Dagur - 17.02.1981, Side 8
BAGUIR Pakkningaefni simi 96-22700 Cp i
Akureyri, þriðjudaginn 17. febrúar korkur og skinn Skl ~
■BH
Langþráður draumur rættist
G.A. fékk flygil, sem tekinn var í notkun í sl. viku
Á æfingu.
Fjölmenna til Vásterás
Næsta sumar verður haldið
vinabæjarmót í íþróttum í
Vasterás fyrir unglinga á
aidrinum 12 til 14 ára. Akur-
eyringar hafa verið með í þess-
um mótum síðustu fimm skipt-
in, sem þau hafa verið haldin og
hefur íþróttabandalag Akur-
eyrar annast þau fyrir hönd
bæjarins, en bærinn lagt fram fé
til þeirra.
Talið er að alls muni fara 30
þátttakendur frá Akureyri til
þessa móts í sumar og áætlaður
kostnaður er 9 milljónir króna.
tæki langan tíma vegna hinnar
eldspúandi óvættar, verðbólgunn-
ar, sem olli því, að jafnan fjar-
lægðumst við hljóðfærakaupin, þó
að sífellt væri reynt að öngla saman
fé til þeirra," sagði Sverrir Pálsson.
Síðar í ávarpi sínu gat Sverrir
þess að Jón Hlöðver Áskelsson
hefði komist að því að til sölu var
mjög vandaður flygill af Bhiithner
gerð væri til sölu í Þýzkalandi.
Kaupin voru ákveðin í skyndi í
október s.l. og hingað til lands kom
hljóðfærið fyrir skömmu. Sverrir
sagði að ekki hefði runnið króna í
kaupin af rekstrafé skólans —
flygillinn væri eingöngu keyptur
fyrir söfnunar og gjafafé. Af ein-
stökum gjöfum mé nefna að bæj-
arstjórn Akureyrar gaf skólanum
15 þús. nýkr. á afmæli hans á s.l. ári
og minningarsjóður Sveins Eiríks-
sonar rann einnig til kaupanna.
Afmælisárgangar hafa oft lagt
myndarlegar peningagjafir í hljóð-
færasjóð G.A., sem var varið til
kaupanna á flyglinum.
Grenivík:
Barnaleikrit
frumsýnt á
laugardaginn
Hjá Leikfélaginu Vöku í Grýtu-
bakkahreppi standa nú yfir æf-
ingar á barnaieikritinu Vatns-
berunum eftir Herdísi Egils-
dóttur og þáttum úr Óvitunum
eftir Guðrúnu Helgadóttur.
Leikstjóri er Guðrún Alfreðs-
dóttir.
Þetta er 6. verkefni Leikfélagsins
Vöku en félagið var stofnað árið
1976. Sú hugmynd að sýna barna-
leikrit hefur nokkrum sinnum
komið upp hjá félaginu, en af
framkvæmdum hefur ekki orðið
fyrr en nú. Reyndar hittist vel á því
að önnur barnaleikrit eru ekki á
döfinni hér norðan fjalla svo vitað
sé.
Ástæða til þess að Vatnsberarnir
urðu fyrir valinu er m.a. sú að nú er
ár fatlaðra, en þetta leikrit fjallar
einmitt um það að vera öðruvísi en
aðrir.
Óvitana er óþarfi að kynna þar
sem nýlókið er að sýna þá í
Þjóðleikhúsinu. Sérstakt við það
leikrit er að þar leika böm full-
orðna og fullorðnir börn.
Þeir sem taka þátt í sýningunni
eru: Anna Margrét Hermannsdótt-
ir, Björn Ingólfsson, Bryndís Bald-
ursdóttir, Grétar Guðmundsson,
Guðni Hermannsson, Hjördís
(Framhald á bls. 7).
Voru sárir
í lófunum
Á fimmtudag í síðustu viku var
nýr flygill tekinn í notkun í
Gagnfræðaskóla Akureyrar.
Nemendur og kennarar ásamt
ýmsum gestum komu saman á
sal skólans, en þar flutti Sverrir
Pálsson skólastjóri ávarp og þau
Arnbildur Valgarðsdóttir nem-
andi skólans, og tónlistarmað-
urínn Martin Berkovsky léku á
flygilinn.
„Langt er nú um liðið síðan
hugmyndin um öflun vandaðs
flygils til skólans okkar fæddist.
Enginn man lengur, hver fyrstur
bar hana fram, enda skiptir það
minnstu máli. Þó mun það mála
sannast, að nafn Áskels Jónssonar,
fyrrum tónlistarkennara og yfir-
kennara skólans, muni jafnan
tengjast henni. Hitt skiptir meira
máli, 'að allir hafa verið samtaka
um að framkvæma hana þó að það
— þegar sýningu á
Skáld-Rósu iauk
Berkofsky við hljóðfærið. Mynd: GS.
Unglingar f fjallinu um siðustu helgi. Mynd: H.Sv.
