Dagur - 27.03.1981, Síða 3

Dagur - 27.03.1981, Síða 3
Þorvaldur Þorsteinsson ÍMYND-MYND Sögubrot það er hér fylgir telst ekki til tímamótaverka í gerð íslenskra barnasagna. Aftur á móti er það dæmi um þá hryggilegu stefnu sem nú ríkir í barnabókagerð hér á landi. Ekki er langt síðan börn lásu bækur. Jafnskjótt og þau urðu þokkalega stautandi gátu þau sest með sögubók og lesið hana sér til ánægju. Þau hurfu inn í heim sögunnar, drógu upp myndir í huganum af persónum og um- hverfi og sáu fyrir sér atburða- rásina. ímyndunaraflið hjálpaði þeim þannig að njóta bókanna. Sumar myndirnar sem urðu til í litla kollinum gleymdust aldrei þeim er þær skóp. Þessar sögu- bækur byggðust nær eingöngu á textanum, — myndir voru aðeins ein og ein á stangli. Barnið þjálf- aðist því nokkuð í lestri við hverja bók. Það æfðist í að lesa og skilja. Á síðustu árum hefur mikil breyting orðið á. Bókaforlög sem eingöngu miða útgáfu sína við peningagróðann, æla yfir börnin Strumpum, Lukkulákum, Súper- mönnum og alls kyns rusli sem engum er til gagns nema þeim er gróðann hirðir. Jafnvel fegurstu ævintýri og sögur eru ekki lengur gefin út nema með mjög tak- mörkuðum litlausum texta. Stór- ar litríkar myndir eru látnar sýna allt er áður var sagt og meira til. Þessar „bókmenntir“ eru nær al- gerlega ráðandi á barnabóka- markaðnum og varla finnst það barn sem ekki hrífst méð. Báékúr þessar eru auglýstar með miklum fyrirgangi, þær líta fallega út, eru í skærum litum og fullar af myndum sem segja nær allt er þarf. Hljóð fylgja með (sbr. dæmið sem hér fylgir). Þannig er allt lagt upp í hendur „lesarans“, — fyrirhöfnin verður engin. Hvers vegna ættu börnin ekki að hrífast með? Skaðsemi þessarar ruslfram- leiðslu er margþætt. Myndirnar sjá til þess að nær óþarfi er að lesa bækurnar. Barn- inu nægir að skoða þær. Sá litli texti sem finnst er lág- kúrulegur og oft hrein vitleysa. Barnið þarf aldrei að beita ímyndunaraflinu, allt er matreitt fyrir það. — Persónurnar og um- hverfið lítur svona út og ekkert öðru vísi —. Teiknarinn afmarkar fyrirfram hugmyndir „lesarans". Ánægjan er oftast skammvinn. Hún varir aðeins á meðan bókin er skoðuð. Þegar því er lokið þarf að kaupa nýja. Ekki er ástæða til að ætla annað en framleiðsla þessara bóka aukist enn frekar. Eftir- spurnin sér til þess. Hvers eiga börnin að gjalda? fSvoMA HAFÍ>'i fiCTTA ytssi ffl/f&S !/<?(? A'/í.-- ftSfÍAÍd V JC<j zacjMZ- vksí SVAZTj S&OKAUM „Læknamafían66 skemmtir sér! — nánar tiltekið, svipmyndir frá árshátíð Sjúkrahússins. Mynd: J. G. J. Framfarir Dr. Albert Einstein var beðinn að lýsa vopnunum, sem hann teldi að notuðu yrðu í þriðju heimstyrjöld- inni. Einstein kvaðst ekki vita hvemig þau yrðu, en hann kvaðst geta sagt hvaða vopn yrðu notuð í fjórðu heimsstyrjöldinni. „Hvaða vopn verða það?“ var einstein spurður. „Grjót“ sagði hinn heimskunni eðlisfræðingur. * Vátrygging: Hlaða bóndans hafði brunnið til kaldra kola og umboðsmaður vátryggingafélagsins var að skýra fyrir honum í hverju bætur félags- ins væru fólgnar. „Þér fáið ekki útborgað vátrygg- ingarféð“ sagði hann, „en félagið byggir fyrir yður aðra hlöðu alveg eins. Bóndi varð fokvondur: „Fyrst reglurnar ykkar eru svona, þá getið þið strikað út líftryggingu konunn- ar minnar" Herrar mínir, ég hef góðar fréttir að færa ykkur. Konan mín hefur lagt blessun sina yfir gerðir okkar. M fl H Húseigendur athugið! Viljum taka á leigu fjögurra herbergja íbúö strax eða fljótlega fyrir fimm manna fjöl- skyldu í raðhúsi eða fjölbýlishúsi. Góðri umgengni heitið. Vinsamlegast hafið samband við Jón Arn- þórsson sem gefur nánari upplýsingar. lönaöardeild Sambandsins, Akureyri, simi 21900 Hesta- menn Hnakkarnir á ótrúlega lága verðinu eru komnir aftur. Veróið er aóeins kr. 665,50. Einnig höfuðleður, ístaósólar og reiðar í sama lit. Póstsendum um land allt. Brynjólfur Sveinsson h.f. DAGUR•3

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.