Dagur - 17.02.1981, Síða 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
64. árgangur
Akureyri, þriðjudaginn 17. febrúar 1981
13. tölubiað
Fárviðri gekk
yf ir lancflið í gær-
kvöldi og nótt
Fárviðri af suðri gekk yfir landið
í gærkvöldi og í nótt. Mest var
veðrið á suðvesturhorni landsins
og þar varð tjón gífurlegt, eink-
um vegna þess að þök fuku og
rúður brotnuðu í húsum. Þá
munu talsverðar skemmdir hafa
orðið á bílum og menn komu
jafnvel að bílum sínum á hvolfi á
bílastæðum íbúðarhúsa í Kópa-
vogi í morgun, svo dæmi sé nefnt
um ástandið. Veðrið var mun
minna á austan- og norðanverðu
landinu, þó svo að þar hafi verið
mjög hvasst. Litlar skemmdir
urðu á Akureyri og í morgun var
ekki vitað um nema tjón á þaki í
Skarðshlíð og fok úr timbur-
porti KEA og smátjón á bíium
við Þórshamar vegna þess.
Það var um klukkan 19 í gær sem
fárviðrisspá barst almannavörnum
ríkisins og strax um klukkan 20
Jón Ingimars-
son látinn
Jón Ingimarsson, formaður
Iðju, félags verksmiðjufólks,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri aðfararnótt sunnu-
dags, 68 ára að aldri.
Hann var fæddur 6. febrúar
1913 á Akureyri. Hann starfaði
við ullarverksmiðjuna Gefjun
1934-1945, stundað verslunar-
störf í 3 ár og bifreiðastjórn í 5
ár. Hann varð starfsmaður
verkalýðsfélaganna á Akureyri
1953 og starfsmaður Iðju 1963.
Hann var formaður Iðju í 34 ár
og allt til dánardags og félagi
varð hann við stofnun 1936.
Jón var bæjarfulltrúi á Akur-
eyri 1962-1970, en hafði áður
verið varabæjarfulltrúi allt frá
1946. Hann tók mikinn þátt í
starfi Skákfélags Akureyrar og
var formaður þess í mörg ár og
heiðursfélagi. Hann starfaði
mikið með Leikfélagi Akureyr-
ar og var í ýmsum nefndum á
vegum bæjarins og verkalýðs-
félaganna. Eftirlifandi kona
Jóns er Gefn Jóhanna Geirdal.
hafði veðrið náð þeim styrkleika,
að kalla þyrfti út björgunarsveitir á
höfuðborgarsvæðinu og voru þær
að til klukkan 4 í nótt. Almanna-
varnarnefndir á hverjum stað
skipulögðu hjálparstarfið. Þegar
verst var á höfuðborgarsvæðinu
fauk þar allt lauslegt, enda fór
veðurhæðin í 102 hnúta. Vind-
stigaskalinn endar á 12 vindstigum
sem þýðir 64 hnútar eða meira.
Miklar rafmagnstruflanir urðu
um nær allt land vegna óveðursins
og sjónvarpssendingar féllu niður.
Álag á símakerfinu var gífurlegt.
Ekki eru öll kurl komin til grafar
varðandi tjón af óveðrinu, en sam-
kvæmt upplýsingum frá almanna-
vömum mun það vera gífurlegt,
einkum á suðvesturlaadi, en þar
urðu einnig meiðsli á fólki, sem
ekki munu þó hafa verið stórvægi-
leg.
I gær kom óvanalegur gestur til Akurcyrar. Þetta var
hrínganóri, sem fundist hafði í skipaskurði i Hollandi, ásamt
félaga sinum. Seiirnir voru teknir á land og þeim hjúkrað, en
báðir voru iila farnir vegna mengunar. Annar hringanórinn
drapst fljótlega þrátt fyrir góða umönnun. Hringanórarnir
höfðu villst, en heimkynni þeirra eru norðurhöf. Hringanór-
anum var ekið hcint úr flugvclinni norður á brautarenda og
þar var honum sleppt i sjóinn. Hann var ekki seinn á sér að
synda burt eftir að hann uppgötvaði að hann var kominn
heim. T.h. er hollenska konan sem hjúkraði selnum.
Vilja að vélar frá útlönd-
um lendi á Akureyri
— Upphaf áætlunarflugs beint frá
útlöndum til Akureyrar?
Forráðamenn Ferðaskrifstofu
Akureyrar hafa farið fram á það
við stjórnendur farskrárdeildar
Flugleiða að a.m.k. fjórar
flugvélar í áætlunarflugi komi
beint til Akureyrar í stað þess að
lenda á Keflavíkurflugvelli.
