Dagur - 27.03.1981, Blaðsíða 9

Dagur - 27.03.1981, Blaðsíða 9
J sealskin BAÐHENCI &SLÁR Byggingavörudeild DAGUR•9 VÍSNAÞÁTTUR Hjálmar Jónsson GLÆÐUR Jón Gauti Jónsson aðarstaðar ásamt 100 m breiðri landspildu beggja megin árinnar. Var það samþykkt af stjórnar- ráðinu sama ár. Þótt ýmislegt sé á huldu um þessi félög, er ljóst, að íslensk yfirvöld litu á þau sem íslensk fé- lög og að þannig rúmuðust þau innan hinna nýju fossalaga. þrátt fyrir þá staðreynd, að þau lytu í flestum tilvikum yfirráðum er- lendra fjármagnseigenda. Eftir þessar hræringar kom Norðurland lítið við sögu meir hvað varðaði virkjunaráfangann og samningar um vatnsréttindin féllu smám saman úr gildi. Sjón- um var einkum beint að Suður- landi, en sú saga verður ekki rak- in hér. Aldrei varð því neitt úr, að hér á Norðurlandi risi á fyrsta ársfjórðungi þessarar aldar stórar vatnsorkuvirkjanir með tilheyr- andi iðjuverum. Af fossakaupum — Síðari hluti „Rumski menn og vakni við vorsins kennimerki“ Það er oft svo þegar hefja skal vísnamál, að fátt er handbært í fyrstunni. Því kemur upp í hug- ann vísan kunna eftir Hjörleif Jónsson á Gilsbakka: Ljóðin fá ég læt f té lokað er flestum sundum. Það er eins og andinn sé úti á þekju stundum. Aðeins langar mig að nefna tíðarfarið. Það hefur ekki verið gott undanfarið. Ólafur Sigfússon í Forsæludal kveður svo: Enginn kæti á mér sér, enn er þrætinn vetur. Eftirlætisljósin mér logað gætu betur. En það er ekki alltaf vetur hjá Ólafi. Hann var á síðast liðnu sumri'að mála þak heima í For- sæludal. Þá varð hann fyrir því óhappi, að hrasa og falla niður af þakinu. Við byltuna fór hann úr axlarliði og var ekið með hann í skyndi til Blönduóss. Læknir svæfði hann og kippti í liðinn. Þegar svo Ólafur vaknaði beindi hann bundnu máli sínu til lækn- isins: Vel ég mætti muna þig meðan ég helst á flakki, sem að fyrstur svæfðir mig siðan ég var krukki. Þá þurfti Ólafur læknisvottorð vegna þess að hann yrði frá vinnu um skeið. Læknirinn, Hjálmar Freysteinsson, gaf þá út svo- hljóðandi vottorð: Eftir flugferð fvið djarfa ég það votta skal, að ófær er til allra starfa Ólafur i Dal. Það virðist einkar skynsamlegt að taka áföllum með slíku hugar- fari sem Ólafur þessu sinni. Og jafnan síðan minnist hann þessa slyss með brosi. Sveinn Hannesson frá Elivog- um hafði einhvern tíma þessa ráðleggingu fram að færa: Láttu aldrei atvik skeð auka heift í sinni. Sýndu heldur glaðvært geð, gáðu að skynseminni. Eftir efninu mætti hér koma að útleggingu á sögu nokkurri um flís og bjálka og staðsetningar trjáviðarins. Kristinn Bjarnason frá Ási lítur sér nær og kveður eftir deilur: Háski að lemja hausnum við hækkar grcmja tapið. Eigi að semja fullan frið fyrst er að temja skapið. Þetta er vissulega gott að hafa hugfast sem einstaklingur, — lítill hluti stórrar heildar. Að vorlagi kveður Kristinn þessa stöku: Þó að fenni um fjallasvið frost sé enn að verki. Rumski menn og vakni við vorsins kennimerki. Og hugsandi til vors og sumars langar mig að spyrja, hver hafi ort svo um veiðiskap sinn: Flugu minni fleygði ég en fár var gróði Á mig leit úr ölduflóði urriði, — með köldu blóði. Þá væri gott að fá sendar góðar vísur til birtingar í þættinum. Að svo mæltu kveð ég að sinni með góðum óskum. Hjálmar Jónsson, Kirkjutorgi 1 Sauðárkróki. leigu