Dagur - 22.04.1981, Qupperneq 5
Ársþing H.S.Þ.:
Landsmótið ber hæst
af verkef num ársins
Harfralækjarskóla 7. aprfl.
Brátt verða þessi fley sjósett. Mynd: H.Sv.
BESTU KÝRNAR 1980
Um síðustu helgi var haldið 68.
ársþing H.S.Þ. í Barnaskóla
Bárðdæla í boði ungmenna-
félagsins Einingarinnar. Veður
og ófærð gerðu það að verkum
að tvisvar varð að fresta þinginu,
en ekki var hægt að skammast út
í veðrið þennan sunnudag, því þá
var sunnan gola og hlýindi,
sannkallað vorveður.
Þingið hófst kl. 10 á sunnudags-
morguninn. Þingforsetar voru þeir
Jónas Sigurðsson, Lundarbrekku
og Tryggvi Óskarsson, Þverá.
Þingritarar voru Svanhildur Her-
mannsdóttir, Barnaskóla Bárðdæla
og Hinrik Árni Bóasson, Stuðlum.
Gestir þingsins voru Sigurður
Geirdal, framkvæmdastjóri
U.M.F.f. og Jón Ármann Héðins-
son stjórnarmaður Í.S.Í. og úr hér-
aði kom Þórður Jónsson úr Lauga-
hlíð.
f skýrslu stjórnar, sem formaður
H. S.Þ., Þormóður Ásvaldsson,
flutti kom fram að ýmislegt var gert
á vegum sambandsins á s.l. ári og
skal hér minnst á það helsta.
I. íþróttastarfið var að sönnu lang
stærsta verkefni H.S.Þ. Haldin voru
héraðsmót í eftirtöldum greinum:
Frjálsum íþróttum, knattspyrnu,
blaki, skák, bridge, borðtennis,
glímu og sundi. Samtals mun
keppni hafa farið fram í u.þ.b. 50
daga á árinu, sem mun vera heldur
með meira móti og þátttaka var
oftast góð. Auk þessara móta fóru
keppendur á fjölmörg mót, sem
haldin voru utan héraðs í hinum
ýmsu íþróttagreinum. Þar ber hæst
þátttaka í íþróttahátíð 1980, er ÍSf
efndi til á árinu. 2. Frjálsíþrótta-
þjálfari var ráðinn s.l. sumar, Vig-
fús Helgason. Sá hann um þjálfun
héraðsliðsins, en auk þess fór hann
út í aðildarfélögin og þjálfaði þar.
3. Sumarbúðir fyrir unglinga að
Laugum voru starfræktar s.l. sumar
undir stjórn Haraldar Þórarinsson-
£ ar íþróttakennara. 4. H.S.Þ. hefur
undanfarin ár styrkt félög sín með
því að greiða 30% af öllum þjálf-
arakostnaði þeirra. Er þetta gert til
að hvetja félögin og gera þeim
kleift að ráða til sín þjálfara í hinar
ýmsu íþróttagreinar. Nam þessi
styrkur 4,3 milljónum gamalla
króna. 5. H.S.Þ. var þátttöku- og
framkvæmdaraðili í því að reisa
Jóhanni Sigurjónssyni frá Laxa-
mýri minnisvarða en tilefnið var
100 ára fæðingarafmæli skáldsins.
6. H.S.Þ. hefur hin síðustu ár verið
að endurbyggja Laugavöll. Er það
mikil og fjárfrek framkvæmd. Á
síðasta ári var stigið stærra skref en
áður í þeirri framkvæmd og unnið
fyrir 24 milljónir gamalla króna. 7.
Sambandið flutti í eigið húsnæði,
sem er í nýja íþróttahúsinu að
Laugum. Þar verður skrifstofa
H.S.Þ. og þar með hefur ræst gam-
all draumur um að eignast fastan
samastað. 8. Samskiptum við dönsk
— Árcksturinn kemur mér ekkert
við, ég horfði bara á.
ungmennafélög var haldið áfram.
Á síðasta sumri fóru 25 H.S.Þ.
félagar í heimsókn til Danmerkur í
boði danskra héraðssambanda og
dvöldu þar í hálfan mánuð.
Á eftir skýrslu formanns gerði
Völundur Hermannsson, gjaldkeri
H.S.Þ., grein fyrir reikningum
sambandsins. Helstu tekjur voru
styrkir frá sýslu og sveitarfélögum
og hinar hefðbundnu fjáröflunar-
leiðir s.s. jólakortasala, happdrætti
og Laugahátíð, sem var þeirra
langdrýgst. Gjaldamegin voru
stærstu liðirnir Laugavöllur, ferða-
kostnaður íþróttafólks úr héraði,
styrkir til félaga og þjálfara-
kostnaður.
