Dagur - 14.05.1981, Page 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
, SIGTRYGGUR & PÉTUR
1 AKUREYRI
64. árgangur
mmammmmmmmm
Akureyri, fimmtudagur 14. maí 1981
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
38. töiublað
KREFJAST VERÐUR LANGTIMA-
SAMNINGA UM ÚTFLUTNING
- SEGIR ÞORSTEINN ÞORSTEINSSON A SAUÐÁRKRÓKI
UM STAÐARVAL FYRIR STEINULLARVERKSMIÐJU
Myndin var tekin á flugvellinum á
Akureyri, en Grænlcndingarnir ætluðu
til Kópaskers. F.v. Kaj, Carl Smonsen,
og Eskild. Carl hefur dvalið á fjárbúi i
Evjafirði í vetur. Mvnd: á.þ.
Grænlendingar
kynna sér
sauðfjárrækt
á Norðurlandi
Síðustu þrjú árin hafa græn-
lenskir fjárbændur átt þess kost
að senda til íslands unga pilta,
sem verið hafa við nám í sauð-
fjárrækt við tilraunastöðina í
Upernaviarssuq á suður Græn-
landi. Piltarnir hafa haft vetur-
setu á fjárbúum — aðallega
norðanlands. Hefur hér verið
um að ræða sex pilta árlega. Má
segja að veturseta hér sé orðinn
fastur liður í slíku námi við til-
raunastöðina, sem verklegur
liluti sauðfjárræktarnáms.
Tilhögun þessi hefur gefist vel að
dliti þeirra sem hlut eiga að máli
og til tals hefur komið að fjölga
þeim, sem geta dvalið hér hverju
sinni. Til að ræða þau mál og önnur
komu hingað til Akureyrar tveir
Grænlendingar í síðustu viku. Þeir
heita Eskild Jeremiassen, formaður
hagsmunafélags Sauðfjárræktar-
bænda og Kaj Egede, sauðfjár-
ræktarráðanautur og skólastjóri
tilraunastöðvarinnar í Upernavi-
arssuq.
Grænlendingarnir segja að þeir
geti margt lært af Islendingum í
sambandi við sauðfjárrækt og þess
er skemmst að minnast að s.l. vetur
kenndu íslendingar þeim m.a. að
prjóna úr ull.
„Við ætlum að kanna innan-
landsmarkaðinn betur til að vita
nákvæmlega hvers konar vörur
er best að hafa á boðstólum og á
hvaða verði. Þegar þessari
könnun lýkur er gert ráð fyrir að
hefja söfnun hlutaf járloforða og
verður því verki væntanlega lok-
ið í ágúst, en þá gerum við ráð
fyrir að ríkisstjórnin muni velja
með hvorum aðilanum hún kýs
að starfa“, sagði Þorsteinn
Þorsteinsson, bæjarstjóri á
Sauðárkróki um málefni fyrir-
hugaðrar steinullarverksmiðju.
Iðnaðarráðherra hefur lagt fram
á alþingi frumvarp um heimild
ríkisins til að taka þátt í stein-
ullarverksmiðju. Gert er ráð
fyrir að ríkið eigi 40% hlutaf jár í
verksmiðjunni. Hvorki er til-
greint hvar verksmiðjan muni
verða reist, né heldur hve stór
hún verður. Eins og kunnugt er
hafa sunnlendingar mikinn áh-
uga á að verksmiðjan verði
byggð í Þorlákshöfn.
Sunnlendingar halda því fram að
unnt sé að flytja út steinull, en því
mótmæla Sauðkrækingar og telja
að sé rétt að halda sig einvörðungu
við innanlandsmarkað — í byrjun
a.m.k. „Ég býst við að ríkisstjórnin
vilji skoða betur þann útflutnings-
möguleika sem Jarðefnaiðnaður
hefur haldið fram að sé fyrir hendi.
Það hlýtur að vera krafa hins opin-
bera að liggi fyrir langtíma samn-
ingur um sölu á steinull út á verði
sem er arðbært fyrir verksmiðjuna.
Við teljum að séu litlar líkur á að
það sé hægt og það leiði til þess að
rnenn fallist á okkar rök — þ.e. að
best sé að hafa fjárfestinguna í lág-
marki — svo lága að innanlands-
markaðurinn einn geti borið slíka
fjárfestingu og að verksmiðjan sé
arðbær. Síðar má huga að útflutn-
ingi þegar tækni-, vöru- og mark-
áðsþekking er til staðar í fyrirtæk-
inu,“ sagði Þorsteinn.
Bæjarstjórinn sagði einnig að
vissulega hljómaði það vel þegar
lofað væri miklum útflutningi og
miklum gjaldeyristekjum, en gerði
ráð fyrir að annað yrði upp á ten-
ingnum þegar raunveruleikinn
blasti við. Samkvæmt áætlunum
mundi verksmiðjan í Þorlákshöfn
kosta sem svarar verði eins skut-
togara meira en fyrirhuguð verk-
smiðja á Sauðárkróki, „bara til þess
að hafa útflutningsmöguleika, sem
ekki getur gefið neitt af sér,“ sagði
Þorsteinn að lokum.
