Dagur - 22.04.1981, Qupperneq 6
mouR
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur: Tryggvabraut 12, Akureyri
Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207
Sími auglýsinga og afgreiðslu: 24167
Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON
Blaðamaður: ASKELL ÞÓRISSON
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf.
Aðgerðarleysi
þýðir holskeflu
hækkana
Á aðalfundi miðstjórnar Fram-
sóknarflokksins var lögð á það
mjög rík áhersla, að ekki verði
hvikað frá því marki að koma
verðbólgunni niður í 40% á þessu
ári. í ályktun miðstjórnar kom
fram, að til þess að unnt verði að
ná því marki verði að grípa til
frekari aðgerða í efnahagsmálum.
Það er Ijóst að holskefla hækk-
anabeiðna skellur yfir eftir næstu
mánaðamót og sá árangur sem
þegar hefur náðst í baráttunni við
verðbólguna verður að engu, ef
ekki verður frekar að gert. Fram-
sóknarmenn hafa bent á leiðir í
þessum efnum og þeir hafa einnig
bent á það, að nauðsynlegt sé að
hefja sem fyrst undirbúning að
áframhaldandi niðurtalningu
verðbólgunnar á árinu 1982 í
samræmi við ákvæði stjórnarsátt-
málans.
Meðal þeirra leiða sem bent
hefur verið á má nefna það, að
beitt verði opinberum aðgerðum
til að koma í veg fyrir að hækkun
framfræsluvísitölu verði yfir 8 af
hundraði 1. maí næst komandi. Til
álita kemur að iækka óbeina
skatta og auka niðurgreiðslur og
mæta því meðal annars með
frestun framkvæmda. Þá er lagt til
að vextir af óverðtryggðum lánum
lækki í samræmi við hjaðnandi
verðbólgu. Stuðlað verði að lækk-
un vöruverðs m.a. með lánum til
hagkvæmra vörukaupa og skyn-
samlegri álagningarreglum.
Dregið verði úr hækkunum á
gjaldskrám opinberra stofnana
með ráðdeild í rekstri og jafnvel
með samdrætti í framkvæmdum
og þjónustu. Þess verði þó gætt
að rekstrinum sé ekki stefnt í
hættu.
í tillögum Framsóknarmanna er
enn fremur gert ráð fyrir að hækk-
un búvöruverðs og fiskverðs verði
takmörkuð eins og frekast er
kostur, en þó sé gætt samræmis
um kjör bænda og sjómanna við
aðra. Niðurgreiðslur á land-
búnaðarvörum verði auknar í
samræmi við ákvæði stjórnarsátt-
málans. Leitað verði nýrra leiða til
að mæta stórauknum olíu-
kostnaði fiskiskipa.
- Ef nauðsynlegt reynist verði
leitað eftir samstöðu með laun-
þegum um hámark á verðbætur
launa 1. september og 1. desem-
ber n.k., enda verði sú kaupmátt-
arskerðing sem því fylgir bætt á
lægri laun með lækkun skatta,
tolla eða hækkun fjölskyldubóta.
Leitað verði eftir samkomulagi um
almennar reglur varðandi útreikn-
ing vísitölu, sem miða að því að
draga úr hraða verðbólgunnar.
Freyr Ófeigsson:
Nemendum Mynd-
listarskólans svarað
í blaðinu Degi, sem út kom 2.
apríl s.l. birtist smágrein rituð af
nokkrum nafngreindum nem-
endum Myndlistaskólans á Ak-
ureyri í tilefni af heimsókn þeirra
ásamt skólastjóra þeirra á skrif-
stofur Akureyrarbæjar „einn
sólskinsdag, að skoða Listasafn
Akureyrarbæjar" eins og segir í
greininni. — f greininni er beint 6
ákveðnum spurningum til bæjar-
stjóra. Efni skrifa þessara og
spurninganna, sem eru þar fram
settar, er þess eðlis að eðlilegt er
að ég, sem forseti bæjarstjórnar
og formaður stjórnar Menning-
arsjóðs Akureyrar, verði fyrir
svörum, einkum þar sem hér er
komið inn á svið, sem nokkuð
hefur verið til umræðu að und-
anförnu. Hefur sú umræða, að
mínu mati, einkennst óeðlilega
mikið af skætingi í garð bæjaryf-
irvalda og ásökunum um fáfræði
á þessum sviðum, á kostnað
hinnar málefnalegu umræðu.
