Dagur - 12.03.1981, Blaðsíða 6
Glæsileg ferðagetraun:
Ferð fyrir tvo tíl
Búlgaríu með
Ferðaskrifstofu
Kjartans
Helgasonar
Eins og greint var frá í síðasta blaði hefur DAGUR í
samvinnu við Ferðaskrifstofu Kjartans Helgasonar
og fleiri aðila efnt til stórglæsilegrar ferðagetraunar
fyrir lesendur DAGS. Getraunin er í tveimur hlutum
og hér birtist fyrri hluti. Vinningurinn er ferð fyrir tvo
til Búlgaríu, þar sem dvalist verður í þrjár vikur á
Grand Hotel Varna, sem er á strönd Svartahafs.
Vinningshafi á þess kost að fara á tímabilinu frá 25.
maí til 14. september. Innifalið er hálft fæði.
Reglur getraunarinnar eru einfaldar. Svör við
spurningum á að skrifa aftan við þær og ekki á að
senda svörin sitt í hvoru lagi heldur í einu umslagi.
Svör verða þá og því aðeins tekin gild ef þau eru
skrifuð á úrklippuna úr DEGI.
SPURNINGAR UM
BÚLGARÍU — FYRRIHLUTI
1. Hvað eru mörg ár frá stofnun búlgarska ríkisins?
2. Hvort er stærra land — ísland eða Búlgaría?
3. Hvað eru íbúar Búlgaríu margir?----------------
4. Hvaða tungumál tala Búlgarar?------------------
5. Hvaða letur nota Búlgarar? Latneskt? Kyrelliskt?
6. Við hvaða haf stendur Búlgaría? --------
7. Liggur Búlgaría að Dóná?----------------
8. Hvað heitir flugfélagið þeirra? --------
9. Hvað heitir aðalferðaskrifstofan þeirra?
10. Hvað heitir gjaldmiðillinn þeirra? ------------------
SEINNI HLUTI GETRAUNARINNAR
BIRTIST ÞRIÐJUDAGINN 17. MARS
LAUSNIRNAR EIGA AÐ FYLGJAST AÐ.
I
Þegar að því kemur, á að senda á svörin (báða mið-
ana) á eftirfarandi heimilisfang:
DAGUR (Getraun KH)
Tryggvabraut 12
602 Akureyri
Svörin þurfa að hafa borist fyrir 7. apríl n.k.
P.S. Það sakar ekki að hafa hækling frá Ferðaskrífstofu Kjartans Helgasonar við hendina
þegar spumingum cr svarað. Á Akurcyri er hægt að fá þá hjá gullsmiðunum Sigtryggi og
Pétri f Brekkugötu og að sjálfsögðu mun fcrðaskrifstofan senda þá hverjum sem hafa vill.
Nafn, heimili og simi sendanda: --------------------------
Möðruvallaklaustursprestakall.
Bamaguðsþjónusta í
Möðruvallakirkju n.k.
sunnudag 15. mars kl. 11 f.h.
Sóknarprestur.
Kökubasar verður í Kristni-
bosðhúsinu Zion laugardag-
inn 14. mars n.k. kl. 4.00 e.h.
K.F.U.K.
I.O.O.F. —162318 ‘/2
□ RÚN 59813137 = 2
I.O.G.T. Stúkan Brynja nr. 99.
Fundur að Hótel Varðborg
mánudaginn 16. mars kl.
20.30. Kaffiveitingar —
bingo að loknum fundi. Æ.t.
Lionsklúbbur Akureyrar. 25 ára
afmælishófið föstudag 13.
mars kl. 7.30.
Borgarbíó sýnir í kvöld kl. 9
myndina Bullitt með Steve
McQueen í aðalhlutverki.
Þetta er ein besta mynd hans
og er hún nú endursýnd með
nýrri kópíu. Johny Ross
hefur svikið bófasamtök um
milljónir og er nú á flótta
undan þeim og bróður sín-
:. a.
um sem falið hefur verið að
myrða hann. Er hann kemur
til San Francisco er Bullitt
varðstjóra falið að gæta
hans. Tveim bófum tekst
hins vegar að skjóta hann.
Bullitt hefur nú leit að
morðingjunum. Sýningum
er að ljúka og næsta mynd
kl. 9 verður Moment by
Moment með John Travolta
í aðalhlutverki. Tisha Raxl-
ings, leið og vonsvikin eig-
inkona í Bevery Hills og
móðir er að reyna að fá
svefnpillur án lyfseðils í
lyfjabúð. Ungur slæpingi
Strip, truflar samtal hennar
við lyfsalann. Hann er að
leita að vini sínum, Greggí,
sem lyfsalinn hefur rekið úr
vinnu. Kl. 11 sýnir bíóið
hrollvekjuna Manitou —
andinn ógurlegi.
