Dagur - 01.07.1980, Side 5
iðan fólksins, enda var baráttan hörð milli Guðlaugs Þorvaldssonar og Vigdfsar
itum Finnbogadóttur. Það var ekki fyrr en undir morgun sem úrslit voru ráðin.
lélt Vigdfs fund f íþrótta- verið fjölmennasti fundurinn sem forsetaframbjóðendumir
mál manna að þetta hafi héldu á Akureyri.
ttina.
l Guðlaugur Þorvaldsson % PéturJ. Thorsteinsson % Vigdís Finnbogadóttir % Á kjörskrá Greidd atkvæði %
,6 14.906 29,2 7.765 15,2 15.594 30,6 56.266 50.965 90,6
,3 8.489 31,2 4.056 14,9 8.468 31,2 30.077 27.173 90,3
,5 2.822 35,4 1.093 13,7 2.864 35,9 8.791 7.982 90,8
,9 1.905 34,0 1.002 17,9 2.106 37,6 6.224 5.797 89,9
I 2.126 36,7 638 11,0 2.186 37,7 6.537 5.792 88,6
,9 5.459 39,1 1.608 11,5 5.305 38,0 15.551 13.953 89,7
,7 2.365 33,4 768 10,8 3.223 45,5 7.849 7.088 90,3
,9 3.552 32,8 1.194 ! 1,0 3.784 34,9 11.783 10.835 92,0
,8 41.624 32,2 18.124 14,0 43.530 33,6 143.078 129.385 90,4
Auðir og ógildir seðlar 540 eða 0,4%.
Fyrsti landsleikurinn á Akureyri:
Hörmu
legur
samleikur
Ekki er ástæða til að hæla
frammistöðu íslenska liðsins i
þessum leik. Lítil samæfing
einkenndi spil liðsins, og oft á
tfmum var samleikurinn
hörmulegur.
Bestu menn fslands voru
leikreyndustu mennirnir þeir
Marteinn Geirsson, Karl
Þórðarson og Árni Sveinsson.
Bestur Færeyinga var mið-
herji þeirra nr. 5, Ernet Dals-
gard.
Furðulegt er að Pétur Pét-
ursson og Amór Guðjónsen
skulu ekki vera látnir leika
þennan leik til að hressa upp á
framlínuna en það veitti svo
sannarlega ekki af.
Dómari leiksins var Þor-
varður Bjömsson og línuverðir
Þóroddur Hjaltalin og Stein-
dór Gunnarsson, og dæmdu
þeir mjög vel.
í
Islenskur sigur
lélegum leik
í gærkveldi var fyrsti landsleik-
urinn í knattspyrnu, sem háður
hefur verið á Akureyri. Þá áttust
við fslendingar og Færeyingar.
Þetta var liður i þriggja landa
keppni milli áðurnefndra aðila
og Grænlendinga.
Keppt er um veglegan bikar
sem gefinn er af Fjórðungs-
sambandi Norðlendinga. ís-
lendingar unnu sigur í þessum
leik, en það hefur verið sjald-
gæft undanfarið í landsleikjum.
Það var „ekta“ landsleikja-
stemning á vellinum, lúðrasveit
lék þjóðsöngva þjóðanna, og
Freyr Ófeigsson, forseti bæjar-
stjómar, var kynntur fyrir leik-
mönnum liðanna, í viðurvist
870 áhorfenda.
Það voru Færeyingar sem
áttu fyrsta marktækifærið í
leiknum er þeir skutu af löngu
færi, en Bjarni Sigurðsson
markmaður ísl. landsliðsins
varði með tilþrifum í horn. Á 9.
mín. skutu íslendingar fyrst að
marki Færeyinga en framhjá,
og þá kom markmaður þeirra
við boltann í fyrsta sinn í leikn-
um. Á 10 mín. átti Árni Sveins-
son hörkuskot að marki Færey-
inga en aðeins framhjá.
Á 15. mín. kom fyrsta mark
leiksins. Þá „nikkar“ Magnús
Bergs boltanum út til hægrí til
Marteins Geirssonar sem var
óvaldaður í markteigshorninu,
og hann lagði boltann fyrir sig
og skaut hörkuskoti og í mark.
Á 18. mín. á Pétur Ormslev
gott skot en það var vel varið hjá
færeyska markmanninum.
Á 28. mín. fengu Færeyingar
gott marktækifæri en Bjarni
bjargaði með góðu úthlaupi. Á
41. mín. áttu Færeyingar annað
marktækifæri þegar einn fram-
herja þeirra komst inn fyrir
vöm Islendinganna en hann
skaut yfir. Á 44. mín. á Óskar
Farsæth góða fyrirgjöf inn í
teiginn. Þar myndaðist mikil
þvaga um boltann en Sigurlás
Þórleifssyni tókst að skjóta og í
markið.
Fyrri hálfleik lauk því með
sigri íslendinga, tvö mörk gegn
engu.
Strax á 4. mín. síðari hálfleiks
áttu Færeyingar skot að marki
en framhjá. Á 11. mín. á Sigur-
lás gott færí en markmaður
Færeyinga varði með tilþrifum.
Á 15. mín. bjargaði Marteinn
Geirsson á línu eftir hörkusókn
Færeyinga. Tveimur mín. síðar
sækja Islendingar og boltinn
berst til hægri til Árna Sveins-
sonar sem skaut hörkuskoti sem
lenti í stöng. Á 22. mín. átti
Guðmundur Þorbjömsson góð-
an skalla að markinu eftir
aukaspyrnu frá Óskari Farsæth.
Á 27. mín. kemst Karl Þórðar-
son inn fyrir vörn Færeyinga en
markmaður þeirra bjargaði
snilldarlega með góðu úthlaupi.
Á 34. mín. endaði góð sókn
Færeyinga með hörkuskoti sem
Guðmundur Þorbjörnsson
bjargaði á línu. Á 43. mín. stóð
einn Færeyinga í opnu færi fyrir
miðju marki en skaut yfir. Mín.
síðar skora Færeyingar og þar
var Jakobsen að verki. Leiknum
lauk því með sigri íslendinga
sem gerðu tvö mörk gegn einu.
C
B'
g
ET
&
B
&
to
3.
=i
e
a
<T
5?
Óheppnir Þórsarar
Þór og Þróttur léku f annarri
deild f knattspymu á föstudags-
kvöldið. Leiknum lauk með
jafntefli án þess að nokkuð
mark væri skorað.
Þórsarar voru mun meira með
boltann en tókst ekki að koma
honum í netið. Þróttarar börð-
ust vel í vöminni með Sigurberg
Sigsteinsson í broddi fylkingar.
Bestu menn liðanna voru þó
markmennirnir. Þórsarar hafa
nú tapað þremur stigum í
deildinni, jafnt og KA.
K.A. sigrar Selfoss
Á föstudagskvöldið léku á Sel-
fossvelli, heimamenn og KA.
KA sigraði örugglega í leiknum,
þeir gerðu tvö mörk á móti engu
heimamanna. Fyrsta markið
gerði Eyjólfur og var það úr víti.
Skömmu síðar bætir Gunna
Gíslason öðru við. í síðari háll
Ieik fengu KA menn aðra víta
spymu en þá brást Eyjól!
bogalistin og skaut í stöng.
DAGUR.5