Dagur - 22.04.1981, Side 12

Dagur - 22.04.1981, Side 12
BREMSUBORÐAR OG KLOSSAR I FLESTAR TEGUNDIR BIFREIÐA HHBHSSnHBSBHnBSSBBSHHHBHBI Islenskir fiskikassar orðnir að veruleika Næstkomandi laugardag verður formlega tekin í notkun ný og fullkomin sprautusteypuvél til framieiðslu á fiskkössum hjá Piasteinangrun h.f. á Akureyri. Þetta er fyrsta vél sinnar tegund- ar hér á landi og með tilkomu hennar eykst stórlega þjónusta Plasteinangrunar við sjávarútveg- inn, en til þessa hafa fiskikassar úr plasti verið fluttir inn til landsins. Vélin verður formlega tekin í notkun kl. 10 á laugardag og hefur forystumönnum í málefnum sjávarútvegs og iðnaðar verið boðið að vera viðstaddir. Tilrauna- framleiðsla hefur staðið yfir nokkurn tíma og gengið vel. Er nauðsynlegt að fækka fuglunum? „Fugiinn hefur það gott hérna og það er mikið af honunt. Sjómenn, sem fóru austur á björg sögðu að þau væru fuil af fugli. Um 20. maí má gera ráð fyrir að verði farið að síga eftir eggjum,“ sagði Steinunn Sigur- björnsdóttir í Grímsey í samtali við DAG. Steinunn sagði að utan við hafn- argarðinn í Grímsey væri gífurlega mikið af fugli og ljóst að honum hefði fjölgað mikið undanfarin ár. „Nú veiða menn ekki fugl eða taka egg nema handa sér og sínum nán- ustu — öfugt við það sem gerðist hér áður fyrr. Nú er orðið svo þröngt um fuglinn að t.d. er ritan komin alveg niður undir byggð. Hún verpir nú í bakka norður af Sandvíkinni, sem hefur ekki gerst svo lengi sem elstu menn muna,“ sagði Steinunn. Ekki efaðist Steinunn um nauð- syn þess að fara að fækka í ýmsum fuglastofnum, sem verpa í Gríms- ey, en nú flokkast það undir sport að veiða fugl eða síga í björg. Á árum áður byggði fólk lífsafkomu sína m.a. á þessu tvennu og veiddu menn fugl með flekum, sem á voru snörur er fuglinn festist í þegar hann settist á flekana. Þessi veiði- aðferð var bönnuð sökum þess að ráðamönnum þótti hún ómannúð- leg. Steinunn benti hins vegar á að Grímseyingar hefðu aldrei skilið eftir fleka úti á sjó, heldur var farið með þá út á morgnana og róið á milli og fuglinn aflífaður jafnóð- um. Enginn dómur skal á það lagður hér hvort rétt væri að taka upp umrædda veiðiaðferð, en e.t.v. væri rétt að menn huguðu betur að því hvernig nýta megi sjófugl til matar. Frá afhendingu fjölskylduverðlauna í páskatrimminu. Mynd: H.Sv. Bestu páskar í 10 ár — Lyftum verður lokað 1. maí Grímsey er önnur stærsta eyja landsins. Fjölmargir Akureyringar not- færðu sér það eindæma góðvirði, sem var um páskana, til útiveru og skíðaiðkana. Fólk fjölmennti í Hlíðarfjall dag eftir dag, enda var oftast sólskin og næstum logn, með einstaka undan- tekningum þó, sem stóðu sjaldnast lengi. Að sögn ívars Sigmundssonar, framkvæmda- stjóra Skíðastaða, eru þetta bestu páskarnir hvað veður snertir á tíu ára tímabili a.m.k. Snjó hefur hins vegar tekið hratt upp í sólbráðinni og hitanum og nú hefur verið ákveðið að lyftum verði lokað 1. maí. Nokkur skíðamót voru haldin í Hlíðarfjalli um páskana, einkum fyrir börn. Á skírdag var Flug- leiðamót í svigi fyrir krakka, brun- mót fyrir 12 ára og yngri á föstu- daginn langa, svokallað Páska- trimm Flugleiða var á páskadag og á annan í páskum var parakeppni fyrir krakka, þar sem keppt var í tveimur brautum. Um 80 krakkar tóku þátt í svig- keppni Flugleiða, en 126 þátttak- endur voru í páskatrimminu, en þar voru gengnir 3 km og 10 km. Verðlaun voru veitt þeim sem fyrstir komu í mark og urðu það Friðrik Einarsson í 3 km göngunni og Jón Konráðsson í 10 km göng- unni, báðir keppnismenn frá Ólafsfirði. Fyrstur trimmara í lengri göngunni varð hins vegar Sigurður Aðalsteinsson. Fjölskyld- ur Péturs Pálmasonar, Teits Jóns- sonar og Gunnars Arasonar fengu verðlaun fyrir mestu fjölskyldu- þátttökuna og Hjördís Stefánsdótt- ir fékk verðlaun sem aldursforseti. Dregið var úr nöfnum allra þátt- takenda og var það Margrét Vil- helmsdóttir, sem var dregin út, og fékk ferð til Oslóar. Hugsanlegt er að þetta páska- trimm á vegum Flugleiða, Skíða- ráðs Akureyrar og Skíðastaða verði að árlegum viðburði, að sögn Kol- beins Pálssonar, yfirmanns mark- aðsdeildar innanlandsflugs, sem afhenti verðlaunin. Fáir ferða- menn Tiltölulega fáir ferðamenn