Nýja bíó sýnir í kvöld kl. 9
myndina Flakkaramir, en
sýningum á henni fer nú að
ljúka. Næsta mynd er
Köngulóarmaðurinn birtist
á ný. Peter Parker er
háskólanemi í eðlisfræði.
Honum og öðrum nemend-
um til mikillar skelfingar
tilkynnir kennari þeirra, Dr.
Baylor, að 5 kíló af plútóní-
um hafi verið flutt í til-
raunastofu háskólans. Ætl-
unin er að smíða þar
kjamaofn, sem framleiðir
ódýra kjarnaorku, öllu
mannkyninu til góða. Gail
Hauffman er fréttaritari fyr-
ir vikublaðið Rannsókn. Yf-
irmaður hennar sendir hana
til New York. Hún á að ná
viðtali við Köngulóarmann-
inn. Peter Parker starfar
einnig sem ljósmyndari fyrir
Gjallarhornið. Honum hef-
ur oft tekist að ná myndum
af Köngulóarmanninum.
Minningarspjöld kvenfélagsins
Hlífar fást í bókabúðinni
Huld, í símaafgreiðslu
sjúkrahússins og hjá Lauf-
eyju Sigurðardóttur Hlíðar-
götu 3, Allur ágóði rennur til
bamadeildar F.S.A.
Útför föður okkar og tengdaföður,
EIÐS SIGURÐSSONAR,
fyrrverandi bónda á Ingvörum,
er lést 5. mars s.l. fer fram frá Dalvíkurkirkju laugardaginn
14. mars klukkan 13.30. Jarðsett verður frá Tjörn.
Börn og tengdabörn.
,,Pæld í ðí“
ELLEFU SÝNINGAR
ÁNORÐURLANDI
Á tímabilinu frá 15. til 24. mars
verður hópur leikara úr Al-
þýðuleikhúsinu á ferð um
Norðurland með leiksýning-
una „Pæld’í ðí“. Leikrit þetta
f jallar um unglinga sem eru að
byrja að „skjóta sér“ hvort í
öðru og hin margvíslegu mál
sem koma upp í því sambandi
bæði Ijúf og leið — þó oftast
Ijúf. Ýmissi fræðslu um kyn-
ferðismál er svo fléttað inn í
leikinn. „Pæld’í ðí“ var frum-
sýnt 17. október 1980 í félags-
miðstöð unglinga í Fellahelli í
Reykjavík og hefur síðan verið
sýnt 59 sinnum í hartnær öllum
skólum á Reykjavíkursvæðinu
sem og í Borgarfirði, suður-
nesjum, austfjörðum og víðar.
Á Norðurlandi eru fyrirhug-
aðar 11 sýningar og verður sú
fyrsta á Húsavík þann 16. mars 2.
sýning verður svo í félagsheimili
Aðaldæla ogsú þriðja að Laugum
báðar þann 17. mars. 18. mars
býðst svo Akureyringum að sjá
verkið í leikhúsi bæjarins bæði í
eftirmiðdaginn og um kvöldið, en
tekið skal fram að þessar sýningar
eru aðallega ætlaðar nemendum
Gagnfræðaskólans og Oddeyrar-
Atriði úr leikritinu.
skóla. Þann 19. mars verður
„Pæld’í ðí“ svo í Glerárskóla og
þann sama dag um kvöldið í
Menntaskólanum á Akureyri. 20.
3. fara leikaramir fimm svo til
Dalvíkur og 23. 3. verður verkið
sýnt í Fjölbrautaskólanum
Sauðárkróki. Síðasta sýningin á
Norðurlandi verður svo að
Reykjum í Hrútafirði þann 24.
mars.
Eins og kunnugt er var Al-
þýðuleikhúsið upphaflega stofn-
að á Norðurlandi nánar tiltekið á
Akureyri 1975 og eitt af aðal-
markmiðum leikhússins var að
ferðast með leikrit sín víðs vegar
um landið. Á þessum fyrstu árum
leikhússins voru verkin líka iðu-
lega frumsýnd á smærri stöðum
út um landsbyggðina. Þó leik-
húsið hafi síðar flutt búferlum til
Reykjavíkur hefur þetta markmið
ekkert breyst. Hópur félaga úr
Alþýðuleikhúsinu fór til dæmis á
síðasta ári í tvær mánaðarleik-
ferðir um landið þvert og endi-
langt með „Við borgum ekki, við
borgum ekki“ eftir Italann Dario
Fo og með önnur verk leikhússins
hafa verið farnar lengri og
skemmri ferðir um landið, þó svo
að veðurguðimir hafi ekki alltaf
verið jafnsamstarfsfúsir. (Frétta-
tilkynning).
6•DAGUR