Dagur - 12.03.1981, Page 7
Úr vinnslusal Ú.A. Norðurmynd.
Uppsagnirnar af illri nauðsyn
Eins og kunnugt er af fréttum var 40
starfsmönnum Útgerðarfélags Ak-
ureyringa sagt upp fyrir skömmu.
Af þessu tilefni sneri Dagur sér tii
Freyju Eiríksdóttur, sem er trúnað-
armaður hjá Ú.A. Hún var fyrst
spurð hvemig starfsfólk fyrirtækis-
ins hefði tekið þessum uppsögnum.
„Þessi dagur var sá dapurlegasti
sem ég hef átt hér innan veggja þau
14 ár, sem ég hef unnið hjá Ú. A.
Það tekur mann sárt að þurfa að
horfa á eftir vinnufélögum sínum
hér út úr húsinu,“ sagði Freyja.
Freyja sagði einnig að starfs-
fólkið vissi mæta vel að þessar
uppsagnir væru gerðar af illri
nauðsyn. „En fátt er svo með öllu
illt að ekki boði nokkuð gott. Hjá
okkur sem eftir vorum reis alda
samúðar með þeim sem misst
höfðu atvinnu sína. Dægurþras
hvarf í skuggann og menn fóru að
bollaleggja hvað mætti til Varnar
verða. Það er nú einu sinni svo að
þegar fólk á við erfiðleika að etja
kemur fram gullið í samborgurum
>ess. Eins og allir vita sem til
jekkja eru stjórnendur fyrirtækis-
ins farsælir í starfi og þeir munu
endurráða þetta fólk þegar þeir sjá
sér fært.“
— Að lokum?
„Vorið er á næsta leiti og við
leyfum okkur þann munað að vera
bjartsýn,“ sagði Freyja Eiríksdóttir.
Að undanförnu hafa farið fram miklar umræður um stefnuskrá samvinnuhreyfingar-
innar viðsvegar um landið. Þessa mynd tók Gunnlaugur P. Kristinsson á einum
þessara funda. Hér má sjá fundargesti f Freyjulundi 10. mars s.l., en þessi fundur var
fyrir félagsfólk í Arnarnesdeild K.E.A.
Olíusöludeild efst
Nú stendur yfir Firma- og Ein- 6.
menningskeppni hjá Bridgefélagi
Akureyrar. 7.
Þegar lokið er fyrstu umferð af 3,
en hver umferð er sjálfstæð, er röð
efstu fyrirtækja þessi: stig
1. Olíusöludeild KEA........113
spilari Gylfi Pálsson
2. Valprent..................111
spilari Jónas Róbertsson.
3. Slippstöðin...............110
spilari Öm Einarsson
4. Kaffibrennsla Ak..........105
spilari Guðm. Svavarsson
5. Landsbankinn..............104
spilari Gunnl. Guðmundss.
Einir h. f................103
spilari Gunnar Bjamason
Útgerðarfélag Ak..........101
spilari Páll H. Jónsson
Alls er spilað í þremur sextán
para riðlum og er meðalárangur 90
stig. Næsta umferð verður spiluð
n.k. þriðjudagskvöld og er öllum
heimil þátttaka.
Fyrir skömmu kom bridgefólk
frá Húsavík hingað til Akureyrar
með 8 sveitir, þar af eina unglinga-
sveit. Hér er um árlegar heimsóknir
að ræða. Akureyringar sigruðu að
þessu sinni.
— Hagsmunamál Norðlendinga ...
(Framhald af bls. 1).
samir. Ef þeir sem taka ákvarðanir
um virkjanirnar taka ekki tillit til
hagsmuna bænda á eðlilegan hátt,
þá stefna þeir málinu í hættu, þó
ekki sé meira sagt. Og ef bændur
verða ekki við eðlilegum tilmælum
og þörfum þjóðarinnar, sé á annað
borð tekið tillit til hagsmuna þeirra,
eftir því sem hægt er af hag-
kvæmnisástæðum, þá eru veruleg-
ar líkur fyrir því, að fyrr eða síðar
verði tekinn af þeim umráðarétt-
urinn yfir landinu. Því er mikið í
húfi fyrir alla hvernig til tekst í
þessum efnum.
Almennir hagsmunir krefjast
þess að Blanda verði virkjuð og því
fyrr þvj betra. Spurningin er því sú,
hvort nú næst samkomulag um
virkjunina, eða hvort aðrir vafa-
samari virkjunarkostir verði teknir
á undan Blönduvirkjun.
Atvinnuástand á Norðurlandi er
nú með þeim hætti, að á suraura
stærri stöðunum er nú verulegt at-
vinnuleysi, eins og t. d. á Akureyri,
Húsavík og raunar fleiri stöðum.