Mun ég fyrst reyna að svara
spurningum greinarhöfunda
hverri fyrir sig en síðan fara
nokkrum orðum um skrif þeirra
að öðru leyti svo og önnur skrif,
sem birst hafa í blöðum í tilefni af
framangreindri heimsókn. Að
lokum mun ég af þessu tilefni og
vegna umræðu, sem fram hefur
farið að undanförnu um málefni
Menningarsjóðs Akureyrar,
leggja nokkur orð til þeirrar um-
ræðu almennt.
1. spurning: „Er viðeigandi að
taka við gjöfum, sem eru með
ákveðnum óskum, án þess að
uppfylla þær?“
Svar: Akureyrarbæ og stofn-
unum hans berast af og til gjafir
frá einstaklingum og félögum.
Tilgangur gefenda er að sjálf-
sögðu mjög mismunandi og í
samræmi við tilgang sinn hafa
sumir þeirra sett fram ákveðna
skilmála með gjöfunum. Hafi
skilmálar þessir í för með sér
kvaðir á hendur bæjarstjórn, svo
sem fjárútlát, verður að sjálf-
sögðu að taka afstöðu til þess
fyrirfram, hvort þiggja eigi gjöf-
ina eða ekki. Þegar ákveðið hefur
verið af hálfu' bæjarstjórnar að
beita gjöf viðtöku, sem skilyrt er,
er bæjarstjórn bundin af skilyrð-
inu og ber að fullnægja því. Sé
gjöf hins vegar innt af hendi án
þess að bæjarstjórn hafi fallist á
skilyrði, sem henni fylgja, verður
hún að teljast óbundin af þeim.
Að því er ég best veit hefur bæj-
arstjórn til þessa að fullu staðið
við skilmála, sem einstökum
gjöfum hafa fylgt og hún hefur
samþykkt, eins og til hefur verið
ætlast.
Eins og spurningin er orðuð
virðast spyrjendur hafa í huga
einhver tilvik, þar sem misbrestur
hefur orðið á í þessum efnum.
Eins og að framan getur, er mér
ekki kunnugt um slík tilvik. Ann-
að mál er það, að skilyrði geta
orðið úrelt og óframkvæmanleg
vegna þróunar í bæjarfélaginu og
þjóðfélaginu yfirleitt, t.d. skil-
málar þess efnis, að hesthús skuli
alltaf starfrækt í miðbænum á
Akureyri. Slík tilvik eru oft
vandasöm úrlausnar. Hinum sið-
ferðilega þætti spurningarinnar
hefi ég ekki umboð til að svara
fyrir bæjarfulltrúa.
2. spurning: „Er það stefna
bæjaryfirvalda að hafa lista-
verk í eigu bæjarins uppi í hin-
unt ýmsu stofnunum?“
Svar: Hinn 29. ágúst 1962 á
aldarafmæli Akureyrarbæjar,
markaði bæjarstjórn sér stefnu á
Freyr Ófeigsson.
sviði lista og annarrar menning-
arstarfsemi, með stofnum sjóðs,
sem heitir Menningarsjóður Ak-
ureyrar. í reglugerð sjóðsins segir
svo í 3. gr. „Hlutverk sjóðsins er
að styðja listastarfsemi og aðra
menningarstarfsemi á Akureyri
með fjárframlögum, styrkja lista-
menn og fræðimenn og aðra, sem
teljast verðugir, með kaupum
listaverka fyrir bæinn og bæjar-
stofnanir og öðrum hætti, er
sjóðsstjórn ákveður hverju sinni í
samræmi við tilgang sjóðsins."
