Dagur - 27.03.1981, Blaðsíða 12

Dagur - 27.03.1981, Blaðsíða 12
Símar Dags eru: 24166 24167 23207 Umsjón: Jón Gauti Jónsson. Ritstjóri og ábyrgóarmaður: Hermann Sveinbjörnsson. Blaðamaður: Áskell Þórisson. Auglýsingar og afgreiðsla: Jóhann Karl Sigurðsson. Útgefandi: Útgáfufélag Dags. Skrifstofur: Tryggvabraut 12, Akureyri. Prentun: Prentverk Odds Björnssonar h.f. Úr gömlum Árið 1921 Bárðdælingar sem voru hér á dögunum með sláturfé, kvörtuðu sáran yfir rúmlegum fólks hér á Akureyri. Þingeysk klukka er venjulega tveim tímum á undan símaklukku. En í sláturferðum fara menn með fyrra móti á fæt- tir. Þeir stóðu því fjóra tíma bjarta að morgni verklausir á torginu. Þeir sögðu sem satt var, að þrátt fyrir alt sparnaðarskraf væri af stjórnvöldum og öðrum gengið fram hjá því sjáfsagða og einfalda sparnaðarráði, að færa vísana á klukkum áfram um einn tíma eða svo. En bæjarbúum þykir gott að fá sér sólbað í rúminu. Rögn- valdur sér um einhverja gíætu, til að vinna við á kvöldin. Skfðagöngumót var háð hér i grend við Akureyri (skammt frá Rangárvöllum) sl. sunnudag. Kept var um tvenn verðlaun, önnur fyrir kappgöngu, hin fyrir að standa f b'rekku þar sem hengja var á leiðinni. í brekkunni reyndi sig 12. Var fyrst farin hengjalaus brekka, en þar var of snjóbert. Jóhann Þorfinnsson úr Siglufirði, sem talið var að væri bezti skíðamaðurinn, féll í þessari brekku af einhverju slysi og meiddi sig nokkuð í baki. 7 af 12 stóðu fyrri brekkuna. 5 af þeim 7 keptu um aðalhlaupið fram af hengjunni. Verðlaun hlaut Vil- hjálmur Hjartarson, Siglufirði. Næstur honum var Jón Árnason, úr Ólafsfirði. Fleiri stóðu brekk- una, en verðlauff dæmd eftir lengd lofthlaupsins. Eftir það gengu 14 menn 10 km kapp- göngu. Hlutskarpastur varð Sigursveinn Árnason úr Ólafs- firði, sem gekk skeiðið á 1 klst. og 20 sek. Næstur fyrrnefndur Jón Ámason 1 klst, og 50 sek. Næstu 8 voru frá 1 klst. og 9. mín. til 1 klst. og 10 mín. 4 komust ekki alla leið. Þarna var samankominn mikill mannfjöldi. Uppboð Laugardaginn 13. þ.m. kl. 1 e.h., verður opinbert uppboð haldið við sjúkrahúsið og þar selt ef við- unandi boð fæst: 2 kýr, hænsn, bezinkassar, leiguréttur að erfða- festulandi o.fl. Sjúkrahús- nefndin. Klukku hefir úrsmiður Krisján Halldórsson nýlega sett út í glugga á búð sinni í Strandg. 1. Hún er ætluð öllum almenningi til afnota. Kristján er hugvits- maður og hagleiksmaður mikill. Klukka hans er að því leyti merkileg, að sólarhringurinn all- ur, ásamt eyktamörkum, er markaður á sklfuna, og hefur Kristjáni tekist með miklum út- reikningi, að haga samsetningi hennar svo sem þurfi. Þetta er bæjarbúum mikið hagræði og gæti orðið einhverjum sérstak- lega mikið hagræði, sem geta undir öllum kringumstæðum átt- að sig þvl, — hvort það er nótt eða dagur — ef þeir þekkja á klukk- una hjá Kristjáni. Stoiið var fyrir nokkru 700 kr. af druknum manni í gistihúsinu Fjallkonan 1 Reykjavík. Páll Jónsson trúboði varð uppvis að þessum stuldi. Sagt er að trúboð- inn haldi áfram að prédika og noti þetta fall sitt sem sanninda- merki þess hversu vald djöfulsins sé mikið. Vel mælt Síra Magnúsi Helgasyni kenn- araskólastjóra, farast svo orð 1 Skólablaðinu, er út kom 1 mars sl.: „Jeg veit ekki hlálegri heimsku nje argari apaskap, en þegar verið er að verja okkar stutta skólatíma til að kenna börnum dönsku, áð- ur en þau kunna íslensku til nokkurrar hlítar. Það hafa ekki verið hugsaðar fegurri hugsanir á dönsku en íslensku, því síður betur og spaklegar hagað orðum. En til hvers er að læra mál, ef ekki til þess, að ná í það besta, sem á málinu er skráð? Kannske til að geta bablað við danskan mann, sem á vegi verður eða að garði ber? Ef þeir sækja okkur heim, eru þeir ekki of góðir til að bjarga sjer á okkar máli. Það teljum við okkur