Dagur - 17.02.1981, Side 3
25566
Á söluskrá:
Hrísalundur:
Mjög falleg tveggja herb.
íbúð ca. 56 fm. Laus 1. maí.
Hjallaiundur:
Tveggja herb. íbúð ca. 55
fm. í mjög góðu standi.
Laus 1. júní.
Víðiiundur:
Mjög falleg tveggja herb.
íbúð rúmlega 60 fm. Laus
1. júní.
Keilusíða:
Tveggja herb. íbúð ca. 60
fm. Ekki alveg fullgerð.
Laus strax.
Hrísalundur:
Þriggja herb. íbúð ca. 75
fm. Þvottahús á hæðinnl.
Þarfnast viðhalds.
Skarðshlíð:
Þriggja herb. íbúð í fjölbýl-
Ishúsl.
Furulundur:
Lítil þriggja herbergja fbúð
ca. 56 fm. á efri hæð f
tveggja hæða raðhúsi.
Laus strax.
Hafnarstrætl:
Fjögurra herbergja fbúð ca.
90 fm. á neðstu hæð í timb-
urhúsl.
Hvannavellir:
Fjögurra herb. hæð í tvíbýl-
ishúsi ca. 130 fm.
Grenlvellir:
Fimm herb. efri hæð og ris
í parhúsl. Samt. ca 140 fm.
Bflskúrsréttur.
Gránufélagsgata:
Einbýlishús ca. 90 fm. Bfl-
skúr.
Aðalstræti:
Húselgn á tveimur hæðum.
Steinhús f góðu ástandi. Á
efri hæð 4-5 herb. íbúð,
sömuleiðls á neðrl hæð.
Mikið og gott pláss í kjall-
ara. Ákjósanlegt fyrir tvo
samhentaaðila.
Vegna mikiilar sölu undan-
farið vantar okkur allar
stærðir og gerðir eigna á
skrá. Höfum kaupendur að:
Einbýlishúsum, nýjum og
gömlum, raðhúsum með og
án bftskúrs, góðri sérhæð á
Brekkunni og fl.
nSIÐGNA&IJ
SKHMSALA^p
Breytt heimilisfang:
Nú - Hafnarstræti 99-101
Amaróhúslnu 2. hæð.
Benedlkt Ólafsson hdl.
Söiustjórl, Pétur Jósefsson,
er við á skrifstofunni alia
virka daga, kl. 16.30-18.30.
Kvöld- og helgarsími
24485.
Verður barn þitt heyrnar-
skert eftir næsta öskudag?
Tveir læknar, þeir Ólafur H.
Oddsson, héraðslæknir, og
Eiríkur Sveinsson, sérfræðingur
í háls-, nef- og eyrnasjúkdóm-
um, ásamt hjúkrunarforstjóra
Heilsuverndarstöðvar Akureyr-
ar og skólahjúkrunarfræðingum
Oddeyrarskóla, Glerárskóla,
Lundarskóla, Barnaskóla Akur-
eyrar og Gagnfræðaskóla Akur-
eyrar, hafa sent frá sér aðvörun
vegna hættu á heyrnarskemmd-
um á öskudaginn og hljóðar hún
svo:
Á undanförnum árum hefur það
færst í vöxt við hátíðahöld ösku-
dagsins hér á Akureyri að notuð
séu hávaðasöm leiktæki svo sem
hvellbyssur, hurðarsprengjur o.fl.
Okkur er í fersku minni öskudag-
urinn í fyrra, en þá má heita að
skothvellir hafi dunið allan daginn
í eyrum þeirra sem lögðu leið sína
inn miðbæinn.
Rétt er að benda á, að ef hleypt
er af hvellbyssu nálægt eyra getur
orðið um varanlegt tjón á heyrn að
ræða hjá þeim, sem fyrir þessu'
verður. Reynsla annarra þjóða af
hávaðasömum hátíðahöldum stað-
festir þetta.
Það skal endurtekið, að ef heyrn
hefur einu sinni skaddast af há-
vaða, er aldrei hægt að bæta hana
aftur.
Við skorum á foreldra að brýna
fyrir börnum sínum hættuna sem
þessu er samfara. Við skulum sam-
einast um að gera þennan öskudag
að slysalausum og ánægjulegum
hátíðisdegi barna.
Hrossakjöt
til Noregs
Búvörudeild hefur nýgengið
frá sölu á 60 tonnum af frystu
hrossa- og folaldakjöti til
Noregs. Verður kjötið af-
greitt nú í febrúar, en kaup-
andi er Norges Kjött- og
Fleskecentral, sem notar það
í pylsuframleiðslu.