Að lokinni skýrslu stjórnar hóf-
ust umræður um starf H.S.Þ. Skipt
var í starfsnefndir og ræddu þær
um hin ýmsu verkefni sambandsins
á þessu ári. Skiluðu þær skýrslum
og lagðar voru fram tillögur, og
urðu allmiklar umræður um þær.
Ef frá eru talin hin hefðbundnu
verkefni H.S.Þ. þá ber hæst á þessu
ári þátttakan í landsmóti U.M.F.Í.,
sem haldið verður á Akureyri í
sumar. Þingeyingar hafa staðið sig
vel á landsmótum og ætla sér að
gera það einnig á þessu móti og
fjölmenna með gott lið íþróttafólks.
Þá verður einnig haldið áfram að
byggja upp Laugavöll.
Að lokum fór fram stjórnar og
nefndakjör. Stjórn H.S.Þ. skipa nú:
Þormóður Ásvaldsson, ökrum,
formaður, Jón Illugason, Reykja-
hlíð, Völundur Hermannsson,
Álftanesi, Birgir Steingrímsson,
Húsavík, Baldvin Baldvinsson,
Torfunesi, Amór Erlingsson, Þverá
og Kristleifur Meldal, Grenivík.
G. Á.
Hin árlega hópferð héðan til
Winnipeg verður farin 28. júlí
n.k. og komið heim 18. ágúst.
Sama flugvéi flytur 150 manna
hóp Vestur-íslendinga hingað
heim til þriggja vikna dvalar.
íslendingadagurinn á Gimli
verður hátíðlega haldinn dagana 1.,
2. og 3. ágúst, en í ár er öld liðin
siðan Nýja-ísland sameinaðist
Manitobafylki. Af þvi tilefni verð-/
ur sérstaklega vandað til hátíða-
haldanna og búist við miklum
fjölda manna af íslenzkum ættum
bæði frá Kanada og Bandaríkjun-
um. Er því tilvalið fyrir íslendinga
hér heima að skreppa nú vestur um
haf, heimsækja Winnipeg, höfuð-
borg íslendinga í Vesturheimi,
Nýja-ísland og aðra landnámsbæi
þeirra á sléttunum miklu og taka
þátt í hátíðahöldunum á Gimli.
Minnismerki vfkinga á Gimli. Fyrir
framan þaö má þekkja a.m.k. Gfsla
Olafsson og Árna Bjarnarson.
í 6. tölubl. FREYS er birt grein
eftir Jón Viðar Jónmundsson,
ráðunaut og kennara, um naut-
griparæktarfélögin. Þar kemur
fram að skýrslufærðum kúm
hefur fækkað um 1.640 á síðustu
þrem árum. Á skýrslum voru
21.537 kýr á síðasta ári. Afurðir
eftir reiknaða árskú reyndust
3.769 kg. en það var 40 kg minna
en árið 1979. Meðalfitan var
aðeins hærri í fyrra en undan-
farin ár, eða 4,21% á móti 4,16%
árið 1979.
Rétt er að vekja athygli á því, að
meðalafurðir minnkuðu ekki nema
um 40 kg, þótt dregið hefði verið úr
Verður þeim sem óska gefinn kost-
ur á hópferðum um Nýja-ísland og
marga nágrannabæi. Þjóðræknis-
félagið á Akureyri, vinafélag Vest-
ur-íslendinga, hvetur alla sem geta,
að notfæra sér þessa einstæðu ferð
segir í fréttatilkynningu frá félag-
inu. Ferðin vestur er farin á vegum
ferðaskrifstofunnar Samvinnu-
ferðir-Landsýn.
Fyrr i mánuðinum var haldin vél-
sleöakeppni í Krossdai i Mývatns-
sveit á vegum Ungmennafélagsins
Eilífs og Björgunarsveitarinnar
Stefáns. Keppendur voru yfir 20, frá
Akureyri, Húsavik og Fnjóskadal,
auk heimamanna. Keppt var f 3.700
m. langri alhliða braut, með 40
hliðum og einni hcmlunarþraut.
Keppt var í þrentur stærðarflokkum
sleða. Þá var einnig keppt i kvart-
mflusyrpu á beinni braut.
Urslit í 1. flokki í alhliðabraut
urðu þau að Jón Ingi Sveinsson
kjarnfóðurgjöf um 200 kg að með-
altali. Að meðaltali voru afurða-
mestu kýrnar í Strandasýslu, með-
alafurðir þeirra reyndust 4.032 kg
en skýrslufærðar kýr voru aðeins
50. Næst bestur árangur var hjá
bændum í Eyjafirði, þeirra kýr
mjólkuðu að meðaltali 3.989 kg en
þar voru 1.739 kýr á skýrslum.