í samræmi við þetta hefur það
verið og er stefna bæjarstjórnar
að listaverk í eigu bæjarins og
stofnana hans séu nýtt til að
prýða húsakynni bæjarins og
hinna ýmsu stofnana á hans veg-
um eftir því, sem rými er til. Ekki
hafa komið fram tillögur í bæjar-
stjórn um að breyta þessu fyrir-
komulagi, svo mér sé kunnugt.
3. spurning: „Ef svo er, hvers
vegna er almenningi þá nær
ógerlegt að nálgast þessi verk
og njóta þeirra?
Listaverkin eru keypt fyrir
almannafé.“
Svar: Það sem gerir erfitt að
heimila almenningi frjálsan að-
gang að margnefndum listaverk-
um, er sú staðreynd að þau eru
varðveitt á starfstofum starfs-
manna bæjarins að mestu leyti.
Af augljósum ástæðum er ekki
hægt að heimila frjálsan aðgang
að starfstofum bæjarins frekar en
annarra fyrirtækja og stofnana.
— Bæjaryfirvöld hafa viljað og
vilja fyrir sitt leyti stuðla að því,
að almenningur eigi þess kost að
skoða listaverk bæjarins eftir því
sem tök eru á: Viðleitni í þá átt
hefur verið höfð uppi, m.a. með
því að setja verkin á almennar
sýningar að hluta eða næstum öll
samtímis. Mætti e.t.v. gera meira
af slíku en gert hefur verið.
Þeim, sem áhuga hafa, hefur
verið og er velkomið að skoða
listaverkin þar sem þau eru varð-
veitt, í samráði við starfsmenn
þá, sem með vörslu þeirra fara. —
Listaverk bæjarins eru að sjálf-
sögðu flest keypt fyrir almannafé
eins og aðrar eignir bæjarins. En
það út af fyrir sig veitir ekki al-
menningi frjálsan aðgang að
þeim frekar en öðrum eignum
bæjarins. Afnot af listaverkum
þessum, sem spyrjendur eiga
væntanlega við, geta ekki orðið
fyrr en komið hefur verið upp
sérstakri aðstöðu til að hafa þau
stöðugt til sýnis almenningi (sýn-
ingarsafni). Enn sem komið er
eru ekki uppi áform innan bæj-
arstjórnar um að koma upp slíkri
aðstöðu.
4. spurning: „Hver er stefna
bæjarstjórnar í sambandi við
listaverkakaup?“
Svar: Eins og áður er fram
komið, er eitt af hlutverkum
stjórnar Menningarsjóðs að
ákveða og annast kaup á lista-
verkum. Við kaup er að sjálf-
sögðu farið að reglum sjóðsins við
val á listaverkum svo langt sem
þær ná, sbr. 3. gr. reglugerðar-
innar, sem áður er nefnd. — Við
val á einstökum listaverkum er
haft í huga að bærinn eignist verk
eftirsem flesta íslenska listamenn
og að stuðlað sé að sem mestri
fjölbreytni í listaverkaeign bæj-
arins. — Sé um að ræða val á milli
verka sama listamanns, ræður
smekkur nefndarmanna úrslit-
um. Smekkur nefndarmanna
hefur ekki verið samræmdur í
myndlistaskóla og sýnist því oft
sitt hverjum í þessum efnum. —
Um frekari „stefnu“ við kaup á
einstökum verkum er ekki að
ræða. í heild má segja að stefnt sé
að því að listaverkaeign bæjarins
verði með tíð og tíma til þess hæf
að mynda kjarna í frambærilegu
almenningslistasafni, þar sem til
staðar yrði sýnishorn af list sem
allra flestra íslenskra listamanna
fyrr og síðar.
6. spurning: „Gera bæjaryfir-
völd sér ekki grein fyrir
nauðsyn sjónmennta t.d. vegna
þáttar þeirra i atvinnulífi
bæjarbúa?“
Svar: Þáttur sjónmennta í
grunnskólanámi er ákveðinn í
grunnskólalögum. Bæjarstjórn
Akureyrar stendur að fram-
kvæmd þeirra laga að sínu leyti
eins og lög standa til. Bæjarstjórn
hefur ekki sett á stofn skóla á
þessu sviði á framhaldsskólastigi.
