atkvæði eða 33.6%.
Auðir seðlar eða ógildir voru 540
eða 0.4%. Á kjörskrá á öllu land-
inu voru 143.078. Atkvæði
greiddu 129.385 eða 90.4 af
hundraði.
Sjá opnu —
Blönduós:
Leggur Ósplast
upp laupana?
„Það er einsýnt að fyrirtækið
verður ekki rekið áfram í nú-
verandi mynd. Það er nauð-
synlegt að gera framleiðsluna
fjölbreyttari,“ sagði Þorsteinn
Húnfjörð, framkvæmdastjóri
Ósplasts h.f. á Blönduósi, en
miklir rekstrarerfiðleikar hafa
hrjáð fyrirtækið allt frá fyrstu
tíð. Nú er verið að gera á því
athugun hvort og hvernig megi
rétta hag fyrirtækisins, en
Þorsteinn sagði að á þessu
stigi málsins væri ekki rétt að
gera grein fyrir þeim athugun-
um.
Ósplast h.f. varstofnað 1971 og
framleiddi ýmsar smávörur úr
plasti. Fljótlega lagði fyrirtækið
upp laupana, en var stofnað á ný
1978. Á sama tíma jókst sam-
keppnin mikið og varð mikið tap
fyrsta árið. Sömu sögu er að segja
um síðasta ár. Nú framleiðir fyr-
irtækið plastfilmur og skolprör.
Ráðamenn vestra hafa haft
miklar áhyggjur af framtíð fyrir-
tækisins og er skemmst að minn-
ast tillögu sem samþykkt var á
aðalfundi Kaupfélags Húnvetn-
inga, en þar var talið að yrði Ós-
plast h.f. gjaldþrota, væri það
mikið áfall fyrir samvinnuhug-
sjónina. Eigendur Ósplasts eru
m.a. einstaklingar, Sambandið,
Blönduóshreppur og Kaupfélag
Húnvetninga.
Þorsteinn sagði að heimamenn
hefðu trú á að fyrirtækið gæti
staðið sig, en hvort tækist að finna
lausn á vandamálum þess, sem
allir gætu sætt sig við, vildi hann
ekki segja neitt um. Ósplast h.f.
veitir 8 manns atvinnu á
Blönduósi.
Engar uppsagnir á
dagskrá hjá (J.A.
Togarar fyrirtækisins verða látnir sigla
Gísli «1. Eyland
stöðvarstjóri
Pósts og síma
Gísli J. Eyland hefur verið skip-
aður stöðvarstjóri Pósts og síma á
Akureyri frá og með deginum í
dag, 1. júlí. Gísli hefur oft verið
settur stöðvarstjóri og nú síðast
frá 22. febrúar. Hann hefur starf-
að hjá Pósti og síma á Akureyri
síðan í október 1942. Hann varð
fulltrúi 1956, fulltrúi póstmeist-
ara 1966 og fulltrúi stöðvarstjóra
Pósts og síma í júlí 1978. Gísli er
54 ára. Þrír aðrir umsækjendur
voru um starfið, Karl Antonsson,
Keflavík, Kristinn S. Kristjáns-
son, Akureyri og Jónatan Klaus-
en, Akureyri.
Svo sem kunnugt er, eru nú
miklir erfiðleikar hjá frystihús-
um víðs vegar um landið, vegna
mikillar birgðasöfnunar og fleiri
atriða. Hafa mörg stór frystihús
ákveðið að segja upp starfsfólki
af þessum sökum, miðað við
mánaöamótin júní-júlí.
Stjórn Útgerðarfélags Akureyr-
inga hefur hins vegar enga ákvörð-
un tekið um að segja upp starfsfólki
af þessum sökum, og geta því
starfsmenn frystihúss Ú.A. séð
fram á áframhaldandi vinnu í júlí-
mánuði, því uppsagnir verða að
miðast við mánaðamót. Hugsan-
legt er þó að reynt verði að draga
eitthvað úr fiskverkun og tog-
aramir verði látnir fara einstakar
söluferðir með afla á erlenda
markaði.
Nokkuð hefur ræst úr erfiðleik-
um frystihúsanna, vegna nýrra
sölusamninga við Sovétmenn. Er
Landsleikir
Islendinga, Fær-
eyinga og Græn-
lendinga
í gærkvöldi fór fram landsleikur á
Akureyri milli Færeyinga og Is-
lendinga. Sagt er frá leiknum á
íþróttasíðu í dag, en þetta var
fyrsti landsleikurinn, sem leikinn
er utan Reykjavíkur. Á miðviku-
það ein af ástæðunum fyrir því að
ekki þarf að stöðva og segja upp
starfsfólki í frystihúsi Ú.A., en auk
þess hefur stjórn fyrirtækisins
ávallt verið því mjög mótfallin, að
grípa til uppsagna. Önnur frystihús
við Eyjafjörð munu líklega ekki
segja upp starfsfólki, nema hvað
reynt verður að láta allt starfsfólk
frystihússins á Ólafsfirði fara í
sumarleyfi á sama tíma.
Rúta valt með
knattspyrnumenn
Það óhapp henti félaga úr
Knattspyrnufélagi Siglu-
fjarðar um helgina, þegar
þeir voru á leið til Grenivík-
ur, að rútan fór út af veginum
skammt frá Dalvík. Rútan
skemmdist töluvert og
nokkrir leikmannanna hlutu
smávægileg meiðsl.
Knattspyrnufélag Siglufjarð-
ar tekur þátt í þriðju deildinni í
knattspyrnu og átti að leika við
Magna á Grenivík. Leikmenn-
imir í K.S. gátu útvegað sér
aðra rútu og rétt náðu að kom-
ast til Grenivíkur, en leiknum
var frestað um klukkustund
vegna atburðarins. Leiknum
lauk með jafntefli 2:2.
dagskvöld kl. 20 verður lands-
leikur milli Færeyinga og Græn-
lendinga á Sauðárkróki, en þetta
er jafnframt fyrsti landsleikur
Grænlendinga. Islendingar og
Grænlendingar leika síðan
landsleik á Húsavík kl. 20 á
föstudagskvöld.
Danskir
fimleikaflokkar
sýna á Akureyri
Tveir danskir fimleikaflokkar frá
Arhus A.M.T. sýna í íþróttahúsi
Glerárskóla í kvöld, þriðjudag,
kl. 21.00.
Þessir fimleikaflokkar sýndu á
íþróttahátíð I.S.Í. um síðustu
helgi við góðar undirtektir.