Það verður því ekki undan því vik-
ist, að gera ráðstafanir til að tryggja
betur og örva atvinnulífið á þessum
stöðum. Það getur reynst erfitt ef
orka er ekki fyrir hendi.
Hér eru því miklir hagsmunir í
húfi fyrir Norðlendinga alla og ég
vil treysta því í lengstu lög að allir
leggi sig fram, til að finna skyn-
samlega niðurstöðu í þessu máli og
það samkomulag verði ekki til að
tefja þessar framkvæmdir."
Kemur
stjörnu-
liðið?
Eins og talað hefur verið um
hefur knattspyrnudeild Vals
boðið atvinnumönnunum í
knattspyrnu sem leika erlendis
að koma upp til fslands með
einn eða tvo félaga sína úr
þeim liðum sem þeir leika i, og
leika við Val þann 17. júní. Er
þetta liður í afmælishátið Vals.
Það mun nú vera afráðið að ef
þessir leikmenn vilja leika
annan leik hér á fslandi, þá
verði það við KA kvöldið eftir
eða 18. júní. Ef af þessu verður
mega knattspymuáhugamenn
á Akureyri eiga von á að sjá
margar af stórstjömum knatt-
spyrnunnar i Evrópu leika hér
á Akureyrarvelli.
Foreldrar
þakka bæjar-
ráði
Foreldrar, sem eiga börn á dag-
vistun á Akureyri, héldu fund
fyrir skömmu og var þar sam-
þykkt að þakka bæjarráði fyrir
skjót viðbrögð í samningamál-
um fóstra. Taldi fundurinn að
þar hafi öðrum bæjarfélögum
verið sýnt gott fordæmi.
Fundurinn skoraði á bæjarráð að
láta ekki deigan síga í uppbyggingu
fleiri dagvistarheimila, þar sem þau
„eru sjálfsagður þáttur í uppeldi
barna í nútímaþjóðfélagi. Langt er
í land að þörfinni sé fullnægt hér í
bæ“, segir í samþykkt fundarins, en
í henni segir að lokum að fundur-
inn beint því til bæjarráðs að lögð
verði sérstök áhersla á þessi mál við
gerð fjárhagsáætlunar fyrir þetta
Atvinnuleysis-
skráning
í bréfi frá Vinnumiðlunarskrifstof-
unni, dags. 3. mars, kemur fram að
27. febrúar s.l. hafi verið á at-
vinnuleysisskrá á Akureyri 118
manns, 88 karlar og 30 konur. At-
vinnuleysisdagar í febrúar voru alls
skráðir 2290 og svarar það til þess
að 109 hafi verið atvinnulausir all-
an febrúarmánuð.
Bifvélavirki óskast
Helst vanur réttingarvinnu. Mikil vinna.
Upplýsingar hjá:
Höldur s.t,
Tryggvabraut 14, símar 21715 — 23515.
Vinna við ræstingar
Starfsmaður óskast strax til ræstinga á leikskólann
Lundarsel.
Uppl. eru veittar í síma 25883 milli kl. 1.00 og 2.00 á
daginn.
AKUREYRARBÆR
Skrúðgarðyrkjumaður
Lystigarður Akureyrar, óskar að ráða skrúðgarð-
yrkjumann.
Uppl. veitir forstöðumaður í síma 96-22983 milli kl.
8.30 til 12.00.
Umsóknir, er tilgreini menntun og fyrri störf, þurfa
að berast Lystigarði Akureyrar, Box 95, Akureyri,
fyrir 25. þ.m.
Forstöðumaður.
Húsnæði óskast
Óskum eftir fjögurra herbergja íbúð fyrir starfs-
mann.
íbúðin þarf að losna í maí 1981.
Nánari upplýsingar í síma 24166 á skrifstofutíma og
91-16637 á kvöldin.
DAGUR Tryggvabraut 12.
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Styrktarfélags vangefinna á Norður-
landi verður haldinn á Sólborg miðvikudaginn 18.
mars klukkan 20.30.
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Lagabreytingar.
3. önnurmál.
Kaffiveitingar. Nýirfélagar velkomnir.
Stjórnin.
Panell — Panell
Fyrirliggjandi fyrsta flokks PANELL,
5” og 6” breiður.
FURUVELLIR 5
AKUREYRI. ICELAND
P. O. BOX 209
SlMAR (96)21332 og 22333
Skíðaskólinn
Hlíðarfjalii
í næstu viku:
Skíðagöngunámskeið, kennari Joko Parvianen.
Innritun og upplýsingar á Skíðastöðum,
sími 22930 og 22280.
DAGUR.7