Dagur - 16.12.1980, Síða 10
Akureyrarkirkja. Messað kl. 5 á
sunnudag. Sálmar nr. 54, 51,
95, 69, 70. Börn flytja að-
ventuþátt með söng og jóla-
ljósum. Síðasta messa fyrir
jól. — Messað á Dvalar-
heimilinu Hlíð kl. 3.30.
Bamakór Akureyrar syngur.
Messur um hátíðarnar í
Valla- og Ólafsf jarðar-
prestaköllum
Aðfangadagskvöld kl. 6: Aftansöng-
ur í Dalvíkurkirkju.
Jóladagur kl. 2 e.h.: Ólafsfjarðar-
kirkja.
2. jóladag Kl. 13.30: Vallakirkja.
2. jóladag kl. 16.30: Tjarnarkirkja.
Nýársdagur kl. 13.30: Urðakirkja.
Nýársdagur kl. 16.30: Dalvikur-
kirkja. Sóknarprestur.
Tannlæknar. Neyðar-
vaktir um jól og ára-
mót:
24. des. kl. 11-12: Steinar Þor-
steinsson. 25. des. kl. 3-4: Þór-
unnarstræti 114. 26. des. kl. 3-4:
Glerárgata 20. 31. des. kl. 11-12:
Þórunnarstræti 114. 1 jan. kl.
3-4: Glerárgata 20.
fiiill/AtJltft
3AMKDMi5k-
Kristniboðshúsið Zíon: Hátíð-
arsamkomur. Jóladag kl.
20.30. Ræðumaður Jón Við-
ar Guðlaugsson. Og nýárs-
dag kl. 20.30. Ræðumaður
Reynir Hörgdal. Allir hjart-
anlega velkomnir.
Filadelfía Lundargötu 12,
Fimmtudag 18. Biblíulestur
kl. 20.30 Sunnudag 21.
sunnudagaskóli kl. 11 f.h.
Öll böm velkomin. Almenn
samkoma kl. 20.30, allir vel-
komnir.
St:. St:. 5981167 -1. Frl. H&V
□ RÚN 598012177 - 1 Frl.
□ RÚN 59801217-Jólaf.
Við óskum öllum sóknarbörn-
um okkar blessunarríkra
jóla og farsæls árs. I stað þess
að senda jólakort látum við
andvirði þeirra renna í
væntanlega Glerárkirkju.
Sóknarprestar og fjölskyld-
Hjálpræðisherinn — Jóla-
dagskrá: Sunnudag 21. des.
kl. 17 „Við syngjum jólin í
garð.“ Fjölbreyttur söngur.
Jóladag kl. 17 Hátíðarsam-
koma. Föstudag 26. des.
jólahátíð sunnudagaskólans,
kl. 13 fyrir níu ára og yngri,
kl. 16 fyrir tíu ára og eldri.
Laugardag 27. des. kl. 15
jólahátíð fyrir eldra fólk í
Alþýðuhúsinu. Kapteinn
Daníel Óskarsson og frú
Anne Gurine stjórna og tala.
Sunnudag 28. des. kl. 20.30.
norræn hátíð. Deildarstjóra-
hjónin taka þátt. Þriðjudag
30. des. kl. 15 jólafagnaður
fyrir börn, aðgangur ókeyp-
is. Nýársdag kl. 17 hátíðar-
samkoma. Allir hjartanlega
velkomnir.
Dalvík: Sunnudaginn 28. des.
kl. 16 verður jólasamkoma í
bíóinu. Kapteinn Daníel
Óskarsson og frú stjórna og
tala og herfólk frá Akureyri
tekur þátt. Mikill -söngur og
fl. Allir velkomnir. Hjálp-
ræðisherinn.
Hjálpræðisherinn.Sunnudaginn
21. des. kl. 13.30 sunnu-
dagaskóli fyrir börn. Kl. 17
verður almenn samkoma,
þar sem við syngjum jólin í
garð. Fjölbreyttur söngur.
Allir velkomnir.
Gullbrúðkaup áttu þann 13. des.
s.l. hjónin Ragna og
Guðmundur Frímann
Hamarstíg 14. Akureyri.