Ekki hafa verið sett lög um fram-
haldsskólamenntun á fslandi.
Slík löggjöf hefur á undanförnum
árum verið til afgreiðslu á Alþingi
án þess að fá afgreiðslu. Á meðan
þetta ástand varir ríkir óvissa um
skyldur sveitarfélaga í þessum
efnum. — Á undanfömum árum
hefur einstaklingur rekið hér í bæ
sérskóla á þessu sviði, Myndlista-
skólann, af miklum áhuga og
dugnaði. Að því er best er vitað
hefur starfsemi þessi borið góðan
árangur og skólinn hefur hlotið
viðurkenningu þeirra, er um það
mál fjalla, fyrir góða og vandaða
kennslu. Bæjarstjórn Akureyrar-
hefur frá upphafi sýnt starfsemi
þessari áhuga, væntanlega vegna
þess að fyrir hendi hefur verið
skilningur á gagnsemi náms þess,
er þar fer fram. Afstaða bæjar-
sjórnar til starfsemi þessarar hef-
ur komið fram í því að frá upp-
hafi hefur eiganda skólans verið
veittur nokkur fjárstyrkur úr
bæjarsjóði til starfseminnar.
Styrkur þessi hefur farið vaxandí
með árunum eftir því.sem starf-
semi skólans hefur vaxið. Hefur
styrkur bæði verið veittur til
greiðslu kennaralauna og til
kaupa á búnaði og nú á nýsam-
þykktri fjárhagsáætlun er veitt fé
til skólans til leigu á húsnæði
(sýningarsal). —• Eru fjárveitingar
til skólans á þessu ári þessar:
1. Vegrw kennaralatina
kr. 240.000,00
2. Tilslofnbúnaöar. kr. 40.000,00
3. Vegna leign á sýningarsal
.................. 'kr.«m.-000,00
Samtalskr. ...... 330.000,00
Með fjárveitingu sinni telur
bæjarstjórn sig sýna skilning á
nauðsyn sjónmennta og veita
þeim einstaklingi, sem' skólann
rekur sérstaka viðurkenninglt
fyrir störf hans i þágu
bæjarfélagsins.
Um efni skrifalrnemenda'
Myndlistaskólans til ég að öðrú
leyti segja þetta: Samkvaiint:
upplýsingum starfsmanna bæjar-
ins kom umræddur nemenda-1
hópur ásamt skólastjóra fyrir- !
varalaust og án þess.að :htafa um
það samráð við starfsmenn bæj-
arins á bæjarskrifstofumar. í
vinnutíma starfsfólks :.og óskaðil;
eftir að fá að skoða listaverkin.
Ekki var aðstaða til að verða við
óskum hópsins að fuHu: þá þegar.
M.a. var bæjarstjóri upptekinn á
fundi. Þrátt fyrir erfiðaf aðsfæðuf
og engan undirbúning greiddi
starfsmaður bæjarins; Haraldur
Sigurgeirsson, götu gestanna eftir
bestu getu og eins og aðstæður
leyfðu. — Kennarar og nemend-
ur Myndlistaskólans og aðrir, sem
áhuga hafa á er að sjálfsögðu
velkomið að skoða listaverkin. En
til þess að svo geti örðið þúrfa
þeir að hafa samband við bæjar-,
stjóra eða mig með. hæfilegúm
fyrirvara svo að unnt verði að
undirbúa móttöku þeirra á þann
hátt að hægt verði að skoða lista-
verkin í næði og njóta þeirra og
hafa þannig sem mest not af. Ég
held að slíkur aðdragandi'að ferð
n
málverkin spyrja greinarhöfundar. Morg eru
m.a. hér innan veggja
Mvnd: á.þ.
Sumar gjafir eru
hefndargjafir!
... . Mitimi eins áesetu hjóna og þ'
Einn liður í sjónmenntanámi eins
oe það fer Fram í myndlistaskól-
um hérlendis er að skoða sofn.
