Dagur - 17.02.1981, Side 7
Sjúkrabað afhent forstöðumanni Sólborgar, Bjarna Kristjánssyni, þann 9. des. 1980.
Lionsklúbbur Akureyrar:
Selja konudagsblóm til
styrktar þroskaheftum
Aldarfjórðungur er liðinn nú á
ári fatlaðra frá stofnun Lions-
klúbbs Akureyrar. Á þessum
merku tímamótum í sögu klúbbs
okkar kunnum við félagar hans
Akureyringum þakkir fyrir ein-
lægan og örlátan stuðning við
málefni klúbbsins.
Miklar og örar breytingar hafa
orðið með íslensku þjóðinni þenn-
an síðasta aldarfjórðung. Margar
hafa breytingar þessar orðið til
bóta, en oft hefur þó hlutur lítil-
magnans viljað gleymast í hinu
véivæna, streituríka lífi nútímans.
Það er mikilvægasta markmið og
hlutverk Lionshreyfingarinnar að
standa vörð um réttindi þeirra, er
lítils mega sín, og beina athygli
samborgaranna á þörf þeirra fyrir
hjálp.
í ár sem svo mörg undanfarin ár
munum við félagar Lionsklúbbs
Akureyrar hefja á loft baráttufána
fatlaðra. Við minnum á að
einstaklingar þeir, sem þroskaheftir
í heim okkar fæðast, eru fatlaðir í
orðsins fyllstu merkingu og þarfn-
ast hjálpar okkar samborgara
þeirra. Skilnings okkar á þörfum
þeirra þarfnast þeir, en ekki með-
aumkunar.
Á hinum merka degi konunnar,
sem í ár fellur á sunnudaginn 22.
febrúar, munum við Lionsfélagar í
Lionsklúbbi Akureyrar, knýja á dyr
Akureyrar, árla morguns að vanda,
og bjóða fram blómavönd kon-
unnar. Allur ágóðinn af sölu þess-
ara blómavanda mun í ár sem fyrr
renna til Sólborgar, heimilis
þroskaheftra.
Málefni fatlaðra hafa löngum
verið eitt aðalbaráttumál Lions-
hreyfingarinnar á íslandi og því
líka Lionsklúbbs Akureyrar. Á síð-
asta ári söfnuðust af sölu konu-
dagsblóma hátt á aðra milljón
gamálla króna, sem allar runnu til
kaupa á sérhönnuðu sjúkrabaði
fyrir vistmenn Sólborgar. Var bað
þetta afhent starfsliði Sólborgar-
heimilisins þann 9. des. 1980.
Við höfum vakið hér sérstaka
athygli á þörfum þroskaheftra. Þó
megum við ekki gleyma þörfum
annara samfélagshópa, sem fatlaða
eiga innan sinna vébanda. Einn er
sá hópur fólks, sem sjaldan er
nefndur í þessu sambandi og býsna
oft gleymist. Það er hópur sjón- og
heymarskertra sjúklinga, sem
liggja á sjúkrahúsum landsins.
Gjarna er hér um aldraða að ræða,
sem að baki eiga langa starfsævi i
þágu lands og þjóðar. Lionsklúbbi
Akureyrar barst beiðni um aðstoð
við sjónskerta sjúklinga rétt fyrir
síðustu jól frá Fjórðungssjúkrahús-
inu á Akureyri. Afrakstur af fjöl-
skyldubingói Linonsklúbbs Akur-
eyrar í haust var því notaður til þess
að kaupa „kassettu“tæki, er notað
skyldi til að spila upplesið efni,
kvæði og sögur, fyrir sjónskerta
sjúklinga á F.S.A.
Við þökkum Akureyringum enn
á ný fyrir stuðning þeirra á liðnum
árum og hvetjum þá til þess að taka
vel á móti Lionsfélögum á konu-
daginn 22. febr. n.k. til stuðnings
málstað þroskaheftra.
Akureyringar, kaupið allir
konudagsblóm.
Framkvæmdastjóra Fjórðungssjúkrahússins á Akurcyri, Ásgeiri Höskuldssyni, og
hjúkrunarforstjóra þcss, Ragnheiði Árnadóttur, afhent „kassettu“-tæki fyrir heyrn-
arskerta þann 18. des. 1980.
— Barnaleikrit
á Grenivík ...
(Framhald af bls. 8).
Helgadóttir, Hólmfríður Firð-
björnsdóttir, Hólmfríður Her-
mannsdóttir, Ingibjörg Gunnars-
dóttir, Linda Hrönn Helgadóttir,
Magnús Baldursson, Matthildur
Þórhallsdóttir, Sigríður Jóhanns-
dóttir og Valgerður Sverrisdóttir.
Margrét Baldursdóttir og Árni
Helgason sjá um búninga og sviðs-
mynd, en Árni er jafnframt fram-
kvæmdastjóri sýningarinnar.
Frumsýning verður á Grenivík
21. febrúar og önnur sýning daginn
eftir, sunnudaginn 22. febrúar.
Upplýsingar um sýningar og
miðapantanir eru í sína 33118.
Albvðuflokks fölk
á Akureyri og nágrenni
Miðar á árshátíðina verða seidir að Strandgötu 9 fimmtudagskvöldið 19 febrúar frá kl. 8-10. Pantanir í síma 24399 og 23083.
NEFNDIN.
AUGLÝSIÐ f DEGI AUGLÝSIÐ í DEGI
Atvinna
Duglegan reglusaman mann vantar til starfa á hrá-
efnislager.
Helst vanan meðferð síldartunna.
Framtíðaratvinna.
Upplýsingar gefur Jón M. Jónsson, verkstjóri.
Niðursuðuverksmiðja K. Jónsson & Co h.f.
Herstöðvaandstæð-
ingar
Nú er mjög áríðandi að við hittumst næstkomandi
miðvikudagskvöld kl. 8.30 í Einingarhúsinu, Þing-
vallastræti 14.
— Rætt verður um aðgerðir 30. mars.
— Stutt spjall um utanríkisstefnu Regans.
— Afleiðingar nifteindasprengjunnar
— Spjallað yfir kaffibolla —
Öflugt starf ræðst af þátttöku ykkar.
Nýir félagar velkomnir.
Samtök herstöðvaandstæðinga Akureyri.
íbúðir
tilbúnar undir tréverk
Eigum óseldar íbúðir ífjölbýlishúsi að Melasíðu 10.
Ein íbúð 4ra herbergja 113,10 ferm. brúttó
Ein íbúð 3ja herbergja 103,60 ferm. brúttó
Ein íbúð 2ja herbergja 79,60 ferm. brúttó.
Teikningar og allar upplýsingar liggja frammi á
skrifstofu okkar.
Kaupangi
v/Mýraveg, sími 21234.
BVGGINGAVERKTAKAR
.....—1
__ ^ miCmSmi T BLir j
■ ■———1-----———
Ibúð til sölu
Til sölu er íbúðin Skarðshlíð 24b.
íbúðin er fjögurra herbergja á 2. hæó ífjölbýlishúsi,
byggðu á vegum stjórnar verkamannabústaða og
selst hún á matsverði, miðaó við gildandi bygg-
ingavísitölu.
Umsóknareyðublöð fást afhent á bæjarskrifstof-
unni Geislagötu 9.
Umsóknir sendist undirrituðum fyrir 28. febrúar
næstk.
Akureyri, 12. febrúar 1981.
Bæjarstjóri.
Holl
morgunfæða
Alpen í pk.
Weetabex í pk.
Coop í swiss-style í pk.
Hafrafras í pk.
DAGUR.7