I haust sem leið seldi Bú-
vörudeild 180 tonn af hrossa-
kjöti til Noregs, sem likaði ntjög
vel. Verðið núna er um 30%
hærra en þá var, og nemur það
70-80% af innanlandsverði hér.
Norðmennirnir vildu kaupa
rneira kjöt af okkur en sem
nernur þessu magni, en það
reyndist hins vegar ekki fáan-
legt hérlendis.
Dansað
í Mývatns-
sveit
Dansnámskeið stendur nú yfir í
Mývatnssveit á vegum Dans-
skóla Sigvalda og hjóna- og
paraklúbbs, sem starfað hefur af
krafti í vetur. Bæði börnum og
fullorðnum er kennt og er þátt-
taka mikil.
Frá öskudeginum í fyrra.
Barnastúkurnar á Akureyri og við Eyjaf jörð:
Nýkomið
HAFNARSTR. 91-95 - AKUREYRI - SlMI (96) 21400
Þróttmikið starf
stökteppi 100% ull teppahreinsarar,
teppashampo, amerísk teppi frá
World Carpets ensk teppi, ofnir
gólfdreglar.
Kókos mottur. Væntanlegt næstu
daga gólfplast.
Sérlega fallegar blússur (fínar)
Pils
Síðar peysur (eigum von á sokkabuxum)
Samfestingar.
Buxur í reiðbuxnasniði.
Hné buxur.
Velúr peysur á dömur og herra.
Töskur og veski í úrvali:
Kínversku „rníní"
feróatöskurnar
margeftirspurðu
komnar aftur, einnig Pólsku
svísleðurs töskurnar.
jj; Reiknaðu með Chaplín.
Um helgina komu rösklega
hundrað börn úr þremur barna-
stúkum við Eyjafjörð saman á
Akureyri. Barnastúkurnar á
Dalvík og í Hrísey voru þar í
heimsókn hjá Barnastúkunni
Sakleysi.
Heimafólkið annaðist móttöku í
félagsmiðstöðinni í Lundarskóla,
þar sem Barnastúkan Sakleysi hef-
ur aðstöðu. Þar var m.a. sýnt leikrit
sem börnin gerðu sjálf auk annarra
skemmtiatriða. Einnig var haldinn
sameiginlegur stúkufundur. Að
lokinni móttökuhátíðinni var farið
í Borgarbíó þar sem fyrirtæki
IOGT buðu börnunum veitingar,
Allskonar skartmunir t.d.
indjána hárskraut, háls-
men og fleira.
Skipagötu 5
sími22150
aðkomustúkurnar sýndu leiki og að
lokum var sýnd kvikmynd. Tókst
þessi heimsókn í alla staði mjög vel.
Að sögn Sveins Kristjánssonar,
æðstatemplars í stúkunni ísafold
nr. 1, sem hefur haft umsjón með
starfi barnastúkunnar Sakleysi,
verður vormót allra stúkanna við
Eyjafjörð haldið I vor, en þær eru 8
talsins og í þeim eru um 300 börn.
Mótið verður haldið á Laugalandi í
Þelamörk, eins og undanfarin ár.
Sveinn sagði að barnastarfið
hefði verið með ágætum á Akureyri
undanfarið og má raunar segja að
Akureyri sé að verða nokkur und-
antekning hvað þetta varðar. Þar
eru nú þrjár barnastúkur, sem þrjár
stúkur fullorðinna annast. Aðeins
tvær barnastúkur eru í Reykjavík,
Stórstúkan í Reykjavík heldur uppi
bamastarfi fyrir austan fjall, engin
bamastúka er á Austfjörðum og ein
á Vestfjörðum.
Sveinn sagðist hafa orðið var við
það, að hljómgrunnur fyrir bind-
indi hafi farið vaxandi á síðustu
árum.
Hestar verða teknir í tamningu
í Nesi í Aóaldal frá I. mars n.k.
Tamningamaður er Vignir Siguaílason.
Upplýsingar eru gefnar í síma 96-43566.
Sleðamenn - Sleöamenn!
Flugbjörgunarsveitin á Akureyri fyrirhugar að
halda vélsleðakeppni þegar snjóalög leyfa.
Væntanlegir þátttakendur hafi samband við
F.B.S.A. mánudagskvöldið 23. febrúar í síma 21023
milli kl. 8,30 og 10.
FLUGBJÖRGUNARSVEITIN, AKUREYRI.
DAGUR.3