því var það að nemendur Mynd-
listaskólans á Akureyn toku þa
I örlagaríku ákvörðun emn sol-
skinsdag að skoða Listasafn Ak-
ureyrarbæjar, Áður hofðum við
frétt að Barbara og Magnus
Árnason, hin virtu myndlistahjón
hefðu gefið Akureyrarbæ hsta-
verk 1948 sem vísi að hstasafm
Akureyrarbæjar. Listasafn? Ju,
það er til og nú eru a þr.ðja
1 hundrað verk í eigu Akureyrar- fyUaþær7
bæjar. . , , ir 2 Er það stefna bæjaryfirvalda
Þegar upp á bæjarsknf^ofur að £afa Uslaverk i eigu bæjar-
kom hittum við Harald Sig hinum ýmsu stofn.
geirsson að máli. sem hefur um- “PP
■;An ’iril ^flMyttMÉÍir
ágætu hjónaogþvi síður um gjöf
þeirra. Fræddum við Helga þaá
bví að þau hjón hefðu gef.ð
bænum listaverk eftir Magnus
með þeirri ósk að þetta verk yrði I
visir að listasafni. Svar Helga var
á þá leið, að sumar gjafir væru
hefndargjafir. Viljum við nu .
framhald. af samtal. okkar beina
nokkrum spurningum t.l hattv.rts
bæjarstjóra: 1
1 Er viðeigandi að taka við gjöf-
' um sem gefnar eru með
ákveðnum óskum, an þess að
uppfylla þ*r?
sem þessari sé um líklegri til að
verða báðum aðilum til sóma en
einhliða hugdetta þeirra Mynd-
listarskólamanna á góðviðrisdegi,
eins og segir í greininni.
Frásögn greinarhöfunda af
orðaskiptum sínum við bæjar-
stjóra leiði ég hjá mér, enda eru
skrif í þeim anda, sem hér um
ræðir, varla svaraverð og fyrst og
fremst þeim til vansa, er lætur
þau frá sér fara. — Af sama tilefni
og hér um ræðir, birtist frétt í
dagblaðinu Vísi þess efnis að „að
undanförnu hefði ríkt kalt stríð
milli bæjaryfirvalda og Mynd-
listaskólans á Akureyri“ Af skrif-
unum mátti ráða að heimilda
væri að leita hjá aðstandendum
Myndlistaskólans. Af hálfu bæj-
aryfirvalda er ekki vitað um þetta
„stríð“ enda bera styrkir bæjar-
sjóðs til skólans þess naumast
merki að stríð geysi milli þessara
aðila, a.m.k. ekki með vitund
bæjarstjómar.
Til fróðleiks og vegna skrifa
um Menningarsjóð Ákureyrar,
sem birst hafa á undanförnum
mánuðum, svo og ummæla akur-
eyriskra listamanna og frásagna
þeirra af draumum sínum í út-
varpi, vil ég að lokum geta þess,
að eins og áður er fram komið tók
Menningarsjóður Akureyrar til
sfarfa árið 1962. Að einhverju
leyti hafa allir þeir þættir, sem upp
eru taldir í 3. gr. reglugerðar
sjóðsins, sem áður er rakin, verið
framkvæmdir. Þótt kaup á lista-
verkum sé aðeins einn af fleiri
þáttum í starfsemi sjóðsins, hefur
sá þáttur verið fyrirferðarmestur.
Frá upphafi 1962 hafa verið
haldnir 35 fundir í stjórninni þar
af 7 fundir á kjörtímabili því, sem
nú stendur yfir. Samkvæmt gerð-
arbók sjóðsins hafa kaup á mál-
verkurn alltaf farið fram utan
funda en síðan verið staðfest á
fundi. Árlegar tekjur sjóðsins eru
framlög úr bæjarsjóði samkvæmt
fjárhagsáætlun hverju sinni og
takmarkast ráðstöfunarfé sjóðs-
ins að mestu við þá fjárhæð.