skylt í þeirra landi. Sama skylda ber þeim i okkar“. Snjógleraugu Það þykir sennilegast að blindan stafi af snjóbirtu. Fáið þvi snjó- gleraugu, áður en sól hækkar meir á lofti, — hjá Kristjáni Halldórssyni. M STAF- ETNINGU Mörgum þykir málkennd unga fólksins til lítils sóma og þá ekki síst stafsetning- in. Þó hefur nokkuð vantað á að um þessi mál væri fjallað á kerfisbundinn hátt og af vísindalegu hlutleysi. Sérfræðingur Helgar- DAGS í stafsetningu mun í eftirfarandi grein bæta úr þessum skorti. Það ér eins með stafsetn- inguna og annað; henni fer hrakandi. Ungmennin eru eins og gangandi stafsetning- arvillur og jafnvel þeir sem sprenglærðir eiga að teljast eiga til hinar einföldustu vill- ur. Þó er það svo að spekingar þessa lands hafa af flestu öðru meiri áhyggjur en stafsetning- unni þótt margsannað sé að góð og heilbrigð samræmd stafsetning er ein af undir- stöðum þjóðmenningar okkar. Sé gefið eftir í stafsetningar- málinu er sjálfstæði voru og tilvist þjóðarinnar sannarlega í hættu stefnt. Og hver á þá að veiða fiskinn? Færeyingar? Ég bara spyr. Raunar er kommu- setningarvandamálið síst minna mál, en um hana verð- ur ekki rætt hér á kerfisbund- inn hátt, enda efni í heilan þátt. Kunningi minn einn, þjóð- frelsismaður og þjóðmenn- ingur, kom til mín um daginn fölur og fár. í hendi sér faldi hann pappírssnepil þvældan og blautan af tárum. Þar stóð eftirfarandi: „So fóru ðeir údf sgó og földu si þar þánngati hinir kalladdnir sem voru að leida fóru heimti sín þear ðeir voru odnir sfánngir.“ Þetta hafði dóttir hans komið með heim úr skólanum. Ég skal fúslega játa að ég tók mörg andköf meðan ég las þetta og var farinn að berjast við grátinn undir það síðasta. Þó er það alltént nokkur huggun að móðir stelpunnar er að sunnan, eins og sést á stafsetningunni. Með tilliti til reynslu minnar og þekkingar á þessu sviði ákvað ég að koma á framfæri einni af fjöl- mörgum stafsetningaræfing- um sem ég hef samið til leiðbeiningar æsku landsins. Vænti ég þess að þeir foreldrar sem einhverja umhyggju bera fyrir hag barna sinna svo og menningu landsins og sjálf- stæði, lesi hana fyrir börn sín og láti þau spreyta sig. Raunar verður að segjast að þessar æfingar eru ekki svipur hjá sjón síðan gamla góða zetan var lögð af. Blessuð sé minn- ing hennar. Stafsetningaræfing nr. 2346 Eftir að þeir höfðu hist og ást við um stund, brynnti Eyjólfur hryssunni, en áður höfðu þeir kysst að skilnaði. Einar mjói spjó um leið og hann hjó til Órækju sem sló hann með klónni og dró ei af. Fornar sagnir segja að undan ref og kattarbleyðu komi skoffín. Um morguninn var heiðskír himinn en þykkna tók í lofti þegar leið á daginn og undir kvöld rigndi. Hryss- an pissaði á Frissa. Merin lá á hleri. Himinninn var blár og heiður um morguninn en um hádegi hafði dregið upp á hann gráa skýjabólstra sem síðan hurfu um kvöldið, en nóttin var óvenju dimm og þegar komið var undir morg- un rigndi. Lambið rambaði er það hafði þambað gambrann. Presturinn festist í vestinu og heltist úr lestinni, en hresstist brátt aftur og var í besta skapi er þau komu að Hesti. Sverrir hnerraði í þerrinum. Veður var hið besta um morguninn en sortna tók í lofti um mið- aftansbil og eftir að rökkva tók rigndi. Frúin var lúin þeg- ar Kristinn var búinn. Nýi sýslumaðurinn þykir harður í horn að taka, en heiðarlegur og réttsýnn. Blankalogn var um morguninn en undir kvöld hvessti og rigndi. Svarkurinn arkaði á þingeyska manninn sem kvæntur var konu af Rangárvöllum. Þórður kakali var mikill höfðingi og drap fjölda manna. Um kvöldið rigndi. HÁKUR. Bifreiðaeigendur Vorum að taka upp mikið úrval af skíðabogum, einmg skibox festingar fyrir skíði í geymsluna eða bílskúrinn. Véladeild K.E.A.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.