Dagur - 19.08.1980, Page 1
■■■
LXIII. árgangur.
Akureyri, þriðjudagur 19. ágúst 1980
56. tölublað
Talsvert öskufall
á Norðurlandi
Hekla lét heldur betur á sér
kræla á sunnudaginn, þegar
stórgos hófst í fjallinu. Gosið
hófst um kl 13.15 og var strax
mjög kröftugt, en í gær hafði
það rénað nokkuð. Talsvert
öskufall fylgdi gosinu og féll
aska m.a. víða um Norðurland,
allt til Grímseyjar. Á Akureyri
féll töluverð aska upp úr klukk-
an 18 á sunnudag og allmikil
aska féll í sveitum Skagaf jarðar,
þar sem töluvert var óhirt af
heyjum, vegna vætutíðar undan-
farið. Mest aska féll þó á afrétti
sunnlendinga og er talið að
Landmannaafréttur sé ónýtur
til beitar til margra ára. Þar var
30 cm jafnfallin gosaska og fé
ráfaði um stefnulaust í eyðing-
unni. Verður afrétturinn vænt-
anlega smalaður mjög fljótlega.
Gosið í Heklu er blandað ösku-
gos og hraungos. Eins og áður sagði
or um stórgos að ræða, en þó ekki
eins mikið og varð í fjallinu 1947,
en það er með mestu gosum á
jörðinni á þessari öld. Gosið er í
fjallinu suðvestanverðu og í upp-
hafi þess gaus aðallega á 5-6 km
langri sprungu. Þetta er 16. gosið í
Heklu frá því sögur hófust og kom
þetta gos mjög á óvart. Ef að líkum
lætur getur það varað í nokkra
mánuði, en talið er að mesta ösku-
Banaslys
á Sauðár-
króki
Um klukkan 18.45 á laugar-
dag varð banaslys á Sauðár-
króki þegar 15 ára gamall
piltur, Rúnar Ingi Björnsson,
Grundarstíg 18, varð undir
malarbíl og lést samstundis.
Bifreiðin var að bakka með
malarhlass eftir flugvallarveg-
inum í áttina að malardreifara.
Pilturinn vann við að slétta úr
ójöfnum og varð ekki var við
bílinn, sem hafði stöðvað
skamma stund, en haldið síðan
áfram í átt að dreifaranum.
Talsverður hávaði var á vinnu-
staðnum er slysið varð, vegna
ýmissa véla og tækja sem voru í
gangi.
gosið sé yfirstaðið. Mikið og seig-
fljótandi hraun hefur runnið úr
fjallinu.
Að sögn Ágústs Þorleifssonar,
dýralæknis á Akureyri, höfðu all-
margir bændur við Eyjafjörð sam-
band við hann á sunnudag og leit-
uðu upplýsinga varðandi skepnur
sínar með tilliti til öskufallsins, en
flúormengun hefur áhrif á beina-
kerfi og tennur dýra. Margir
bændur höfðu kýr sínar inni aðfar-
arnótt mánudags og ætluðu síðan
að sjá til. Talsvert vatnsmagn virð-
ist þurfa til að skola öskurykið af
gróðri.
í gær unnu starfsmenn í gróðra-
stöðinni í Kjarna við að reyna að
hrista og skola ösku af barrtrjám í
uppeldisstöðinni þar, en að sögn
Hallgríms Indriðasonar þola barr-
tré mjög illa flúormengun, eins og
glöggt hefur komið I Ijós víða við
álver og svipaða starfsemi, sem
flúormengun fylgir. Hallgrímur
sagði, að menn vissu ekki hvaða
áhrif Hekluaskan hefði, en þeir
væru að reyna að hafa vaðið fyrir
neðan sig með þessum aðgerðum.
Umhverfismál
til umræðu
Heilbrigðisnefnd situr
Samtök um náttúruvernd á
Norðurlandi (SUNN) halda
aðalfund sinn að þessu sinni í
Mcnntaskólanum á Akureyri,
dagana 23.-24. ágúst. Fundurinn
er tileinkaður umhverfismálum
Akureyrar og nágrennis.
Fundurinn hefst kl. 10 árd. laug-
ardaginn 23. ágúst (í gamla skól-
anum). Síðdegis verður farið í
skoðunarferð um þæjarlandið og
næsta nágrenni þess og um kvöldið
verða flutt erindi með litskugga-
myndum. Þar ræðirTryggvi Gísla-
son skólameistari um skipulags-
mál bæjarins og Helgi Hallgríms-
son safnvörður lýsir náttúrufari
bæjarlandsins. Að lokum segir
Lára G. Oddsdóttir frá Færeyjaför
í sumar.
Sunnudaginn 24. ágúst hefst
dagskráin kl. 9 árd., með fundi um
landvernd og landnýtingu á Akur-
eyri. Framsögumenn eru Árni
Steinar Jóhannsson garðyrkjustjóri
og Helgi Hallgrímsson safnvörður.
Þá verður hlýtt á messu í Aku;-
eyrarkirkju og síðan snæddur
hádegisverður á Hótel Varðborg,
þar sem Hjörtur Þórarinsson á
Tjörn minnist 10 ára afmælis fé-
lagsins.
Síðdegis verður svo umræðu-
fundur um mengunarmálin á Ak-
ureyri, þar sem heilbrigðisnefnd
bæjarins o.fl. bæjarstarfsmenn sitja
fyrir svörum. Þá verða tillögur af-
greiddar og kosin stjórn SUNN til
næstu tveggja ára. Fundarslit verða
um kl. 7 sd.
fyrir svörum
Á fundinum verður veggmynda-
sýning um náttúrufar og náttúru-
vernd á Akureyri og dreift verður
bæklingi um sögu félagsins.
