Dagur - 01.07.1980, Page 8
DAGUR
Akureyri, þriðjudagur 1. júlí 1980
ÞJONUSTA
FYRIR
HÁÞRÝSTISLÖNGUR
OLÍUSLÖNGUR og BARKA
PRESSUM
TENGIN A
FULLKOMIN TÆKI
VÖNDUÐ VINNA
Hestaþing í Húnaveri:
Það fyrsta í áratugi
Um síðustu helgi var haldin
héraðssýning á kynbótahrossum
í Húnaveri. Þetta mun vera
fyrsta sýningin sinnar tegundar í
Húnavatnssýslu um áratuga-
skeið, en síðast var slík sýning á
Þingeyrum. Fjögur hesta-
mannafélög í Húnavatnssýslun-
um báðum stóðu að sýningunni,
auk þess sem hrossaræktarsam-
böndin í sýslunum báðum tóku
þátt í sýningunni, sem nefndist
Hestaþing Húnvetninga. Mótið
heppnaðist ágætlega.
Sigurrós Ósk Karlsdóttir.
Setti
heims-
met
í bringusundi
Sigurrós Karlsdóttir úr
íþróttafélagi fatlaðra á Ak-
ureyri setti Ólympíu- og
heimsmet í 50 metra bringu-
sundi á Ólympíuleikjum fatl-
aðra, sem haldnir eru þessa
dagana í Hollandi.
Blaðið óskar Sigurrósu
hjartanlega til hamingju með
árangurinn.
Á hestaþinginu voru dæmd 29
kynbótahross, hestar og hryssur.
Önnur verðlaun fengu tvær hryssur
fýrir afkvæmi, þrír hestar 4. vetra
og eldri, átta hryssur 4. vetra og
eldri og þrír hestar 3. vetra fengu
önnur verðlaun fyrir byggingu.
Efstur í A-Flokki í gæðinga-
dómum varð 9 vetra hestur, Hjalti,
frá Hestamannafélaginu Neista.
Eigandi Hjalta er Hlynur Tryggva-
son á Blönduósi. Efstur í B-flokki
var Smyrill frá Hestamannafélag-
inu Þyt. Eigandi hans er Indriði
Karlsson á Hvammstanga.
I kappreiðunum urðu úrslit þau
að fyrst í 250 metra skeiði varð
Lyfting frá Flugumýri, eign Ingi-
mars Ingimarssonar á Sauðárkróki.
Lyfting hljóp á 24 sekúndum.
Fyrsfur í 150 metra nýliðaskeiði
varð Blær, sem er 8 vetra. Hann er
eign Valdimars Kjartanssonar.
Blær hljóp á 15.9 sekúndum. I 350
metra stökki sigraði Skjóni Gunn-
laugs Sigmarssonar á 27.9 sekúnd-
um og í 600 metra brokki varð
fyrstur Hjalti Hlyns Tryggvasonar
á 1.28.5. Fyrstur í 250 metra fola-
hlaupi varð Hörður Mörtu
Magnúsdóttur frá Stóra-Vatns-
skarði. Hörður hljóp á 20.1 sek-
úndu. Og fyrst í 300 metra hlaupi
varð Fold frá Húnsstöðum, eign
Kristjáns Sigfússonar. Fold hljóp á
23.5 sekúndum.
HRÍSEYINGAR KANNA
FLATEY OG GRlMSEY
„Fyrir skömmu fóru hátt í 30
manns með nýju ferjunni okk-
ar til Grimseyjar. Þetta var
skemmtiferð — eða kurteisis-
heimsókn — og dvaldi fólkið
yfir nótt í Grímsey og líkaði
vel,“ sagði Sigurður Finn-
bogason, fréttaritari Dags í
Hrísey.
Hríseyingar ætla ekki að láta
þar við sitja því þeir hafa í hyggju
að fara með ferjunni til Flateyjar
um næstu helgi. Ætlunin er að
fara með ferjunni út í Flatey á
föstudagskvöldið og verður náð í
ferðalangana á sunnudag.
Spurningin er hvort Hríseying-
um sé farið að finnast Hrísey full
lítil og hafi í hyggju að leggja
undir sig aðrar eyjar úti fyrir
Norðurlandi. Sigurður vildi ekk-
ert um það mál segja, en kvað
Hríseyinga vera ánægða með
ferðina til Grímseyjar, og hlakka
til að fara út I Flatey.
Ekkert malbikað
Engar malbikunarframkvæmdir
verða í ár á Dalvík. Ástæðan er
einfaldlega sú að bæjarfélagið
stendur í stórræðum á öðrum
sviðum í sumar.
Kristján Ólafsson, útibússtjóri á
Dalvík, sagði blaðinu að t.d. tækju
hafnarframkvæmdirnar og skóla-
byggingin til sín 60 til 80 milljónir
króna og barnaheimilið 30 til 40
milljónir af fjárhagsáætlun bæjar-
ins. Þá eru útgjöld bæjarins mikil
vegna bygginga heilsugæslu-
stöðvarinnar og dvalarheimilisins.