lögðu leið sína í Mývatns- sveit um páskana. Að sögn heimamanna er talið að fleiri hafi farið úr sveitinni suður á bóginn um páskana, en komu til að dvelja þar. Á skirdag var stórbingó, á laugardag var skíðaganga fyrir alla fjölskylduna á Hlíðardal og mót í svigi og stórsvigi á annan í páskum. Sama dag var diskótek fyrir unglinga og síðar um kvöldið dansleikur fyrir full- orðna. Veður var einstaklega gott yfir páskana i Mývatns- sveit. Húnavaka Málverkasýning Svein' bjarnar sló í gegn Húnavaka hófst um síðustu helgi á Blönduósi og lýkur n.k. laugardag. Þá átta daga sem vakan stendur eru fimm kvik- myndasýningar, tvær sýningar, þ.e. málverkasýningu og grafik- myndasýning, og fimm dans- leikir. Þess má geta að kvik- myndin Punktur, punktur, komma, strik var frumsýnd á Norðurlandi á Húnavökunni. „Það sem hefur slegið í gegn á Húnavökunni er óumdeilanlega málverkasýning Sveinbjarnar Tónlistarskóiinn: Fyrstu vortónleikarnir Á sumardaginn fyrsta efnir Tónlistarskólinn til sinna fyrstu vortónleika i Akureyrarkirkju og hefjast tónleikarnir klukkan 17. Þarna flytja orgelnemendur tónlist eftir Bach, Buxtehude og Franck. Einnig koma fram nem- endur í blokkflautusveit og leika nokkur tónverk í breytilegri hljóð- færaskipan. Aðgangur er ókeypis. Blöndals, sem ættaður er frá Siglu- firði, en hefur búið á Skagaströnd lengi. Hann opnaði málverkasýn- ingu á fyrsta degi vökunnar og þá þegar kom múgur og margmenni á sýninguna. Það var alveg einstakt að vera þarna inni, en á fyrsta hálftímanum seldust 14 af þeim 16 olíumálverkum sem voru til sölu. Menn spurðu ekki um verð, heldur sögðu þeir einfaldlega að þeir ætluðu að kaupa mynd“, sagði Magnús Ólafsson, aðstoðarfram- kvæmdastjóri Húnavöku í samtali við DAG. Sýningunni átti að vera lokið, en vegna mikillar aðsóknar verður sýningin opin n.k. föstudag og laugardag. í dag, miðvikudag, var opnuð grafíksýning og í kvöld er húsbændavaka og dansleikur. Á sumardaginn fyrsta, verður m.a. sumarskemmtun, Grunnskól- ans á Blönduósi og fjölskyldudans- leikur verður um miðjan daginn. Á föstudag verður skemmtidag- skrá samkórs vökumanna, ball um kvöldið og á laugardagskvöld, og þar með lýkur Húnavöku. ffi ra i±3 S| Isl ÖJL - Ju 0 Tekjuraf ferðamönn- um ( nýútkomnu hefti af Hagtíð- indum áætlar Seðlabanki (s- lands gjaldeyristekjur lands- ins af erlendum ferða- mönnum, þ.e. eyðslu hér á landi ásamt fargjaldatekjum, 231 mlllj. nýkr. árið 1980 á móti 158 millj. nýkr. árið 1979. Þá voru útgjöld ísiend- inga vegna ferðalaga erlend- is áætluð 203 millj nýkr. 1980 á móti 136 millj nýkr. árið áð- ur. § Ferðamanna- matseðlar Veitingastaðir á hinum Norð- urlöndunum hafa ýmist þegar tekið eða eru í þann veginn að taka upp sérstaka „ferða- mannamatseðla," þ.e. veita ákveðnar máltíðir á föstu verði, sem er hið sama um allt landlð og oft talsvert lægra en almennt verð á viðkomandi veitingastað, án þess þó að dregið sé úr þjónustu eða gæðum matar- ins. Eru þessar máltíðir fáan- legar á ölium matmálstímum, en í Svíþjóð þó aðeins fram til kl. 19 á kvöldin. Ails staðarer veittur verulegur afsláttur fyr- ir börn og eru aldursmörk oft mjög rúm. Er fjölskyldum þar með auðveldað að sækja veltingastaði á orlofsferðum sínum um þessi lönd. Hér á landi hyggst SVG taka upp svipað fyrirkomulag. f Útlendingar til svelta- starfa Árlega berast mörg bréf frá ungu fólki í öðrum löndum til bændasamtakanna, þar sem óskað er eftir að fá vinnu í sveit. Flestir vilja vera tiltölulega stuttan tíma, 1-2 mánuði og í flestum tilvikum eru ekki gerðar kröfur um kaup. Það vill fá að dvelja á sveitaheim- ilum og vinna fyrfr fæði og húsnæðl. Margir sem skrifa hafa ekki unnið í sveit áður en hafa áhuga á að koma til íslands og kynnast landi og þjóð. Vilja nota skólafríið á þennan hátt. Einnig hafa bor- ist bréf frá nokkrum sænsk- um og norskum stúlkum, sem eru vanar sveitastörfum. Sumar hverjar hafa unnið við afieysingar. Þessar stúlkur hafa margar hverjar verið á bændaskólum. Þeir bændur og húsfreyjur sem hafa áhuga á að ráða er- lendt ungmenni í vlnnu ( sumar ættu að snúa sér sem fyrst til Gísla Krfstjánssonar hjá Búnaðarfélagi fslands.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.