Dagur - 19.08.1980, Qupperneq 4
Kjörmannafundur í Þingeyjarsýslum:
Haldið verði áfram
útfærslu kvótakerfis
Senn líður að aðalfundi Stétt-
arsambands bænda. Til undir-
búning‘ honum eru nú þessa
dagan aldnir kjörmannafund-
ir um land allt. Á þessa fundi
mæta fulltrúar frá búnaðarfé-
lögum viðkomandi sýslu auk
ftilltrúa frá Stéttarsambandinu,
sem að þessu sinni er Ingi
Trvggvason varaform. sam-
bandsjns og formaður Fram-
leiðsluráðs landbúnaðarins.
S.l. föstudag var sameiginlegur
fundur beggja Þingeyjarsýslna í
Hafralækjarskóla í Aðaldal. í ræðu
Inga Tryggvasonar kom m.a. fram
að mjólkurframleiðsla drógst sam-
an um tæp 20% fyrstu 10 mánuði
þess verðlagsárs sem lýkur nú 30.
ágúst n.k. Hins vegar drógst neysla
landsnianna einnig saman um
sama hlutfall og framleiðslan.
Taldi Ingi að bændast éttin sem
heild væri mun betur stödd fjár-
hagslega ef mjólkurframleiðslan
væri ekki meiri en svo að fullt verð
fengist fyrir alla framleiðsluna. Þá
hefði orðið verulegur samdráttur í
sölu kindakjöts fyrstu 10 mánuði
verðlagsársins skv. skýrslum eða
1484 tonn þ.e.a.s. ef skýrslur reyn-
ast réttar en um það hefur nokkuð
verið deilt undanfarið sem kunnugt
er. Otflutningur mjólkurvara er nú
ógjörlegur þar sem útflutningsverð
nægir ekki nema í bezta falli fyrir
vinnslu ogsölukostnaði. Hins vegar
fæst u.þ.b. 34,5% af óniðurgreiddu
heildsöluverði sauðfjárafurða inn-
aniands fyrir þessar afurðir erlend-
is. Miklar umræður urðu á fundin-
um um framleiðslumálin og önnur
hagsmunamál bændastéttarinnar.
Nokkuð voru skoðanir manna
Sveinberg Laxdal.
skiptar á nauðsyn og réttmæti
kjamfóðurskatts.
Fram kom að ráðunautar
Búnaðarfélags Islands sem skoðað
hafa kýr hér norðanlands undan-
farið vegna væntanlegrar héraðs-
sýningar, telja þær nú verulega
vánfóðraðar margar hverjar. Er
það vjssulega alvaflegt mál ef svo
er og ekki neinum til sóma að
stuðla áð slíku. Hinsvegar var það
samdóma álit fundarins að skilyrð-
islaust bæri að halda áfram með
útfærslu kvótakerfisins svonefnda.
Skattamál voru mikið rædd,
enda skammt liðið frá því bændur
fengu í hendur álagningarseðla,
unna samkvæmt nýjum skattalög-
um. Allir sem einn töldu fundar-
menn það óréttlátt og óviðunandi
að reikna bændum tekjur sem
sannarlega hefðu aldrei verið til og
ætla þeim að greiða skatta þar af.
Nefnd voru dæmi þar sem
bændum var gert að greiða í skatta
25% og alh uppí 100% af raunveru-
legum nettó-tekjum sínum. Slíkt
getur enginn skattgreiðandi við
unað og voru samþ. harðorð mót-
mæli gegn slíku. Bent var á mikið
misræmi milli ókvæntra bænda og
þeirra er lifa í „kristilegu hjóna-
bandi“ eins og komist var að orði.
T.d. var sagt frá raunverulegu
dæmi af félagsbúi bræðra þar sem
annar er kvæntur, hinn ekki. Sá
kvænti fékk 1.070.000. kr. hærri
skatta en sá ókvænti, hvort tveggja
byggt á sömu tekjum. Þá var álit
fundarmanna að svokölluð 45%
regla væri óviðunandi og myndi
skapa mjög mikið misræmi inn-
byrðis í stéttinni þannig að vel
stæðir bændur yrðu sífellt betur
settir en þeir verr stæðu drægjust æ
meir aftur úr. Skattamálin munu
því verða eitt af aðalmálum aðal-
fundar Stéttarsambands bænda.
Ennfremur voru á fundinum
samþykkt mótmæli gegn innflutn-
ingi erlendra kartaflna á sama tíma
og innlend framleiðsla er löngu
komin á markað. Einnig ályktun
um skilyrðislausan forgangsrétt
bænda til reksturs allra þeirra bú-
greina er nefndar hafa verið auka-
búgreinar s.s. loðdýrarækt og garð-
ávaxtaframleiðsla svo eitthvað sé
nefnt en vaxandi ásókn aðila utan
bændastéttarinnar gerir það brýnt
að bændur fái lögverndaðan rétt
sinnar stéttar.
