Dagur - 31.10.1980, Blaðsíða 1
Gíæður
í greinum, sem fyrst um sinn munu ganga undir þessu
nafni, er ætlunin að draga fram í dagsljósið ýmsan
gamlan fróðleik um land og þjóð, blása í gamlar glæður.
Verður eingöngu f jallað um norðlenskt efni, og reynt að
taka eitthvað afmarkað efni fyrir f hverri grein. Farið
verður úr einu í annað og reynt að leita sem víðast
fanga, en einkum verður stuðst við prentaðar heimildir
og er þeirra að jafnaði getið. Allar ábendingar um efn-
isval og upplýsingar þar að lútandi eru vel þegnar. Er
það von, að greinar þessar vekji áhuga einhverra nú í
skammdeginu.
Tónlistarpistill
Heldur voru áheyrendur fáir og greinargóður tónlistar-
unnandi sagði mér, að svo vildi vera á orgeltónleikum
hér. Samband milli flytjenda og áheyrenda kemst ekki
á, þar sem hinir síðarnefndu snúa baki við hljóðfærinu
og sitja niðri í kirkju. Er það vissulega skaði, að þessi
vandkvæði skuli vera á að nýta svo voldugt hljóðfæri
sem kirkjuorgelið er.
Minjavernd
Þingstaður forn er talinn hafa verið við Lögmannshlíð
og til skamms tíma mátti þar sjá hringlaga stalla, eins
konar litla Lögréttu, í dæld niður á túninu, og voru þeir
kallaðir Dómhringir. Um 1935 var sléttað yfir þessa
merkilegu hringa, en þrátt fyrir það má enn sjá móta
fyrir þeim. Nýlega var hafin bygging (hesthúss?) í næstu
dæld fyrir neðan, og fyrr en varir gæti þessi staður farið
eins. Hann þarf því að friðlýsa og merkja rækilega.
Sjá bls. 6-7
Sjónmenntír
I
Blekkingar
Samkeppnin við nágrannana hefur gengið nokkuð vel.
Bíllinn hans er að vísu ekki af dýrari gerðinni en það
stendur til bóta. Raunar stendur flest til bóta því
Grandvar er þessa dagana að komast í samband við
marga mikilsverðustu menn bæjarins. Sannleikurinn er
sá að hann er genginn i klúbb og er i óða önn að byggja
upp náin persónuleg tengsl við alla helstu framámenn
athafnalífsins, — mælda í krónum. „ . , . , c
Sjabls. 15
Gera verður greinarmun á kunnáttumanni og snillingi.
Snillingurinn er innblásinn en kunnáttumaðurinn hefir
þroskast fyrir tækni sína. Auðvitað verður hver lista-
maður að nema tækni listar sinnar til að hann verði
fullnuma í henni, en tæknin er þó aðeins undirbúnings-
"riðl' Sjá bls. 11
mótun
Eftir því sem líður á tímann og leirhraukarnir taka á
sig mynd, sem sífcllt líkist meir mannslíkama, verður
léttara yfir hópnum. Hafi einhver roði verið í kinnum
fyrirsætunnar í upphafi, þá er hann alveg horfinn.
Yngstu konurnar i hópnum, sem voru kannski svolítið
feimnar við að nálgast módelið í upphafi til að kanna
líkamsbygginguna nánar, hafa nú alveg komist yfir þá
hindrun og eru farnar að líta á strákinn berrassaða sem
hvem annan hlut. • ' i t 1
Sia bls. 12
Sjá bls. 4-5
Sjá bls. 3
-Veitt á Höpfnersbiyggju
Dúkrista eftir Guðmund Ármann Sigurjónsson.