Dagur


Dagur - 31.10.1980, Qupperneq 15

Dagur - 31.10.1980, Qupperneq 15
Fablon sjálflímandi dukur I miklu úrvali Þorvaldur Þorsteinsson Blekkíngar Margir hafa afskaplega gaman af því að blekkja náungann. Sumir láta sér nægja að blekkja einn og einn í einu, aðrir eru mun stórtækari. Blekkingar í einhverri mynd eru daglegt brauð enda mikið um þær rætt og oftast eru þær trúlega tengdar stjórnmála- mönnum. „Blekkingarmeist- arar“ eru þeir kallaðir og kannski ekki að ástæðulausu. Þá er einnig vinsælt að hneykslast á auglýsingum og auglýsendum, kaupmönnum, fasteignasölum, bflasölum, at- vinnurekendum og öllu öðru vondu í þjóðfélaginu. Blekk- ing, blekking, allt um kring og engum að treysta. En í öllu þessu fjaðrafoki vill oft gleymast ein algengasta og kannski alvarlegasta blekk- ingin. Grandvar er gjaldkeri hjá meðalstóru fyrirtæki í meðalstóru bæjarfélagi. Hann sinnir sínu starfi vel, þykir ákveðinn og heiðarlegur. Hann er sagður góð- ur við konuna sína og börnin, íbúðin hans er smekkleg og er í betri helmingi bæjarins. Sam- keppnin við nágrannana hefur gengið nokkuð vel. Bíllinn hans er að vísu ekki af dýrari gerðinni en það stendur til bóta. Raunar stendur flest til bóta því Grand- var er þessa dagana að komast í samband við marga mikilsverð- ustu menn bæjarins. Sannleikur- inn er sá að hann er genginn í klúbb og er í óða önn að byggja upp náin persónuleg tengsl við alla helstu framámenn athafna- lífsins, — mælda í krónum. Grandvar er mjög ánægður með að hafa drifið sig í klúbbinn. Hann er í eðli sínu félagslyndur og hefur alltaf haft mikið dálæti á kröftugri félagsstarfsemi. Fundirnir hjá klúbbnum eru einu sinni í viku. Grandvar lætur sig aldrei vanta og gætir þess að vera ætíð stundvís. Hann vill nefnilega sýna þeim stóru að honum sé treystandi. En að fleiru þarf að hyggja. Grandvar veit að þessum stórmennum finnst lítið til hins hversdagslega gjaldkera koma enda ætlast hann ekki til þess af þeim. Þess í stað skrúfar hann á sig nýtt andlit, tekur upp nýtt göngulag, annað málfar og staðlaðar skoðanir áður en hann fer á hvern fund. Síðan svífur hann fullbúinn í salinn. Ekki sem Grandvar gjaldkeri, heldur sem hinn stífi, kurteisi en kaldrifjaði Grandvar fyrirmyndarmaður. Listgler Fegriö heimiliö meö LISTGLERI — blýlagt gler í ótal mynstrum og litum. Tilvaliö í svalahuröir, forstofuhuröir, útihuröir og alls konar giugga til skrauts og nytja. Vinnum gler eftir pöntunum með stuttum af- greiöslufresti. — Hringiö eöa komiö og kynniö ykkur liti, mynstur og verö. Gerum föst verötilboö. Athugið: Blýgler má tvöfalda í verksmiðju eöa setja fyrir innan tvöfalt gler. Nýjung: Úrval af fallegum Ijósakrónum meö blýlögöu LISTGLERI og hengimyndum. Listgler Smiöjuvegi, 7 Kópavogi (í húsi ÍSPAN). Sími 45133. MAY FAIR veggdúk Utsölustaöir: Byggingavörudeild KEA, Kaupfélag Skagfirðinga, Kaupfélag Þingeyinga, Húsavík. Hann hverfur fljótt í hópinn því fyrir eru eintómir stífir og stjarfir fyrirmyndarmenn, rétt eins og hann. í þessu samfélagi hrærist Grandvar allt kvöldið og byggir upp náin persónuleg kynni við öll mikilmennin. Annað hvort undir borðum eða við barinn. (Hann er einhvem daginn á því að hann er aðeins að taka þátt í svolitlum leiksýningum og engu öðru. E.t.v. áttar hann sig aldrei. En hvort skyldi nú vera ólán- legra, að blekkja náungann eða blekkja sjálfan sig? 20. október 1980. ómissandi þáttur í félagsstarfsemi af þessari gerð). Enginn segir vanhugsað orð. Allt er innan ákveðins ramma því enginn vill verða að athlægi, þ.e. sýna sitt rétta andlit. Undir þessum kringumstæðum kynnist Grand- var mörgum merkum manninum og er um leið, með sínu virðulega fasi og vaxborna andliti, einn af jöfrunum. Hann heldur sig meðal jafningja og honum líður vel. Hann gætir þess að hlæja á rétt- um stöðum, lurna á einum sjálfur og fara í einu og öllu að settum reglum. En allt tekur enda. Því miður. Þegar heim kemur þarf hann að skrúfa af sér andlitið, slappa af í öxlunum og breytast aftur í með- almanninn Grandvar. Manninn sem ropar, rekur við og klórar séi þar sem hann les blöpin með lappirnar upp á sófaborði. Manninn sem fátt veit skammar- legra en blekkingar í hverri mynd sem þær birtast. Og dálæti hans á klúbbnum eykst fremur en hitt. Viku eftir viku skiptir hann um andlit og mætir stundvíslega. Hann er sætt með sitt og finnst hann vera mun merkilegri en aðrir menn, — einu sinni í viku. E.t.v. áttar hann sig itauuusu Hafið þið heyrt um manninn sem dvaldi í níu ár á eyðieyju með þremur fallegum konum? Einu orðin sem hann kunni þegarhann fannst voru: „Úllen, dollen, doff... .“ Stjómmálamaður rangfærði og misnotaði staðreyndir í fram- boðsræðu. „Hann gengur af sannleikanum dauðum," sagði blaðamaður við starfsfélaga sinn. „Hafðu engar áhyggjur," sagði hinn, „hann kemst aldrei nógu nærri honum til að geta gert honum mein.“ Ef sorphreinsunarmennirnir okkar skyldu nú fara í verkfall getur verið gott að hafa eftir- farandi ráð í huga. Setjið ruslið í plastpoka. Pakkið síðan pokan- um inn í fallegan gjafapappír og látið í innkaupapoka, þó þannig að gjafapappírinn sjáist. Setjið pokann í framsætið á bílnum, akið á fjölfarinn stað og skiljið bílinn eftir með gluggann op- inn. Gangið frá og verslið eða gerið eitthvað annað gagnlegt og sjá: ruslapokinn er farinn þegar þið komið að bílnum aft- ur. DAGUR.15

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.