Gefin voru saman í hjónaband
sunnudaginn 14. des. brúð-
hjónin ungfrú María Jóns-
dóttir og Sigurjón Sigur-
björnsson. Heimili þeirra
verður í Skarðshlíð 16c. —
Hinn 6. des. voru gefin sam-
an í hjónaband í Akureyrar-
kirkju Hansína María Har-
aldsdóttir kjötiðnaðarmaður
og Gunnar Ásgeirsson
sjómaður. Heimili þeirra
verður að Ásvegi 21.
Várðlæknaþjónusta á
Akureyri 15. desem-
ber til 31. desember
1980:
15. des.: Inga Björnsdóttir. 16.
des.: Reynir Valdemarsson. 17.
des.: Erlendur Konráðsson. 18.
des.: Magnús Stefánsson. 19.
des.: Ölafur H. Oddsson. 20.
des.: Jens Magnússon. 21. des.:
Jens Magnússon. 22. des.:
Reynir Valdemarsson. 23. des.:
Erlendur Konráðsson. 24. des.:
Magnús Stefánsson. 25. des.:
Bragi Stefánsson. 26. des.: Nick
Cariglia. 27. des.: Inga Björns-
dóttir. 28. des.: Inga
Bjömsdóttir. 29. des.: Erlendur
Konráðsson. 30. des.R Magnús
Stefánsson. 31. des.: Ólafur H.
Oddsson.
— Jónína níræð ...
(Framhald af bls. 4).
félagsskap með ullarkömbum,
snældustól, prjónum og rokk mátti
sjá bækur af ýmislegu tagi, kannski
ekki örgrant að ljóða- eða smá-
sagnakver fyndist undir kodda-
homi, því drjúg mikið var lesið á
þessu heimili á vetrum og alla jafna
upphátt svo allir nytu. Því auðvitað
var vinnan fast sótt og reynt að búa
að heimafengnu eins og kostur var.
Með atorku og hagsýni vænkað-
ist hagurinn smátt og smátt enda
urðu ábýlisjarðirnar betri, Og þeg-
ar sonurinn óx úr grasi og gerðist
duglegur maður fór svo að í stað
fátæktar kom rúmur efnahagur
með gagnsömu búi, sem aldrei var
þó mjög stórt. En á þessu heimili
voru skepnur líka aldrei einvörð-
ungu metnar sem tæki til að græða
peninga heldur í lífheildinni, vinir
og félagar, sem alúð og nærgætni
bar að sýna, en veittu í staðinn
vissan unað og fullnægju.
Þeim hjónum varð tveggja barna
auðið. Dóttirin, Jónasína Þórey, vel
gefin stúlka, fél! ung að árum fyrir
sigð hvíta dauðans eftir langt veik-
indastríð, sem varð öllum aðstand-
endum þungbært, einkum þó
móðurinni. En með þeim mæðgum
var ástríki mikið. Sonurinn, Frið-
finnur Kristján, harðsækinn skarp-
leikamaður, aðstoðaði foreldrana
við búskapinn þegar aldur og
þroski vannst til, tók síðan við búi,
fyrst á Syðstu-Grund í Blönduhlíð,
síðar fluttist fjölskyldan að
Ytri-Brennihóli í Kræklingahlíð.
Þótt jafnan sé ógreið sýn langan
veg til baka og að mörgu að hyggja,
finnst mér Jónína hafa um margt
verið hamingjumanneskja. í
vöggugjöf hlaut hún góða greind,
trútt minni og heilsu, sem hefur
enst með ólíkindum allt til þessa
dags, góðhug samferðafólksins
hefur hún ævinlega átt enda vinföst
og traust. Öfgalaus trúkona hefur
Jónína alla stund verið. Og á
heimili þeirra hjóna áttu olnboga-
böm og gamalmenni ævinlega at-
hvarf. Foreldrar Jónínu d.völdu þar
í hárri elli og til síðustu stundar.
Svo var og um fleiri gamalmenni.
Ein mesta hamingja frænku
hygg ég vera barnabörnin tvö.