að ræða, en hinum seinni voru réttindin keypt, nema af því opinbera, þar var um leigu að ræða. Hitt atriðið var, að seljend- ur áskildu sér bætur eftir sam- komulagi eða mati fyrir átroðn- ing og landspjöll, er af fram- kvæmdum kynni að hljótast. Lít- ið er hins vegar vitað um kaupverð. Við mælingar og rannsóknir á fossum í Skjálfandafljóti kom í ljós, að þeir voru ekki eins miklir orkugjafar og búist hafði verið við. Af þessum sökum höfðu for- vígismenn Skjálfanda hug á að tiyggja félaginu umráðarétt yfir fleiri fossum, sem virkja mætti í tengslum við Skjálfandafljót. Athyglin beindist einkum að fossum í Laxá, og í lok ársins 1908 fór Skjálfandi formlega fram á það við íslensk yfirvöld að fá Brúarfossa í Laxá leigða með til- heyrandi flúðum í landi Grenj- f síðasta Helgar-Degi voru rakin kaup og Ieiga á norð- lenskum fossum á árunum 1897-1899. Var það einkum Oddur V. Sigurðsson vélfræð- ingur er staðið hafði fyrir því. Verður nú haldið áfram þar sem frá var horfið. Ljóst er að áform Einars fengu allgóðar undirtektir í Noregi, en áhugi á vatnsaflvirkjunum var mikill í Noregi á þessum árum og stórfyrirtæki á þessu sviði voru stöðugt tekin í notkun. þeim vatnsréttindum, er hann hafði tryggt sér fyrir aldamótin, en Oddur bjó um þessar mundir í New York. Samningar tókust og framseldi Oddur Einari öll vatns- réttindin fyrir lágt verð, en Einar Eftir þessa hreyfingu í fossa- málunum varð allt tiltölulega ró- legt um nokkurra ára bil, eða fram til 1907. Það ár leggur Hannes Hafstein fram á Alþingi frumvarp til laga um „takmörkun á eignar- og umráðarétti á foss- um, eignarnám á þeim o.fl.“ Frumvarp þetta varð að lögum sama ár og var oftast nefnt fossa- lögin. Sama ár og fossalögin voru samþykkt urðu þáttaskil í kaup- um og leigu fossa og annarra vatnsréttinda. Einar Benedikts- son hafði á þessum árum fyllst hugmyndum um hvernig nýta mætti íslenskt vatnsafl, sem upp- haf nýrra og betri tíma íslend- ingum til handa. Hans hug- myndir voru þær, að hér ætti að rísa stóriðja, sem yrði sam- keppnisfær við hinar kolaauðugu þjóðir og skyldi hún byggð á óþrjótandi vatnsafli landsins. Kemur þessi hugsjón vel fram í skáldskap hans. Einar tók sér ferð á hendur til Noregs árið 1907 og má líta á þá ferð, sem fyrsta skrefið í viðleitni hans til að vekja áhuga erlendra fjármálamanna á vatnsorkulindum íslands. Dettifoss. Þessi ferð Einars leiddi til þess, að síðla árs 1907 voru stofnuð að hans tilhlutan ásamt Guðmundi Hlíðdal, tvö fossahlutafélög er nefndust Skjálfandi og Gigant. Fyrmefnda félagið var stofnað um fossana í Skjálfandafljóti og hið síðarnefnda um Dettifoss og aðra fossa í Jökulsá á Fjöllum. NEftir stofnunina hélt Einar vestur um haf. Tiigangur þeirrar ferðar var að komast að samningum við Odd V. Sigurðsson um kaup á Ljósm.: Jón Sigurgeirsson. framseldi þau síðan áfram til hlutafélaganna. Sumarið 1908 eignast Skjálfandi auk þess öll önnur vatnsréttindi í Skjálfanda- fljóti. Fossahlutafélagið Gigant komst á svipaðan hátt yfir mikil réttindi í Jökulsá á Fjöllum. Auk þeirra jarðeigenda er Oddur hafði samið við, fengust vatns- réttindi Áss, Ásbyrgis og Hólssels. Það var einkum tvennt, sem aðgreindi þessa nýju samninga frá þeim eldri. f þeim fyrri var um

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.