Stofnfé sjóðsins var kr. 300.000,00
og samkvæmt 4. gr. reglugerðar-
innar má aldrei skerða stofnfé
sjóðsins. jdluta af fé sjóðsins er
varið til innrömmunar málverka,
viðgerða á þeim svo og viðhalds
listaverka og umsjón með þeim.
Akureyri 12. april 1981
Frevr Óteigsson,
forseti bæjarstjómar Akureyrar.
ATHUGASEMD FRÁ
HELGA M. BERGS
Hr. ritstjóri.
í blaði yðar 2. apríl s.l. er birt
grein, undirrituð af sjö nemend-
um í Myndlistarskólanum á Ak-
ureyri. 1 greininni er á einfaldað-
an og villandi hátt sagt frá átviki
er átti sér stað á göngum’ bæjar-
skrifstofunnar fyrir nokkrum
dögum.
Gefið er í skyn í greininniað ég
hafi sagt að listaverkagjöf hjón-
anna Barböru og Magnúsar
Árnasonar, til Akurpynarbæjar.
hafi verið hefndargjöf. Þetta:er .
ekki rétt og það sem meira er að
sama rangtúlkun kom fram áður,
en var þá leiðrétt. Það er .því yísr
vitandi farið með rangt mál í
greininni. Það er hinsvegar rétt að
í samtali við höfunda greinarinn-
ar notaði ég hefndargjöf, en það
var í öðru samhengi.
Þessi leiðrétting finnst mér rétt
að fram komi um leið og ég
harma að hafa gefið tilefni til að
ummæli mín væru rangtúlkuð
með notkun þessa orðs.
Helgi M. Bergs,
bæjarstjóri.
Tveir
fslands-
meistarar
Um helgina var haldið i Reykja-
vík Islandsmeistaramót í lyft-
ingum. Fimm keppendur fóru
frá Akureyri á mótið, og voru
allir f verðlaunasætum, og þar af
tveir Íslandsmeistarar. Haraldur
Ólafsson Þór sigraði í 75 kg.
flokki. Hann snaraði 115 kg og
jafnhattaði 150 eða samtals 265.
Freyr Aðalsteinsson Þór sigraði
i 82.5 kg flokki með 130 og 152.5
kg eða samtals 282.5.
Þarna sigraði Freyr m.a. Þor-
stein Leifsson sem keppti í
sumar á Ólympíjuleikjunum.
I 90 kg flokki varð Kristján
Falsson KA í öðru sæti og
Garðar Gíslason KA í þriðja.
í 100 kg. flokki varð Gylfi
Gíslason Þór í þriðja sæti.
Norðurlandameistaramótið I
lyftingum verður haldið í
Noregi eftir tvær vikur og má
búast við að a.m.k. þrír til fjórir
Akureyringar verði þar í tíu
manna landsliði Islendinga, en
liðið verður valið í þessari viku.
Hæstu
leikir
Á sumardaginn fyrsta kl.
16.00 leikur Fram hér á
Akureyri við KA, og á
sunnudaginn 26. kl. 14.00
kemur Breiðablik og leikur
við KA.
Ólafur Harðarson hlaut sinn fyrsta Islandsmeistaratitil i flokki fullorðinna.
Mynd: Rögnvaldur.
Skíöalandsmótið
Öldungar
keppa
Árlegt íslandsmót öldunga í
blaki fer fram í Reykjavík dag-
ana 1. og 2. maí í íþróttahúsi
Kennaraháskólans.
Hafa 8 karlalið og 4 kvenna-
lið víða að af landinu tilkynnt
þátttöku í mótinu, sem hefst kl.
10.00 föstudaginn 1. maí. Frá
Akureyri fara þrjú lið, karlalið
frá Skautafélaginu og Sund-
félaginu Óðni, og Kvennalið frá
Eik.
í fyrra fór mótið fram á
Siglufirði og varð Eik þá ís-
landsmeistari kvenna, en H. K.
Islandsmeistarar karla. Skauta-
félagið hreppti þá annað sæti.
Skíðalandsmótið var haldið
um páskana á Siglufirði í
góðu veðri og skíðafæri.