Allir sem áhuga hafa á umhverf-
ismálum eru velkomnir á fundinn
eða einstaka dagskrárliði hans.
Allniikil aska féll á Akureyri og viðar á NorAurlandi og brugðu margir fljóll við
mcð sóp i hönd eöa garðslöngu til að lircinsa ösku af trjáni og bifreiðunt. Mynd:
á.þ.
Ibúðarhúsið brann
til kaldra kola
íbúðarhúsió að Hallgilsstöðum í
Hörgárdal brann til grunna sl.
sunnudag. Eldsupptök voru þau
að eigandinn, Skúli Torfason
tannlæknir á Akureyri, var að
brenna rusl og gamla tóft sem
var við húsið. Þar sem vindátt
breyttist skyndilega — eins og
oft vill verða — náði eldurinn að
læsa sig í íbúðarhúsið og varð
ekkert við neitt ráðið.
Þegar slökkviliðið á Akureyri
kom á vettvang var húsið alelda og
gátu slökkviliðsmenn lítið annað
gert en að fylgjast með húsinu
brenna niður. Þeir yfirgáfu
Hallgilsstaði á áttunda tímanum.
Skúli hafði í hyggju að nota
íbúðarhúsið sem vélageymslu, en
byggja nýtt á jörðinni.
Ekið á barnavagn á gang
braut á Þingvallastræti
Um klukkan 18 í gær var ekið á
barnavagn á gangbrautinni
norðan við Hrisalund. í vagnin-
um var 2ja ára barn og mun það
hafa sloppið með fótbrot.
Nánari tildrög voru þau að
unglingsstúlka var að aka
vagninum yfir gangbrautina á
grænu Ijósi. Ökumaður bifreið-
ar sem ekið var eftir Þingvalla-
stræti tók ekki eftir rauða gang-
brautarljósinu sem ætlað er að
stöðva umferðina og ók á vagn-
inn. Ökumaðurinn var einn í
bílnum.
Að sögn lögreglunnar er það
aigengt að ökumenn virði ekki
viðlits rauðu gangbrautarljósin.
Skemmast hey
sem voru úti?
„Talsvert bar á öskufalli hér í
Skagafirði á sunnudaginn.
Mikil aska féll í Lýtings-
staðahrcppi og fram í Vest-
urdal, en þangað fór Egill
Bjarnason ráðanautur og tók
sýni af blautu heyi. Þessi sýni
verða send suður til frekari
rannsóknar,“ sagði Gutt-
ormur Óskarsson, fréttarit-
ari Dags á Sauðárkróki í gær.
Guttormur hitti í gærmorgun
bónda vestan úr Fljótum og
sagði sá að nokkur aska hefði
fallið þar um slóðir, en ekki fyrr
en eftir miðnætti.
Sú hætta er fyrir hendi að
askan úr Heklu eyðiieggi heyið
er lá úti í Skagafirði og viðar.
Fari svo verður að flytja til
þeirra sem fyrir skaðanum
urðu.
Ingólfur Sveinsson. sem
starfar hjá Sauðárkróksbæ,
sagði í viðtali við blaðið að lítil
aska hefði fallið i sjálfum bæn-
um.
Kristinn
íHáhóli
Kristinn G. Jóhannsson opnar
málverkasýningu í Gallery Háhól
iaugardaginn 23. ágúst kl. 16.00.
Á sýningunni verða rúmlega 40
verk unnin í krít og olíu.
Tólf ár eru nú liðin frá því
Kristinn sýndi síðast en áður
hafði hann haldið fjölda sýninga
á Akureyri, Reykjavík og víðar
auk þess sem hann hefur tekið
þátt í samsýningum hér heima og
erlendis.
Kristinn er menntaður hér
heima og hefur auk þess dvalið
þrjú ár við Edinburgh College of
Art nú síðast dvaldi hann þar
veturinn 1977-1978. Sýningin
stendur til 30. ágúst. Opin um
helgar frá 16.00 til 22.00 og virka
daga 20.00-22.00.
Tíunda umdæmis-
þing Kiwanis á
islandi
haldið á Akureyri
um helgina
Dagana 22.-24. ágúst næstkom-
andi, halda Kiwanisklúbbarnir á
Islandi sitt árlega umdæmisþing á
Akureyri. Er þetta 10. þing
klúbbanna sem sjálfstætt um-
dæmi innan alþjóðahreyfingar
Kiwanis. Þingið munu sækja
rúmlega 300 manns, þar á meðal
nokkrir erlendir gestir. Umdæm-
isstjóri íslenska Kiwanisumdæm-
isins er Hilmar Daníelsson, Dal-
vík.
Á íslandi eru nú starfandi 36
Kiwanisklúbbar víðsvegar um
landið. Klúbbarnir vinna að
ýmsum velferðarmálum hver í
sínu byggðarlagi. Þriðja hvert ár
hafa klúbbarnir efnt til sameigin-
legrar fjársöfnunar um allt land á
K-daginn. Afrakstri K-dagsins
hefur verið varið til styrktar gcð-
sjúkum og verður afrakstri næsta
K-dags einnig varið þannig. En
næsti K-dagur verður í október í
haust og er þá vonast eftir góðuin
viðtökum landsmanna eins og
áður.
Kodák
TRULOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
\ SIGTRYGGUR & PÉTUR
1 AKUREYRI
Gos í Heklu: