Dagur


Dagur - 31.10.1980, Qupperneq 14

Dagur - 31.10.1980, Qupperneq 14
i í í I ► i í \ j i I i ! ! ! i t i ; : i Sambandshúsinu Pósth. 180 121 Reykjavík Sími 28200 Telex 2101 getur skapaö margskonar erfiðleika, auk þess aö kosta peninga. Með áratuga reynslu í vöruflutningum, tryggir Skipadeild Sambandsins öruggt samband viðskiptaaðila landa í milli. Fastaráætlunarferöirtil helstu viðskiptahafna, beggja vegna Atlantshafsins. Alhliða flutningaþjónusta á stykkjavöru, gámum og þungavöru. Hafðu samband og við veitum fúslega nánari upplýsingar. • Frystigámar - • Tankgámar • Tilboð • Heimsendingar - eða aðrar sérþarfir Veiðar og veiðarfæri eftlr Guðna Þorsteinsson fiskifræðing Almenna bókafélagið hefursent frá sér Veiðarfœrabók AB — Veiðar og veiðarfœri — eftir Guðna Þorsteinsson fiskifrœðing. Bókin lýsir í rækilegum texta veiðiaðferðum og veiðarfærum sem tíðkast hafa og tíðkast nú við veiði sjávardýra hvar sem er í heiminum. Már Elísson fiskimála- stjóri ritar formála fyrir bókinni og segir þar m.a.: „Bók sú, er nú kem- ur fyrir almenningssjónir, er hin gagnlegasta og bætir úr brýnni þörf... Höfundurinn, Guðni Þor- steinsson, býr augljóslega yfir mik- illi þekkingu á fiskveiðum og margvíslegri veiðitækni og þróun hennar víðsvegar um veröld, svo og sögu fiskveiða .. . Þótt höfundur sýni fram á margvíslega þróun og framfarir í gerð veiðarfæra á liðn- um áratugum og öldum kemur greinilega í ljós við lestur bókar- innar að í grundvallaratriðum hafa veiðarfæri, svo sem lína, net, sjálfur öngullinn og raunar fleiri, verið 14. DAGUR bókamarkaði notuð lítt breytt frá ómunatíð, að öðru leyti en því, að í þau er yfirleitt notuð önnur efni en fyrr- um. — Bók þessi á erindi til allra þeirra, sem vilja kynna sér veiðar- færi og veiðitækni, sem notuð er meðal þjóða. Hver veit nema upp- lýsingar þær, sem í henni má finna, verði kveikja nýrra hugmynda, sem leitt geta til þess, að menn tileinki sér tækni, sem lítt hefur verið kunn, og lagi hana að íslenskum aðstæð- um.“ Bókin er með fjölda mynda og nákvæmum skrám yfir veiðarfæri, nöfn þeirra bæði á ensku og ís- lensku. Hún er 186 bls. að stærð og í sama bókaflokki og Fiskabók AB og Jurtabók AB. Liðsforingjanum berst aldrei bréf Skáldsaga eftir Gabriel Garcia Marques í þýðingu Guðbergs Bergssonar Almenna bókafélagið hefur sent frá sér skáldsöguna Liðsforingj- anum berst aldrei bréf eftir colomb- iska skáldið Gabriel Garcia Marques. Þetta er, eins og kunnugt er, einn þeirra höfunda, sem árlega koma til tals í sambandi við veit- ingu Nóbelsverðlauna. Þessi stutta skáldsaga hans um liðsforingjann er ein af hans ódauðlegu perlum. Bókin er kynnt þannig aftan á kápu: „Liðsforinginn hefur í 15 ár beðið eftirlaunanna sem stjórnin hafði heitið honum, en þau berast ekki og til stjórnarinnar nær eng- inn,og alls staðar, þar sem liðsfor- inginn knýr á, er múrveggur fyrir. Vissulega sveltur hann, missir flest sitt, þar á meðal einkasoninn. Það þarf mikla staðfestu og þrjósku, sterka trú á gimsteininn í mannsorpinu, til þess að halda við slíkar aðstæður reisn sinni og von. En það gerir liðsforinginn. Suma fær ekkert bugað. Við dauðann hverfa þeir uppréttir út I myrkrið.“ Guðbergur Bergsson hefur þýtt þessa nýju bók Marques. Hún er gefin út sem pappírskilja. — Mér finnst að þú ættir að hætta þessum veiðum. Þú ert ekki jafn fljótur á fæti og áður. — Blessaður lofaðu honum. Hann hættir þá að sjúga á sér fingurinn á meðan. — Oj bara, er það nú veður. Eins gott, að við neyðumst ekki til að fara út.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.