Hlíðarfjall:
Stólalyftan stórskemmd
ist í fárviðrinu í nótt
Stólalyftan í Hlíðarfjalli
stórskemmdist í nótt og er
tjónið tilfinnanlegt. Hún
fauk af öllum möstrum og
eru sumir stólarnir mjög
illa farnir.
Skoðun og viðgerð hófst
strax eftir hádegi í dag og að
sögn ívars Sigmundssonar
gæti lyftan komist í gang um
helgina, þó svo að nokkra
stóla kunni að vanta til að
byrja með.
Ákveðið hafði verið að
stólalyftan yrði opin tvö
kvöld í viku, í fyrsta sinn í
kvöld, en af því getur ekki
orðið í bráð af fyrrgreindum
ástæðum.
Frumsýningargestir hjá Leik-
félagi Akureyrar voru margir
sárir í lófunum þegar þeir gengu
út af frumsýningu á Skáld-Rósu
eftir Birgi Sigurðsson í leik-
stjórn Jill Brooke Árnason á
fimmtudagskvöld. Leikhúsgestir
fögnuðu ákaft í lok sýningar og
var það mál manna að mjög vel
hefði til tekist, sem lofaði góðu
um framhaldið.
Fullt var á frumsýningunni, sem
stóð frá klukkan 20.30 til um kl.
23.30 með hléi. Þrátt fyrir langa
sýningu ætti engum að leiðast, því
verkið er mjög spennandi og leikur
kröftugur. Tilsvör eru oft á tíðum
bráðfyndin og njóta þau sín vel í
uppfærslu L.A.
1 leiksjok voru leikendum, leik-
stjóra og höfundi fagnað lengi og
vel. Önnur sýning var svo á laug-
ardag og þriðja sýning á sunnudag.
Næstu sýningar verða á fimmtu-
dag, föstudag og sunnudag. Nánar
er fjallað um Skáld-Rósu í opnu.
Legugjöld fyrir
smábáta ákveðin
Hafnarstjóm hefur samþykkt að
legufæragjöld smábáta fyrir þetta
ár verði kr. 500,00. Hafnarstjórn
hefur einnig samþykkt að selja Út-
gerðarfélagi Akureyringa h.f.
Svavarshús fyrir kr. 80.000,00.
0 Árekstrar
í Kjarna
Útivist fer nú sífellt í aukana.
Hestamennska er vinsælt
sport og útreiðartúrar al-
gengir sumar sem vetur.
Skíðaíþróttin er sívinsæl og
skfðaganga hefur unnið mjög
á að undanförnu, ekki hvað
síst með tilkomu skfða-
göngubrautarinnar f Kjarna.
Á útivistarsvæðinu í Kjarna
geta menn líka farið í útreið-
artúra, en það fór heldur bet-
ur í taugarnar á einum
áhugasömum skíðagöngu-
manni, þegar hann varð þess
var um síðustu helgi, að
göngubrautin var nánast ónýt
eftir traðk hesta. Höfðu
hestamenn ekki látið sér
nægja að ríða eftir veginum
heldur gjöreyðllagt göngu-
brautina, fjölda manns til
mikils ama. Er vonandi að
mönnum takist að stunda
þessar göfugu íþróttir
árekstralaust í framtíðinni.
0 Heita vatnið
Heita vatnið sem kemur úr
krönum bæjarbúa ætiar að
verða þeim umræðuefni um
langa framtíð. Um daginn
skýrði DAGUR frá því að heita
vatnið væri ágætt neysluvatn,
samkvæmt könnun heil-
birgðisyfirvalda. Þessu vilja
sumir ekki una og hafa harð-
lega mótmælt niðurstöðunni
og til handa þeim hinum
sömu er ekki til nema eitt ráð:
drekka ekki heita vatnið.
0 Blönduvirkjun
Sagan segir að það sé nokk-
uð sama að hvaða niðurstöðu
menn komast í sambandi við
Blönduvirkjun. Svo sé búið
að ganga frá hnútunum að
Fljótsdalsvirkjun verði alltaf
hagkvæmari þegar upp sé
staðið — nema að Blöndu-
virkjun verði samþykkt eins
og RARIK vildi hafa hana í
upphafi.
0 Jólaskraut
Fyrir jól var verið að fjarg-
viðrast út af því í þessum
þætti að jólaskrautið kæmi
seint upp. Sú kvörtun átti við
rök að styðjast, en skömmu
fyrir jól kom það þó. Nú er
kominn miður febrúar og
.....enn hangir skrautið
uppi í Skipagötu! Eflaust hef-
ur það verið mikið verk og
erfitt að hengja Ijósaseríuna
upp og máski eru þeir sem
það gerðu enn svo örmagna
að þeir hafi hugsað sér að
láta seríuna hanga fram að
næstu jólum. i því tileflii væri
rétt að benda viðkomandi á,
að bæjarbúum þætti eflaust
gaman ef tendrað væri stöku
sinnum á Ijósunum.