Dagur - 01.07.1980, Side 4
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur: Tryggvabraut 12, Akureyri
Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207
Sími auglýsinga og afgreiöslu: 24167
Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON
Blaöamaður: ÁSKELL ÞÖRISSON
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf.
Forseta-
kosningar
íslendingar hafa nú valið sér nýjan
forseta og jafnframt komist á
spjöld sögunnar úti í hinum stóra
heimi, þar sem Vigdís Finnboga-
dóttir mun vera fyrsta konan í
heiminum, sem kjörin er forseti í
lýðræðisiegum kosningum. ís-
lendingar eru því í sviðsljósinu
þessa dagana, því þeir hafa svo
um munar látið að sér kveða í
jafnréttismálum kynjanna. Frum-
kvæði Vigdísar á einnig vafalítið
eftir að verða konum hvatning til
að láta að sér kveða á fleiri sviðum
þjóðlífsins. Konur hafa til þessa
ekki skipað mörg af æðstu em-
bættum þjóðarinnar. Fáar hafa
setið á alþingi og æðstu embætti í
öðrum þáttum stjórnsýslunnar
hafa að langstærstum hluta verið
skipuð karlmönnum. Sigur Vig-
dísar Finnbogadóttur er því stór-
sigur í jafnréttisbaráttu kynjanna.
Eins og í síðustu forsetakosn-
ingum kusu menn ekki eftir
flokkspólitískum línum og er það
vel. Það fer hins vegar vart milli
mála, að fólk með mjög íhaldssöm
lífsviðhorf hefur ekki kosið Vig-
dísi, því það er mikil breyting að fá
einhleypa konu í forsetastól, þeg-
ar sú hefð hefur skapast að þar
sitji karlmaður með eiginkonu sér
við hlið. Vafalaust hafa allmargir
kosið Vigdísi einmitt vegna þess
að hún er kona og aðrir verið
henni andsnúnir af sömu ástæðu.
Vigdís fékk einnig óvægnustu
gagnrýnina í upphafi kosninga-
baráttunnar og féll mörgum það
illa í geð. En það sem mestu
skiptir er að sjálfsögu það, að
hæfileikamaður hefur orðið fyrir
valinu, sem allir geta vonandi
sameinast um.
Þáttur síðdegisblaðanna í
Reykjavík í þessari kosninga-
baráttu hefur verið allumdeildur.
Því hefur verið haldið fram, að
skoðanakannanir blaðanna hafi
verkað eins og nokkurskonar for-
kosningar. Margir hafi talið sig
geta lesið það út úr úrslitum
kannananna, að þeir köstuðu at-
kvæðum sínum á glæ, nema þeir
styddu annan tveggja frambjóð-
endanna, sem mest sýndust hafa
fylgið. Reynslan úr þessum kosn-
ingum ætti að verða til þess, að
athugað verði gaumgæfilega
hvort ekki beri að setja reglur um
skoðanakannanir, þar sem svo
virðist, sem þær geti haft afger-
andi áhrif á skoðanamyndun
fólks. Þá er það einnig vert um-
hugsunar, hvort ekki beri að hafa
forkosningar við val forsetaefna.
Þessi mál þarf að athuga gaum-
gæfilega.
Kosninganó
Á AKUREYRI
Það ríkti mikil eftirvænting á
skrifstofum stuðningsmanna
frambjóðendanna sl. sunnudags-
kvöld. Þegar fyrstu tölur voru
lesnar í sjónvarpi voru flestir
samankomnir í Alþýðuhúsinu, en
þar höfðu stuðningsmenn Vigdís-
ar Finnbogadóttur aðsetur á
kosningadaginn. Mjög margir
komu í kosningakaffi hjá fram-
bjóðendunum fjórum á sunnu-
daginn.
Flokkun atkvæða hófst í Odd-
eyrarskólanum nokkru áður en
kjörfundi lauk. Engar tölur voru
birtar fyrr en öll gögn í kjördæm-
inu höfðu borist, en það var ekki
fyrr en um klukkan 02 að flugvél
lenti á Akureyri með atkvæða-
seðla af Norðausturlandi.
Skömmu síðar óku Ólafsfirðingar
í hlaðið með sína kjörkassa.