Bestur árangur í fjósi, reyndist
vera hjá félagsbúinu í Baldurs-
heimi, Mývatnssveit, kýrnar
mjólkuðu þar að meðaltali yfir árið
5.607 kg. Næst bestur varð árang-
urinn hjá Guðlaugi Jónssyni, Við-
múlastöðum, A.-Landeyjum, af-
urðir í því fjósi voru 5.337 kg að
meðaltali. í þriðja sæti urðu kýrnar
hjá Sverri Magnússyni, Efra-Ási,
Nefnd tekin til
1. maí nefnd verkalýðsfélaganna
er nú tekin til starfa og undir-
búningur í fullum gangi. Stefnt
er aö kröfugöngu og útifundi á
torginu, þar sem ávarp dagsins
verður flutt, stuttar ræður og
söngur.
Akureyri varð fyrstur. Hann keppti
á Polaris TX 440. Tími Jóns var
7:36:5. í 2. flokki sigraði Ingvar
Grétarsson, Akureyri, á Polaris TX
C 340 á 7:33:9. í 3. flokjci sigraði
Sigurður Baldursson, Mývatns-
sveit, á Yamaha SW440 á 9:48:4. í
kvartmílunni urðu úrslit þau að í 1.
flokki sigraði Ingvar Grétarsson á
Polaris TXL340 á 19,1. Fyrstur I
öðrum flokki varð Ingvar Grétars-
son, Akureyri, á Polaris TXC 340 á
19,7 og í 3. flokki sigraði Sigurður
Baldursson, Mývatnssveit, á
Yamaha SW 440 á 35,5.
Hólahreppi, þar voru meðalafurðir
5.311 kg.
Afurðahæsta kýrin árið 1980
þegar mælt var í kg mjólk, var
Skrauta 97 á Efri-Brunná, Dala-
sýslu, hún mjólkaði 7.594 kg.
Næst kom kýrin Búkolla 54 á
Gautlöndum, Mývatnssveit, afurð-
ir hennar voru 7.493 kg. Þriðja
kýrin í röðinni var Sabina 100 í
Víðiholti, Reykjahreppi, hún
mjólkaði 7.376 kg árið 1980.
Þegar afurðir eru metnar i kg
mjólkurfitu sló kýr Lukka þeim
öllum við, því hún mjólkaði 6.684
kg en mjólkin var með 5,52% fitu.
Engin kýr á landinu gaf annað eins
af sér af smjöri á þessu ári og
Lukka.
starfa
Kaffisala verður á milli atriða í
Alþýðuhúsinu og barnaskemmtun
1 Sjálfstæðishúsinu. Starfsmanna-
félag Akureyrarbæjar og B.S.R.B.
taka nú í fyrsta skipti þátt í undir-
búningi hátíðarhaldanna 1. maí.
Kröfur dagsins munu verða
helgaðar lömuðum og fötluðum.
Aðalræðumaður dagsins verður frá
samtökum lamaðra og fatlaðra.
Formaður 1. maí nefndarinnar
er Sigurður Pálmi Randversson,
trésmiður og geta þeir sem áhuga
hafa á að starfa að undirbúningn-
um haft samband við hann.
dagsins
tíu ára
Fyrir skömmu varð „Orð dags-
ins“ 10 ára. Það var Jón Oddgeir
Guðmundsson sem ýtti „Orði dags-
ins“ úr vör og hefur stýrt því síóan.
„Frá upphafi hefur verið hægt að
fá að heyra ritningargrein og síðan
hefur hún verið skýrð nánar fyrir
fólki. Þessi þjónusta hefur notið
mikilla vinsælda, en hringingar að
undanförnu hafa verið 20 til 30 á
hverjum degi. Þeir eru óteljandi
sem hafa hringt í ,’,Orð dagsins", en
við höfum alltaf lagt áherslu á að
hafa huggunarríkan boðskap út frá
Guðs orði,“ sagði Jón Oddgeir í
samtali við Dag í tilefni afmælisins.
Rauði þráðurinn í „Orði dags-
ins“ hefur verið frá upphafi að
„Jesús Kristur er í gær og í dag hinn
sami og um aldir.“ Þetta er sá boð-
skapur, sem hefur gengið um aldir
alda og sagðist Jón Oddgeir ekki sjá
ástæðu til að breyta til í bráð. Sím-
inn hjá „Orði dagsins" er 96-21840.
DAGÚR-5
Hópferð til Winnepeg
Þann 14. þ.m. afhentu félagar f Lionsklúbhi Dalvfkur 30 þúsund krónur f
byggingarsjóð Sjálfsbjargar. Á myndinni má sjá Sveinbjörn Steingrfmsson,
formann klúbbsins, afhenda Hafliöa Guðmundssyni, ávfsunina. Lengst til hsgri
stcndur Vilhelm Sveinbjörnsson, en við hlið hans er Gunnlaugur Sigvaldason.
Mynd: áþ.
Kepptu á vélsleðum