Þá var mótmælt kjörum Bjarg-
ráðasjóðs á lánum vegna harðinda
s.l. árs en þau eru slík að óþekkt eru
með öllu hjá öðrum stéttum í við-
líka tilfeilum. Væri full þörf á að
fara nokkrum orðum um málefni
Bjargráðasjóðs og lánsveitingar
hans og vaxtakjör og mun það síðar
gert. .S'v. Lax.
Börn á sunnudegi
Það er alltaff líff og fjör þar sem börnin eru saman-
komin. Hvort sem er í troðfullum inngangi Nýja bíós
eða út við Glerárbrú. Hjá síðarnefnda staðnum hitti
tíðindamaður blaðsins tvo unga sveina sem köstuðu
steinum og spýtum I ána af mikium móð, en hjá bíóinu
biðu spennt ungmenni efftir að — Kátir voru karlar —
kæmi á hvíta tjaldið.
Beðið eftir að svning hefjist. F.v.: Þórdis, Helga og Hrefna.
Sjáum oft sömu myndirnar
þurfa ekki aö sjá brjóst og meyjarskaut í
búntum til að fá nasasjón af því sem gerist í
myndinni.
Strákamir vora sammála um að hjallarnir væru skemmtilegur leikvöllur.
Erum bara aö leika okkur
Á Ráðhústorgi sátu þrjár
hnátur með is og biðu þess að
kvikmyndasýning hæfist í Nýja
bíói. Þetta voru þær Þórdís
Skúladóttir, Helga Ósk Ein-
arsdóttir og Hrefna Einars-
dóttir.
— Við ætlum að sjá Kátir voru
karlar. Það er Hrefna sem hefur
orð fyrir þeim stöllum. — Við er-
um búnar að fara á hana áður. Og
nú var spyrillinn eitt spurningar-
merki í framan, en Hrefna sagði
að þær færu oft á sömu myndirn-
ar ef þær væru skemmtilegar.
Þeim kom saman um að
myndirnar í Borgarbíói og Nýja
biói væru ágætar og raunar sögð-
ust tvær þeirra fara stundum á
kvöldin. því þær eru orðnar 11
ára. Hvaða myndir eru skemmti-
legastar? Stelpurnar litu hver á
aðra og hugsuðu sig um eitt and-
artak. Svarið: Kábojmyndir. Þær
eru svo spennandi. Helga og
Hrefna treystu sér ekki til að segja
hver væri skemmtilegasta mynd-
in sem þær hefðu séð um æfina,
en Þórdís sagði að það væri Kátir
voru karlar. Stelpurnar sögðust
fara um hverja helgi í bíó. Það
væri svo gaman. Og þar með
kvaddi tíðindamaðurinn döm-
urnar ungu og óskaði þeim góðr-
ar skemmtunar. Þær vissu svo
sannarlega að hverju þær gengu.
P.s. Urt kvöldió var sýnd dönsk klámmynd i
hióinu. V'vri ekki athugandi að fœkka eitt-
livað klámfengnustu myndunum i útstilling-
unni? Þeir sem eru komnir til vits og ára og
hufa gaman af kvikmyndum af þessu tagi
Stefán Leifur Sigurðsson og
Heiðar Einarsson heita kappar
þeir sem voru hjá Glerá. í
samtali við sveinana kom í ljós
að báðir éiga þeir heima á
brekkunni, en voru á sunnu-
daginn í heimsókn hjá ömmu
Stefáns, en hún býr í Glerár-
þorpi.
— Við erum bara að leika
okkur. Henda grjóti út í ána og
svoleiðis, sagði annar þeirra. —
Við höfum ekki reynt að veiða.
Ég held að það sé enginn fiskur í
ánni.
Strákamir sögðu að það hlyti
að vera miklu skemmtilegra að
eiga heima út í þorpi. Ástæðan?
Stefán: Það er bara svo skemmti-
legt. Það er svo stutt í búðir og
svona.
Nú var Stefáni og Heiðari stillt
upp. Myndavélin dregin upp og
strákarnir brostu sínu breiðasta.
— Við erum báðir 9 ára, sagði
Stefán þegar myndasmiðurinn
hafði lokið verki sínu. Og svo
tóku þeir á sprett og hafa sjálfsagt
farið til ömmunnar og sagt henni
frá skeggjaða manninum sem var
að þvælast niður í hjöllum hjá
öllum fiskunum.
4 -DAGUR