Það var fremur létt yfir taln-
ingarmeisturunum í Oddeyrar-
skóla aðfararnótt mánudagsins,
en um skeið var óttast að flugvél-
in gæti ekki lent vegna þoku sem
grúfði sig yfir Akureyrarflugvöll
og nágrenni.
Stuðningsmenn ónefndra
frambjóðenda litu inn í Oddeyr-
arskólann öðru hvoru til að hlera
tölur og hurfu misánægðir á
braut. Starfsfólk við talninguna
vann hratt en örugglega og öðru
hvoru heyrðust athugasemdir
eins og: „Þessi kaus Pétur Bene-
diktsson". „Hér er einn sem kaus
Gunnar Thoroddsen“ og einn
kjósandinn, sem kaus utankjör-
staðar hafði ritað á kjörseðilinn:
„Hólmgeir og konan hans“. Ekki
fylgdu nánari upplýsingar um val
kjósandans. Sumir höfðu krossað
við nokkra frambjóðendur og
strikað vandlega undir sum
nöfnin!
Vigdís
Finnbogadóttir
Fyrstu kjósendumir í Oddeyrarskólanum á sunnudagsmorguninn.
við háskólann í Grenoble og
Sorbonne í París. Þegar heim
kom starfaði Vigdís í 5 ár sem
bókavörður og ritstjóri leik-
skrár í þjóðleikhúsinu og ann-
aðist hún einnig blaðakynn-
ingar fyrir leikhúsið. Þá stund-
aði hún nám við Háskóla ts-
lands í ensku og enskum bók-
menntum og hélt áfram námi í
frönsku og frönskum bók-
menntum. Vidgís stundaði
einnig nám við Háskólann í
Kaupmannahöfn og í Svíðþjóð.
Hún starfaði síðan hjá þjóð-
leikhúsinu á ný og kenndi
jafnframt við Menntaskólann í
Reykjavík 1962-1968, og síðar
við Menntaskólann í Hamra-
hlíð þegar hann var stofnaður.
Síðan 1972 hefur Vigdís verið
leikhússtjóri hjá Leikfélagi
Reykjavíkur í Iðnó, en sagði
því starfi lausu sl. haust. Vigdís
hefur frá 1976 starfað í ráðgef-
andi nefnd um menningarmál á
Norðurlöndum, kennt stunda-
kennslu við Háskóla íslands og
gegnt margvíslegum trúnaðar-
störfum.
Vigdís Finnbogadóttir á eina
kjördóttur, Ástríði, sem er sjö
ára.
Vigdís Finnbogadóttir er fœdd í
Reykjavík 15. apríl 1930. For-
eldrar hennar voru Finnbogi
Rútur Þorvaldsson, hafnar-
verkfræðingur og prófessor við
Háskóla íslands, og Sigríður
Eiríksdóttir, hjúkrunarkona.
Vigdfs Finnbogadóttir.
Vigdís átti einn bróður sem lést
af slysförum.
Hún lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík
1949, en stundaði síðan nám í
frönsku og 'frönskum bók-
menntum, með leikbókmenntir
sem sérgrein, í hálft fjórða ár
Stuöningsmenn Vigdísar Finnbogadóttur höfðu aðsetur f Alþýðuhúsinu og þi
fylgdust þeir með fyrstu tölum f sjónvarpi. Áhuginn leynir sér ekki f andfi
Úlfar Hauksson, kosningastjóri Guö-
laugs.
Rögnvaldur Rögnvaldsson og Helgi
Guðmundsson ræða um kosninguna f
talningarsalnum f Oddeyrarskólanum.
Hér kemur Gfsli Ólafsson, yfirlög-
regluþjónn, með kjörgögnin, sem
flugvéiin flutti til Akureyrar.
Eins og fleiri frambjóðendur k
skemmunni á Akureyri. Það er
Unnið að talningu á kosninganó
ÚRSLIT
IFORSETA-
KOSNING-
UNUM
Kjördæmi Albert Guðmundsson
Reykjavík 12.519 2
Reykjanes 6.052 22
Vesturlandskjördæmi 1.055 14
Vestfjarðakjördæmi 553 9
Norðurlandskjördæmi v. 818 14
Norðurlandskjördæmi e. 1.519 1C
Austurlandskjördæmi 690 S
Suðurlandskjördæmi 2.261 2(
Landið alit 25.567 ÍS
4.DAGUR