Keppendur voru alls staðar að
af landinu og voru að vanda
fjölmargir. Keppni var mjög
jöfn og spennandi i mörgum
greinum, og þá sérstaklega í
göngu. Það vakti athygli hve
sigurvegar skiptust á marga
staði að þessu sinni, en
Ólafsfirðingar fengu nú
harða keppni í göngunni,
sérstaklega frá Reykvíking-
um og Siglfirðingum, en það
voru einmitt heimamenn sem
fengu flesta fslandsmeistara-
titla.
Dalvíkingar fengu nú í fyrsta
sinn íslandsmeistara á skíða-
landsmóti og var það hinn ungi
og efnilegi Daníel Hilmarsson
en hann keppti nú í fyrsta sinn á
landsmóti fullorðinna, og
sigraði í stórsviginu. Nanna
Leifsdóttir brást ekki vonum
Akureyringa en hún sigraði í
stórsvigi og einnig í alpatví-
keppni. Ólafur Harðarson frá
Akureyri hlaut nú sinn fyrsta
fslandsmeistaratitil í fullorð-
innaflokki en hann sigraði í
Alpatvíkeppni karla.
Keppendur frá Akureyri
stóðu sig annars mjög vel á
Leiðrétting
Á dögunum var heldur lítið
gert úr afrekum ungs skíðafólks
frá Akureyri á unglingameist-
aramótinu. Sannmælis skulu
Akureyringarnir njóta, þeir
stóðu sig mjög vel, og komu
heim með mörg verðlaun.
þessu móti og í Alpagreinunum
röðuðu þeir sér í efstu sætin.
Ólafsfirðingar sigruðu í
mörgum greinum og hlutu m.a.
næst flesta íslandsmeistaratitla.
Sérstaklega er það stökkið sem
er sérgrein þeirra, en þeir búa
vel að þeirri íþrótt þar í bæ.
Sökum plássleysis í blaðinu
verður ekki getið um öll úrslit
mótsins að þessu sinni.
Nanna L-eifsdóttir.
Daníel Hilmarsson.
FYRSTA LEIKNUM
LAUK MEÐ JAFNTEFLI
Fyrsti knattspyrnuleikur
sumarsins fór fram á Akur-
eyri á skírdag. Þá kepptu í
vormóti KRA Akureyrar-
félögin Þór og KA. Leikur
þessi var í góðu veðri, en á
leiðinlegum malarvelli.
KA náði forustu á 10. mín.
með marki frá Hinriki, en
þannig var staðan allt fram á
síðustu mín. leiksins þegar
Guðjón jafnaði fyrir Þór eftir
aukaspyrnu. Þórsarar voru betri
í þessum leik, en þeir
réðu betur miðjunni og sóttu
meira en KA. Þeir fengu m.a.
aragrúa af aukaspyrnum rétt
við vítateig KA, en eins og áður
segir tókst þeim ekki að skora
fyrr en á síðustu mín.
Á laugardaginn lék KA æf-
ingarleik við Völsung og lauk
þeim leik einnig með jafntefli,
einu marki gegn einu. I þeim
leik notaði KA þá leikmenn
sem ekki fengu að leika við Þór.
Þórsarar fóru til Reykjavíkur
fyrir skömmu og gerðu þar góða
ferð, en þeir léku fyrst við Val
og töpuðu, eitt mark gegn engu,
og daginn eftir við Þrótt og
gerðu þá jafntefli tvö mörk gegn
tveimur, eftir að hafa komist í
tveggja marka mun.
*
KA og Þór léku síðan aftur á
öðrum degi páska. Þá snérist
dæmið við frá fyrri leik þessara
aðila, en nú voru það Þórsarar
sem skoruðu fyrst og var Guð-
jón þar að verki. Á síðustu mín.
leiksins jafnaði síðan Hinrik
fyrir KA. öfugt við fyrri leikinn
sótti nú KA meira, en báðir
markmenn liðanna stóðu sig vel
og björguðu oft meistaralega.
6•DAGUR
DAGUR•7