Ákvörðun hefur verið tekin um
eitt flugið, sem er í tengslum við
Nú er
kísilgúrinn
fyrst f luttur
suður
í mörg ár hefur Hafskip haldið
uppi beinum siglingum milli
Þýskalands og Húsavíkur, en frá
Húsavík hafa skip félagsins
flutt kísilgúr á markað í Þýska-
landi. Nú hafa Ríkisskip tekið
að sér að flytja kísilgúrinn til
Reykjavíkur, en þar er honum
skipað út i skip Hafskips h/f.
Samkvæmt upplýsingum sem
blaðið aflaði sér frá Húsavík ríkir
töluverð óánægja með þetta nýja
fyrirkomulag á Húsavík, því nú er
minni vinna við útskipun á kísil-
gúrnum og sagði heimildarmaður
blaðsins að heimamenn ættu erfitt
með að sjá hagræðið í því að flytja
kísilgúrinn út á land til Reykjavík-
ur.
ráðstefnu sem haldin verður á
Akureyri í júní, en enn hefur
ekki verið afráðið hvort verður
af hinum þremur. Kolbeinn
Sigurbjörnsson, hjá F.A., sagði
að ástæðan fyrir því að F.A.
legði á það áherslu að fá
vélarnar beint til Akureyrar væri
sú, að á vissum tímum á sumrin
væru öll hótel í Reykjavík
yfirfull á meðan væri nóg rými á
Akureyri.
Ef Flugleiðir taka þá ákvörðun
að hefja beint flug til Akureyrar má
með sanni segja að það marki viss
tímamót. í framtíðinni, t.d. þegar
lengingu flugbrautarinnar líkur, er
því ekkert til fyrirstöðu að hefja
beint áætlunarflug til Akureyrar
frá útlöndum.
„Á vissum árstímum fyllast öll
hótel í Reykjavík og af þessum
orsökum verður landsbyggðin af
ferðamönnum vegna þess að
flöskuháls myndaðist fyrir
sunnan," sagði Kolbeinn. „Við
fórum fram á það við Flugleiðir að
starfsmenn farskrárdeildar fyndu
út verstu flöskuhálsana í sumar og
bókuðu í vélar til Akureyrar á þeim
tímum. Svör liggja ekki fyrir hvort
þetta sé framkvæmanlegt. Það er
ekki vitað hvaða vélakostur verður
í notkun á Evrópuleiðum í sumar
og hvort hægt sé að koma þeim
vélum til Akureyrar."
í lok maí verður beint flug frá
Akureyri til Skotlands. Kolbeinn
sagði að unnið væri að skipulagi
ferðarinnar þessa dagana, en það er
næsta öruggt að vélin lendir líka
hér í stað þess að fara til Keflavíkur
eins og venja hefur verið um slík
flug.
Ólafsfjörður:
Fjárhagsáætlunin rædd í dag
Fjárhagsáætlun Ólafsfjarðar-
kaupstaðar verður tekin til fyrri
umræðu á bæjarstjórnarfundi í
dag. Gert er ráð fyrir að síðari
umræðan verði í fyrrihluta
næsta mánaðar.
Jón Friðriksson,
sagði að tekjur
bæjarstjóri,
væru áætlaðar
rúmar 7,4 milijónir, en í fyrra voru
tekjur samkvæmt áætlun tæpar 5
milljónir. Jón sagði að hækkunin
næmí 56%. /Etluð útsvör eru á áætl-
un rúmar 4 milljónir, en voru 2,7
milljónir í fyrra. Heildarútgjöld
Ólafsfjarðarkaupstaðar eru áætluð
röskar 11 milljónir króna á þessu
ári.
GAGNLEG RÁÐSTEFNA
„Á þcssari ráðstefnu kom fram hve
geysilega miklir möguleikar eru á
ýmiskonar framleiðslu og atvinnu í
strjálbýli og á minni stöðum,“ sagði
Stefán Valgeirsson alþingismaður
um ráðstefnu um landbúnaðarmál,
sem haldin var í Reykjavík um síð-
ustu helgi á vegum Framsóknar-
flokksins. Á ráðstefnunni voru flutt
15 framsöguerindi. Um 100 manns
sótti ráðstefnuna.
Stefán sagði að það væri Ijóst að
af ráðstefnu sem þessari væri mikill
ávinningur. Fjöldi fólks víðsvegar
að af landinu hefði komið saman
og borið saman bækur sínar með
góðum árangri. „Það er staðreynd
að það er samdráttur í hinum
hefðbundnu búgreinum, en það er
líka jafn ljóst að ef rétt er haldið á
málum að það er liægt að halda
landinu í byggð. Sú var niðurstaða
ráðstefnunnar að möguleikarnir
eru miklir á mörgurn sviðum og
ekki síst í loðdýrarækt, fiskeldi og
ýmiskonar iðnaði," sagði Stefán að
lokum.
AUGLÝSINGAR OG ÁSKRIFT: 24167 - RITSTJÓRN: 24166 OG 23207
M>Tid:áþ.