Nýlokið er byggingu ráðhússins,
„og við verðum að ljúka þessum og
fleiri verkefnum áður en hægt er að
fara að malbika götur á Dalvík,“
sagði Kristján Ólafsson.
Á BRYGGJUNNI....
„O, blessaður vertu, ég er úti á nóttunni. Þá er friður. Annars er algjör
andsk. . . . ördeyða núna. Ég var með 200 til 300 pund í nótt, en það er
ekkert.“
Það er trillukarlinn Villi Hansen sem hefur orðið, en ljósm. hitti
hann á bryggjunni í smábátahöfninni sl. föstudag. Villi var að þvo.
Hann léði ekki máls á viðtali „er svo upptekinn núna, en þú mátt alveg
taka mynd af mér og bátnum. Það gerir ekkert til. Já, þetta var ýsa sem
ég fékk á línuna. En það er enginn fiskur í sjónum. Það kemur enginn
fiskur inn á fjörðinn. Það er ekkert úti og ekkert kemur inn. Það er
lóðið. Vertu blessaður.“
Þormóður lokar á morgun
Siglufirði 30. júní
Frystihúsi Þormóðs ramma
verður lokað á miðvikudaginn.
Starfsfólkið fékk fyrir skömmu
bréf þar sem því var tilkynnt að
það væri beðið um að fara í
sumarfrí í júlí. ísafold er búin að
senda flesta sína starfsmenn
heim.
Siglufjarðartogararnir munu
halda áfram veiðum og landa er-
lendis. Sigluvíkin kemur úr sölu-
ferð í kvöld.
Það var búið að ráða töluvert af
unglingum í bæði húsin og eflaust
kemur þetta stopp einna verst við
þá. Vafalaust munu ýmsir kunna
því illa að vera sendir heim í sum-
arfrí, en fólk skilur ástæðurnar fyrir
þessum aðgerðum og kvartar ekki.
Það er af færafiskiríi að frétta að
það gengur vel. Nú virðast vera allt
önnur skilyrði í sjónum en í fyrra.
Menn hafa verið að fá frá 400 og
upp í 700 kíló á færi. Þess má líka
geta að sjómenn hafa verið að fá
mikið af ufsa á Hellunni og grunnt
út af firðinum, en slíkt hefur ekki
gerst í mörg ár.
Ungu mennirnir, sem eru að
byrja handfæraveiðar, gefa oft
þeim gömlu ekkert eftir. Til dæmis
fór Jóhann Jónsson, vélvirki á sjó í
gær og koma til baka með 750 kíló
eftir daginn. S. B.
Dalvík:
Mikið byggt
Dalvík 27. júní
Miklar byggingaframkvæmdir
eiga sér nú stað á Dalvik.
Framkvæmdir eru þegar hafnar
við húsnæði grunnskólans og er
stefnt að því að tvær kennslu-
stofur verði teknar í notkun n.k.
haust.
Unnið er við innréttingar á
heilsugæslustöðii.ni og vonast er til
að hún verði opnuð þann 1. des-
ember. Einnig er unnið við dvalar-
heimilið, en þegar framkvæmdum
líkur þar verður hægt að hýsa 13
íbúa til viðbótar. Fyrir skömmu
voru afhentar 6 sölu- og leiguíbúðir
sem standa við Hjarðarslóð. Mörg
einbýlishús eru í byggingu á Dal-
vík.
Afli smábáta er rýr. Togararnir
Björgúlfur og Björgvin munu fara í
slipp um miðjan júlí. Leggst um
leið öll vinna niður í frystihúsinu í
hálfan mánuð til þrjár vikur. Þess
skal getið að starfsfólki frystihúss-
ins var gerð grein fyrir þessu hléi
löngu áður en söluerfiðleikar fóru
að gera vart við sig. Við töldum
betra að allt fólkið færi í frí í einu 1
stað þess að láta annan togarann sjá
frystihúsinu fyrir hráefni. K. Ó.
Á sunnudag fór fram ökuleiknikeppni við Lundarskóla á
Akureyrí á vegum Bindindisfélags ökumanna. Keppendur
voru sjö og sigurvegarí varð Sigurbjöm Tryggvason, Ómar
Eðvaldsson annar og þriðji varð Magnús Magnússon. Á
|>essarí mynd h.s. era taldir f.v.: Einar Guðmundsson frá
Reykjavfk, sem annaðist keppnina fyrir B.F.Ö., og kepp-
endurair Ómar Eðvaldsson, Sigurbjörn Tryggvason, Njáil
Harðarson, Sigþór Sigþórsson, Magnús Magnússon,
Stefán Már Stefánsson og Sigursteinn Vestmann. Verð-
laun vora veitt, sem I.O.G.T.-fyrirtækin Varðborg og
Borgarbió gáfu. Vélhjólakeppni i ökuleiki var svo f gær og
gáfu Möl og Sandur verðlaunin i þeiri keppni.