Dagur - 14.05.1981, Blaðsíða 6
Þessi lyftari ertil sölu.
Lyftugeta 2,1 tonn.
Lyftuhæð 2,70 m.
Nánari upplýsingar í síma
25548.
— Guðrún
Magnúsdóttir...
(Framhald af bls. 5).
Auði Jónsdóttur, Brynja gift Har-
aldi Ólafssyni og Björn, kvæntur
Huldu Baldvinsdóttur.
Þegar barnabörnin fæddust og
uxu úr grasi fjölgaði drjúgum
geislunum, sem glöddu Guðrúnu
og veitti lífi hennar ríka fyllingu.
Með ástvinahópnum átti hún
ómældar unaðsstundir.
Á þeim árum, sem þau Guðrún
og Hermann stóðu í eldlínu starfs-
ins herjaði hinn „hvíti dauði“ án
afláts og skildi víða eftir djúp og
dreirug spor. Hin kalda hönd hitti
heimili þeirra. Hjónin veiktust
bæði og urðu að fara á Kristnes-
hæli. Þar lézt Hermann eftir 13 ára
þungbært stríð, en Guðrún, sem
sjúkdómurinn hafði farið um mun
vægari höndum, komst á ný út í
lífið og lét í engu bugast.
Ótaldar urðu ferðir Guðrúnar í
Kristnes til fundar við fársjúkan
eiginmann sinn, en hún sýndi hon-
um mikla umhyggju og tryggð. Get
ég borið um þetta af kunnleikum,
þar sem ég átti dvöl á Kristneshæli
um það leyti, sem Hermann var að
heyja þar sína síðustu baráttu. En
hann lézt 2. maí 1958.
Við heimsóknir Guðrúnar í hæl-
ið urðu kynni okkar. Ræddum við
alloft saman og féll vel á með okk-
ur. Kom aldursmunur og ólíkt lífs-
hlaup þar ekki að sök.
Þessi kynni kólnuðu ekki þótt
árin liðu og fundum fækkaði mjög
— eða a.m.k. sýndi Guðrún mér
ræktarsemi fram á síðustu stund,
væri henni þess kostur að ná til
mín. Á ég um þetta góðar
minningar og finn mér skylt að
bera fram þakkir við þau þáttaskil,
sem orðin eru.
Mér fannst Guðrún ganga til
móts við örlögin með hetjubrag —
með skapstyrk og öruggu trausti á
hann, sem leitar og finnur og „týnir
engri sál.“ Henni var fullljóst að
„örstutt er bil milli blíðu og éls/og
brugðist getur lánið frá morgni til
kvelds". En hún vissi jafn vel að
höndin er sterk, „er heldur þessum
reyr/um hæstan vetur, svo hann
ekki deyr“ — og að leiðin verður að
lyktum lögð „til borgar, sem aldrei
hrynur."
Heimili sitt átti Guðrún
Magnúsdóttir í Innbænum á Akur-
eyri að Aðalstræti 54, en síðustu
árin var hún á Dvalarheimilinu
Hlíð. Heilsa hennar var brostin og
þrekið þrotið, enda tíðum verið
mikið á það lagt á langri vegferð.
Börnin hennar ásamt fjölskyldum
sínum fyígdu henni af trúfesti fram
til hinsta kvelds, og létu henni í té
hlýju og umhyggju. Og traustir
vinir lögðu sitt af mörkum. Kom
það gjarnan glöggt fram þegar við
hana var rætt, að henni fannst hún
hafa margt að þakka. Sátt mun hún
hafa verið við lífið við komu sólar-
lagsins. Og sælt er það mannsbarn,
sem að lokinni för um jarðarsvið
finnur sinn auð í fegurri heimi —
fær „þegnrétt í ljóssins ríki.“
Jórunn Ólafsdóttir,
frá Sörlastöðum.
6.DAGUR
Lögmannshlfðarkirkja. Messað
sunnudaginn 17. maí kl. 14.00.
Sumri fagnað. Sálmar: 476, 9,
162, 481,518. P.S.
Dvalarheimilinu Hlfð hefur
borist ágóði af hlutaveltu frá
Ægi Ágústssyni Hrafnagils-
stræti 37, kr. 200,00. Með þökk-
um móttekið, forstöðumaður.
Gjöf til minnisvarðans um
fyrstu kristniboðana frá Þjóð-
hátíðarsjóði kr. 15.000,00. Bestu
þakkir Pétur Sigurgeirsson.