Sæmund og Þóreyju, og börn
þeirra, sem nú gera sér tíðförult til
langalangömmu í Brekkugötu 23 á
Akureyri. En þar dvelur Jónína nú
á heimili sonar síns og tengdadótt-
ur, Svanhildar Sæmundardóttur,
ágætrar konu, sem með glaðlyndi
sínu og framúrskarandi umhyggju-
semi hefur gert tengdamóðurinni
ellina svo léttbæra sem kostur er.
Enn gengur Jónína teinbein og ekki
eru með öllu á brott þær hvatlegu
hreyfingar, sem voru henni svo
eiginlegar hér áður fyrr. Þrátt fyrir
yfirlætisleysi ber hún í öllu lát-
bragði þá reisn, er einkennir þær
manneskjur sem bera höfðingjann
hið innra í sjálfum sér.
Ég sem þessar línur rita, hef
ævinlega verið dálítið stoltur af
þessari móðursystur. Með okkur
hefur ætíð verið frændsemi góð,
forn dyggð sem ógjarna ætti að
týnast. Eitt er það þó öðru fremur,
sem ég hef hálfpartin öfundað
frænku af. En það er ættvísin. Hún
vissi ótrúlega mikið um ættir og
veit reyndar enn, slær skussum eins
og mér auðveldlega við í því efni.
Skógarbærinn, Akureyri, finnst
mér ávallt hafa sérstakan
„sjarma" jafnt sumar sem vetur.
Og á þeim blessuðu jólum, sem nú
fara í hönd, veit ég að margir hugsa
hlýtt til afmælisbarnsins níræða að
Brekkugötu 23 á Akureyri. Ég
minnist með gleði og innilegu
þakklæti þeirrar móður- og systur-
legu hlýju, sem þú hefur ævinlega
sýnt mér, frænka, allt frá frum-
bemsku til þessa dags og sendi þér
hugheilar afmælis- og árnaðaróskir
frá mér, konu minni og dætrum.
Við vonum að ævikvöldið verði þér
bjart og biðjum þér blessunar Guðs
nú og í framtíð.
Guðmundur L. Friðfinnsson.
Faðir okkar
HJALTI GUÐMUNDSSON,
húsgagnasmiður,
lést í Knappschaflsspítalanum Bochum í Þýskalandi.
Jarðarförin hefur farið fram þÞýskalandi að ósk hins látna.
Sæunn og Sigríður Hjaltadætur.
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og jarðarför móður okkar tengdamóður og ömmu,
ÖNNU FRIÐRIKU FRIÐRIKSDÓTTUR.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
Útför konu minnar og móður okkar
GUÐRÚNAR HALLGRÍMSDÓTTUR
Hólsgerði 4
sem andaðist 13. des. s.l. fer fram frá Akureyrarkirkju föstudag-
inn 19. des. kl. 1.30.
Karl Emil Björnsson og börn hinnar látnu
30-40% afsláttur
Vegna breytinga á verslun okkar bjóðum við nokkrar eldhús-
innréttingar til afgreiðslu strax með 30-40% afslætti.
I 411 hff.
Glerárgötu 26
Bjóöum fullkomna viðgeröarþjónustu á sjón-
varpstækjum, útvarpstækjum, steríomögnur-
um, plötuspiíurum, segulbandstækjum, bíl-
tækjum, talstöðvum, fiskileitartækjum og sigl-
ingartækjum.
ísetning á bíltækjum.
sim, (96) 73676
MF
VERÐLÆKKUN!
Eigum nokkrar dráttarvélar til afgreiöslu á lækkuðu
verði:
Tilgreint verð miðast
við gengi 5/12 1980
Tegund:
MF 135 MP
MF 165 8
MF 165 MP
MF 185 MP
Núv. verð:
kr. 7.150.000
kr. 8.800.000
kr. 9.300.000
kr. 10.900.000
Lækkað verð:
Gkr. 5.950.000 Nýkr. 59.000
Gkr. 7.400.000 Nýkr. 74.000
Gkr. 7.900.000 Nýkr. 79.000
Gkr. 9.500.000 Nýkr. 95.000
Sölumenn okkar og kaupfélögin veita allar upplýsingar
MJÖG HAGSTÆÐ KJÖB JbtvódtiWivéJba/v A/
SUÐURLANDSBRAUT 32 • REYKJAVlK• SlMI 86500
10.DAGUR