í athugasemdum við lagafrum-
varpið segir m.a. að enn séu nokkur
óvissuatriði varðandi útflutning og
því verði að telja nauðsynlegt að
liggi fyrir samningar uni sölu er-
lendis, áður en ríkisstjórnin ákveði
þátttöku í stofnun hlutafélags um
slíkan útflutning.
Reiðhjóla-
keppni á
Akureyri
Einn liður umferðarfræðslu er
keppni í reiðhjólaakstri og á laug-
ardag gekkst Umferðarráð fyrir
slíkri keppni við Oddeyrarskólann á
Akureyri í samvinnu við lögregluna
og einnig var keppt í Reykjavík.
Tólf ára börn kepptu í ökuleikni og
tóku áður skriflegt próf. Sigurveg-
arar urðu Einar B. Malmquist, sem
jafnframt er mcð hæstu stigatöiu
yfir landið, Hjalti Ómar Ágústsson,
Kristjana G. Bergsteinsdóttir og
Agnar Guðmundsson. Alls luku 13
keppni. Fjögur efstu keppa síðan
innbyrðis í haust og sigurvegari fer
að líkindum í þriggja vikna þjálfun í
reiðhjólaakstri til Reykjavikur og
tekur þátt í alþjóðlegri kcppni 1982,
ef allt fer að óskuni. Myndin sýnir
keppendur ásamt Birni Mikaels-
syni, lögreglumanni, sem annaðist
framkvæmd keppninnar.
FÓLKSFLÓTTINN TIL REYKJA-
VIKUR HEFUR STÓÐVAST
- EN FÓLKI FER ENN FÆKKANDI í SVEITUM LANDSINS, ERU NIÐURSTÖÐUR I
ÁRSSKÝRSLU FRAMKVÆMDASTOFNUNAR UM ÞRÓUN SÍÐASTA ÁRATUGS
Miklar breytingar urðu á
mannfjöldaþróun innanlands á
síðasta áratug. Fólksstraumur-
inn til Reykjavíkur stöðvaðist
og fólksfjöldi óx í öllum lands-
hlutum en mismunandi mikið. I
sveitum landsins heidur þó á-
fram að fækka. Þetta eru helstu
niðurstöður í ársskýrslu Fram-
kvæmdastofnunar varðandi
framvindu byggðamála síðustu
tíu árin.
Meðalfólksfjölgun yfir allt landið
varð aðeins 1,1 % og er það minnsta
hlutfallslega tíu ára fjölgun íbúa
landsins frá áratugnum 1930-40.
Þetta stafar einkum af fækkun
fæðinga og brottflutningi af land-
inu, umfram þá sem fluttu til
landsins, sem nam 3,5%.
Árið 1970 bjuggu tæplega 28.200
manns í sveitum, en að tíu árum
liðnum var þessi tala orðin tæplega
24.100, sem er 14,6% fækkun. íbúar
þéttbýlisstaða voru í lok síðasta árs
204.700 og er það 15,9% aukning
frá 1970. Nú búa rétt tæp 90%
landsmanna í þéttbýli, alveg gagn-
stætt því sem var fyrir einni öld.
Þó fólksflóttinn til Reykjavíkur
hafi stöðvast er ekki þar með sagt
að ekki hafi orðið aukning á suð-
vesturhorni landsins, því þar varð
aukning fólksfjölda mest. Fólks-
fjöldi á höfuðborgarsvæðinu óx
jafnt landsmeðaltali, en á Suður-
nesjum varð hvorki meira né
minna en fjórðungs aukning, eð
25%. Utan Suðvesturlands óx
mannfjöldi örast á Norðurlandi
eystra á nýliðnum áratug, eða úr
22.200 í 25.700, sem er 15,6%. Ak-
ureyringum fjölgaði um 2.650 eða
um 25%. Á Húsavík og Dalvík
fjölgaði um 20% og 10% fjölgun
varð á öðrum þéttbýlisstöðum á
Norðurlandi eystra.
Fólksfjölgun á Norðurlandi
vestra varð mjög hæg á síðasta
áratug, eða 7,5%. Aðeins á Vest-
fjörðum varð minni aukning eða
3,9%. Mest munar um 566 íbúa
aukningu á Sauðárkróki. Á
Hvammstanga fjölgaði um 227 eða
62,9% sem er næst mesti hlutfalls-
legi vöxtur þéttbýlisstaðar á eftir
Grindavík. Hins vegar fækkaði á
Siglufirði um 156, sem er 7,2% á
þessum 10 árum.
Blanda 20%
hagkvæmari
Fruntvarp til laga um
virkjunarframkvæmdir næstu
10-15 árin var lagt fram á
Alþingi á mánudag. Fkki er
tekin ákvörðun um forgangs-
röð, en gert ráð fyrir að rík-
isstjórnin ákveði fram-
kvæmdaröðina á haustþingi.
I greinargerð með frumvarp-
inu kemur fram, að hagkvæmni
Blönduvirkjunar, miðað við
krónutölu á hverja kílówatt-
stund á ári er mun meiri en
Fljótsdalsvirkjunar, eða
rúmlega 20%. Auk þessara
tveggja virkjana er leitað heim-
ilda fyrir fjórar vatnsaflsveitur
og stækkun Hrauneyjarfoss-
virkjunar.
AUGLÝSINGAR OG ÁSKRIFT: 24167- RITSTJÓRN: 24166 OG 21180