Kökubasar verður haldinn í
Laxagötu 5, sunnudaginn 17.
maí kl. 2 e.h. Körfuknattleiks-
deild Þórs.
Kökubasar. Geðverndarfélag
Akureyrar verður með köku-
basar í Alþýðuhúsinu laugar-
daginn 16. maí klukkan þrjú
e.h. Komið og styðjið gott mál-
efni. Félagar: brauðinu veitt
móttaka í húsinu frá kl. 13 til
14.30. Nefndin.
..... 1 -.•........
AUGIÝSIÐ í DEGI
I.O.G.T. stúkan Brynja fundur í
Friðbjarnarhúsi mánudaginn
18. apríl kl. 20.30. Fundarefni:
Kosning fulltrúa í fulltrúaráð
I.O.G.T. Æ.t.
Kvenfélag Alþýðuflokksins á
Akureyri heldur fund að
Strandgötu 9, sunnudaginn 17.
maí kl. 20.30. Dagskrá: 1. Rætt
um fyrirhugaða ráðstefnu á
Húsavík 29. og 30. maí n.k. 2.
Herdís Ingvadóttir segir frá ferð
á leiðbeinendanámskeið í
Reykjavík 8. og 9. maí s.l. 3.
Önnur mál. Stjórnin.
Sálarrannsóknarfélagið á Akur-
eyri. Fundur verður haldinn á
Hótel Varðborg laugardaginn
16. maí kl. 4. Gestur fundarins
verður séra Sigurður Haukur
Guðjónsson. Allir félagar vel-
komnir. Stjórnin.
Alþýðuflokksfólk. Bæjarmála-
ráðsfundur verður haldinn í
Strandgötu 9 mánudaginn 18.
maí kl. 20.30. Stjórnin.
Skógræktarfélag Tjarnargerðis,
heldur félags- og skemmtifund
að Þingvallastræti 14 laugar-
daginn 16. maí kl. 14.00.
Stjórnin.
I.O.O.F. 2 — 1635158 'A Lokaf.
Lionsklúbbur Akureyrar. Fund-
ur laugardaginn 16. maí kl. 7
(konukvöld í Sjálfstæðishús-
inu).
Frá Þelamerkurskóla
Skólaslit verða laugardaginn 16. þ.m. kl. 14.00.
Sýning á vinnu nemenda verður opin eftir kl. 16.00
á föstudag 15. þ.m. og einnig skólaslitadaginn.
Skólastjórl.
AKUREYRINGAR
Lóðahreinsun og fegrunarvika
Eigendur og umráðamenn lóða á Akureyri eru
áminntir um að hreinsa af lóóum sínum allt sem er
til óþrifnaðar og óprýði og hafa lokið því fyrir 27.
maí n.k. (Ath. óheimilt er að setja garðsorp í sorp-
tunnur).
Hin árlega fegrunarvika er ákveðin 18. til 25. maí
n.k. Starfsmenn Akureyrarbæjar munu fjarlægja
rusl sem hreinsað verður af íbúöarhúsalóðum og
sett í hrúgur á götukanta framan við lóðir eftir-
greinda daga:
18. maí:
19. maí:
20. maí:
21. maí:
22. maí:
25. maí:
Innbær og suðurbrekka sunnan Þing-
vallastrætis og austan Mýrarvegar.
Lunda- og Gerðahverfi.
Miðbær og ytri brekkur norðan Þing-
vallastrætis og austan Mýrarvegar.
Oddeyrin.
Hlíðahverfi.
Holtahverfi og Síðuhverfi.
Upplýsingar varðandi hreinsunina verða gefnar á
skrifstofu heilbrigðisfulltrúa, Ráðhústorgi 3, ofan-
greinda daga kl. 10-12 f.h., sími 21000. Geymió
auglýsinguna.
Atvinnurekendur eru sérstaklega hvattir til að gera
hreint fyrir sínum dyrum.
Heilbrigðisfulltrúinn Akureyri.
Ferming í Olafsfirði
Eftirtalin börn verða fermd í
Ólafsfjarðarkirkju sunnudaginn
17. maí 1981. Prestur er Sr. Stefán
Snævarr.
Kl. 10.30 f.h.
Anna Sveinsdóttir,
Kirkjuvegi 4.
Brynjar Sæmundsson,
Bylgjubyggð 20.
Guðmundur Páll Skúlason,
Ólafsvegi 30
Guðrún Jónsdóttir,
Hrannarbyggð 8
Halldóra Víglundsdóttir,
Ólafsvegi 45.
Jóakim Ólafsson,
Gunnólfsgötu 10.
Laufey S. Birgisdóttir,
Hrannarbyggð 14.
Lára Viðarsdóttir,
Túngötu 11.
Ólafur H. Björnsson,
Hlíðarvegi 61.
Selma Vigfúsdóttir,
Hornbrekkuvegi 11.
Sigrún Eva Ármannsdóttir,
Ægisgötu 1.
Sigurgeir Frímann Ásgeirsson,
Hlíðarvegi 51.
Sigurgeir Svavarsson,
Hlíðarvegi 67.
Snjólaug Þyrí Stefánsdóttir,
Hlíðarvegi 63.
Úlfar Agnarsson,
Kirkjuvegi 18.
Þorgerður Sigríður Hafsteinsd.,
Hrannarbyggð 5.
Kl. 13.30 e.h.
Bjarki Sigurðsson,
Ólafsvegi 43
Helga Ingimarsdóttir,
Ægisgötu 20
Hjördís A. Aradóttir,
Ægisgötu 12.
Kristín Aðalsteinsdóttir,
Hlíðarvegi 20.
Ragnar Þór Björnsson,
Hrannarbyggð 18.
Randver Sigurðsson,
Hrannarbyggð 19.
Sigríður I. Helgadóttir,
Kirkjuvegi 6.
Sigurbjörg Gunnólfsdóttir,
Hrannarbyggð 13.
Sigurpáll Þ. Gunnarsson, ,
Túngötu 9.
Sólveig I. Skúladóttir,
Ægisgötu 22.
Sævar Guðjónsson,
Ægisgötu 10.
Unnur Einarsdóttir,
Hrannarbyggð 15.
Valgerður Stefánsdóttir,
Ólafsvegi 22.
Nýja bíó sýnir:
BRUBAKER
Fangaverðirnir vildu nýja fangels-
isstjóran feigan. Hörkumynd með
hörkuleikurum, byggð á sönnum
atburðum. Ein af bestu myndum
ársins, sögðu gagnrýnendur vestan
hafs. Aðalhlutverk: Robert Red-
ford, Yaphet Kotto og Jane
Alexander.
SÝNINGUM FER AÐ LJÚKA.
Næsta mynd:
HARÐJAXL ( KONG
KONG
(Flatfoot gooo Eoot)
Harðjaxlinn Bud Spencer á nú í ati
við harðsvíruð glæpasamtök í aust-
urlöndum fjær. Þar duga þaungu
höggin best. Aðalhlutverk: Bud
Spencer og A1 Lettiri.
Á sunnudag verður myndin Inter-
national velvet sýnd klukkan 5. í
Aðalhlutverki er Tatum O’Neel.
Þetta er mynd sem enginn ætti að
láta fram hjá sér fara.
BORGARBÍÓ
SÝNIR:
í kvöld kl. 9 sýnir Borgarbíó hina
sprenghlægilegu gamanmynd
( LAUSU LOFTI
með Robert Hays, Julie Hagerty og
Peter Graves í aðalhlutverkum.
Mynd þessi fékk mjög góða aðsókn
í Reykjavík og var jólamynd Há-
skólabíós. Myndin gerist að mestu í
loftinu, og að sjálfsögðu í lausu
lofti.
Bókauppboð
Bækur á næsta uppboð
mitt þurfa að berast mér
fyrir 1. júní n.k.
Jóhannes Ólf Sæmundsson.
Verðlaunaafhend-
ing Skíðaráðs
Sunnudaginn 24. maí verður
verðlaunaafhending Skíðaráðs í
Sjálfstæðishúsinu. Kl. 13 korr -
12 ára og yngri og 13 ára og
eldri kl. 15.30. Nánar verður
greint frá verðlaunaafhending-
unni í næstu viku.
«t:
Hugheilar þakkir fyrir aðstoð, vinarhug og samúð við andlát og
útför
JÓHANNESAR KRiSTJÁNSSONAR,
forstjóra,
Kringlumýri 22, Akureyri.
Ingunn Kristjánsdóttir,
Anna S. Jóhannesdóttlr, Stefán B. Sigurfisson,
Kristján E. Jóhannesson, Heiga A. Jóhannsdóttir,
Hrönn Jóhannesdóttir, Ketill Guðmundsson,
Jóhannes M. Jóhannesson,
Jón Frifiriksson, Randf Friðriksson,
og barnabörn.